Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2004, Síða 19
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ2004 19
enda hafði hann orðið mjög veikur á
meðan á náminu stóð.
„Ég vann myndlist út frá auka-
verkunum sem voru oft gríðarlegar af
öllum lyfjunum sem ég tók við sjúk-
dómnum. Stundum var ég nánast út
úr heiminum af ofskynjunum sem
lyfin höfðu í för með sér og þá nýtti ég
mér þá reynslu og upplifun og endur-
speglaði það í myndlistinni. Ég gerði
til dæmis verk um upplifun mína þar
sem ég sveif í rýminu fyrir ofan rúmið
mitt. Lokaverkefnið mitt í skólanum í
Glasgow var innsetningin „Stocrin
Efavirenz" sem er heiti á lyfi sem ég
tók á þessum tíma. Verkið byggist
mest á draummn og ofskynjunum
sem ég upphfði af lyfjagjöfirmi,“ segir
Jón sem hefur snúið spilunum við og
notar dauðann og fylgikvilla sjúk-
dómsins sem tæki sem hefur gefið
honirm óendanlega möguleika í
myndlist sinni.
„Sjúkdómurinn er órjúfanlegur
hluti af mér og ég hef kosið að nota
hann sem mitt vopn í myndlist
minni. Ég er mjög sáttur við þetta
vopn sem hefur algerlega breytt mlnu
lífi og ég ætla að nota það til að sigra
þær orusturnar sem ég tekst á við líf-
inu og myndlistin er náttúrlega mitt
líf. Ég er í raun alltaf að nota þetta í
verkum mínum þó svo að það sé mun
skýrara í því sem ég er að gera núna
en hugmyndin hefur verið að þróast í
mörg ár. Fyrir utan það að vinna með
ofskynjanirnar sem ég fék af HlV-lyfj-
unum, gerði ég h'tið myndbandsverk
þar sem ég er að svæfa litla mús. Svo
var ég með innsetningu í beinni út-
sendingu í glugga Búnaðarbankans
þar sem ég setti blómvönd í vasa og
fólk gat svo fylgst með blómunum
deyja smá saman. „Dead" er alveg
jafhmikið um h'fið og dauðann.
Dauðinn er svo stór partur af lífinu. Ef
ég hefði ekki fengið þennan sjúkdóm
þá hefði ég kannski bara haldið áfram
í einhverju sukki og rugh þannig að ég
er fuUkomlega sáttrn við þessi örlög
mín því þau skila sér í því sem ég er
að gera og keyra mig áfram í hst
minni."
Var á góðri leið með að drepa
mig á sukkinu
„Ég hef ahtaf verið mikiU djamm-
ari og ég hætti aldrei að djamma
þannig séð. Ég var náttúrlega í algeru
rugh og aUtaf á fyUeríi. Þetta var til
þess að ég hætti að taka lyfin mfn og
var í rauninni á góðri leið með að
drepa mig á sukkinu. Ég fékk svo
heiftarlega tannrótarbólgu og lagðist
mjög veikur inn á spítala og um svip-
að leiti hafði Börkur félagi minn dáið
í mótorhjólaslysi sem fékk mjög á
mig. Þetta var sumarið 2002 og eftir
að hafa legið á spítalanum ákvað ég
að breyta aigerlega um h'fstíl og hætta
öhu sukki og rugh," segir listamaður-
inn sem er ánægður með lífið í dag.
„Ég gerði svo gjörning sem var
táknræn innsetning á endurfæðingu
minni. Þar tók ég aUt mitt fyrra líf þar
sem ég var búin að fá algert ógeð á
sjálfum mér og rústaði öhu sem ég
átti. Þetta æðiskast sem gjörningur-
inn var fjallaði þannjg um dauða
mannsins sem ég vildi ekki vera leng-
ur, maðurinn sem ég hafði fengið
ógeð á og kjölfarið endurfæðist Jón
Sæmundur, manneskjan sem ég er í
dag. Verkið heitir „Holan mín“ og var
svo sýnt í Gaheríi Hlemmi. Innsetn-
ingin samanstóð af myndbandi með
gjörningnum og svo rústunum af
mínu fyrra lífi á gólfinu út um allt.
