Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2004, Side 34
' 34 LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ2004
Sport DV
Hasselbaink
til Boro
r~
Hollenski framherjinn
Jimmy Floyd Hasselbaink,
gekk í gær til liðs við enska
úrvalsdeildarliðið Middles-
brough en Chelsea vildi ekki
framlengja samninginn við
hann. Hasselbaink, sem er 32
ára gamall, skrifaði undir
tveggja ára samning við
Middiesbrough en hann er
þriðji leikmaðurinn sem
gengur í raðir félagsins á
síðustu dögum. Áður hafði
ástralski framherjinn Mark
Viduka komið frá Leeds og
hinn hollenski Michael
Reiziger frá spænska félaginu
Barcelona. Hasselbaink var
einnig sterklega orðaður við
Fulham en Boro hafði betur.
U-21 árs
liðið mætir
Eistum
íslenska landsliðið
skipað leikmönnum 21
árs og yngri mun spila
vináttulandsleik gegn
Eistum í Tallin.18. ágúst
en sama dag mun A-
landsliðið spila gegn
ítölum á Laugardals-
j velli. Þetta verður fyrsti
leikur liðsins undir
stjóm Eyjólfs Sverris-
sonar sem tók við liðinu
af Ólafi Þórðarsyni í
október á sfðasta ári.
Breytingar
hjá Spurs
Tottenham hefur fengið
miðjumanninn Sean Davis
frá Fulham í raðir félagsins
en jafnframt selt portúgal-
ska ffamherjann Helder
Postiga til Porto. Tottenham
fékk þrjár milljónir punda
og miðjumanninn Pedro
-• Mendes í kaupbæti.
Hinn sautján ára gamli Pavel Ermolinskij er tveggja metra hár, hefur búið á ]
fimm ára gamall og og þykir vera efnilegasti körfuknattleiksmaður landsins.
Spánar þar sem samningur við eitt besta félagsliðið þarlendis bíður eftir honi
son, þjálfari hans í 19 ára landsliðinu, segir engin takmörk vera fyrir því hve
Skrokkurinn 17 ára
hausinn miklu eldri
Pavel Ermolinskij, sem var nýorðinn ellefii ára gamall þegar
hann var í fyrsta sinn í leikmannahóp í úrvalsdeildiiun, er á
leiöinni til Spánar þar sem hann mun spila með einu af
fjórum bestu liðum landsins, Malaga. Pavel, sem lék með
franska liðinu Vichy í fyrra, æfði með liðinu fynr skömmu og
sagði í samtali við DV að hann ætti aðeins eftir að losna fra
franska liðinu áður en hann fengi samninginn frá Malaga.
„Ég æfði með þessu liði á
dögunum og leist alveg afskaplega
vel á allar aðstæður. Ég er ekki enn
búinn að fá samning en það gerist
á næstu dögum þegar ég er búinn
að fá félagaskipti frá franska liðinu
sem ég spilað með á sfðasta
tímabili," sagði Pavel við DV í gær.
Pavel átti frábæra leiki með
íslenska 19 ára landsliðinu á
Norðurlandamótinu í Svlþjóð og
hann sagði það vera eðlilegt skref
fyrir sig að fara til Spánar núna.
Skref upp á við
„Þetta er mjög sterkt lið, algjört
stórlið sem tólf þúsund manna
höll og nuddara á hverju strái.
Spænska deildin er mikið sterkari
en sú franska þannig að þetta er
skref upp á við fyrir mig. Ég tel mig
vera tilbúinn fyiír það enda þótt ég
geri mér grein fyrir því að ég mun
ekki spila mikið með aðalliðinu til
að byrja með. Þama em full-
komnar aðstæður til að bæta sig
sem körfuboltamaður og ég hyggst
nýta mér það," sagði Pavel sem
bjóstvið að séryrðiboðinnþriggja
til fjögurra ára samningur. „Ég er
það ungur að þeir fara varla að
gera styttri samning en það við
mig fyrst þeir em á annað borð að
gera samning."
Fuilgildur landsliðsmaður
Pavel hefur leikið með öllum
yngri landsliðum íslands og
einhveijum finnst vera kominn
tími til að haxm fái að spreyta sig
með A-landsliðinu. Hann er
íslenskur ríkisborgari, fékk ríkis-
borgararéttinn þegar hann var átta
ára og þar sem hann var ekki
orðinn átján ára þegar hann fékk
rflásborgararéttixm, er hann því
fullgildur íslenskur landsliðs-
maður, ólíkt Ðamon Johnson og
Brenton Birmingham sem þurfa
að berjast um eitt laust sæti í
landsliðinu handa leikmönnum af
erlendum uppruna sem fó
rfldsborgararétt á íslandi.
Klár ef kallið kemur
Aðspurður sagðist Pavel ekki
hugsa mikið um A-landsliðið en
neitaði því ekki aö það væri
draumurinn að komast í liðið.
„Ég er enn ungur og hef nógan
tíma. Það er auðvitað draumur
allra leikmanna að spila með
landsliðinu og ég verð tilbúinn ef
landsliðsþjálfarinn vill fó mig. Ég
held að ég sé klár til að æfe með
liðinu núna en ef ég á að vera
fullkomlega hreinskilinn þá spái
ég lítið f landsliðið. Eina sem
skiptir máli er að ég bæti mig sem
leikmaður og framhaldið verður
síðan að koma í ljós."
