Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Árgangur

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1960, Blaðsíða 24

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1960, Blaðsíða 24
GEIMGEISLAR Vel mœtti kalla hið sýnilega ljós frá fastastjörnunum geimgeisla, og einnig mætti nota það heiti um „útvarpsbylgjur“ þær, sem berast til jarðar utan úr himingeim- inum, eins og frá var sagt í almanakinu 1956. Orð þetta er þó alls ekki notað í þeim mcrkingum, heklur sem heiti á annarri, miklu „harðari“ geislun. Ccimgeislar eru í fyrsta lagi atómkjarnar, sem berast um geiminn mcð svo að segja Ijóshraða (frum- gcislun), og í öðru lagi ýmsar aðrar frumagnir, svo og gamma- og röntgengeislar, sem verða til í lofthjúpi jarðar við árekstra frumgeislanna. Frumgeislarnir, sem berast að jörðunni jafnt úr öllum áttum, eru naktir atómkjarnar (þ. e. án elektrónuhjúps), hlaðnir jákvæðu rafmagni. Þar ber mest á vetnis- og þvínæst hclíumkjörnum, en auk þeirra eru þar kjarnar þyngri frumefna allt upp £ 26. atómnúmer (járn) eða jafnvel hið 27. Til þess að skilja bctur áhrif þau. sem geislun þessi hcfur, er hún fellur á andrúms- loft jarðar, er rétt að glöggva sig nokkuð á braðfleygum atómögnum, sem eru frara- leiddar í tilraunastofum. Hlaðin ögn, sem fellur án núningsmótstöðu milli rafskauta, fær því meiri lokahraða sem spennumunurinn er meiri. Hreyfiorka elektrónu, sem fellur um 1 volts spennumun, er notuð sem eining um hreyfiorku atómagna og kölluð eitt elektrónuvolt (skammstafað ev). í kjarnakljúfum er ögnunum veitt hreyfiorka, sem nemur hundruðum milljóna og jafnvel milljörðum elektrónuvolta. Með slíkri hreyfiorku geta þær brotizt inn í atómkjarna í efni, sem þeim er beint á, og hróflað við gerð þeirra. En agnirnar í geimgeislum hafa miklu meiri hrevfiorku en hægt er að framleiða í kjarnakljúfum, allt að hundrað milljón sinnum meiri orku á hverja ögn. í þessari geislun býr þannig reginmáttur, og er Ijóst, að ekki muni það veröa tíðindalaust, að hún mæðir í sífellu á ytri lögum andrúmsloftsins. í stuttu máli sagt leiðir áreksturinn við andrúmsloftið til mikillar sundrunar og breytinga á atómkjörnum. bæði þeim, sem eru í frumgeislunum, og þeim, sem eru í atómum loftsins. í ytri loftlögum er sífelld framleiðsla á ýmiss konar brotum úr atómkjörnum, á ýmsum tegundum frumagna, og heita þær nöfnum eins og elektrónur, mesónur, pósitrónur, nevtrónur, anti-nevtrónur, prótónur, anti-prótónur og hýperónur. Loks myndast gamma- og röntgengeislar. Þá myndast og ýmis geislavirk atóm- afbrigði. Frumgeislunin nær ekki að berast niður til yfirborðs jarðar, og sama er að segja um meginið af þeim ögnum og þeirri rafsegulgeislun, sem hún framleiðir í yztu loft- lögum. En jufnframt því sem geislunin eyðist, sérstaklega við árekstra. skapar hún neðar £ andrúmsloftinu nýja gcislun, en veikari, og nær á þann hátt óbein geislun niður til jarðar. Hún er enn mjög ,,hörð“, þ. e. veldur djúptækum áhrifum og fer gegnum þykka veggi. Hún getur m. a. raskað kjörnum í lifandi frumum og á þann hátt valdið breytingu á erfðaeinkcnnum. Magn geislunarinnar er þó svo lítið (heildar- orka frumgcislunarinnar, sem fellur á jörðina er talin sambærileg við Ijósorkuna frá stjörnubjörtum næturhimni), að jarðlífinu er ekki talin stafa hætta af henni. Áhrifin þyrftu heldur ekki að vera eingöngu hættuleg, og því hefur oft verið haldið fram, að geimgeislarnir hafi átt verulcgan þátt £ þróun jarðlifsins. Og þar sem nú er talið hugsanlegt, að geimgeislarnir hafi stundum verið miklu sterkari en nú, kynni áhrifa þeirra að hafa gætt meira á sum stig þróunarinnar en önnur. Áður var getið, að geimgeislar skapa ýmis geislavirk atómafbrigði i andrúms- loftinu. Af níu slíkum atómtegundum, sem þekktar eru, má sérstaklega nefna þrjár: 1) Þríþungt vetni, H*, eða tritium. Það myndast sem brot úr kjömum köfnunar- efnis og súrefnis. Helmingunartimi þess (tíminn, unz það hefur umbreytzt að hálfu) er 12 y2 ár. Með rannsókn á magni þess i vatni og sjó má fá vitneskju um aldur lindar- vatns og um hraða lóðréttrar hringrásar í höfunum. — 2) Kolefni með þunga 14,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.