Þetta var svona uppgjör á öllum
erfiðleikunum í mínu hfi, svona and-
leg tiltekt þar sem ég losaði mig við
reiðina á mjög táknrænan hátt," seg-
ir Ustamaðurinn einlægi sem er per-
sónulegur í sköpun sinni og er
óhræddur við gefa fólki innsýn inn í
líf sitt og sál.
„Ég ákvað að gera þetta á mínum
eigin forsendum, einbeita mér að
minni list. Eyða orkunni í það og lifa
heilbrigðu lifi. Svo var ég svo hepp-
inn að kynnast þessari æðislegu
konu sem ég elska af öhu mínu
hjarta, hún er alveg ótnileg mann-
eskja og á sinn þátt í öUu því sem er
að gerast hjá mér núna,“ segir Jón
með sælusvip, augljóslega ástfangin
af sinni konu.
Hvernig höndlaði hún það að
verða ástfangin af manni með svona
sjúkdóm sem HIV er?
„Jú, hún var auðvitað hrædd við
þetta. Við reyndum að vera eins ábyrg
í okkar kynlífi og við gátum. Hún á
líka fiábæra fjölskyldu sem tók þessu
líka mjög vel og sýndi mUdnn skilning
á málinu. Við lentum svo í slysi með
verjur sem eru ekki aUtaf eins öruggar
og maður gerir ráð fyrir. Þetta var
náttúrlega mUdð áfaU og hún fór strax
í tékk. Sem betur fer vorum við svo
heppin að hún hafði ekki smitast af
sjúkdóminum við þetta slys. Þetta var
nú samt ekki endirinn á öUu saman
því seinna kom í ljós að hún var orðin
ólétt og gekk með tvíbura ofan á aUt
saman. Það reyndist mikU guðsgjöf
að bæði hún og börnin sluppu við
veiruna. Þetta er náttúrlega ekkert
annað en kraftaverk. Þannig varð
þetta slys að mikilh hamingjustund
þar sem ég hafði ekki gert ráð fyrir því
að eignast börn eftir að ég greindist
með sjúkdóminn. Núna á ég þessi
yndislegu börn og konu og við eigum
frábært líf saman."
Ertu sloppinn, þú hefur aldrei
orðið mjög veikur er það?
„Jú, ég hef tvisvar verið mjög
slappur og þannig séð verið mjög ná-
lægt dauðanum. Þetta er náttúrlega
allt annað núna, bæði eru fyfin betri
og lífernið öðruvísi og ég hugsa vel
um sjálfan mig. Ég fer reglulega í
svæðanudd og það hjáipar mér mik-
ið. Ég prófaði ailt á sínum tíma, nál-
arstungur og svona ýmislegt, svæða-
nuddið ér það sem hefur virkað best
fyrir mig. Svo nota ég líka grasalyf.
Það er enginn sloppinn, dauðinn er
þarna og bíður okkar aUra.“
Dead
Með verki sínu „Hinum megin“
sem sett var upp í Safni, gaUeríi Pét-
urs Arasonar á Laugaveginum, nálg-
ast Jón dauðann á nýjan hátt. Þar
sldlgreinir hann „Dauðann" sem sitt
hliðarsjáh. Hann gengur í raun aUa
leið og hættir að læðast í kringum
konseptið sem hann var búinn að
vinna með í mörg ár og bíður dauð-
anum upp í dans. Þarna dregur Jón
dauðann fram í Ust sinni á magnaðri
hátt en hann hafði áður gert.
„Sá sem óttast dauðann kann ekki
að njóta lífsins," segir Jón Sæmundur
sem í kjölfarið opnaði verslunina
Nonnabúð sem er innsetning í formi
verslunar. Nonnabúð er þannig ekki
verslun heldur framlenging og stað-
festing á konseptinu sem gerir Ustina
aðgengfiegri en áður hefur þekkst
hér. Hugmyndin er þannig séð ekki
ný, Ustamenn hafa áður sett verk sín
fram með sambærilegri innsetningu.
