Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1968, Síða 140
aðgerðir, sem nú verður lýst, eru að vísu heldur ekki lækning
sjúkdómsins sjálfs, en þær losa sjúklinginn þó langoftast við
notkun heyrnartækja, sem mörgum reynast hvimleið og
þungbær til lengdar og skaða tóngæði verulega.
Langt er síðan fyrstu tilraunir voru gerðar til að lækna
heyrnarmissi vegna eyrnakölkunar með aðgerð. Árið 1876
hóf Þjóðverjinn Kessel aðgerðir á ístaði í þessum tilgangi.
Svipaðar aðgerðir tíðkuðust nokkuð fram undir síðustu
aldamót, en lögðust þá niður aftur, sennilega vegna þess, að
þá höfðu menn hvorki smásjár til aðgerða né heldur fúkka-
eða súlfalyf til að koma í veg fyrir bólgur og ígerðir eftir á.
Árið 1938 tóku þeir Frakkinn Sourdille og Bandaríkja-
maðurinn Lempert hvor í sínu lagi að gera svonefnda gluggaað-
gerð, sem byggð var á löngu brautryðjendastarfi Ungverjans
Báránys, Svíans Holmgrens o.fl. Þessi aðgerð var í því fólgin,
að gluggi var gerður á einn bogagang völundarhússins og húð
grædd yfir þennan glugga. Heyrnin batnar oftast þó nokkuð
við þessa aðgerð, en hún hefur ýmsa galla. Til þess að komast
að bogaganginum þarf að gera allstóran afhelli út frá eyrna-
gangi. Slík hola þarfnast eftirlits hjá lækni alla ævi, og oft
helzt meiri eða minni útferð úr henni. í öðru lagi hefur reynzlan
orðið sú, a.m.k. í þeim tilfellum, sem ég hef haft kynni af, að
heyrnin smádvínar aftur, þegar frá líður. Loks eru þetta mjög
vandasamar aðgerðir, en árangur þó mun lakari en af þeim
ístaðsaðgerðum, sem síðan hafa komið til sögunnar.
Árið 1952 birti Bandaríkjamaðurinn Rosen grein um
árangur af aðgerð, sem hann nefndi ístaðslosun. Sú aðgerð
er í því fólgin, að stjakað er við hinu fastgróna ístaði, þangað
til það losnar og endurheimtir að mestu eða öllu sinn eðlilega
hreyfanleika. Við þetta batnar heyrnin. Aðgerðin er fram-
kvæmd á eftirfarandi hátt (sjá 2. mynd). Horft er gegnum
aðgerðarsmásjá inn í eyrað. Skurður er skorinn meðfram
hljóðhimnunni aftanverðri í nokkurra mm íjarlægð frá henni
í tæplega hálfan hring. Síðan er eyrnagangshúðin losuð niður
(138)