Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2004, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2004, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2004 Fréttir DV Ástþór hefur mikiö viðskipta- vit og er óragur við að hrinda hugmyndum sínum í fram- kvæmd. Hann á gott með að fá aðra til fylgilags við sig. Framkvæmdagleðin er oft með ólíkindum. Hann kemst oft ótrúlega langt. Gallar Ástþórs eru einkum þeir að hann er óhemju hör- undsdr. Skortir húmor fyrir sjálfum sér og er afar lang- rækinn; fyrirgefur seint og illa efhann telur að einhver hafi gert á hlut hans. „Ástþór kemur ófram- kvæmanlegum hlutum I framkvæmd - enda snill- ingur I að láta aðra vinna fyrir sig. Er óhræddur við að fara troðningana blindandi. Hann hefur fullmettað þjóðina af kjaftasögum. Gallarnir eru að Ástþór gengur aldrei almenni- lega frá hnútunum. Er mjög hörundsár, þrátt fyrir að koma sér alltafvel fyrir I hita leiksins. Hann kemur sér auðveldlega I klúður og klandur í óhugsuðum æðibunugangi. Og Ástþór fær aldrei Óskarinn fyrir hlutverk sitt sem jólasveinninn." Harpa Karlsdóttir, fyrrverandi sam- býliskona Astþórs. „Ég þekki Ástþór ekki mjög vel en þau kynni sem ég hefafhonum eru góð. I öllum okkar samskiptum hefur allt sem hann hefur sagt staðið eins og stafur á bók og það er voða- lega gott að vinna með honum. Eini gallinn sem ég þekki á hon- um er hve langrækinn og hör- undsár hann er. Hann þyrfti að takaáþvl." Geir Olafsson söngvari. „Astþór er útsjónarsam- ur, kjarkmikill, drlfandi, frumiegur og sjálfstæður l hugsun, hugmyndarlk- ur og allt að því snilling- ur I hvers konar praktik og að láta hlutina gerast. En hann er jafnsnöggur að brenna brýrnar með klunna- skap og að smiða þær afsnilld. Ætti ekki að setja upp fyrirtækið Mannleg samskipti ehf. Allt á að gerast STRAX oghann sér aldrei hvort hann er að hirða hýðið og henda banananum eða öfugt. Hann á ekkert útistandandi nema augun. Mætti samt láta stækka þau aðeins." Sverrir Stomsker, vinur. Ástþór fæddist í Reykjavík 4. ágúst 1953. Stundaöi nám ÍVerslunarskóla íslands en fórsíðan til Bretlands í nám viö Medway College ofArt and Design og lauk prófi í auglýsingaljósmyndun og markaðsfræð- um. Ástþór var upphafsmaður að stofnun Eurocard á íslandi árið 1979. Stofnaði og rak um árabil Ijósmyndagerð og póstversl- unarfyrirtæki. Hann stofnaði Frið 2000. Óhappahrina á Sauðárkróki Þrjú umferðaróhöpp urðu á Sauðárkróki á jafn- mörgum klukkutímum í fyrradag. Sex bflar skemmd- ust. Mjög hált var á götum, samkvæmt frétt Skaga- fjaröar.com, en til allrar hamingju slasaðist enginn. Einnig var ökumaður bif- reiðar stöðvaður í fyrradag þegar hann keyrði fullur, en ekki er vitað til þess að hann hafi klesst á. Umsvif Eskimo models hér á landi verða æ meiri og hefur starfsfólk vart undan að sinna erlendum stórfyrirtækjum sem sækja í íslenska náttúru og landslag. Dæmi eru þess að fólk af götum Reykjavíkur hafi fengið hálfa aðra milljón króna fyrir það eitt að koma fram í auglýsingu á vegum fyrirtækisins. Eskimói leikur í Sony-auglýsingu hérlendis fyrir Asíumarkaö Kominn er til landsins Grænlendingurinn Robert E. Peary II til að leika í auglýsingu fyrir rafeindarisann Sony fyrir Asíumarkað. Er Grænlendingurinn hingað kominn fyrir tilstuðlan Eskimo models en umsvif fyrirtækisins í alþjóðlegri auglýsinaggerð verða sífellt umfangsmeiri. Skemmst er að minnast þess að Sigurður Skúlason leikari var send- ur til Svíþjóðar á vegum fyrirtækis- ins til að keppa um hlutverki í nýrri Mackintosh-auglýsingu. Hvort hann fær