Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1892, Blaðsíða 86
Oáleysi. Vinnukonan: Jeg hef heyrt sagt að yðnr vantí
vinnnkonu, viljið þjer ekki taka mig«.
Frúin: »Eigið þjer nokkurn kærastan.
Vinnukonan: »Nei«. — Frúin: »Hvað heitir hann«.
Vinnukonan: »Pjetur«.
*
* *
Húsmóðirin: »Hvernig skemmtir þú þjer í kvöld á 1000
ára hátíðinni".
Vinnukonan (ergileg af því að enginn dansaði við hana,
eða sýridi henni aðra kurteysi): »Svei! það skal verða í sein-
asta sinni, sem jeg kem á 1000 ára hátíð«.
Húsm.: »Jeg held þú getir efnt það hróið mitt, þú lifir
líklega ekk svo lengi».
Vinnuk.: »Jeg held það geti skjeð, að maður lifi ekki
alla sína æfi«.
*
sjt sic
A: «Hverjir fara hezt með skynlausu skepnurnar».
B: »Islendingar«. — A: »pví heldur þú það?«
B: «Manstu eptir því að lögunum »um hegningu fyrir illa
meðferð á skepnum« hafi verið beitt, eða nokkrum liegnt eptir
þeim? Jeg man það.ekki, og hlítur það að koma af því, að
meðferð á skepnum á íslandi er fyrirtaks góð.
5»: *
Sigurður brennir: Hefði jeg aldrei farið úr Brenniási,
þá væri jeg þar ennþá.
*
. . * *
Jakob átti rauðan hest, lítinn vexti, sem var ákaflega hnot-
gjarn. Hesturinn lauk svo æfi sinni, að hann hálsbrotnaði ofan
á Jakobi einu sinni er hann datt. Jakob fjekk sjer þá annan
hest stóran vexti, sem líka var mjög fótfúinn. Mánuði síðar
kom hann með hestinn til seljandans og vildi skila honum
aptur. Seljandi spyr hvernig í því standi. Jakob svaraði því,
að hesturinn væri svo þungur. Seljandi kvaðst þó ekki hafa
reynt það af klárnum að hann væri latur. »það var heldnr ekki
það sem jeg átti við«, svaraði Jakob, »en hann er svo miklu
þyngri ofan á mjer þegar hann dettur heldur en hann litli
Rauður minn var«.
*
* *
Nikulás í Hólkoti kom seint á hreppamót, og var þá
búið að setja honum ómaga árlangt. Nikul. þóttist verða hart
úti og færðist undan því að taka við þurfalingnum. Presturinn
var í fátækranefnd og leitaði Nikulás til hans og vildi fá þessari
ákvörðun breytt.
Presturinn sagðist segja eins og Pílatus: »það sem jeg
hef skrifað, það hefjeg skrifað* og verður þú að sættaþig við þetta.
Nikulás svaraði: »Já, þetta sagði Pílatus, en gætið þjer
að því prestur minn góður, hann varð sjer líka til bölfaðrar
skammar fyrir það.
T. d.