Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1947, Side 38
astir til að batna við penisillínmeðferð. Kemur þetta
sér einkum vel vegna þess, að súlfalyfin, sem voru
mörgum sýklum lyfja skæðust, áður en penisillín
fannst, dugðu lítt gegn þeim sjúkdómum, er klasa-
sýklar valda, og þótt þau dygðu vel í fyrstu gegn
lekanda, fór oft svo, að lekandasýklarnir urðu mjög
fljótt ónæmir gegn þeim, svo að sjúklingunum versn-
aði aftur, þótt lyfið væri notað áfram. Þá kemur
penisillín i góðar þarfir. Fyrir kemur það og, að
sýklar verða ónæmir gegn penisillíni, er það hefur
verið notað nokkra hríð, einkum ef það hefur ekki
verið notað í nógu stórum skömmtum fyrst. Gefst
þá oft vel að nota bæði penisillín og súlfalyf, þvi
að sjaldan verða sýklar ónæmir gegn þeim báðum,
ef þeir hafa verið næmir fyrir áhrifum þeirra á
annað borð. — Yfirleitt má heita, að ágætur árangur
hafi fengizt af penisillínmeðferð sýklamengaðra
sára og opinna beinbrota og sjúkdóma þeirra, er
frá þeim stafa, svo sem graftarsótt, beinbólgu og
gasíg'erðum, við barnsfararsótt og lífhimnubólgu,
bólguveiki, heimakomu, skarlatssótt og keðjusýkla-
hálsbólgu, lungnabólgu, hvort sem henni valda
lungnabólgusýklar eða keðjusýklar, og við ígerð i
brjóstholinu af þessara sýkla völdum, við heilasótt,
hvort sem henni valda heilasóttarsýklar, lungna-
bólusýklar eða keðjusýklar, o. fl. Sérstaklega hefur
penisillín reynzt áhrifarikt við lekanda, eins og
þegar hefur verið drepið á. Hefur stundum tekizt að
lækna lekandasjúklinga til fulls á einum sólarhring,
með því að gefa lyfið i nægilega stórum skömmt-
um, svo að nú munu flestir eða allir hættir við hina
seinvirku og litt öruggu lækningaaðferð við lekanda
að dæla sóttvarnarlyfjum i þvagrásina, en sú lækn-
ing tók margar vikur, þegar bezt lét. Tilraunir þær,
sem gerðar hafa verið til að lækna sárasótt með
penisillíni, hafa og gefið góða raun, það sem þær ná,
(36)