Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2004, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2004, Side 33
32 FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2004 Jólablað DV DV Jólablað FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2004 33 Ragga Gísla og Harpa Sjöfn Hermundardóttir hittast eftir langa hvíld frá hvor annarri nú um jólin. Ný mynd Stuðmanna verður frumsýnd annan í jólum og víst er að þeir verða fleiri en færri sem hlakka til endurfunda við þau sem þar koma fram. Ragga kemur víða við í spjalli sinu. Talar um lýtaaðgerðir á landinu og Hörpu Sjöfn sem alltaf er jafn ungleg án slíkra aðgerða. Hún talar um myndina, sjálfa sig, framtíðina og jólin sem hún heldur með þeim sem hún elskar mest og þar á meðal er kærasti hennar - Birkir Kristinsson. agga hallar sér niður og strýkur svörtum ketti. ■ Hrafnkell heitir BsE? hann og er kall- ÆKíM aður Keli. Hann malar hátt og ekki er betur hægt að sjá en glitti í tenn- uHk urnar og kisi brosi ■ breitt. „Já. hann bros- ■ ir þessi köttur. Hann I talar líka mikið og B heldur manni oft 'BBw_ lengi upp á snakki, Svo er hann músíkalskur, mjálmar á rétta tóninum þegar tónlist er í gangi „ segir hún brosandi og bendir á að kisi sé orðinn ellefu ára gamall og hafi alltaf fengið mikla athygli. Það þýði ekki að svíkja hann um hana úr þessu og því gefur hún sér alltaf tíma til að kjafta við hann. í risi húss við Mjóstræti þar sem mikilmenni eins og Einar Benediktsson bjuggu fyrrum, hef- ur Ragga komið sér vel fyrir. „Mér finnst gott að vera hérna Maður flnnur vel fyrir veðrinu og það er yndislegt," segir hún og við velt- um fyrir okkur hvað það sé við ris sem lætur mann finna til vellíðun- ar. Kannski svipuð tilfinning og vestfirsku fjöllin vekja hjá manni, sem eru svo nærri að þau umvefja mann og þeir sem ekki finna til innilokunartilfinningar finna fyrir öryggi og verndun. „Já, ætli það sé ekki eitthvað svipað," samþykkir hún og tekur undir þetta með vestfirsku fjöllin sem hafa svipuð áhrif á hana. Enn ástfangin af Stinna Nóg er að gera hjá Röggu þessa dagana, jólin framundan og svo afrakstur vinnu síðasta árs, kvik- myndin í takt við tímann, á leið fyrir dóm þjóðarinnar um jólin, þar með talin Harpa Sjöfn sem menn hafa ekki séð í tuttugu ár. Hvernig hefur hún það? „Hún hefur það gott, þaldca þér fyrir. Kemur vel undan vetri eins og vinir hennar flestir sem hún hefur ekki verið með þessi síðustu ár,“ segir hún hæverkslega. „Hún er enn ástfangin af Stinna sínum, það leynir sér ekki þegar þau hittast. Þó hafa þau ekki verið saman þessi 20 ár; verið hvert í sínu en ástin er eitthvað sem þurrkast ekki út. Hún hefur alltaf haft hann í huga en taldi hann hafa yfírgefið sig fyrir fullt og fast þegar hann var numin á brott af hinum Stuðmönnunum úr bóli Hörpu Sjafnar í lok síðustu mynd- ar. í nýju myndinni er svo að sjá hvort þau nái ekki endanlega saman, enda orðin harðfullorðin,“ segir Ragga og verður leyndar- dómsfull á svip. Myndina á að frumsýna á milli jóla og nýárs og það bíða fleiri en færri með mikilli eftirvæntingu eftir að hitta þessa gömlu kunningja og vini sem margir þekkja svo vel. Margir muna textana út í gegn og hafa í gegnum árin verið að sjá alltaf eitthvað nýtt í hvert sinn sem á myndina er horft. Engin ör eftir lýtalækna „Við byrjuðum að brainstorma í fyrravetur," segir Ragga og held- ur áfram. „Hittumst þá ásamt Ágústi Guðmundssyni og Dúdda, Eggerti Þorleifssyni og köstuðum á milli okkar hugmyndum. Tökur hófust síðan í vor og gengu alveg ótrúlega vel með samstilltum og góðum hópi tæknifólks, sem alltaf var hægt að breyta ef þurfti. Nú er bara að sjá hvað verður um þau Kristin stuð Styrkárson Proppe og Hörpu Sjöfn Hermundardóttur." segir hún og vill ekki gefa meira upp um það. Menn hafa talað um að Harpa Sjöfn sé unglegri nú tuttugu árum síðar en í fyrri