Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2004, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2004, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 7 0. JÚLl2004 Fréttir DV Össur Skarphéðinsson ! „Eiríkur færði mjög sannfær- andi rök fyrir máli sínu og það er óhjákvæmilegt að Al- þingi taki mið afþeim. Ungíhald skammar Davíð Oddsson og Guðni Ágústsson trúa að Ólafur Ragnar Grímsson skrifi undir ný Qölmiðlalög. Davíð segir mótmælafundinn hafa verið fámennan. Guðni segir lögfræðinga skrifa undir hvaða vitleysu sem er. Davíð Þór vanhæfur Einn þeirra sem kom fyrir allsherjar- nefnd Alþingis í gær- morgun var Davíð Þór Björgvinsson einn af höfundum skýrslunnar sem íjöl- miðlalögin „byggja" á. Vaknað hefur athyglisverð spuming um stöðu Davíðs Þórs sem nýskipaðs dómara við Mannréttindadómstól Evrópu. Allt bendir til að fjölmiölalögin fari fyrir dóm- stóla hérlendis og raunar einnig fyrir Mannréttinda- dómstólinn. Ef slrkt gerist verður Davíð Þór að lýsa sig vanhæfan og vfkja sæti úr dómnum vegna afskipta hans af málinu hér heima. LofarGuð fyrir frelsið „Ég sé ekki annað en að heilsa ríkis- stjómarinnar sé eins og veðrið, góð. Hún er sameinuð og sterk," sagði GuðniÁgústs- son í gær er hann sté út úr stjómarráðinu að afloknum ríkis- stjómarfundi. Guðni gaf ekki mjög mikið fyrir ályktun ungra framsóknarmanna þess efnis að ný fjölmiðlalög verði ekki samþykkt að svo stöddu. „Það er Guði sé lof frelsi í þessu landi. Við tökum auð- vitað mark á ungum fram- sóknarmönnum, en það er ekki alltaf hægt að fara eftir öllu sem þeir segja.“ Davíðlangarí sveit Rfldsstjómarfund- urinn í gær var held- ur óvenjulegur. Sum- ir ráðherra komu langt að á fúndinn og vom þó engin stór- mál á formlegri dag- skrá fúndarins. Einna merki- legasta málið var „frágangur á uppteiknun af skjalda- rmerki fslands". Aðspurður hvers vegna ráðherramir hefðu verið dregnir á lítt mikilvægan fund sagði Dav- íð í gær hlæjandi: „Meðan þing situr, þó það sé sumar, þá em ríkisstjómarfundir haldnir reglulega. Mig langar að vera í sveitinni líka, en fyrst að ég er héma þá geta þeir líka komið." Kóngurinn og forsætisráöherrann. Davið að koma af ríkisstjórnarfundi ígær. I baksýn konungurinn að afhenda þjóð- inni stjórnarskrána frá 1874.„Mér dettur ekki til hugar eitt augnablik að forsetinn skrifi ekki undir nýju lögin/'sagði Davið. „Davíð Oddsson má varla hafa skoð- un á nokkm máli, þá tala vinstrimenn um að hann sé í bræðis- kasti. Hvað yrði sagt ef Davíð kallaði menn djöfulsins aumingja og dmslur og segði þá hafa skítlegt eðli þegar mál væm rædd á þingi?" spyr formað- ur Sambands ungra sjálf- stæðismanna (SUS), Haf- steinn Þór Hauksson, á frelsi.is. Hafsteinn Þór er mjög hneykslaður á hversu „orðljótur" Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, er orðinn. Eiríkur Tómasson sagði Qölmiðlafrumvarpið nýja vera brot á stjórnarskrá Gjörbreytt staða að mati Össurar Eiríkur Tómasson lagaprófessor og einn helsti sérfræðingur þjóðar- innar í stjórnskipunarrétti sagði alls- herjarnefnd Alþingis í gærmorgun að það væri bjargföst sannfæring sín að nýja fjölmiðlafrumvarpið væri brot á stjórnarskxá. Össur Skarphéð- insson formaður Samfylkingarinnar sem tekið hefur sæti í allsherjar- nefnd segir að hér sé komin upp gjörbreytt staða í málinu. „Eiríkur færði mjög sannfærandi rök fyrir máli sínu og það er óhjálcvæmilegt að Alþingi taki mið af þeim,“ segir Össur Skarphéðinsson. Hvaö liggur á? Fram kom í máli Eiríks Tómas- sonar hjá nefrídinni að Alþingi geti hugsanlega fellt fjölmiðlalögin úr gildi, en með því að setja samtímis ný lög um sama mál, er brotið gegn stjórnarskránni því þá er verið að ganga á rétt Júns handhafa löggjaf- arvaldsins þ.e. forseta íslands. Eiríkur vitnaði í rit Ólafs Jóhann- essonar, Stjórnskipun íslands frá 1960, en þar segir á blaðsíðu 298, að þegar Alþingi hafi afgreitt lagafrum- varp, fari það tU forseta til staðfest- ingar, og sé þá úr höndum þingsins og verði ekld afturkaUað úr því. Það Eyjólfur Kristjánsson tónlistarmaður:„Það liggur náttúrulega á að gera heiminn betri en hann er. Sjálfur