Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2004, Page 26
26 LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ2004
Helgarblaö DV
Sunna Gestsdóttir frjálsíþróttakona ætlar sér að ná lágmarkinu í langstökki í sumar. Ef hún kemst á
ólympíuleikana veit hún ekki betur en hún verði að fjármagna allt sjálf eins og hún hefur gert hingað
til. Sunna segist aldrei hafa verið í betra formi og að hún eigi um sex til sjö ár eftir í frjálsíþróttunum.
Hún skilur ekki forráðamenn Frjálsíþróttasambandsins og veltir því fyrir sér hvort hún sé utanveltu af
því að hún er fjölskyldumanneskja sem býr úti á landi.
f
a
„Efþessar sögur um
villt líferni Arnar
sundkappa eru sann-
arþá skil ég að það
sé mórall í gangi en I
frjálsum er fólk að
gera þetta af fullri al-
vöru."
Ætlar á ólympíuleikana
Sunna mun keppa á Landsmóti
íslands sem fer fram á Sauðárkróki um
helgina. „Ég er ágætlega vongóð um að
ná lágmarkinu' í langstökkinu fyrir
ólympíuleikana. Ef ekki á þessu móti þá
kannski á Meistaramótinu eða á erlend-
um mótum í sumar. Ef ég kemst inn veit
ég hins vegar ekkert um hvað gerist.
Hvort Frjálsíþróttasambandið komi
sjálfkrafa inn í þetta eða hvort ég verði
bara að hafda áfram að borga fyrir mig
sjálf. Mitt besta stökk á þessu ári er 6.47
en lágmarkið er 6.55 svo það er alveg
möguleiki.‘‘
Sunna segir að styrkjakerfið vinni
allt saman og þegar fyrirtækin sjái að
Frjálsíþróttasambandið styrki hana
ekki sé mjög erfitt að sannfæra fólk um
að hún geti eitthvað. Einu peningamir
sem dælt hafi verið í hana séu til að
borga fyrir lyfjaprófin og það sé sárt til
þess að hugsa í hvað annað hefði verið
hægt að nota þá enda hafi hiin alltaf
runnið í gegn.
Nú eru Sunna og maður hennar að
spá í að flytja til Þýskalands til æfinga
áður en dóttirin byrjar í skóla. Hún seg-
ist þó ekki búin að gefast upp á íslandi
heldur verði þetta bara tímabundið.
Sunna segist ekki heldur vilja gefast upp
á íþróttunum en ef ástandið fari ekki að
lagast muni hún ekki geta annað.
indiana@dv.is
Styrkjalaus en steínir
ólympíuleikana
„Ég hef oft hugsað um það til hvers
ég sé að þessu og hvort ég ætti ekki bara
að gerast venjuleg fjölskyldumanneskja
og reyna að eignast eitthvað því í þetta
fara margar milljónir," segir Sunna
Gestsdóttir frjálsíþróttakona sem hefur
verið fastamaður og burðarás fijáls-
íþróttalandshðsins síðast liðin
15 árin. Sunna hefúr slegið
hvert metið á fætur öðru
og bætti nú í mánuðin-
um 19 ára gamalt met í
100 metra hlaupi eins
og kom fiam í DV í vik-
unni. Þrátt fyrir það
fær hún enga styrki.
„Bara núna í sum-
ar er ég búin að fara
þrisvar til Svíþjóðar,
einu sinni til Nor-
egs og til Hollands.
Ég sigraði öll lang-
stökksmótin nema
eitt og vann öll
300 metra hlaup-
in. Það kostar sitt
að ferðast þetta
og ég hef borgað
allt úr eigin vasa.‘‘
Óskemmtilegt
að vera upp á
aðra kominn
Sunna hefur
flust aftur til heima-
haganna á Blönduósi
enda þægilegt að geta
komið dótturinni í
pössun hjá foreldrum.
„Maður er náttúrlega á
endalausum þvælingi
og maður sparar með því
að fá sína nánustu til að
passa." Hún segist eyða öll-
um sínum tíma í æfingar og sé
því algjörlega háð manni sínum.
„Það er ekkert gaman að vera háður
einhverjum og hann verður að
vinna eins og bijálæðingur til að ég
geti stundað þetta áhugamál mitt,“
segir hún og bæúr við að frjáls-
íþróttimar séu kannski meira en
áhugamál þar sem hún keppi fyrir
íslands hönd og vinni flest mót sem
hún taki þátt í auk þess sem þetta hljóú
að vera góð kynning fyrir landið. „Ég
veit samt að það eru fleiri í sömu að-
stöðu og ég og ég kenni hinu frjáls-
íþróttafólkinu ekki um. Það er kerfið
sem ég er fúl út í. Ég sótú um styrk til
Frjálsíþróttasambands íslands síðast-
liðið haust en því var synjað. Ég veit ekki
af hveiju. Kannski af því að ég er 28 ára
móðir og bý úú á landi. En allavega hef
ég aldrei verið betri. Ég hef alltaf farið
löngu leiðina og nú er það að vinna
gegn mér. Þótt ég sé orðin þetta gömul
eru þær bestu í heimi á sama aldri og ég
eða eldri," segir Sunna og bætir við að
hún eigi allavega sex til sjö ár eftir í
fijálsíþróttunum.
