Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2004, Side 47
DV Síöast en ekki síst
LAUGARDAGUR 10. JÚLl2004 47
r
Fótaskortur á tungunni?
Þegar ég var lítill leit ég upp til
Amerrku af því að Ameríka kom
Evrópu til bjargar í tveimur heims-
styrjöldum. Og Ameríka sendi gnótt
fjár til stríðshrjáðra ríkja Evrópu -
líka til litla fslands - eftir síðasta
stórstríðið. Ekki létu Bandaríkja-
menn þar við sitja heldur héldu
þeir verndarvæng sínum yfir Evr-
ópu svo hún fengi andrými til að
stunda viðskipti í og uppbyggingu í
stað hervæðingar til að vernda sig
gegn „hinu illa veldi" kommúnism-
ans í austri. Það var ríkissjónvarpið
(þá var bara eitt sjónvarp og forseti
sem sat á friðarstóli) sem sýndi mér
fram á mikilfengleik Ameríku svart
á hvítu. I þá tíð sýndi rtkissjónvarp-
ið í síbylju breskar og bandarískar
heimildarmyndir um stríðin. Þess á
milli var boðið uppá kábojamyndir.
I því sjónarspili stráfelldu kábojar
indíána undantekningar- og
áreynslulaust. Til að undirstrika
hetjudáðirnar voru kábojarnir yfir-
leitt miklu fámennari og dunduðu
sér við að fíra niður heilu ættbálk-
ana sem riðu í gólandi ofboði beint
í kúlnahríð kúrekanna og féllu hver
á fætur öðrum af hestbaki með
dauðans tilþrifum. Svo fór um orr-
ustur þær.
ísfirskir kábojar
Við púkarnir á ísafirði öpuðum
þetta stundum eftir í hlíðum Eyrar-
fjalls við Skutulsfjörð og skutum á
ímyndaða indíána út um hvippinn
og hvappinn með teygju- og túttu-
byssum. Enginn fékk inngöngu í
þann félagsskap nema eftir langar
og strangar yfirheyrslur og vitna-
leiðslur sem sönnuðu að viðkom-
andi héldi með kábojum gegn
minnimáttar og lítilsverðum indí-
ánum. Var það von að ég hafði
snemma komið mér upp aðdáun á
Glúmur Baldvinsson
skrifar um heimsókn
Davíðs til George Bush.
Kjallari
kúrekum og Ameríku og deildi hart
við foreldra mína sem þá höfðu
ekki náð nægilegum þroska til að
hætta að marsera í Keflavíkurgöng-
um?
En tíminn leið og maður óx úr
grasi og heimsótti Ameríku og aðra
heima. Ég er hættur að halda með
kábojum á móti indíánum og langt
er síðan aðdáun mín á Ameríku
þvarr.
Kábojaafmæli í Hvíta húsinu
Sömu sögu er ekki að segja af
forsætisráðherra vorum. Alla vega
virðist hann enn halda með kúrek-
um á móti indíánum. Kannski af
því að hann hleypti aldrei heim-
draganum og hélt sig í heimahög-
um (í kábojaleik)? Aðdáun Davíðs á
yfirkáboja veraldar frá Texas,
Mekka kúrekans, kom pínlega í ljós
í nýafstöðnu afmælisboði forsetans
í Hvíta húsinu. Aðdáun Davíðs á
Bush virðist ómæld og óskilyrt líkt
og óendurgoldin ást sem aldrei
deyr. Davíð í Hvíta húsinu er sem
annar náungi víðsíjarri þeim Davíð
sem við þekkjum í hvíta húsinu
hans við Lækjargötu.
í afmælisboðinu hjá Bush var
enginn Bubbi kóngur heldur virtist
þar dúkka upp fremur feiminn, lítill
skólastrákur fullur blygðunar og
lotningar. Maðurinn sem lítur ekki
upp til nokkurs manns á fróni virt-
ist hikandi og undirgefinn í landi
villta vestursins frammi fyrir Texas-
kúrekanum. Eða kannski varð hon-
um bara fótaskortur á hinni hálu
ensku? Og hver láir honum það í
viðurvist Bush sem hefur terroriser-
að enska tungu alla tíð. Það er erfitt
að fullyrða en ég leyfi mér að halda
í þá von að Davíð hafi hreinlega
mismælt sig þegar hann fullyrti við
fréttamenn í Hvíta húsinu að árásin
á frak hefði gefið mannkyni nýja
von. Að von mannkynsins hefði
vaxið eftir stríðið í írak. Svo sagði
hann, aðspurður, um árangur af
fundinum: „Það var aldrei - fund-
urinn snerist ekki um að ná sam-
komulagi." Það gaf von minni byr
undir báða vængi um að þetta með
vonina hefðu líklega verið mismæli.