er ég alltafaö spila og þaö sem er á döfinni hjá mér er bara að spila og syngja og verða betri í golfi. Ég er svona að reyna að spila goifen er tiltölulega nýbyrjaður. Ég hef rosalega gaman afþessu og spilaði mikið f fyrrasumar. Ég er aö detta I frí núna og ætla að nýta tímann I golfið." er því niðurstaða Eiríkis að þingið geti hugsanlega feUt fjölmiðlalögin úr gUdi, en ef önnur lög eru sett í staðinn sé það brot á stjórnar- skxánni. Þetta segfr hann stafa af því að Aiþingi sé einugis annar handhafi löggjafarvalds, hinn sé forsetinn. hann telur því að Al- þingi sé óheimUt að ganga lengra í málunum nú. Össur Skarphéðinsson segir að öll máls- Eiríkur Tómasson Alþingi get- ur hugsanlega fellt fjöimiðiaiög- in úr gildi, en með þvi að setja samtímis ný iög um sama mál, er brotið qbqo stjórnarskránni. meðferðin hingað tU staðfesti það að ríkisstjórnin ætlar sér að neyta afls- munar á Alþingi tU að koma þar í gegn þessum „ólögurrí' eins og hann orðar það. „Þeir æda sér að taka af þjóðinni rétt hennar tíl að tjá sig um málið í þjóðar- atkvæða- greiðslu hvað sem tautar raular," segir Öss- og undirskrift forsetans „Mér dettur ekki til hugar eitt augnablik að forsetinn skrifi ekki undir nýju lögin. En þá myndi hann einfaldlega vera kominn út í stjórnmál upp á gamla mátann. Hann var ágætur í þeim fyrir sína vísu, en fékk ekki mikinn stuðning þegar hann var í þeim á fullu. Skrifi hann ekki undir er hann kominn aftur í stjórnmálin á fullan leik,“ svaraði Davíð Oddsson forsætisráðherra í gær spurningu DV um hvaða staða verði komin upp í stjórnmálun- um ef Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, skrifar ekki und- ir nýju fjölmiðlalögin eftir samþykkt meirihluta Alþingis á þeim. Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins og landbúnað- arráðherra, var í gær heldur ekki í vafa. „Ég hef enga trú á því að forseti íslands synji þessum lögum. Verði frumvarpið að lögum er þetta mikil breyting, ekki síst með því að gildis- takan er sett aftur um þrjú ár. Forset- inn er þjóðhöfðingi okkar og áttar sig á því. Ég æda því ekki að vera með neinar getsakir um þá stöðu að for- setinn synjar þessum lögum. Ég trúi því að forsednn skrifi undir,“ sagði Guðni. Léttvægt fundinn fundur Ríkisstjómin kom saman í gær og vom fjölmiðlalögin meðal þess sem ræd var, án þess að nokkur ákvörðun hafi verið tekin, enda telur Davíð að þau mál séu öll í eðlilegum farveg. „Við fórum yfir málin. Ég var forvitinn eftir að hafa verið erlendis og vil fylgj- ast með. Málið er sýnist mér í óskap- lega góðum farvegi og mjög góð lausn fundin, sem ýtfr til hliðar öllum vandamálum sem snúa að stjómar- skránni, bæði hvað varðar 26. grein- ina og að ekki þarf að fara út í flóknar lögfræðilegar deilur um með hvaða hætd eigi að standa að þjóðarat- kvæðagreiðslu. Menn geta þá fram að kosningunum 2007 unnið að breyt- ingum á stjómarskránni til að gera slík ákvæði skiljanleg. Þeda horfir því til friðar og kyrrðar," sagði Davíð við DV. Hann gaf ekki mikið fyrir mót- mælafundinn í gær á Austurvelli og við Stjómarráðið. „Ég er hissa á hvað það var fátt fólk. Ég hefði haldið, mið- að við lætín, að það hefði komið fleira fólk. Það mættu 30 þúsund manns tæplega á kjörstað til að skila auðu í forsetakosningunum og sumum fannst það ekki stór hópur. Mér finn- ast hins vegar nokkur hundruð manns í sólskininu hér ekki vera stór hópur.“ Skrifa undir hvað sem er Allsherjameíríd þingsins fundaði í allan gærdag um nýja fjölmiðlafrum- varpið og komu meðal annars Eiríkur Tómasson, Davíð Þór Björgvinsson og talsmenn Þjóðarhreyfingarinnar á fund nefndarinnar. Eiríkur og Davíð Þór vom á öndverðum meiði um lög- mætí þess að afturkalla eldri fjöl- miðlalögin, hætía við þjóðaratkvæða- greiðslu og leggja fram nýtt frumvarp um sama efni. Eiríkur lagði fram lög- fræðiálit þess efnis að þeda bryti í bága við stjórnarskrána. Davíð Oddsson gaf í gær ekki mikið fyrir slík lögfræðiálit og sagði efríislega að það væri hægt að fá lögfræðinga til að skrifa undir hvaða vitleysu sem er. fridrik@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.