Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2004, Side 12
12 LAUGARDAGUR 10. JÚLl2004
Helgarblaö DV
Lögreglan hefur ekki enn fundið Sri Rahmawati, konuna sem hvarf á sunnudaginn. Sri er 33 ára gömul
þriggja barna móðir. Fyrrverandi maður hennar, Hákon Eydal múrarameistari, er í gæsluvarðhaldi vegna
málsins. Blóðblettir fundust á heimili hans. Sri kom til landsins fyrir um sex árum og hefur lif hennar ekki
verið dans á rósum. DV skyggnist á bak við manneskjuna sem hefur verið týnd síðan á sunnudaginn.
/í
Sri Rahmawati Búin að vera
týnd síðan á sunnudaginn.
Árið 1998 kom Sri til íslands. Hún hafði alla sína ævi búið í
Indónesíu. Þar vann hún erfiðisvinnu; við þrif og þess háttar.
Hún lenti í alvarlegu slysi sem varð til þess að hún meiddist í
baki. Þau bakmeiðsl fylgdu henni eftir það. Vinkonur hennar
segja að þrátt fyrir eymslin hafi hún sjaldan heyrst kvarta. Það
hafi ekki verið í hennar karakter.
Það var úti í Indónesíu sem Sri
kynntist Hákoni Eydal múrara-
meistara. Hún átti fyrir tvö börn
með manni sem hún hafði
skömmu áður sagt skilið við. Há-
kon sannfærði hana um að koma
með sér til íslands. Sri ákvað að
grípa tækifærið. Horfði vongóð til
betra lífs á Vesturlöndum. Börnin
tvö urðu þó eftir hjá fyrrverandi
eiginmanninum í Indónesíu. Þau
komu til íslands fyrir um tveimur
árum.
Barði ófríska konu
Fyrstu árin á íslandi liðu hratt.
Díana Rahmawati, systir Sri, segir
Hákon Eydal hafa verið afar elsku-
legan; borgað allt og hjálpað Sri að
koma undir sig fótunum. Þau gift-
ust þó aldrei opinberlega en voru í
sambúð. Árið 2002 fór að halla
undan fæti. Sri varð ófrísk og Há-
kon Eydal breyttist úr elskulegum
sambýlismanni í ofbeldisfullan
kvenhatara.
„Fyrst var Hákon mjög vin-
gjarnlegur og góður við okkur öll
en eftir að Sri varð ófrísk byrjaði
hann að berja hana," sagði Díana
síðastliðinn þriðjudag. Þá hafði
fjölskyldan leitað til lögreglunnar
eftir hjálp og beið frétta af Sri. í dag
er staðan sú sama og þá. Ekkert
hefur heyrst.
Sri eignaðist litla dóttur sem
hún skýrði Irmu. Ofbeldi Hákons
fór sífellt í aukana. Barsmíðarnar
leiddu til þess að Sri flutti í hús-
næði Félags einstæðra foreldra á
Öldugötu 11. Ingimundur Péturs-
son, formaður Félags einstæðra
foreldra, man vel eftir Sri. Hún
dvaldi á Öldugötunni frá því í júlí
2002 og fram á haust 2003.
„Á þeim tíma þurftum við að
kæra fyrrum eiginmann hennar
fyrir skemmdir á húseigninni þeg-
ar hann gekk í skrokk á Sri,“ sagði
Ingimundur í samtali við DV fýrr í
vikunni og var að vonum áhyggju-
fullur vegna hvarfs Sri.