Að vísu er ég sammála Davíð um
það að fundir eru sjaldan líklegir til
niðurstöðu. Ég tala nú ekki um
vinafögnuð þar sem yfirkábojinn
býður sínum uppáhaldskúrekum
og jámönnum í afmælisteiti.
Hin nýja von?
Aukin og meiri von í heiminum?
Hvað hafa margir Bandaríkjamenn,
írakar og aðrir fallið í írak frá upp-
hafi stríðs? Hvernig hafa gíslar verið
aflífaðir? Hvemig voru íraskir fangar
pyntaðir og af hverjum? Hversu
mörg hafa sjálfsvígin verið og hversu
mörgum hafa þau grandað? Hvað
féllu margir £ blóðbaðinu í Madríd?
Hvað falla margir í viku hverri í átök-
um á milli ísraels og Palestínu? Frá
fýrsta degi stríðsins í írak hófst færi-
bandaframleiðsla á terroristum,
mönnum sem ella hefðu valið sér
friðsamlegri iðju. Frá því kábojinn
náði völdum hefur heimsbyggðin
verið á hraðri leið að barmi ógnar og
sundrungar.
Hvaða heim er Davíð Oddsson að
tala um? Um hyldýpisgjánna í hlíð-
inni heima, Góðravonahöfða eða
heiminn gervallan? Hann mismælti
sig, það hlýtur að vera.
• Fari svo að Bjöm Bjamason
dragi sig úr stjórnmálum losnar ■<*
ekki aðeins þingsæti heldur líka
sæti borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins.
Þá er talið mögulegt
að Gísli Marteinn
Baldursson, sjón-
varpsstjarna og
besti vinur Hannes-
ar, taki sæti sem að-
alborgarfulltrúi og
myndi stefna á að verða oddviti
listans og borgarstjóraefni Sjálf-
stæðisflokksins. Á því er sá ann-
marki að Gísli Marteinn hefur ekki «:
enn getað gert upp við sig hvort
hann á að taka stökkið og hætta í
vellaunaðri og áberandi stöðu hjá
sjónvarpinu til að taka áhættuna í
Reykjavík, þar sem flest bendir til
að Reykjavikurlisti undir forystu
Þórólfe Ámasonar myndi gjörsigra
Sjálfstæðisflokkinn í fjórða sinn...
• Velgengni sjónvarpsþáttarins
Popppunkts á Skjá einum hefur
verið mikil síðustu árin. Undir
styrkri stjórn Dr. Gunna og Felix
Bergssonar náði
þátturinn mikilli
hylli sjónvarps-
áhorfenda, svo mik-
illi að í vor var hann
á meðal vinsælustu
þátta Skjás eins.
Síðustu vikur og
mánuði hefur
heyrst ávæningur af því að tU
standi að gefa út spurningaspU upp
úr þáttunum og nú gæti það orðið
að veruleika. Dr. Gunni segir á
heimasíðu sinni: „Fundaði v/ PP-
spUsins. Útlit fýrir að það komist á
koppinn fyrir jólin. Samt eru birgjar
uggandi v/ lélegs gengis Séð og
heyrt-spUsins, sem rústaði eigin-
lega borðspUaútgáfumarkaðnum."
Það skyldi þó aldrei vera að Dr.
Gunni yrði vinsæUi en siðapostull-
inn Kristján Þorvaldsson...
með hagstæðari lánum
fasteignalán
nýbyggingalán
sumarhúsalán
hesthúsalán
Þekking og reynsla í þína þágu
, Við einsetjum okkur að veita
persónulega og sveigjanlega
þjónustu"
Kristinn Bjarnason
framkvæmdastjóri
á
*
*
•v