myndinni. Þessir sömu menn hafa talað um að hún hafi kannski farið í nokkrar strekkingar hjá lýtalækni. Er eitt- hvað til í þeirri staðhæfingu eða hvernig ætti henni annars að takast að halda svona í æsku- blómann? „Ég veit ekki með Hörpu Sjöfn en Ragga Gísla er ekki með ör eftir lýtalækna," segir hún og hlær. Trixið er að borða lítið af orkuríkum mat sem ekki stíflar Hver er galdurinn? „Mér finnst ekki þægilegt að ræða þessa hluti og vil gera sem minnst af því. Það eina sem ég get sagt er að sennilega er húðslétta f ættinni, ég reyni að sofa eins mik- ið og ég get og ef mögulegt er þá kaupi ég frekar mat sem er orku- ríkur en hitt. Einnig er ég afskap- lega gleymin á fortíðina, man lítið en hlakka meira til framtíðar," segir hún ákveðið og bendir á að það séu forréttindi að geta valið matinn sinn. „Það eru ekld allir sem geta það og of margir sem ekki hafa ráð á að kaupa það sem fer best með þá,“ útskýrir hún og bætir við að það sé mjög einstaklingsbundið hvað passi fólki. „Sumir sérfræðingar segja að hugarástandið á meðan þú nærist hafi allt að segja og þar með geti fólk borðað næstum hvað sem er og svo einnig lítið sem ekki neitt. Ef fólk leitar að því sem hentar því f mataræði þá finnur það góða leið á endanum,“ segir hún hugsi og bættir við eftir nokkra umhugs- un. ,Ætli trixið sé ekki að borða passlega lítið af mat sem er orku- ríkur frekar enn fullt af drasli sem stíflar mann. Ég er alla vega alltaf að leita segir hún og stendur upp og gengur út að glugganum sem vísar að Bröttugötunni. „Það virð- ist eJcki eiga það val fólkið sem er að róta í tunnunum hérna í myrkrinu á kvöldin," segir hún og bendir út. Það er hryllilegt að verða vitni að slíku hér í þessu vel- megunar samfélagi þar sem allir eiga að geta haft nóg að býta og brenna. En þannig er það bara ekki í reynd," segir hún og svipur- inn verður hörkulegur. Uppskurðurinn og lýtaað- gerðin stóra Við erum komnar út í pólitískar umræður og Ragga heldur áfram. „Um leið og við áttum okkur á því að líkaminn þarf gott eldsneyti, vit- um við að til þess að þrífast bæri- lega þurfum við ást og umhyggju. Það sama má segja um landið oJck- ar og þjóð alla. Það er sannað að miklar lýtaaðgerðir á fólki geti hreinlega skemmt heilsu þess. Sama má segja um náttúruna og umhverfi okkar. Uppskurðurinn, lýtaaðgerðin stóra á Austfjörðum, er vægast sagt skelfileg tilhugsun- ar. Ætli fólk sé almennt sátt við þessa aðgerð?" segir hún og horfir hugsi út um gluggann áfram. Síðan birtir yfir henni á ný og hún sest aftur. „Ég kom á æðislegan búgarð í Bretlandi „ segir hún og lyftist öll upp. Augun glampa af áhuga þeg- ar hún segir frá þessum yndislega búskap sem þar fór fram. „Þetta voru bara hjón sem ráku hann og ræktuðu allt lífrænt, voru með skepnur sem fengu bara lífrækt ræktað hráefni, fjölbreyttar græn- metistegundir, hænur, kalkúnar, nautgripir og lömb. Þau seldu frá sér afurðirnar um allt landið og Við ákváðum að fara svona að oggerðum það i sátt og vinskap. Líklega hefur það ver- ið hvað við Jobbi erum góðir vinirsem oiii því að okkur gekk vel að byggja okkur upp sitt i hvoru lagi án allra átaka. þeir sem vildu gátu verið í áskrift hjá þeim. Fengið til dæmis eitt kfló af eggjum á viku, kjúklinga, grænmeti og hvað eina sem fékkst hjá þeim. Auðvitað þurfti fólk að borga meira fyrir þessa gæðavöru en það er lflta allt í lagi. Hvers vegna getum við elcki haft svona búgarða hjá okkur í stað þess verksmiðjubúskapar sem hér er stundaður með niðurgreiðslum og öllu og samt berjast bændur í bökkum," spyr hún með ákafa og nefnir sem dæmi allar jarðirnar sem ekki eru nýttar og farnar í eyði. Listamenn falla ekki inn í mynstrið „Já, hvers vegna ekki að koma af stað svona litlum búgörðum; auðvitað þyrfti að fara fram eftirlit og allt það en á býlinu í Englandi var umfangið það smátt í sniðum að þau hjónin gátu séð