Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1915, Blaðsíða 8
VI
17. janúar 1914 greifadóttir Matthildur Calví dí
Bergóló, prinsessa og greifaynja af Rósenborg,
fædd 25. marz 1890.
b. Axel Kristján Georg, fæddur 12. ágúst 1888.
c. Eirikur Friðrekur Kristján Alexander, fæddur 8.
nóv. 1890.
d. Viggó Kristján Adólfur Georg, fæddur 25. desbr.
1893.
e. Margrét Fransiska Lovísa María Helena, fædd
17. sept. 1895.
Eptir fyrirmælum laga 16. nóv. 1907 um ákvörðun
tímans skal hvarvetna á íslandi telja eyktir eptir meðalsól-
tíma á 15. lengdarstigi fyrir vestan Greenvvich. í almanaki
þessu eru pví allar stundir taldar eptir pessum svonefnda
íslenzka meðaltima, og eru þær 28 mínútum hærri en eptir
miðtíma Reykjavíkur, sem þangað til 1908 hefur verið fylgt
( þessu almanaki.
í gömlu íslenzku tímatali skyldi dagur fyr koma en
nótt alls missiristals, en ! almanökum vorum nú er hver
dagur talinn frá miðnætti til miðnættis, svo að þær 12
stundir, sem eru frá miðnætti til hádegis, eru táknaðar
með „f. m.“ (fyrir miðdegi), en hinar 12 frá hádegi til
miðnættis með „e. m.“ (eptir miðdegi).
í þriðja dálki hverrar mánaðartöflu er töluröð, sem
sýnir, hverja stund og mínútu tungl er í hádegisstað í
Reykjavík. Um þetta má enn frekar sjá í greininni „Gang-
ur tungls og sólar á Islandi".
í yzta dálki til hægri handar stendur íslenzka tíma-
talið forna. Eptir því er árinu skipt í 12 mánuði þrítug-
nætta og 4 daga umfram, sem ávalt skulu fylgja þriðja
mánuði sumars; í því er aukið viku 5. eða 6. hvert ár;
það heitir sumarauki eða lagningarvika.