Einstakur leikmaður
„Pavel er einstakur leikmaður,
afskaplega samviskusamur og
góður drengur. Hann er tveggja
metra hár bakvörður og þeir vaxa
ekki á hveiju strái. Hann er eini
sinnar tegundar á íslandi og ég tel
að hann og Egill Jónasson,
miðheiji úr Njarðvík [innsk. blm.
sem er 2,14 metrarjséu þeir tveir
íslenskir leikmenn sem geta náð
hvað lengst þar sem þeir hafa
báðir forréttindi hvað varðar hæð í
sínum stöðum," sagði Einar Ámi
Jóhannsson, þjálfóri Njarðvíkur og
19 ára landsUðs íslands, en hann
stýrði Pavel og félögum hans í
liðinu til sigurs á Norður-
landamótinu f Svíþjóð f sfðasta
mánuðL
Ótrúlega þroskaður
„Skrokkurinn hans er kannski
sautján ára gamall en hausinn á
honum er miklu eldri. Hann er
ótrúlega þroskaður leikmaður
miðað við aldur og það hjálpar
honum mikið að hafe, þrátt fyrir
imgan aldur, spilað tvö ár í
úrvalsdeildinnL Hann tók mfldum
framförum úti í Frakklandi sfðasta
vetur og ég er ekki í vafa um að það
sama verði uppi á teningnum á
Spáni. Hann getur komist langt,
eins langt og hann vill en það er
undir honum sjálfum komið.
Hann þarf að halda áfram að
leggja hart að sér og ég get vel séð
hann fyrir mér í NBA-deildinni.
Það er ekkert slor að fó tveggja
metra bakvörð," sagði Einar Ámi í
samtali við DV í gær.
oskar@dv.is
Þreföld tvenna í
úrslitaleiknum
Pavel átti frábæra leiki með islenska 18
ára landsliðinu á Norðurlandamótinu
sem fram fór í Svíþjóð í vor en hann var
fyrirliði liðsins sem varð Norðurlanda-
meistari eftir sigur á Svíum í úrslita-
leiknum. Pavel sjálfur skoraði 17 stig,
tók 13 fráköst og gaf 13 stoðsendingar
í úrslitaleiknum og skilaði litlu minna í
hinum leikjunum fjórum á mótinu.
Reykjavíkurrisarnir, KR og Fylkir mætast á KR-vellinum i dag klukkan 17.
27 þúsund
Níunda umferð Landsbanka-
deildarinnar í knattspyrnu
karla heldur áfram um helgina
og í dag mætast Reykjavíkur-
risarnir og erkifjendur síðustu
ár, KR og Fylkir, á KR-
vellinum. Þetta er tíundi
deildar- og bikarleikur liðanna
frá 1999 og á þá hafa mætt
samtals 27 þúsund manns.
KR og Fylkir hafa setið í
toppsætum deildarinnar eftir 60 af
80 umferðum úrvalsdeildar karla frá
árinu 2000 og leikir liðanna hafa
verið þeir aðsóknarmestu öll þessi
26.793 manns á leikjum KR og
Fylkis frá 1999 Undanfarin ár
hefur verið frábær mæting á leiki
Reykjavikurrisanna og erkifjend-
anna úr KR og Fylki sem mætast i
manns hafa séð leiki liðanna frá 1999
fjögur tímabil. Flestir áhorfendur
komu á leik liðanna á KR-vellinum
árin 2000 (4120) og 2003 (3673) en
flestir komu á leiki liðanna á
Fylkisvellinum árin 2001 (2950) og
2002 (4833). Það hafa komið yfir
2000 manns á sjö síðustu
deildarleiki liðanna, samtals 22.528
manns eða 3218 að meðaltali í leik.
KR-ingar unnu heimaleikinn sinn
gegn Fylki í fyrra, 4-0, og lögðu þar
grunninn að íslandsmeistaratitli
sínum. Var það var fyrsti sigur liðsins
á Árbæjarliðinu í sjö leikjum eða
síðan að þeir unnu annan óbeinan
úrslitaleik liðanna á mótinu 2000.
KR-ingar státa ennfremur af
glæsilegu meti sem er enn í fullum
gangi en það hafa komið yfir 1000
manns á 35 deildarleiki í röð. Þá hafa
komið yfir þúsund manns á KR-
völlinn á 57 af síðustu 58
deildarleikjum liðsins, samtals
117.996 áhorfendur eða 2034 að
meðaltali á leik.
Auk leiks KR og Fylkis þá spila
ÍBV og ÍA á Hásteinsvelli í
Vestmannaeyjum klukkan 14 í dag
og á morgun klárast fyrri umferð
íslandsmótsins með leik FH og KA í
Kaplakrika í Hafnarfirði. Tveir leikir
hafa þegar farið fram í tíundu
umferð en henni lýkur á þriðjudag
og miðvikudag með þremur
leikjum. Það er því mikið um að vera
í Landsbankadeild karla.