Óska henni ekki til hamingju
Auk æfinganna hugsar Sunna um
fjögurra ára dóttur sína og lærir sál-
fræði. „Ég er í sjálfbúnu fjarnámi fiá
Háskóla íslands og hef lokið 57 eining-
um svo þetta gengur bara vel.“ Hún og
maðurinn hennar hafa komið sér vel
fyrir á Blönduósi og henni finnst hart ef
hún getur ekki búið þar sem hún vilji
helst búa ef hún æúar að halda áfiam í
íþróttunum. „Ég hef bara enga aðra út-
skýringu á þessu. Aðrir eru að fá háa
styrki á meðan ég fæ ekki krónu. Ég er
búin að velta þessu mikið fyrir mér,
kannski er svona mikill klíkuskapur í
kringum þetta eða þá að þeir hafi misst
alla ttú á mér sem er skríúð því ég hef
aldrei verið í betta formi og er sú eina
sem hef verið að slá hvert meúð af fæt-
ur öðm síðustu árin." Hún segir sam-
bandið milh sín og forráðamanna
Fijálsíþróttasambandsins orðið hið
vandræðalegasta og að þeir forði sér
frekar en að yrða á hana eða óska til
hamingju með góðan árangur.
Árið 1997 flutú Sunna til Banda-
ríkjanna þar sem hún fékk fullan há-
skólastyrk sem er mjög sjaldgæft fyrir
erlendan íþróttamann. „Þeir höfðu
tröllatrú á mér en þessar æfingar
hentuðu mér ekki svo ég stoppaði ekki
lengi." Árið 2000 flutti hún svo til Nor-
egs og fór aftur að æfa. Þá byijaði hún
hægt og rólega enda nýbúin að eignast
dóttur. „Þarna fór ég að hafa aftur
gaman af þessu í fyrsta skipúð í langan
tíma og þetta er búið að vera alveg fr á-
bært síðan enda er mér búið að ganga
vel.“
Keppir í aldargömlum greinum
Sunna hefur ekki mikla trú á að
styrkimir sem veittir em séu misnotað-
ir, allavega ekki í ffjálsunum. „Ef þessar
sögur um villt lífemi Amar sundkappa
em sannar þá skil ég að það sé mórall í
gangi en í frjálsum er fólk að gera þetta
af fullri alvöm," segir hún en bætir við
að þar sem Öm hafi lent í fjórða sæú á
síðustu ólympíuleikum skilji hún ekki
hver ætú að fá styrki ef hann fengi þá
ekki.
Samkvæmt afrekssjóði fær Vala
Flosadóttir tæpa eina og hálfa milljón á
ári í styrk og lón Amar og Þórey Edda
sömu upphæð. Sunna minnir á að hafa
verði í huga að stangarstökk kvenna sé
ný grein á meðan hún sé að keppa í
greinum sem hafa verið við lýði árum
saman og öll landsböm hafi reynt við.
„Ég veit alveg að ég er kannski ekkert
best í heimi en ég er allavega best á
landinu í mínum greinum. Til þess að
verða enn betri verður maður bara að fá
einhverja hjálp. Þótt ég sé ekkert að
setja út á styrki til Völu þá veit ég að hún
hefur ekkert keppt í sumar en það að
hún hafi lent í 3. sæú á síðustu ólympíu-
leikum segir sitt. Svo em fleiri þama
sem em að fá peninga án þess að sýna
ffarn á neinn árangur."
„Aðrir eru að fá háa styrki
á meðan ég fæ ekki krónu.
Ég er búin að velta þessu
mikið fyrir mér, kannski er
svona mikill klíkuskapur í
kringum þetta eða þá að
þeir hafa misst alla trú á
mér sem er skrítið því ég
hefaldrei verið í betra
formi og er sú eina sem hef
verið að slá hvert metið á
fætur öðru síðustu árin."
Með manninum
Eiginmaður Sunnu
stendur vel við bakið
á henni. Hann er
iæknir.
fuZTanneskiaSunna
fur aldrei verið í betra formi
er ema frjálsíþráttamanm
innsemhefurslegiðhvert
SamtfUrÍðrUÍ9e9num
■ Samt feer hún enaa stvrl,:
íþróttamenn