Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2004, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2004, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ2004 Fréttir DV Síminn braut lög Landssími fslands hef- ur brotið samkeppnislög með slagorðinu „Allt saman hjá Símanum" og ber að afturkalia slagorðið og áskriftartilboðið sem það vísar til. Og Vodafone kvartaði til Sam- keppnisstofnun- ar 4. júní vegna misnotkunar Landssímans á markaðs- ráðandi stöðu sinni á fjar- skiptamarkaði. Fyrirtækið býður upp á ýmsa afslætti að því tilskyldu að við- skiptavinir kaupi bæði tal- símaþjónustu, farsíma- þjónustu og intemet. Rannsóknin heldur áfram. Rigning á leiðinni Að mati veðurfræöinga var besti dagur ársins í gær þegar litið er til alls landsins. En það eru blik- ur á loftí og ljóst að ekki verður íranihald á blíð- unni í þeim rnæli sem hún birtíst landsmönnum í gær: „Það fer að dropa úr lofti eftír hádegi í dag og þá sérstaklega á suðvest- urhominu," segir Sigurð- ur Þ. Ragnarsson veður- fræðingur. „En fólk ætti ekki að láta það stöðva sig í ferðalögum því það birtir upp með köflum og verð- ur þrátt fyrir allt bærileg- asta veður og rúmleg það. Líka á mánudaginn." Á forsetinn að neitaafturað skrifa undir fíölmiðla- frumvarpið? Kristján Þorvaldsson ritstjóri. „Það á ekki að vera á færi eins manns að vísa slíku máli til þjóðarinnar. Þetta er vont prófmál I því sambandi. Ég vona bara að skrlpaleikurinn taki enda. Aftur á móti þurfa menn aö koma sérsaman um jafnmikilvæg mál og starfsemi fjölmiðla og eignarhald á þeim." Hann segir / Hún segir „Já, vegna þess að þetta er nánastsama frumvarpið og búið að vlsa þvl til þjóðarinnar sem hefur rétt á að tjá sig um máiið. Hafi forsetinn hafnað frumvarpinu hlýtur hann að hafna þessu til að vera sam- kvæmur sjálfum sér." Katrfn Jakobsdóttir varaformaður Vinstri grænna. Emmy Becker, amma barns sem kúrdískur tengdasonur hennar fékk flutt til Nor- egs á grundvelli Haag-samkomulagsins, kveðst ekki skilja hvernig Hæstiréttur gat úrskurðað Snæfríði Baldvinsdóttur í hag. Hún telur að um sé að ræða klíkuskap. Þerna íékk ekki sömn meöferð og sendiherra Emmy Becker, mdðir konu sem stdð í sömu fdtsporum og Snæ- fríður Baldvinsddttir, segir að Jdn Baldvin Hannibalsson hljdti sérmeðferð fyrir Hæstarétti. Barnsfaðir Snæfríðar Baldvinsddtt- ur hefur ítrekað en árangurslaust reynt að fá ddttur sína aftur til Mexíkd eftir dlöglegt brottnám hennar. En fyrrum tengdasonur Emmy fékk bamið til sín á gmndvelli Haag-samkomulagsins. „Mig langaði að gráta þegar ég las þetta," segir Emmy, um að dóttir Jóns Baldvins Ilannibalssonar skyldi vinna mál gegn erlendum bamsföð- ur sínum, Marco Brancaccia, þrátt fyrir að hafa numið bam þeirra ólög- lega á brott. í báðum málum em barnsfeðurnir sakaðir um ofbeldi, en ofbeldið hefur þótt ósannað. „Við emm ennþá hrædd. Barnið er úti hjá honum núna í sumarfríi, og við erum logandi hræddar," segir hún. Dóttír hennar kynntist kúrdísk- um manni í Stavangri í Noregi þegar hún starfaði sem herbergisþerna árið 1997. Eftir eins árs sambúð byrj- aði ofbeldi, samkvæmt frásögn þeirra, sem fékk hana til að vilja yfir- gefa hann. „Hann er kúrdi, upp- runalega frá íran. Ég ætla ekki að segja hvað hann var sjarmerandi. Ég hef aldrei séð aðra eins persónu- breytingu um ævina og ég var einu sinni að vinna upp á geðdeild. Meira að segja göngulagið breyttist," segir Emmy. Hún segir að eftir fæðingu barnsins hafi allt breyst, sambúðin hafi breyst í ofbeldi. Dóttir hennar hafi ekki fengið að hitta annað fólk nema með hans leyfi, enda kallaði hann hana hóm af minnsta tilefni. „Hans þjóðflokkur hafi gengið út og inn á heimilinu," segir í dómi Hæstaréttar, en þær mæðgur segja að hún hafi verið í miðju litlu samfé- lagi kúrda og að maðurinn hafi verið meðlimur í aðskilnaðarhreyfingu kúrda, PKK. Fyrir dómi lagði faðirinn fram yf- irlýsingu sjö manns um að frásögn móðurinnar af ofbeldi væri alröng. Niðurstaða dómsins var að ofbeldið væri ekki sannað: „Ekkert er komið fram í málinu, sem rennir stoðum undir þessa fullyrðingu gerðarþola, þó svo að heimilishættir gerðarbeið- „Við erum ekki rík, við höfum ekkimikið. Við virðumst fá aðra með- ferð en Jón Baldvin" anda kunni að þykja óvenjulegir og framandi miðað við íslenskar að- stæður," og var niðurstaðan enn- fremur sú