um bú- skapinn frá a til ö. Mér fannst þetta frábært og hef ekki fengið rök fýrir því enn þá að þetta geti ekki orðið svona hér. Svo er þetta gullið tældfæri fyrir börnin að fá að vinna í sveit á sumrin. Einnig eru svona staðir mjög góðir fýrir ungt fólk að fá inni sem hefur misst fótanna í lífinu. Að komast í samband aftur við raunveruleik- ann og læra að takast á við lífið á heilbrigðan og góðan hátt,” segir Ragga um leið og hún sest aftur niður og við leiðum spjallið á aðrar brautir. Á hverju lifir listakona eins og Ragga Gísla. Egill Ólafsson syngur í kirkjum, á jarðaförum og brúð- kaupum og við hin ýmsu tilefni. Ekki gerir hún það. „Nei, ég hef ekki sungið þannig. En það er von að þú spyrjir á hverju listamenn á íslandi lifi. Við erum eitthvað svona fyrir utan kerfið. Það getur verið erfitt fýrir þjónustufulltrú- ann í bankanum að halda hlutun- um í góðu lagi því listamenn fá yfirleitt peninga í slumpum en ekki reglulega eins og flestir. En ég þéna ekki mjög mikið og gæti vís- ast plöggað meira á því sviði ef ég vildi. Ég er hins vegar neyslugrönn og kemst ágætlega af þess vegna," segir hún og skýrir það ekki nánar. En Ragga hefur leikið í nokkrum kvikmyndum og fengið tekjur fyrir þær myndir og höfundalaun fær hún af verkum hennar sem sýnd eru eða spiluð." Eddan og Idol Við tölum áfram um listina og talið berst að öllum þeim „keppn- um“ sem eru oft og reglulega í gangi um hverjir séu bestir. „Það Ég veit ekki með Hörpu Sjöfn en Ragga Gísla er ekki með ör eftir lýtalækna. er eins og sé verið að leggja að jöfnu íþróttakeppnir og keppnir í listum. Besta hljómsveitin, bókin, kvikmyndin, rithöfundurinn og besti þetta eða hitt. Hver er besti óperusöngvarinn eða besti högg- myndlistamaðurinn árið 2004? Mér finnst þetta alltaf dálítið skrítið. En sennilega hafa ein- hverjir gaman af þessu en lflcast til er þetta fyrst og fremst gert fyrir útgáfurnar. Þær þurfa að standa undir sér og selja vel. Blessaðir listamennirnir sitja svo og árita bækur og diska, Mér finnst það skelfilega auðmýkjandi." Hvað þá með allar Eddurnar, hefur þú ekki verið tilnefnd til Eddu? „Ekki svo ég muni,“ segir hún og hlær. „Ég hef verið tilnefnd til verðlauna nokkrum sinnum fyrir leik í bíómyndum en það var ekki hér heima," segir hún síðan hlæj- andi og heldur áfram að menn viti hvað hún sé að meina. Idolið, það er keppni sem mikið er horft á og þar eru menn að koma fram og láta meta hæfni sína frammi fyrir alþjóð og fá ýmist hræðilega dóma og dregnir niður eða góða og hverfa upp í hæstu hæðir. „Já, það er ein keppnin. Ég horfi stundum á það með öðru auganu. Hún nefnir hvað krakk- arnir séu ótrúlega ófeimin við að koma fram. Ég hef gaman af því hvað þau eru dugleg og ég hef heyrt í Idolinu í krökkum með fín- ar raddir, mjög efnileg. Við þessa krakka vil ég segja að allir sem eru góðir geta komið sér á framfæri. Það þarf ekki að taka þátt í Idol til að koma sér áfram, ef maður er góður. Vissulega er það tækifæri fýrir þau en þau mega ekki gleyma hinu heldur," segir hún og er sam- mála um að þáttur eins og Idolið hefði aldrei getað gengið þegar hún var að byrja. Þá voru krakkar ekki svona frjáls eins og núna. Óhrædd og örugg með sig. „Nei, fjarri lagi. Ég var til að mynda ofsalega feimin þegar ég var að byrja. Leið ekki vel á sviði og vildi helst að sem minnst bæri á mér,“ segir hún dálítið feimnis- lega, þessi kona sem er ein vin- sælasta söngkona þjóðarinnar. Hinn fullkomni skilnaður Ragga var lengi úti í London og naut þess að kynnast nýrri menn- ingu. „Það var gott að búa þar og gaman kynnast nýju fólki," segir hún en ekki löngu eftir heimkom- una skildu þau Jakob Frímann að skiptum og fóru í sitt hvora áttina. Var skilnaður þeirra þessi full- komni skilnaður sem fáum eða engum tekst að ganga frá án sárs- auka ogillinda? „Já, ætli það ekki bara," svarar hún hlæjandi. „Við