Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2004, Page 28
28 LAUGARDAGUR 10. JÚLl2004
Helgarblað DV
Lappaðu upp á líkamann
- án þess að !m ískiirúaðgerú
Margar konur heföu áhuga á stærri barmi en það treysta sér
ekki allar til að leggjast undir hnífinn. Hvað er annað í boði
en skurðaðgerð til að öðlast stærri brjóst? DV athugaði málið.
Margt annað en skurðaðgerð er í
boði fyrir þær konur sem vilja stærri
brjóst. Til eru margar tegundir af
púðum sem settir eru inn í brjósta-
haldara, kremum sem eiga að auka
, ummála brjóstanna og gera þau
stinnari, auk úrvals brjóstahaldara
með lyftingu. „Þessir gelpúðar eru
ótrúlega vinsælir og seldust upp hjá
okkur um daginn," segir Þóra Hlíf
Jónsdóttir verslunarstjóri La Senza.
Hún segir að hægt sé að fara með
púðana í sundlaugar enda stór kost-
ur að þeir séu úr geli þannig að þeir
þurfa engan tíma til að þorna. Þessir
púðar eru mjög sterkir en ef það
kemur gat á leku efnið alls ekkert úr
þeim. Hægt er að fá nokkrar tegund-
ir af gelpúðum í mismunandi stærð-
um. Sumir láta brjóstin virðast
stærri og aðrir lyfta þeim. Þóra Hlíf
selur einnig gervigeirvörtur. „Það
eru aðallega yngri stelpur sem
kaupa geirvörturnar. Málið er að
bleyta þær og þá tolla þær á og þá er
maður kominn með stinnar geir-
vörtur sem getur verið mjög sexý.“
Einnig er hægt að nota gervigeir-
vörturnar ef eitthvað hefur komið
fyrir brjóstið.
Þróaðir brjóstahaldarar með
púðum
Úrvalið af brjóstahöldurum sem
stækka barminn er einnig mikið.
„Þessir svokölluðu skoru-brjósta-
haldarar eru mjög vinsælir, þeir
þrýsta brjóstunum saman þannig að
skoran verður meira áberandi," segir
Þóra Hlíf. Einnig er hægt að fá sér-
staka bíkiníbrjóstahaldara sem í eru
sílíkonpúðar. „Konur vilja hafa smá
mótun í bikiníinu og kaupa mikið af
þessari tegund eða þá harða brjósta-
haldara og geta þá bætt púðunum
inn í,“ segir Þóra Hlíf og bætir við að
ekki sé sniðugt að setja lausa púða í
spangarlausa brjóstarhaldara því þá
sé hætta á að púðarnir detti úr. Enn
ein tegundin eru brjóstahaldarar
með svokölluðu „svalasniði." Þeir
lyfta brjóstunum vel upp og sam-
kvæmt Þóru Hlín eru þeir afar vin-
sælir hjá eldri konum. Auk þess eru
gömlu taupúðarnir alltaf vinsælir og
muna verður að hægt er að blanda
þessu flestu saman og stækka með
því barminn töluvert.
Krem sem gera bjóstin
stinnari
Á markaðnum eru einnig krem
sem gera brjóstin stinnari og þéttari.
í Lyfjum og heilsu fást Sodo-kremin
en þau eru ætluð fýrir brjóst, rass og
andlit. Þessi krem gera húðina
stinnari og eru einnig góð fyrir app-
elsínuhúð. „Við erum búin að selja
þau í einn og hálfan mánuð þannig
Natural Curves ^
er að bera kremiö ó
skj ad deginum og brjóstin
eru þó fallegri fyrir kvöldið
Verð: 4.950.
Bikini-gelpúðar \
Notodir inn i þrihyrnings•
bikinibrjóstahaldara.
Kosta 4.690 krónur.
sma lyrtmgu og fyll
ingu.Þessirkosta 1.990
krónur. Allir gelpúóarnir
eru vcitnsheldir.
T Þeir vinsælustu 1
Þessir veita fallega og góda
lyftingu. Bæði til i hudlit og
glærir og kosta 4.800 krón-
sur. Það vinsælasta idag. Á
að það er komin lítil reynsla á þetta,"
segir Erla Ragnheiður Ragnarsdóttir
innkaupastjóri hjá Lyíjum og heilsu.
Kremin eru borin á húðina tvisvar á
dag. „Það þarf ekkert að bíða eftir að
þau þomi því þau smjúga strax inn í
húðina," segir Erla Ragnheiður og
bætir við að kremið ætti að vera far-
ið að virka áður en dósin klárast.
Hallsteinn Geirsson selur krem
sem kallast Naturai Curves. „Þessi
krem mýkja húðina og eru sniðug ef
konur vilja lappa upp á sig fyrir
kvöldið. Þetta eykur blóðflæðið til
brjóstanna og eykur þannig ummál
þeirra," segir Hallsteinn. „Ég hef
heyrt að þetta virki þó það sé ekki
komin mikil reynsla á kremin."
Hægt er að nálgast frekari upplýs-
ingar um Natural Curves á heima-
síðunni www.fegrun.is.
"'jviiunum vei upp ponnig
það myndost nokkurskonor ,,sval
Vinsælir hjó eldri konum og kosi
3590 krónur.
Skorubrjóstahaldari
Býr til fullega skom. Eru meðal
•insælustu brjóstahaldaranna c
markaðnum og kosta
3.990 krónur.
Bikiníbrjóstahald-
ari með sílikoni Silikonið er
fast inni i haldnranum og
kostarþessi 3.490 krónur.
Nauðsynlegt er að spá í þessi atriði
áður en ákvörðun um skurðaðgerð er
tekin.
Borga fegrunaraðgerðir sig?
Listi yfír kosti og ókosti
Eins og með aðrnr aðgerðir er alltaf
einhver hætta á mistökum. Sniðugt
er að gera lista yfir kosti og ókosti.
Skurðaðgerð er alvarlegt mát og
enginn ætti að taka slika ákvörðun
nema að vel úthugsuðu máli.
Aðrír möguleikar
Ertu örugglega búin að útiloka alla
aðra möguleika? Það erýmislegt
sem hægt er að gera svo maður verði
ánægðari með sjálfan sig. Fyrir upp-
hæðina sem færi í aðgerðina er hægt
að kaupa einkaþjálfara, fara í klipp-
ingu og kaupa ný föt. Samt væru
peningar afgangs.
Fyrír hvern er aðgerðin?
Það er ekki sniðugt að leggjast undir
hnífinn til að þóknast einhverjum
öðrum. Vertu viss um að þú sért að
fara í aðgerðina á réttum forsend-
um.
Lýtaaðgerð er ekki lausn á öllu
Stærri brjóst geta ekki bætt lélegt
sjálfsmat né breytt persónuleika.
Óraunhæft er að kenna brjóstastærð
um það sem miður hefur farið.