Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2004, Blaðsíða 32
r* f t J í 0 í Wð föfrum Wðl
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
I nafnleyndar er gætt. a \ r-J r \ C \ f \
■— zjzjU zjUUU
SKAFTAHLÍÐ 24, WSREYKJAi/íK [ STOFNAÐ 1910 ] SÍMIS50S000
*jk
• Mikið
fjaðrafok varð
þegar Ragnhild-
nr Amljótsdóttir
var skipuð ráðu-
neytisstjóri í fé-
lagsmálaráðu-
neytinu. Kæra er
enn til meðferð-
ar hjá Umboðs-
manni alþingis. Meðal þess sem
kemur til umfjöllunar er hvort
Ragnhildur hafi skreytt sig með
stolnum fjöðrum í umsókninni.
í umsókninni kom fram að á
verksviði hennar væri meðal
annars „yfirumsjón rekstrar,
starfsmannamála og fjármála,
en ráðuneytið fer með nærri
helming ríkisútgjalda," eins og
það var orðað. Því er hvíslað að
ábyrgð hennar hafi verið á
rekstri skrifstofu ráðuneytisins
en ekkert haft með rekstur heil-
brigðiskerfisins að gera...
Vill enginn kaupa mig?
3 Líoéc
ísmaðuninn í viðtal við New Yðrk limes
Hugsar meira um grálúðu en írægð
„Ég veit ekkert hvern djöfulinn ég á að
babla við þá,“ segir Sigurður Pétursson, fs-
maðurinn í Kuummiit í Grænlandi, sem á
næstunni fer í viðtal hjá tímaritsútgáfu
frægasta dagblaðs heims, New York Times
Magazine.
Sigurður varð heimsfrægur á síðasta ári
undir heitinu The Iceman þegar hann fang-
aði hákarl í sjónum við Grænland berhentur
og drap hann með hnífi uppi á landi.
Áður hefur ísmaðurinn hafnað viðtali
við útbreiddasta blað Bretíands, The Sun,
og National Geographic. Eftir að hann drap
hákarlinn vildi Sun senda blaða-
mannateymi til Kuummiit, en þá lét Sig-
urður sig hverfa í nokkra daga, fór á sjó og
ekki náðist í hann. Ástæðan fyrir því var
einna helst að hann kann ekki ensku, eins
og hann segir, „ég er enginn enskumæl-
andi maður“. En bandaríski blaðamaður-
inn Steve Kurutz hefur ákveðið að ráða sér
túlk fyrir viðtalið. „Ég er alveg til í þetta, en
ég hef engan áhuga á því að verða frægur,"
segir Sigurður.
Sigurði ísmanni er líkt við Bandaríkja-
manninn Eustace Conway, sem ferðaðist
um Bandaríkin á hestbaki. Hann var
nefndur „Síðasti Bandarlkjamaðurinn" í
vinsælli bók. Viðtalið mun endurspegla
tengsl mannsins við harkalega náttúruna,
sem flestir nútímamenn hafa rofið.
Sigurður ísmaður segist í samtali við DV
hafa meira verið að hugsa um grálúðu en
New York Times. „Ég hef verið að veiða
grálúðu. Það er svona dund. Við erum ekk-
ert að stressa okkur hér, hér er allt opið enn
og enginn vetrarís," segir Sigurður, og er
ekki á leiðinni aftur til Islands. „Ég held ég
myndi ekki vilja flytja aftur í bílatraffíkina
þarna heima."
Athygli vekur að á sama tíma og New
York Times reynir við ísmanninn er hópur
íslendinga að reyna að fá birta auglýsingu í
blaðinu. Þar verður því lýst yfir að íslenska
þjóðin hafi ekki stutt stuðning ríkisstjórn-
arinnar við Íraksstríðið.
Auk viðtalsins í New York Times Maga-
zine stendur nú yfir gerð heimildarmyndar
um ísmanninn og hans mögnuðu uppá-
tæki. Það eru Lýður Árnason læknir,
Jóakim Reynisson kvikmyndagerðarmaður
og Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs,
sem standa að gerð myndarinnar. Líklegt
er að hún verði sýnd um allan heim.
ísmaðurinn Isfirski togaraskip-
stjórinn sem sneri baki viö Islandi
og flutti f grænlenskt smáþorp.