ákváðum að fara svona að og gerðum það í sátt og vinskap. Líklega hefur það ver- ið hvað við Jobbi erum góðir vinir sem olli því að okkur gekk vel að byggja oklcur upp sitt í hvoru lagi án allra átaka," segir hún alvarleg á svip. Við tölum um fleiri lflca skilnaði og veltum fyrir okkur hvers vegna sumir þurfi að vera eins og hundar og kettir en aðrir geti notað skyn- semina. „Við erum foreldrar og kjósum að halda samskiptunum á góðu nótunum. Jakob er ákaflega næmur maður og það þarf ekki alltaf að útskýra allt í tætlur fyrir honum. Við þekkjumst mjög vel og þetta var aldrei neitt mál. Þannig var það bara," segir hún og brosir stríðnislega. Stelpurnar þeirra sem þau eiga saman, þrátt fyrir að Ragga hafi átt aðra þeirra fyrir þeirra kynni voru alltaf þeirra beggja og Jakob hefur litið á þær báðar sem sínar. Hann hefur lagt sig fram um að skapa þeim heimili sem þær eiga meðfiram heimili Röggu. „Elsta dóttirin er farin að heiman og á sinn kærasta en sú yngri er í MH. Báðar syngja þær og eru í námi í Söngskólanum í Reykjavík." Feta í fótspör móður sinnar kannski? „Nei, ekkert frekar. önnur er í klassískum söng og stefnir á þær brautir, hin er meira í svona poppi með R&B áhrifum þó svo námið í Söngskólanum sé stór þáttur í námi hennar." Hún neitar því þó ekki eftir nokkra umhugsun að þær eigi heilmikið sameiginlegt með henni og það megi segja að hún heyri stundum í sjálfri sér í þeim. Þó það nú væri. „Þær hafa alltaf verið góðar vinkonur mínar, dæturnar, og ég á mjög gott með að ná sam- bandi við þær. Mér finnst æðislegt að geta talað við þær á sama hátt og vini rnína," segir hún glaðlega og það er ekki hægt annað en taka undir það. Æðislegt að eiga kærasta Og nú er kominn nýr maður í spilin? Hún fer örlítið hjá sér í byrjun en veit að það þýðir ekki neita. Hví það, er það ekki einmitt það sem skiptir máli. Hálf þjóðin veit að hann heitir Birkir Kristinsson, markvörður í fótbolta? „Já, ég á kærasta og það er æð- islegt,“ segir hún svo og horfir ein- beitt fram. Hvernig kynntust þið? „Við... við kynntumst á balli. Hann bauð mér upp í dans," svar- ar hún og skellihlær. „Það var ofsalega sætt.” Og það er gaman að lifa þessa dagana og jólin framundan. „Við verðum hérna heima á aðfanga- dagskvöld. Stór stund er á annan í jólum þar sem nýja Stuðmanna- myndin, í takt við tímann, verður frumsýnd í sex kvikmyndahúsum og við tekur stórt partí í Hvíta hús- inu um kvöldið þar sem Stuðmenn spila. Kannski við förum svo eitthvað út í buskann og höfum það gott,“ segir hún og hlær. Hún er ekki ákveðin í hvað verður í jólamat- inn, er ekki vön neinum hefðum í kringum matseld. „Ég á alveg eftir að taka ákvörðun, það verður eitt- hvað dýrlegt. Jólin eiga að vera skemmtileg og því á maður ekki að vera að gera of mikla rellu út úr öllum hlutum. Mér finnst til dæmis þessar rosa dýru gjafir sem fólk er að berjast við að kaupa al- veg út í hött." Jólin með þeim sem hún elskar „Ekki misskilja mig, þeir sem vilja gefa bfla og dýra loðfeldi í jólagjöf, mega gera það mín vegna. En þótt ég ætti skrilljónir eða billjónir myndi ég aldrei gefa slíkar gjafir því þær eru ekki mæli- kvarði á þá ást sem maður ber í brjósti til fólksins síns,“ segir hún alvarleg og við tölum um gamla frænku sem lagði mikla alúð í sín- ar gjafir. Hún lagði sig fram við að kaupin, pakkaði gjöfinni fallega inn og utan á pakkanum stóð ein- hvern veginn „frá hjartanu." öll- um fannst mest til þessara gjafa koma, einmitt vegna þess að þær báru með sér að vera gefnar af væntumþykju og í pökkunum var alltaf eitthvað spennandi. „Það eru þessar gjafir sem manni þykir vænt um,“ segir hún sammála. Ég hlakka sannarlega til jólanna, og ætla njóta þess að vera með öllu fólkinu mínu sem ég elska," segir hún með glampa í augum og bros- ir kankvíslega. bergljot@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.