Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2004, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 10.JÚLÍ2004
Helgarblaö DV
Fyrrum tengdasonur Jóns Baldvins Hannibalssonar hefur ákveðið að leysa frá skjóðunni um samskipti
sín við Qölskylduna. Marco Brancaccia bjó með Snæfríði Baldvinsdóttur í 13 ár áður en hún stakk af
með dóttur þeirra. Hann hefur kært Jón Baldvin og Snæfríði í þremur löndum. Hér ræðir hann um
reynslu sína af Qölskyldu eins frægasta stjórnmálamanns íslandssögunnar.
Tengdasonnp Jóns Baldvins
leysir irá skjóðunni
„Fyrirhonum varþetta gott,
þetta var eðlilegt og ásættan-
legt. Að st/órnmá/afíokkarnir
kreistu... auðmennina tiI að
fjármagna stjórnmálamenn“
Italski fréttamaðurinn Marco Brancaccia missti tengslin við
dóttur sína 15. maí í fyrra. Snæfríður Baldvinsdóttir, barns-
móðir hans, braut lög í Mexíkó með því að stinga af úr landi
með barnið. Hún fékk hjálp föður síns, Jóns Baldvins
Hannibalssonar fyrrverandi utanríkisráðherra, til að útvega
bráðabirgðavegabréf fyrir stúlkuna án undirskriftar föðurins.
Marco fékk loks að hitta dóttur
sína, hina átta ára gömlu Mörtu, á
miðvikudaginn en hann kom til ís-
lands síðastliðinn sunnudag og hafði
beðið síðan þá. Marco mætir í við-
talið með Mörtu, á öðrum degi þeirra
saman síðan í ágúst í fyrra. Hún litar
og kubbar í næsta herbergi meðan
viðtalið fer fram, því Marco vill ekki
að hún heyri það sem hann hefur að
segja um Jón Baldvin og Snæfríði.
Marta talar fjögur tungumál; ís-
lensku, ítölsku, spænsku og ensku.
Sagðist þekkja áhrifamikið
fólk
Marco hefur sex lögfræðinga í
þremur löndum í vinnu við að end-
urheimta réttirm til að hitta dóttur
sína. Hann vill draga Jón Baldvin fyr-
ir dómstóla fyrir að misnota aðstöðu
sína sem sendiherra.
„Ég elska dóttur mína en ég
myndi aldrei gera það sem Jón Bald-
vin gerði. Ég myndi aldrei misnota
valdastöðu mína. Ég myndi ekki deila
og nota hatursyrði eða búa til falskar
ásakanir. Ef ég væri hann myndi ég í
staðinn reyna að nota alla visku
meira en 60 ára gamallar manneskju
til að freista þess að lagfæra og sam-
eina. Hann hefur ekki gert það. Hann
hefur hótað mér því að ég fái ekki að
sjá dóttur mína í langan tíma ef ég gef
ekki eftir forræði dóttur minnar."
-Afhverju?
„Spurðu hann. Hann sagði þetta
við mig í símtali frá Finnlandi í fyrra.
Hann sagðist þekkja mikið af álirifa-
miklu fólki á Islandi og að það væri
betra fyrir mig að gefa Snæfríði eftir
forræðið yfir Mörtu. Annars myndi
ég ekki sjá dóttur mína í langan tíma.
Og það er nákvæmlega það sem ger-
ist hér.“
Réttarkerfi eins og í Mið-Am-
eríku
Marco er yfirmaður fréttaþjónust-
unnar ANSA í Mið-Ameríku, en hún
er fjórða stærsta fréttaþjónusta
heims á eftir Reuters, Associated
Press og Júnni frönsku AFP. Hann
segir réttarfar á íslandi vera eins og í
Mið-Ameríku.
„Fyrir mig er ómögulegt að beijast
við Jón Baldvin á þessum grundvelli.
Því miður hélt ég í öllu þessu máli að
íslenska dómskerfið byggi yfir
einhverju mesta jafméttí og réttlætí í
heiminum. En sú ímynd hefur breyst
algerlega fyrir mér. Nú held ég að það
sé svipað og í hverju öðru landi í Mið-
Ameríku eða Afríku. Valdamikil
manneskja sem berst gegn útlend-
ingi vinnur alltaf, þrátt fyrir það sem
málskjöl segja. Fram að þessu hafa
fimm dómarar úrskurðað í máli
Mörtu. Það hafa verið þrír úrskurðir,
þar af einn í Hæstarétti. Þessir þrír
úrskurðir hafa verið álitnir skömm
fyrir allt íslenska kerfið af virtum lög-
fræðingum í Mexíkó og á ítah'u, en
þeir hafa álitíð hann týpískt tilfelli
þess að dómarar láta stýrast af póli-
tí'skum áhrifum."
