Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1932, Qupperneq 48
skáldið á félagsmáiefnum á skáldlegan hátt (t. d.
einkum í »Grubblaren« og hinu glæsilega kvæði
»Gróttasöngur«).
í bókmenntum Svía er Rydberg einn aðalfrum-
kvöðla frjálslegra skoðana. Hann er sterkur hug-
sjónamaður og skáldskapur hans mjög huglægur; pví
eru menn peir, er fyrir koma í skáldritum hans,
fremur sjónarmið sjálfs hans en einstaklingar, ljóð
hans einnig síður borin fram af geöbrigðum en djúpri
hugsun og karlmannlegri vizku. Samhliða alhliða
heimsþekkingu, er Rydberg hafði til að bera, og áhuga
um allsherjarmál, var hann og rammur pjóðernis-
sinnii öllum greinum. Hann var einn ritfærastur mað-
ur með Svíum sinnar tíðar, bar manna brzt skyn á
eðli tungu sinnar; hann beitti sér og sterklega fyrir
málhreinsun, sem fyrr getur. Öilum pjóðlegum fræð-
um unni hann og sinnti; enginn hefir t. d. betur en
hann lýst gildi ættfræði, og er par pó um pá fræði-
grein að ræða, sem flestir munu teija til hinna and-
lausari. Starf hans allt verður ekki skilið réttilega,
nema í tengslum við sænska menning; áhrif hans
verða pá og sterkust innan pess garðs.
Snemma kynntist Rydberg ísleczkum fornritum og
varð mjög hugfanginn af. Pví varð hann og feginn,
er hann varð pess umkominn að styðja málstað ís-
lendinga, undir forustu Jóns Sigurðssonar. Pað á ekki
við hér að rekja pað mál nánara, með pví að nokk-
ur grein mun á pví gerð í riti félagsins um Jón Sig-
urðsson, síðasta bindi pess, og félagsmönnum par
gefinn kostur á að kynna sér pað efni.
Rydberg andaðist 21. sept. 1895.
Sveinn Hedlund.
Hann hét fullu nafni Sveinn (Sven) Adolf Hedlund.
Hann fæddist 24. febr. 1821, varð stúdent i Uppsölum
1839 og lauk par námi 1845 i fornmenntum og mál-
(44)