Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2004, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2004, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 Fréttir DV Ragnar Björnsson var glaðlyndur og hjálpsamur fjölskyldufaðir í Mosfellssveitinni. Hann var að forða þvi að fólk stigi á brotið glas á veitingastað þegar ofbeldismaður veitti honum banahöggið. Ragnar var nýkominn úr síðbúinni brúðkaupsferð til Flórída og var í essinu sínu þegar hann lék félaga í Lionsklúbbnum Kidda í Stellu í orlofi. Þrettán ára ölvaður úti Á sunnudag höfðu lög- reglumenn á ísafírði af- skipti af 13 ára ungmenni í miðbæ ísafjarðar. Ung- mennið virtist hafa neytt áfengis og var því ekið til síns heima. Lögreglan á ísafirði vill beina þeim til- mælum til foreldra ung- menna að standa vörð um velferð barna sinna. í því sambandi virða útivistar- reglumar, leyfa ekki eftír- Utslaus unglingasamkvæmi og sýna andúð sína á áfengiskaupum fyrir ung- menni. Forvamir hefjast heima. Peningum stolið úrfrysti Á sunnudagsmorgun var tilkynnt um peninga- þjófnað úr húsi við Hringbraut í Keflavík. Höfðu horfið þaðan kr. 15.000 sem geymdar vom í frystihólfi í ískáp. Skömmu síðar var til- kynnt um rúðubrot í verslunarhúsnæði við Hafnargötu í Keflavík. Gerandinn var farinn af vettvangi þegar lögregl- an kom á staðinn. Upp- lýsingar tiggja fyrir um hver er grunaður um rúðubrotið. Jólasveinn frá Póllandi Jólasveinn frá Póllandi heimsótti jólaball barna af pólskum uppmna í Fjöl- menningarsetrinu á ísafirði um helgina. 15 börn sungu og dönsuðu kringum jóla- tré ásamt foreldrum sínum. Þau urðu forviða þegar sveinninn Mikolaj mættí. Aðeins einn jólasveinn er í Póllandi og hann kemur vanalega þann 6. desember og gefur í skóinn í það eina sinn. Mörg pólsk börn á fs- landi búa enn við að setja skóinn aðeins einu sinni út í glugga, en talið er að ís- lenski siðurinn með þrett- án skógjöfum sæki á um þessar mundir. Bæjarins besta á ísafirði greindi frá komu jólasveinsins. „Það er alveg dæmigert fyrir þennan dreng að hann skyldi deyja við að rétta öðrum fram hjálparhönd," segir Lárus Einarsson húsasmíðameistari og vinur Ragnars Björnssonar sem dö eftir að Loftur Jens Magnússon kýldi hann í höfuðið á veitingahúsinu Ásláki í Mosfellsbæ um helgina. Hann var að aðstoða stúlku, sem var dyravörður, að hreinsa til eftír að glas hafði brotnað þegar ógæfan dundi yfir. „Þessi drengur var alltaf tilbúinn að hjálpa og þarna var hann að passa upp á að enginn slasaðist við að fara á glerbrotin. Þetta htía at- vik segir svo margt," segir Láms. „Við hjónin flögguðum í gær og grét- um við stöngina." Ragnari er af öllum viðmælend- um DV lýst sem miklum höfðingja, kátum og skemmtilegum, sem væri boðinn og búinn að aðstoða fólk. Hann starfaði ötullega í björg- unarsveitínni Kyndli í Mosfells- sveit og Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu, hann var mikill hestamaður og mikið fyrir fjalla- og veiðiferðir og útívist. Ragnar opnaði fyrsta skyndibitastaðinn í Mosfellsbæ, Western Fried. „Ef það var útkall hjá björgunar- sveitinni opnaði hann staðinn og nestaði allt fiðið," segir Láms. Ragnar kom einnig fram í kvik- myndinni Stellu í orlofi sem einn af meðlimum Lionsklúbbsins Kidda. „Þar var hann í essinu sínu," segir Láms vinur hans. unum í vasana og telji upp að tíu áður en það reiðir til höggs," segir Jón Davíð Ragnarsson. „Það er eins og fólk vilji leysa öll mál með hnef- unum. Á slysadeildinni sá ég mikið af ungu fólki sem var blóðugt eftir slagsmál. Það verður að ræða um þessi ofbeldismál af alvöm." „Það þarf ekki nema eitt högg til að eyðileggja líf, ekki bara einnar fjölskyldu, heldur tveggja, eins og í þessu tilviki," segir elstí sonur Ragn- Það þarf ekki nema eitt högg til að eyði- leggja iíf, ekki bara einnar fjölskyldu, heldur tveggja. í jólahlaðborði