Flúði sambýlismann sinn
í október á síðasta ári flutti Sri
inn í félagslega íbúð í Fellahverf-
Dreymdi fyrir
dauðanum
Sri stundað íslenskunám i
Kvennasmiðjunni. Einn af kenn-
ururn hennar, Ragnheiður Hjálm-
arsdóttir, lýsir henni sem Iiarð-
duglegri konu. Fyrir nokkrum vik-
um hafi hún talað við sig í
þónokkru uppnámi. „Hún sagði
mér frá draumi sem ásótti hana,“
segir Ragnheiður. „Hana dreyntdi
afa sinn í iíki tígrísdýrs og draurn-
urinn endurtók sig nokkrar næt-
ur.“ Sri er múslimi og þar merkja
tígrísdýr þá framliðnu sem sækja
þig í andaheiminn - dauðann.
inu. Hún vann um tíma í hráefna-
vinnslu Dominos sem er skammt
frá íbúð hennar í Jórufelh 4. Lýs-
ingar samstarfsmanna hennar í
hráefnavinnslunni gefur innsýn
inn í karakter Sri. Einn af þeim sem
vann með henni um nokkurra
mánað skeið lýsir henni sem vík-
ingi til verka.
„Hún var harðdugleg og tók
starf sitt alvarlega. Mætti alltaf á
réttum tíma og var ávallt vel til
höfð. Hún var líka mjög trúuð.
Fastaði á ramadan-hátíðinni og
sleppti þá jafnan kaffitímunum.
Hún sá ekki ástæðu til að fara í
kaffi ef hún þurfti ekki að borða.
Hún var nýtin og kom ávallt með
heimalagaðar núðlur í vinnuna.
Hún elskaði börnin sín og talaði
mikið um þau. Hún talaði aldrei
um Hákon."
Skömmu eftir að Sri flutti inn í
íbúðina á efstu hæð blokkarinnar í
Jórufelli fjögur bankaði hún upp á
hjá nágranna sínum, Ingibjörgu
Jónsdóttur. Sri var í miklu upp-
námi og Ingibjörg bauð henni inn.
„Hún sagðist vera að flýja of-
beldi fyrrum eiginmanns síns,"
sagði Ingibjörg við blaðamann DV
á fimmtudaginn. Kvöldið áður
Hvílir ívatni
Að sögn Ingibjargar Jónsdótt-
ur, nágranna og bestu vinkonu
Sri, hafa ættingjar Sri haft sam-
band við miðla í Indónesíu og á
fslandi. Hún segir að indónesíski
miðillinn sé viss um að Sri sé lát-
in. „Hann segir að Sri sé dáin og
hvíli í votri gröf,“ segir Ingibjörg.
Hún segir íslenska miðilinn einn-
ig telja að hún sé látin þótt hann
haft ekki minnst á vatn. „Maður
tekur þessu ekki sem heilögum
sannleik en þetta fær mann til að
hugsa," segir Ingibjörg.
höfðu hún og aðrar vinkonur hist
og beðið fyrir Sri. Ingibjörg sagði
Hákon Eydal hafa hótað Sri ofbeldi
og ógnað með byssum. Sömu byss-
um og lögreglan bar út úr húsi Há-
kons á þriðjudaginn.
Hollenski kærastinn
í framhaldi af heimsókn Sri
urðu hún og Ingibjörg góðar vin-
konur. Þær stunduðu einnig sam-
an nám í Kvennasmiðjunni sem er
á vegum Námsflokka Reykjavíkur.
Sri trúði Ingibjörgu fyrir því að hún
ætlaði að kæra Hákon Eydal fyrir
að hafa beitt sig ofbeldi. Hún bað
um hjálp Ingibjargar og fékk hana.
Málið endaði hins vegar með
sýknu Hákons eftir að eitt helsta
vitnið skyndilega dró framburð
sinn til baka.
„Ég veit ekki út af hverju en
mann grunar að það hafi ekki verið
af tilviljun," sagði Ingibjörg.
Atburðarásin síðustu viku hefur
verið eins og í bíómynd. íslenskur
veruleiki er að verða æ reifara-
kenndari. í máli Sri hefur þó enn
ekkert lík fundist og lögreglan seg-
ir enn að um mannshvarf sé að
ræða. Þrátt fyrir það hefur engum
myndum verið dreift af Sri og ekki