hlutverkið liggur hins vegar ekki fyrir en ætti að skýrast á næstu dögum. • •• en nefnir þó sem dæmi að fólk af götum Reykjavíkur, sem ráðið var til að leika i auglýsingu fyr- ir Philips, fékk hálfa aðra milljón fyrir framlag sitt. Lukkupottur „Robert E. Peary kemur frá Thule, nyrst á Grænlandi, og talar mállýsku sem fáir í heiminum skilja. Þetta er eskimói og fjöllista- maður sem ferðast um með tón- listarmönnum og hefur víða far- ið,“ segir Bjarney Lúðvfksdóttir hjá Eskimo models, sem gleðst yfir auknum umsvifum. Tekið skal fram að Grænlendingar kjósa að kalla sig inúíta en ekki eskimóa og skal því haldið til haga hér. Innan skamms opna Bjarney og samstarfskonur hennar útibú á Indlandi og fleira er í deiglunni. Ekki vill hún ræða þóknun þeirra sem fram koma í auglýsingum á vegum Eskimo models en nefnir þó sem dæmi að fólk af götum Reykjavfkur, sem ráðið var til að leika í auglýsingu fyrir Philips, fékk hálfa aðra milljón fyrir fram- lag sitt: „Svona geta sumir dottið í lukkupottinn og auðvitað eru upphæðirnar stundum lægri en þær geta líka verið hærri," segir Bjarney. ís og eidur Það er Saga film sem framleið- ir eskimóaauglýsinguna fyrir Sony og verður hún tekin hér á landi. Robert E. Peary unir hag sínum vel hér og nýtur hverrar stundar. Sony borgar vel enda eft- ir miklu að slægjast fyrir rafeinda- risann á Asíumarkaði sem sækja á með skírskotun í íslenskt landslag og náttúru svo ekki sé minnst á sérstakt andlitsfall Robert E. Peary II, sem Asíubúar eiga ör- ugglega eftir að halda að sé ís- lendingur. Enn tafir á loftbyssuránsmáli Arnþórs Jökuls Þorsteinssonar Vék sjálfviljugur úr sal vegna óttaslegins vitnis Enn hefur ekki náðst að yfirheyra öll aðalvimi í einni af þremur ákær- um sem Arnþór Jökull Þorsteinsson sætir vegna vopnaðs ráns, ógnana með skotvopnum og brota á vopna- lögum. Eitt vitni mætti í Héraðsdóm Reykjavíkur í gær þegar aðalmeð- ferð var fram haldið í málinu. Varð Arnþór við beiðni vitnisins, sem er kona, um að hann viki úr dómsal meðan hún vitnaði gegn honum. Konan er starfsmaður í Hring- brautarapóteki. Hún tók á móti Arn- þóri, íklæddum lambhúshettu og með loftbyssu í hönd, þegar hann framdi vopnað rán í apótekinu þann 4. september í haust. Arnþór ógnaði starfsstúlkunni með loftskamm- byssu og fór fram á að hún afhenti sér allt það rítalín sem í apótekinu væri. Lyfsali í apótekinu kom svo stúlkunni til aðstoðar. Átökunum við Arnþór lyktaði með því að lyfsal- inn varð undir eftir að skot hafði hlaupið úr loftbyssunni í hönd Arn- þórs. Arnþór komst á brott með 480 töflur af rítalíni. Starfsstúlkan í apótekinu bar fyrir dómi í gær að hún hafi séð fljót- lega eftir að Arnþór kom inn í lyfsöl- una að skammbyssa hans væri ekki ekta heldur loftbyssa. Því hafi hún verið nokkuð róleg. Að öðm leyti staðfesti hún framburð sinn frá því í skýrslum lögreglu þarsem hún bar að Arnþór hefði beint loftbyssunni að andliti sínu og hótaði henni illu ef hann fengi ekki lyfin. Arnþór samþykkti fúslega að víkja úr dómsal meðan stúlkan vitn- aði. Þarf samþykki verjanda eða ákærða sjálfs til slíks nema talið sé að vitni stafi bein ógn af hinum ákærða vegna vitnisburðar síns. Aðalmeðferð yfir Arnþóri muri væntanlega ljúka á föstudag. Þá verður enn reynt að kalla fyrir mann sem Arnþór mun samkvæmt ákæm hafa ógnað með afsagaðri hagla- byssu við heimili sitt við Sörlaskjól. heigi@dv.is Arnþór Jökull Þorsteinsson Hinn nítján ára gamait strokufangi vék úr dómsal í gær að beiðni eins vitna í máli hans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.