Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2004, Síða 21
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ2004 21
Leikkonan Suzanne Somers hefur að mestu lagt leiklistina á hilluna og tekið sér nýtt hlutverk í lífinu
sem felst í því að grenna hina akfeitu bandarísku þjóð. Tvær milljónir manna hafa fylgt ráðum Somers
og segir hún árangurinn ekki láta standa á sér.
Nýr matarkúr slær í gegn
Suzanne Somers grennir
bandarísku þjóðina
grænmeti og mikið af því.
Sykur, hveiti, pasta og kartöflur
eru á bannlista - að minnsta kosti
má ekki borða þessar fæðutegundir
með fituríkum mat. Blátt bann er
lagt við sykri enda segir Suzanne
engan vafa leika á að sykur umfram
annað valdi því að við fitnum; feit-
um mat sé ekki um að kenna. Kenn-
ing hennar er eitthvað á þá leið að
insúlín geri okkur möguiegt að nota
sykur sem orkugjafa. Þegar fólk
borðar of mikinn sykur og fær
þannig umframorku er insúlínið
einn af þeim þáttum sem stjórnar
því að líkaminn tekur að geyma
umframorkuna sem fitu og þar
með setjast aukakílóin á okkur.
Suzanne kveðst vera nautna-
kona og hefur gaman að því að
borða. Hennar mottó er að fólk
njóti þess að borða góðan mat
- svo lengi sem samsetningin
er rétt. Ef fólk sættir sig við að
sleppa kartöflum með kjöti og
fiski og eða pastanu þá er það
á réttri leið. Þegar kjörþyngd
er náð getur fólk leyft sér að
bragða aftur pasta úr heil-
hveiti og jafnvel fengið sér
heilhveitibrauðsneið að
morgni. Hún segir mörg-
um reynast erfiðast að
hætta að borða
brauð - kart-
öflur og
pasta
minna mál þegar
fólk hefur
vanið sig á
að borða
ýmiss
kon-
grænmeti með kjöti og fiski. Gald-
urinn er að hennar sögn sá að
borða vel þrisvar á dag; egg,
beikon, grænmeti, kjöt,
fisk og osta svo eitthvað
sé nefnt. Hægt er að
kynna sér kenningar
leikkonunnar á
heimasíðunni
www.suzann-
esomers.com
netinu.
Margir muna eftir Suzanne Somers úr gamanþáttaröðinni
Three’s a Company sem sýndir voru við miklar vinsældir á árun-
um 1977 til 1981. Suzanne hefur leikið í fjölda sjónvarpsmynda
á ferlinum en hefur hin síðustu ár búið til risaveldi um matarkúr
sem hún kennir við sjálfa sig.
Suzanne Somers hefur skrifað
fjórar bækur um kúrinn sem hún
vill reyndar ekki kalla megrunar-
kúr heldur mataræði sem eigi að
fylgja fólki allt lífið. Upphafið má
rekja til þess þegar Suzanne var
stödd í París fyrir rúmum áratug.
Hún var þá orðin fertug og hafði
bætt á sig nokkrum aukakílóum.
Suzanne sem hafði verði þekkt fyr-
ir ljóst sítt hárið og grannan vöxt,
var allt annað en ánægð með þró-
Klassískur dagur
hjáSuzanne
Morgunverður
Ávöxtur
Sykurlaust skyr eða jógúrt með heil-
hveitimúslí
Morgunsnakk
Ostbiti
Hádegisverður
Sesarsalat með kjúklingi, steiktu
grænmeti og parmesanosti
Sfðdegi
Ávöxtur eða harðsoðið egg
Kvöldverður
Græntsalat með gröðostadress-
ingu, steik, soðið brokkolí með
ostasósu. Sykuriaus vanilluís í
eftirrétt
un mála. Hún passaði ekki lengur í
alla skvísukjólana.
Fyrrnefnd Parísarferð átti eftir
að breyta h'fi Suzanne en fyrir rúm-
um áratug heimsótti hún borgina
og kveðst hafa fengið uppljómum
þegar hún fylgdist með Parísarbú-
um taka til matar síns. Frakkarnir
„leyfðu sér“ að borða pylsur, osta,
salöt, kjöt, fuglakjöt og fisk sem
gjarna var borið fram með
rjómasósum, fersku grænmeti og
að sjálfsögðu skolað niður með
rauðvíni. Ostakaka eða rjómabúð-
ingur fylgdi svo í eftirrétt. Suzanne
fór að velta fyrir sér hvernig stæði á
því að Frakkar gætu borðað svona
mikið af feitmeti en samt verið
grannir. Hún hafði alltaf trúað því
að feitmeti gerði okkur feit, hækk-
aði kólesterólið, yki hættuna á
krabbameini og hjartasjúkdómum.
„Frakkar ættu samkvæmt þessu að
vera akfeitir og aðframkomnir
vegna hjartasjúkdóma en þess í
stað borða þeir feitan mat og eru
grannir, og tíðni hjartasjúkdóma er
í algjöru lágmarki," segir Suzanne
sem ákvað þegar í stað að breyta
mataræði sínu.
Nýtur þess að borða góðan
mat
Matarkúr Suzanne er að sumu
leyti líkur Atkins-kolvetnakúrnum
en meginlínan er sú að blanda ekki
saman kolvetnaríkum mat og feit-
um/próteinríkum mat. Munurinn á
Suzanne og Atkins er hins vegar sá
að Suzanne hvetur fólk til að borða
Nokkrar góðar reglur
1. Borðið ávexti á fastandi maga og ekki rétt fyrir málsverð
2. Borðið prótein og fitu með grænmeti
3. Borðið kolvetni með grænmeti. Kolvetni má ekki borða með fitu
4. Látið 3 stundir líða á milli þess að borða prótein-/fituríkan mat og fæðu
með kolvetnum
5. Borðið þrjár góðar máltíðir á dag og borðið ykkur södd
Prótein og fita
Smjör
Ostur
Egg
Fiskur
Majónes
Kjöt
Olía
Fuglakjöt
Sýrður rjómi
Grænmeti
Aspas
Brokkolí
Blómkál
Sellerí
Agúrka
Kúrbítur
Kál
Sveppir
Spínat
Tómatar
Zucchini
Kolvetni
Baunir
Sinnep
Sykurlausar mjólkur-
vörur
Heilhveiti brauð
Kornfleks
Pasta
Ekki borða
Malar gull með þvi oð kenna
fólki oð fylgja mataræði sem
hún hefur þróað. Segir eigin
vöxt sönnun þess að aðferðin
virkar.
Sykur
Gulrætur
Síróp
Hunang
Bananar
Maískorn
Pasta úr hvítu hveiti
Popp
Kartöflur
Hveiti
Hvít hrísgrjón
Koffeindrykkir