Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1892, Blaðsíða 82
sem þeim er til skaða. þá ákvörðun er eins hægt að gjöra á 5
mínútum eins og á 5 árum.
Meðan jeg beið eptir morgun-og miðdagsmat mínum, skrif-
aði jeg á hverjum degi nokkur orð; þetta varð með tímanum að
nokkuð stórri bók, sem nú er lesin af mörgum, ef til vill ein-
hvequm til gagns«.
Jón Barford sagði: Níska er talin löstur, en þó er ein
undantekning, menn eiga að vera nískir á tímanum, því það
er dyggð.
Ef jeg hefði ekki opt þurft að eyða tíma til þess að tala
við leiðinlegt fólk, sem engan gagnlegan ásetning hafði, eða bíða
eptir mönnum, sem höfðu mælt mjer mót og komu^of seint_, af
því þeir kunnu ekki að meta tímann, þá væri jeg búinn að vinna
miklu meira til gagns enn jeg hef gjört.
þó menn inissi peninga, og jafnvel heilsuna, þá geta menn
öpt fengið hvorttveggja aptur, en tíma, sem menn hafa eytt til
ónýtis geta menn aldrei fengið aptur, því menn eldast með
hvequm degi og geta ekki orðið ungir aptur.
Auður auðmannsins er gull og demantar, auður hvers manns
er tíminn, sje hann vel notaðnr. Hann skiptist í mínútur eins
og auður auðmannsins í krónur. Fari hann illa með krónurnar
og þú með mínútumar, þá verðið þið báðir fátækir.
Gamli og ungi vin. Settu ekki of lágt verð á 5 mínútur.
Á ekki lengri tíma getur þú eyþilagt mannorð þitt og lífið, hvort
það verður stutt eða langt. Á jafnlöngum tíma getur þú lagt
grundvöll framtíðar þinnar, og ráðið það af, sem mörgum getur
orðið til góðs.
»Margt smátt gjörir eitt stórt«. Vatnsdroparnir mynda
sjóinn og sandkornin yfirborð jarðarinnar.
t. o.
Skemmtivísur
eptir Pál Ölafsson.
Kátlegt efni komið er
kveða held jeg um það verði
gefið hef jeg húfu af mjer
honum Jóni í Bakkagerði;
það hann húfu þáði mína
þykir mikla dirfsku sýna.
þessi dirfska sjerhver sjer
sómir ekki að fijettist hjeðan
hann að beri húfu af mjer
við heyjatöku og fjósasleðann,
bláa, sem jeg bar á þingi
þá barðist jeg fyrir almenningi.
Mæti jeg þessum manni á ferð
á rnannfundum þó langtum
fremur
mínu höfði er minnkun gerð
meir en hundrað krónum nemur,
og hjer tekur hann aldrei ofan
og er þó máluð hjá mjer stofan.
Hver sem minni húfu nær
helzt af öllu þó með góðu
fjórðungskút í kaupið fær
kaffi og sikur, troðna skjóðu;
enda helming eigna minna
allt skal fyrir sómann vinna.