Spilltur vinur Jóns Baldvins
Marco var tengdasonur Jóns
Baldvins og Bryndísar Schram, nú-
verandi sendiherrahjóna í Finnlandi,
í 13 ár. Hann dregur upp bréf frá
Bryndísi frá árinu 1999 þar sem Bryn-
dís lýsir yfir ánægju sinni með „aug-
ljósa" ást hans og Snæfríðar. „Við
höfðum mjög gaman af heimsókn
þinni og viljum ekki missa þig,“ segir
hún í bréfinu sem hún undirritar
sjálf.
Um sambandið við Jón Baldvin
segir Marco að ágætt hafi verið að
setjast niður með honum og skiptast
á skoðunum. Marco er afar minnis-
stæð vinátta Jóns Baidvins og Gi-
annis De Michelis, fyrrum utamíkis-
ráðherra ftalíu fyrir Sósíalistaflokk-
inn. „Jón Baldvin og hann voru mjög
góðir vinir. De Michelis var þekktast-
ur fyrir bók um diskótek. Hann fór út
með mismunandi stúlkum, var síð-
hærður og taldi sig nútímasósíalista,
líklega eins og Jón Baldvin. Það fór þó
þannig að De Michelis var dæmdur í
stóru spillingarmáli árið 1993. Sósí-
alistaflokkurinn var nánast leystur
upp eftír að stjómmálamenn höfðu
verið fundnir sekir um að taka við
persónulegum peningagjöfum frá
auðmönnum. Bettino Craxi, þáver-
andi forsætísráðherra, flúði meðal
annars í útlegð til Túnis," segir
Marco.
Eðlilega ræddi Marco við Jón
Baldvin um spillingarmál félaga
hans. Jón Baldvin sýndi De Michelis
mikinn skilning, að matí Marcos.
„Samkvæmt Jóni Baldvini var þetta
eitthvað sem gerðist út um allan
heim, að pólitíkusar tækju við pen-
ingum frá ríku fólki. Fyrir honum var
þetta gott mál, þetta var eðlilegt og
ásættanlegt. Að stjómmálaflokkarnir
kreistu, ég man að hann notaði orðið
„kreista" [squeeze], auðmennina til
að fjármagna stjómmálamenn," seg-
ir hann.
Aðspurður segist Marco ekki hafa
kynnst tengdaföður sínum að störf-
um. „Ég tók aldrei viðtal við hann,
enda hefði það verið örlítið erfitt.
Hann var oftast í fríi þegar ég hittí
hann og þá oftast fullur."
Mál fyrir dómara
„Þessi fjölskylda hugsar mjög
mikið um ímyndina, hvemig hún lít-
ur út í blöðum og þannig lagað. Jón
Baldvin og Bryndís em ódýra útgáfan
af Clinton-hjónunum.
En bak við ímyndina em Utlar til-
finningar," staðhæfir Marco.
Hann kynntíst Snæfríði í París
árið 1990. Hún starfaði sem fyrirsæta,
en hann fréttamaður hjá ANSA. „Ég
bjó í 13 ár með Snæfríði. Jón Baldvin
hefur sannarlega ekki alltaf verið
góður faðir. Honum var alltaf sama
um hvað hún gerði í útlöndum. Þeg-
ar Marta fæddist í Róm hringdu
hvorki Jón Baidvin né Bryndís í okkur
og þau komu ekki í heimsókn. Ég
man Uka þegar elsta dóttir þeirra áttí
í vandræðum og var á sjúkrahúsi í
þónokkurn tíma. Jón Baldvin og
Bryndís vom þá í Washington. Hún
áttí nokkurra ára dóttur. Jón Baldvin
og Bryndís komu ekki tíl íslands, en í
staðinn var litla dóttirin lögð í hend-
ur félagslega kerfisins og síðan sá vin-
kona um hana," segir Marco.
Þannig svarar Marco fullum hálsi
ásökunum þeim sem hann hefúr
orðið fyrir um að hann hafi reynst
dóttur sinni slæmu faðir. Honum er
augljóslega mikið niðri fyrir vegna
þess. Og hann gengur lengra:
„Ég veit hvemig elskulegur faðir
Jón Baldvin er. Ég get ekki sagt frá
því, en hann ættí að vita að ég veit."
Framhjáhald með íslenskum
leikara
Marco fluttí með Snæfríði tíl
Mexikó árið 2001. Á þeim tíma vom
þau að byrja nýtt ævintýri. Skömmu
áður ákvað Snæfríður að ljóstra upp
um gamalt leyndarmál sem hafði
plagað hana og vildi hún byrja upp á
nýtt.
„Núna, eftir að hún tók Mörtu,
sakar hún mig um að hafa verið
henni ótrúr. Fyrst núna. Því það get-
ur hjálpað henni í forræðismálinu.
En hún var mér ótrú. Hún áttí í kyn-