Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2004, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2004, Síða 44
 44 FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2004 Jólablað DV <TA ‘HH'RJA ‘E‘J\óTÍS ‘K VEíKJL ‘U9i LANDSINS MESTA ÚRVAL AF DVD, VHS OG LEIKFÖNGUM FYRIR FULLORÐNA. SENDUM í PÓSTKRÖFU UM ALLT LAND. FÁKAFENI 11 • SÍMI 588-6969 • WWW.TANTRA.IS Guðrún H. spyr: Það eru að koma jól og síðan ég flutti að heiman 17 ára þá byrja ég alltaf að finna fyrir sömu óþægind- unum þegar nær dregur jólum. Mamma og pabbi eru nefnilega skilin og þau vilja bæði alltaf að ég sé hjá þeim á aðfangadag. Mér finnst þetta alveg hræðilegt, finn fyrir svo miklu samviskubiti sem ég held að sé ekki bara ímyndun. Ég fæ alltaf einhvern svip eða óbeint „komment" þegar ég segi öðru foreldrinu að ég verði hjá hinu. Ég held ég sé mikið jólabarn en þetta eyði- leggur svolítið stemninguna. Hvað get ég gert? svona einfalt. Ef mikil togstreita er milli for- eldra getur það að velja annað foreldrið þetta árið ýtt undir höfnunartilfinningu hjá því foreldri sem ekki er val- ið í það skiptið. Þrátt fyrir að foreldrið ætii sér það kannski ekki, geta setningar Björn Harðarson og Eygló Guðmundsdóttir sálfræðingar gefa lesendum góö ráð til að viðhalda sálarheill. Sálfræðingahjónin eins og: Það að vera skilnaðarbarn er eitt af því sem getur valdið kvíða hjá mörgum þegar hátíðir eins og jólin eiga í hlut. Einmitt þessar sömu að- stæður sem þú lýsir verða þess vald- andi að í stað þess að fagna komu jólanna fer fólk að velta því fyrir sér hvar það eigi að halda jólin. Iðulega fylgja þessum vangaveltum kvíði og óöryggi, sérstaklega ef samkomulag foreldra er ekki gott, því enginn vill særa þann sem þeim þykir vænt um. Best að gera samkomulag Auðvitað væri einfaldast að hafa bara einfalt fyrirkomulag, þ.e. mað- ur skiptist á að vera hjá foreldrum sínum á aðfangadag (en svo virðist sem aðfangadagur sé sá dagur sem mikilvægastur er þegar kemur að þessari togstreitu) - eitt árið hjá mömmu og hitt hjá pabba. Hjá mörgum er þetta hins vegar ekki „Þú gerir auðvitað eins og þú vilt, ekki ætla ég að skipta mér af því," ýtt undir mikla sektarkennd og valdið barninu mikilli vanlíðan. Það eru einnig aðrir þættir sem geta haft áhrif hér, til dæmis ef aðeins annað foreldrið hefur stofn- að nýja fjölskyldu aftur eftir skilnað- inn, hitt foreldrið er jafnvel eitt og hvernig er þá best að haga málum? Er þá best að vera alltaf hjá því for- eldri sem er eitt? Hér geta foreldrar líka komið með erfiðar athugasemdir eins og: „Maturinn hjá Henni er kannski betri en hjá mér" eða „Já, þið eigið kannski meira sameiginlegt en við.“ Allt eru þetta þættir sem geta enn frekar ýtt undir kvíða og vanlíðan barnsins sem þarf að velja, en mikil- vægt er að hafa í huga að erfitt er að gera öllum til hæfis. Kannski ætti maður fyrst og fremst að gera sjálf- um sér til hæfis og setja upp ákveð- ið „kerfi" þegar kemur að „jólavali". Hugsa þetta skynsamlega, taka ákvörðun út frá þeirri hugsun að gera þetta sem best og að maður æth sér ekki að særa neinn og standa svo við þá ákvörðun. Fæstir foreldrar myndu vísvitandi láta börnunum sínum líða illa en stund- um þarf að benda þeim á að komið geti fyrir að þeir geri það ómeðvitað. Jólin eru tími fjölskyldunnar Hér er kannski dregin upp nei- kvæð mynd af því að vera skilnaðar- Efmikil togstreita er milli foreldra geturþað að velja annað foreldr- ið þetta árið ýtt undir höfnunartilfinningu hjá því foreldri sem ekki er valið. barn á jólum - auðvitað eru til margir sem hafa fín „kerfi", eða samkomulag foreldra er það gott eftir skilnað að þeir ákveða þetta í sameiningu á meðan barnið er ólögráða og styðja svo barnið sitt í valinu eftir það - en engu að síður eru þetta upplifanir margra sem upplifað hafa erfiðan skilnað for- eldra. Stundum heyrir maður fólk segja: ,Æi, ég var svo feginn þegar ég eignaðist sjálfur fjölskyldu, þá hafði maður afsökun fyrir því að vera bara heima hjá sér á aðfanga- dag!“ Jólin eru tími fjölskyldunnar - það er kannski það sem gerir það oft svo erfitt að velja einn og þurfa að hafna öðrum. En gleymum því ekki að jólin eru líka tími kærleikans og flestir gera eins vel og þeir geta til að geta sýnt hann í verki á þessum stundum, hvort sem þeir velja mömmu eða pabba þessi jólin! Gangiþér vel, Eygló Guömunds- dóttir sálfræöingur. Óskum viðskiptavinum okkar, svo og landsmönnum öllum, gleóilegra jóla. GITARINN EHF. www.gitarinn.is STÓRHÖFÐA 27 -SÍMI: 552 2125 gitarinn^gHarinfus ATH Opið alla daga til jóla J Rafmagnsgítarpakki verð frá kr. 24.900.- Rafmagnsgítar, magnari, poki, ól, snúra og gítarneglur. Kassagítarar frá kr. 9.900.- Þjóðlagagítar með poka, stlllitæki, kennslubók, ól, gítarnöglum kr. 16.900.- Trommusett með öllu, ásamt æfingarplöttum og kennslumyndbandi rétt verð kr. 73.900.- tilboðsverð kr 54.900.- BJÓÐUM UPPÁ RAÐ- OG LÉTTGREIÐSLUR * ■¥ M M M M M M M M * + M * M

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.