Þetta er aðeins ein leið tU þess að
gera samtímaUstina aðgengUega og
koma hugmyndinni á bakvið verkin á
framfæri á varanlegan hátt. Verslun-
in er þannig aðeins einn af mörgum
miðlum sem Jón notar, innsetning
sem talar til neyslumenningar sam-
félagsins. Verslunin selur fatnað þar
sem á hverja flík er prentað með
handbragði listamannssins og er það
undir hverjum og einum komið hvort
hann klæðist verkinu (flikinni) eða
hengir hana upp á vegg. Þannig verð-
ur hver og einn þátttakandi í verkinu.
Þessi innsetning Jóns hefur vakið at-
hygh víða og hefur hann fengið pant-
anir víða að auk þess sem erlendir
fjölmiðlar hafa sýnt verkingu tals-
verðan áhuga.
Gítarleikari Metallicu verslaði
nokkur verk af honum á dögunum
og söngvari Placebo klæddist
Dead-jakka á tónleikum þeirra í
Laugardalshöll í vikunni. Hringir
úr hvítagulli með demöntum í aug-
um Dead-merkisins, er verk sem
kostar hálfa milljón og er meðal
þess sem Metallicu-menn hafa
augastað á. Hluti af konsepti Dead
er að klæða upp íslenskar hljóm-
sveitir og verða þar með hluti af
þeirra perfomans í útlöndum.
Meðlimir Mínus klæðast fatnaði
Dead auk Singapore Sling sem eru
á leið í stutta tónleikaferð um
Bandaríkin þar sem Dead verður
með þeim í för í formi fatnaðar.
Hannar laxveiðiflugu úr hvíta-
gulli
„Um þessar mundfi er ég að vinna
að nýju verki sem hefur með laxveiðar
að gera," segfi Jón Sæmundur sem
nýlega hefur fundið verslunnfimi
endanlegt húsnæði á Klapparsti'g,
beint á móti galleríi 18. Ég er að hanna
laxveiðiflugu úr hvítagulU með
demöntum og hrafnsfjöðrum. Ég ætla
svo kvikmynda það þegar í veiði minn
maríulax á þessa flugu. Síðan verður
laxinn stoppaður upp og verður hluti
af nýrri innsetningu ásamt kvikmynd-
inni. Þarna verða einnig silkiþrykktfi
jakkar sem verða með prentum sem
tengjast þessum atburði og gerfi fólki
kleift að taka þátt í verkinu með því að
fara í jakkana," segfi Jón Sæmundur
Auðarson myndlistarmaður sem hef-
ur með nýjustu innsetningu sinni fært
samtímalistina nær fóUdnu með verki
sínu Dead sem enginn skal óttast.
Með þessu hefur Jóni Sæmundi tekist
að gera fóUc að þátttakendum í Ust
sinni svo eftir hefur verið tekið um
víða veröld.
Manifesto Dead
Égersofandi.
Ég er þrívíður skuggi sem fylgir
þér út um allt og eltir í hvaða veðri
sem. Ég ligg við hliðina á þér þegar
þú lokar augunum á kvöldin. Þegar
ég vakna þá máttu alveg vita að þú
munt ekki opna augun þín afturhver
erég?
Dauður.
freyr@dv.is
Holan Vareinlægt
uppgjörd fortiðinni, í
kjölfarið fylgdi upp-
risa og endurfæðing.
’j Júlíana Kristín Elsta
ijj dóttirJóns,sóiargeislinn
sem kom d hdrréttum
tima í lífhans.
Fossinn óMogga-
úsinu var magnað
sjónarspiljafntilkomu■
mikill frd Bankastræti
og niður ó torg.
Stjörnubjart þegar
allter Fegurðfugls-
ins dauða.
Nonni í Nonnabúð Listamaðurinn
hefur nýverið flutt buðina sína upp d
Klapparstig. Houskúpurnar setja
mikinn svip d umhverfíð ems og sest
Vinsældir Nonnabúðar eru miklarur
bessar mundir og liðsmenn Placebo
og Metallica versluðu þar ívikunm.
Embla Diljá stjúp-
dóttir Jóns og tví-
burarnir Einar Skuggi
og Björn Stormur.
Sofðu unga ástin
mín. Jón svæfir mús
d tdknrænan hdtt.