fyrr um kvöldið Ragnar Bjömsson hafði verið í jólahlaðborði hjá Ormsson á Hótel Valhöll á Þingvöllum fyrr um kvöld- ið og leikið á als oddi. Hann var sölu- maður fyrir Becks bjór, sem Orms- son hefur umboð fýrir, og var vel lið- inn. Honum var ekið heim en þá ákváðu þau hjónin að bregða sér á sveitakrána Áslák. Hann var mikill fjölskyldumaður sem var stoltur af drengjunum sínum þremur sem em 16, 28, og 31 árs. Hann átti eitt bamabam, m Ástu Margrétí Jónsdóttur. Hjónin Ragnar og Ásta Samheldin fjölskylda syrgir föðurinn Ragnar og Ásta með börnum og barna- barni. Frá vinstri, Björn Ingi, Ragnar, Asta, Asta Margrét, Jóhann ÓskarogJón Davíð. Jónsdóttír vom nýkomin úr ferða- lagi til Flórída. „Þetta var brúð- kaupsferðin, því þau höfðu ekki far- ið í brúðkaupsferð á sínum tíma," segir Láms vinur þeirra. „Þau vom bara tvö og áttu þar yndislegan tíma," segir Jón Davíð. Hann segir föður sínum vel lýst með því að rifja upp hjálpsemina. Fjölskyldan harmar fyrirmynd og félaga. kgb@dv.is Vilja umræðu um ofbeldismálin Elstí sonur Ragnars segir ástæðu til að koma því á dag- skrá í þjóðfél- aginu að það þurfi aðeins eitt högg til að rústa lífi fólks. „Ég legg til að fólk stingi lúk- Hestamaðurinn Ragnar var á futlu í hestum og annarri útivist Með barnabarnið Ragnar féll fyrir einu höggi ofbeldismanns f jólasveinabúningi. Banamaðurinn Loftur Jens Magn- ússon veröur í gsesluvaröhaldi til 22. desember. Fjölskylda Ragnars vill umræöu um ofbeldið I þjóöfélaginu Hann var kallaður Hrolllauqur Svarthöfði hefur ekki enn fengið nafn sitt samþykkt hjá mannanafna- nefnd, ekki frekar en nafn dóttur sinnar Sataníu og sonar sfns Járn- síðu. Og frændi hans, Finngálkn, er hvergi skráður. Samt má fólk heita Mekkinó, Marís, Kort, Rasmus, Ubbi og Þiðr- andi. Nú má vart annað lesa úr nafninu Þiðrandi, en að það sé ein- hvers konar magakveisa, og Marís hljómar eins og það nýjasta frá Emmess. Rasmus er óviðeigandi til- vísun í afturenda og Mekkinó er bara einhver mistök. Lýtingur og Loðmundur em líka leyifileg nöfn. En hver vill vera kenndur við lýti eða Svarthöfði loð? Svo má skýra bamið sitt Annar, eða sem sagt Annan, og líka Annes. Hvergi er þó að finna Hinn eða Út- nára. Svarthöfði hefur alltaf haft fullan skilning á þörfinni fyrir nefnd sem hindrar að saklaus böm séu nefnd asnalegum nöfnum. Allir finna ein- hvern tímann hjá sér hneigð til að virkja frumleika sinn í að skíra blessuð bömin. Flestír hafa ein- hvern tímann hugsað hve gaman væri að kalla á syni sína: „Fífill, Hvernig hefur þú þaö? „Ég er náttúrulega með alvarlegan sjúkdóm og mín Ifðan gengur því upp og niður. Geðið er gott og ég reyni að vera glaður hverja stund. Kuldinn er mikill úti og hann hefur slæm áhrif ámig.Mér veröur kalt íþessu heljarfrosti," segir Eirlkur Vernaharðs- son húsasmiöur sem er með MS-sjúkdóm á háu stigi. Fólki, Flórent, Fránn, Frár og Fritz, koma svo!" Og að eiga einn Fylki, sem getur spilað í Fylki. Og líka að skíra einn Þjálfa, þannig að maður geti ávarpað hann líkt og í amerísku bíómyndunum: „Hey, Þjálfi!" En það var náttúrulega stofnuð nefnd til að hindra að varnarlaus börn yrðu niðurlægð með þessum hættí. Samt eru þessi nöfn leyfð. Svarthöfði á félaga sem heitir undarlegu nafni og hefur ekki beðið þess bætur. Þegar hann kynnir sig í fyllstu kurteisi fær hann iðulega yfir sig ósmekklegar og særandi athuga- semdir sem tengja persónu hans við afturenda eða annað verra. Auk þess varð hann fyrir einelti í æsku. Mannanafnanefnd sniðgengur tilgang sinn með því að leyfa öll þessi niðurlægjandi nöfn. Af einhverjum undarlegum ástæðum má ekki heita þeim virðulegu millinöfnum Jám- síða, Bjarnar eða Múli á sama tíma og leyfilegt er að láta menn ganga um götur undir nöfnunum Hrolllaugur, Kolskeggur og Ljótur. Svaithöföi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.