Halldór og Davíð kaupa
skrípamyndir af sjálfum sér
„Það var fallega
gert,“ segir Sig-
mund Jóhannsson
teiknari í Vest-
mannaeyjum en í
gær tilkynnti for-
sætisráðuneytið
að ríkisstjórnin
hefði ákveðið að
kaupa safn teikni-
mynda Sigmunds
af Morgunblað-
inu. Halldór Ás-
grímsson lagði þetta
fyrir ríkisstjórnina, sem
samþykkti að kaupa skrípa-
myndir Sigmunds í tilefni af 60 ára
lýðveldisins íslands og í tengslum
við 100 ára afmæli heimastjórnar-
innar. Sigmund er þekktastur fyrir
teiknimyndir sín-
ar sem hafa birst
á síðu 6 í Mogg-
anum í 40 ár en
hann hefur
einnig getið sér
orð fyrir uppfinn-
ingar sínar. For-
sætisráðuneytið
segir að teikning-
ar Sigmunds séu
á sinn hátt aldar-
spegill þjóðarinn-
ar og megi með þeim
skoða sögu íslenskra
stjórnmála ekki síður
en atvinnulífs. Ríkisstjórnin telur
ljóst að heimildargildi teikninganna
sé mikið, bæði fyrir fræðimenn og
ekki síður almenning.
Eva María ekki eins og Sirrý
Eva María Jónsdóttir, sem verið
hefur ein vinsælasta sjónvarpskona
landsins til margra ára, söðlar um
eftir barneignarleyfi og flytur sig frá
Sjónvarpinu yfir á Stöð 2. Þar verður
hún með vikulega þætti eftir ára-
mót.
Enn hefur ekki verið uppljóstrað
um efni eða nafn á þætti Evu Maríu,
sem hingað til hefur verið sérfræð-
ingur í að búa til mannlífsinnslög.
Eva vildi ekkert tjá sig um mál-
ið; sagði þetta allt á undirbún-
ingsstigi enn sem komið væri.
Hún vísaði á bug öllum sögu-
sögnum um að þáttur hennar
yrði eitthvað á svipuðum nót-
um og Fólk með Sirrý á Skjá
einum:
„Það er alrangt. Ég er ekki
að fara að gera neitt eins og
neinn,“ segir Eva María - sem
ætíar að fjalla um fólk en á
annan hátt en aðrir gera í sjón-
varpi á íslandi í dag.
Djúpsteiktar rækjur
Original hot and
sweet svínakjöt
Snöggsteikt nauta-
kjöt í ostrusósu
Kinverskar
eggjanúðlur
m/kjúklingi og
grænmeti
Hrísgrjón, súrsæt
sósa, prjónar og
soya sósa
Djúpsteiktar rækjur
Peking kjúklingur
m/kínasveppum
Wok steikt lamba-
kjöt m/svartbauna-
sósu
Original hot and
sweet svínakjöt
Hrísgrjón súrsæt
sósa, prjónar og
soya
Rifjapartý
Konton svínarif
Hrísgrjón, prjóna
og soya
poki af Maarud
1. Indókína súrsætar rækjur
2. Djúpsteiktur humar m/súrsætri sósu
3. Eldsteiktur humar m/hvítlauk og grænmeti
4. Hainan humar, aðal humar kínahverfisins
5. Djúpsteikt ýsa m/súrsætri sósu
6. Pönnusteiktur fiskur m/grænmeti chop suey
7. Snöggsteiktur smokkfiskur m/chilli sósu
8. Súrsætt svínakjöt
9. Kanton svínakjöt won ton
10. Svínakjöt m/ostrusósu chop suey
11. Nautakjöt m/ostrusósu
12. Nautakjöt m/svartbaunasósu
13. Nautakjöt m/svartpiparsósu
14. Lambakjöt m/ostrusósu
15. Kanton svínarif
16. Séreldað lambakjöt m/Pekingsósu
17. Lambakjöt í alvöru Malasíu karrýi
18. Súrsætur kjúkllngur
19. Kjúklingur m/brokkólí og hvítlauk
20. Kjúklingur m/hnetusósu
21. Steikt Kanton hrísgrjón m/kjúklingi
22. Singapore steikt hrísgrjón
23. Steiktar núðlur m/kjúklingi
24. Hong Kong eggjanúðlur
25. Steiktar núðlur m/nautakjöti
26. Kjúklingafylltar vorrúllur
27. Snöggsteikt grænmeti m/tofu og kínasveppum
BARNABOX
^ 2 kjúklingaleggir franskar
»og kokteilsósa kinderegg
600 kr
Hollustuna heim!
Hollur og góður kínamatur,
stórir skammtar - beint heim til þín
TILBOÐ 1
TILBOÐ 2
TILBOÐ 3
1.345 á mann
2.690 fyrir tvo
STAKIR RETTIR
2 L COKE OG RÆKJUFLOGUR FYLGJA í „TAKE AWAY‘
F R í HEIMSENDING
Lágmarkspöntun er kr. 1.900.- en kr. 4.000.- i Hafnarfjörð.
Opiö: mán.-fim. 12-22, fös. og lau. 12-23, sun. 17-22
PONTUNARSIMI 552 2399