að skila bæri barninu aft- ur til Noregs, á gmndvelli Haag- samkomulagsins. Samkvæmt sam- komulaginu má foreldri ekki fara með barn úr landi án heimildar hins foreldrisins. Dóttír Emmyar reyndi að fá heimild barnsföður síns, líkt og hún lýstí fýrir dómi: „Hann hafi bmgðist ókvæða við, rifið skjalið og hótað henni öllu illu, bæri hún aftur upp erindi af þessu tagi. Kvaðst hún ekki hafa séð aðra leið en þá að fara með barnið úr landi án samráðs við gerðarbeiðanda." I máli Marco Brancaccia hefur héraðsdómur komist tvisvar að annarri niðurstöðu og Hæstiréttur einu sinni. Marco hefur lýst því yfir að hann telji að Jón Baldvin og dótt- ir hans vinni málin í íslenska réttar- kerfinu vegna pólitískra áhrifa. Emmy, sem er öryrki en starfar í vaktavinnu í umönnun aldraðra, er á sama máli. „Við vorum með blaða- greinar frá Noregi þar sem fólk sem hann var búinn að hóta óttaðist um líf sitt. Fólk sem honum var illa við. Þetta fólk var skíthrætt við hann. En það virtíst ekki skipta neinu máli út af þessu Haag-samkomulagi. Það var alveg sama hvað við lögðum fram. Það er það sem særir mig, af því nú þarf allt í einu ekld að virða það. Þetta er þvert gegn því sem þeir eru búnir að gera öðrum. Við erum ekki rík, við höfum ekki mikið, en þetta er spurning um réttlætí. Við virðumst fá aðra meðferð en Jón Baldvin," segir hún. Svo fór að dóttir Emmyar flutti til Noregs, samkvæmt dómi Hæstarétt- ar. Barnsfaðir hennar lamdi hana í einni heimsókninni að sækja dóttur þeirra og eftir það hlaut hún fullt forræði. Niðurstaðan í máli þeirra er að konan má búa á íslandi með dóttur sína, en stúlkan á að fara fjór- um sinnum á ári til föður síns. „Syst- ir pabbans var látin giftast gömlum frænda þegar hún var tíu ára. Nú er barnabarnið mitt fimm ára. Ég held að það gerist ekkert strax. En um leið og þær byrja á blæðingum em þær giftar í burtu, því þá geta þær byrjað að eiga börn,“ segir Emmy. jontrausti@dv.is Blásið til bjargar sködduðum hundi Þétt umferð frá Reykjavík í gær Snyrtistofa hjálpar Cobru Líf „Viðbrögðin hafa verið gífurlega góð síðan fréttin birtíst á dýrasíðu DV á þriðjudaginn. í kjölfarið tók ég eftir því að þetta er komið á allar hundaspjallsíður. Snyrtistofan Hundaspa ætlar að gefa 20% af öllu sem kemur inn í næstu viku hjá þeim og Dýrheimar gefa sjampó og hárnæringu," segir Karen Tómas- dóttir hundaræktandi í samtali við DV. Hún og Sólveig Pálmadóttír, hárgreiðslumeistari og eigandi Cobm Lífs, standa fyrir stuðnings- söfnun í dag til að safha fyrir læknis- kostnaði vegna Cobm sem lenti undir bíl og þarf að fara í rándýra aðgerð til að lifa. Karen mun baða og blása alla ferfætlinga og eftír hádegi býður Sólveig upp á klippingar fyrir tvífætlinga. „Verðinu er stillt í hóf og kostar áðeins 1.000 krónur fyrir snyrtingu dýra og 1.500 krónur fyrir klippingu á fólki. Söfnunin er haldin að Þorláksgeisla 96 í dag, laugardag og verður boðið upp á kaffi, vöfflur og góða stemningú." Straumurinn Óhætt er að segja að Reykvíkingar hafi í einni halarófu haldið af stað út á land í bh'ðunrú í gær. Mikið er að gerast um helgina og ber þar hæst Landsmót UMFÍ á Sauðárkróki sem og írskir dagar á Akranesi. Um fimm- leytíð í gær var umferðin að þyngjast jafnt og þétt og fóm flestir bflar um Kjalarnes. Einnig var töluverð umferð um Hellisheiði, Reykjanes- braut og Sandskeið. Sex þúsund bflar höfðu farið í gegnum Hvalfjarðar- göngin klukkan hálf sex í gærdag og var mikið um fjölskyldufólk á leið upp á Skaga og á Sauðárkrók að sögn starfsmanna Hvalljarðarganganna. Rakel Óskarsdóttir, einn skipu- leggjenda írskra daga á Akranesi, sagði hátíðina hafa gengið afskaplega vel í bh'ðunni og um fjögur þúsund manns vera í bænum. Landsmótíð á Sauðárkróki minntí á strandblakmót á Benidorm. „Hér er himnesk sæla og liggur norður Mikil umferð Straumurinn var mikill út úr bænum seinnipartinn ígær. Sex þúsund bilar höfðu farið um Hvalfjarðargöngin um kvöld- matarleytið. frábær stemning. Þetta er best heppnaða landsmót fyrr og síðar og er mikill straumur af fólki hingað á Krókinn," sagði Páll Guðmundsson kynningarfulltrúi UMFÍ. Páll sagði um fimmtán þúsund gestí vera á svæðinu og það ættí eftir að aukast þegar hði á daginn. Samkvæmt upp- lýsingum frá Vínbúðinni á Sauðár- króki var htíð að gera. bœki@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.