Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1968, Page 99
til að halda þeim saman, meðan tilraun var gerð til að skapa
líkingu við þyngdarafl með snúningi þeirra um sameiginlegan
öxul. Tilraunin tókst allvel og náðist þyngdarafl, sem nam
um 1/10000 af aðdráttarafli jarðar. Þessi ferð stóð frá 12. til
15. september.
Gemini áætluninni lauk svo í nóvember með flugi þeirra
James Lovell og Evvin Aldrin í Gemini 12. Tók það geimflug
fjóra sólarhringa. Gerðar voru ýmsar tilraunir til stefnumóts
og tengingar við Agena flaug til að fullreyna, að nauðsynleg
tækni til Apollo geimferðanna væri fyrir hendi. Þessar tilraunir
tókust allar fullkomlega. Vísindamönnum til mikils léttis
tókst Aldrin einnig að yfirvinna þreytuna, sem áður hafði
þjáð geimfara. Dvaldist hann utan geimskipsins í fimm og
hálfa klukkustund og framkvæmdi margvísleg störf. Gemini
12 lenti á Atlantshafi 15. nóvember og tókst lendingin mjög vel.
Við lok Gemini áætlunarinnar höfðu Bandaríkjamenn náð
verulegum áfanga í mönnuðu geimflugi og lagt traustan
tæknilegan grundvöll fyrir Apollo geimflugin, sem fram-
undan voru. í árslok höfðu bandarískir geimfarar flogið
1993 klukkustundir í geimnum, en sovézkir 507 stundir.
Apollo áætlunin var í rauninni hafin áður en Gemini til-
raununum lauk, því að á árinu 1966 voru framkvæmdar
tvær tilraunir með ómönnuð Apollo skip, til að reyna hita-
hlífar þeirra og annan búnað. Við geimskot þessi voru notað-
ar hinar öflugu Satúrnus 1B flaugar, en þær eru fyrirrenn-
arar Satúrnus 5 flauganna, sem notaðar verða til tunglferða.
Tunglflaugar.
Sovétríkin unnu fyrsta stórafrekið á þessu sviði, þegar
þeim tókst að lenda flaug á tunglinu óskaddaðri eftir ítrek-
aðar tilraunir. Lendingin tókst 31. janúar 1966 og sendi
flaugin, sem nefndist Luna 9, nokkrar myndir til jarðar af
yfirborði tunglsins og veitti jafnframt fyrstu upplýsingarnar
um burðarþol yfirborðsins. Lending Luna 9 var þó harðari
(97)
7