Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2004, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2004, Blaðsíða 48
48 FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2004 Jólablað J3V - Lottónauðgari kaupirvillu Breski nauðgarinn Iorworth Hoare hefur keypt 300 milljóna króna villu fyrir hluta lottóvinnings sem hann vann nýlega. Hoare, sem er 52 ára, vann ríflega 800 milljónir í lottóinu og gekk frá kaupum á húsinu úr fangelsinu þar sem hann afþlánar lífstíð- ardóm. Hann situr inni fyrir fjölda kynferðisbrota en á möguleika á reynslulausn í febrúar. Hoare hefur montað sig af villunni í fangelsinu og segist ætla að láta setja upp nuddpott og líkamsræktarsal í nýja húsinu. Mikil umræða spratt upp í Bretlandi í ágúst þegar upp komst að hann hefði keypt vinningsmiðann þegar hann var í helgarfríi úr fangelsinu. Hann hefur síðan skoðað fasteignaauglýsingar vandlega. Nauðgarinn fær um 800 þúsund krónur á viku í vexti. Skólastelpur rændu 82 ára konu 82 ára gömul kona axlarbrotnaði þegar fjór- ar skólastelpur reyndu að ræna tösku hennar í Bretlandi í vikunni. Þjófarnir, sem taldar eru vera um það bil 13 ára, voru í skólabúningum en höfðu tekið af merkingar skólans sfns svo þeir þekktust ekki. Gamla konan var á leið til læknis síns í Suður-London. Hún féll í jörðina þegar hún reyndi að halda í töskuna og hlaut þannig meiðsli sín. Skóla- stelpurnar flýðu af vettvangi og skildu konuna þar sem hún lá í jörðinni, sárkvalin. „Þetta er hræðilegur glæpur. Hún er á batavegi en við erum ákveðnir í að ná stelpunum,“ sagði talsmaður lögreglunnar. . Brúðhjón dóu á leið í veisluna Breskt par lét lífið f þyrluslysi á Spáni á leið frá brúðkaupsvígslu sinni í brúðkaupsveisluna. Veislu- gestir urðu sífellt stressaðri eftir því sem mínúturnar liðu og ekk- ert bólaði á brúðhjónunum í veislu þeirra á hóteli á sumarleyf- isstaðnum Mijas. Verstu áhyggjur þeirra rættust þegar þeim var tilkynnt um slysið. Hjónin höfðu leigt þyrl- una til að fara í útsýnisflug eftir hjónavígsluna. „Þetta var h'til veisla, það áttu ekki að vera nema 20 manns að brúðhjónunum meðtöldum," sagði móttökustjórinn á hótelinu. ,ALLir gestimir voru komnir klukkan þrjú og biðu eftir brúðhjónunum. Þau áttu að koma klukkan hálf fjögur og gestir- nir urðu órólegir þegar ekkert bólaði á þeim. Lögreglan kom klukkan fimm og tilkynnti um slysið. Það er ótrúlegt að svona skuli gerast á degi sem þess- um. Það sem átti að vera hamingjudagur breyttist í sorgardag." ALFUR OPIÐ I DAG FRA KL 12-23 Enginn hinna 600 ibúa i smábænum Knutby í Svíþjóð vildi hjálpa lögreglu við rannsókn sina á morðinu á Alexöndru Fossmo, 23 ára gamalli eiginkonu prestsins, eða morðtilraun- ina á Daniel Linde, þrítugum nágranna hennar. Eg var vélmenni, Mah til að drepa Þann 10. janúar á þessu ári laumðist óboðinn gestur inn í hús Fossmo-fjöl- skyldunnar í gegnum þvottahúsið og laumast að svefnherberginu. Þetta var um miðja nótt og bömin þrjú vom í fastasvefni á neðri hæðinni og fjöl- skyldufaðirinn, hinn 32 ára gamli Helgi, svaf hjá þeim. Óboðni gesturinn skaut Alexöndnt þremur skotum og hún lést samstundis. Þremur nunútum síðar bankaði morðinginn upp á hjá nágrönnunum. Daniel kom til dyra og morðinginn skaut hann í höfuðið og bringuna áður en hann hvarf út í nótt- ina. Fyrir mildi lifði Daniel Linde af. SMS frá Guði hvöttu til morðs Lögregla vissi ekki hvar væri best að byrja. Vikum saman reyndu lögreglu- menn að fá íbúana til að tala en fengu jafnan þögult og óvinveitt viðmót. Það var ekki fýrr en fyrrverandi safnaðar- meðlimir töluðu, að upp komst að um væri að ræða meðlimi í sértrúarsöfn- uði. Söfnuðurinn var einskonar klofri- Sakamál ingssöfnuður úr þjóðkirkju Svíþjóðar. í forsvari fyrir söfriuðinn er 36 ára gömul kona sem safnaðarmeðlimir kalla Brúði Krists. Þrátt fyrir það boðar söfnuðurinn kúgun kvenna, líkamlegar refsingar á bömum og algera hlýðni við andlega leiðtoga. Prestar í söfnuðinum, Helgi Fossmo var einn þeirra, em með í ráðum við allar ákvarðanir meðlima, þar með talið hverjum þeir giftast. Söfnuðurinn leggur einnig ríka áherslu á spádóma og rannsóknarlög- reglumenn komust að því að Helgi Fossmo væri spámaður. Hann talaði um drauma sína þar sem kom fram að eiginkonur hans „yrðu kallaðar heim til Guðs." Þetta var undarlegt þar sem fyrri eiginkona hans hafði dottið í baði, rekið höfuðið í og látist. Nú hafði seinni eiginkona hans verið skotin til bana. Lögregla fékk svo símtal frá Sara Svensson Barnfóstran sem Helgi átti I ástarsambandi viö og notaöi til aö myrða fyrir sig, allt I nafni trúarinnar aö sjálfsögðu. Á vettvangi Lögreglumenn koma að húsi Fossmos til að rannsaka morðið áAI- exöndru. fyrrverandi bamfósfru Fossmo-fjöl- skyldunnar, Söm Svensson, sem játaði að hafa myrt Alexöndru Fossmo og að hafa reynt að myrða Daniel Linde. Hún vísaði lögreglu á morðvopnið og sagði að Guð hefði sent sér fjölda nafnlausra SMS-skilaboða og sagt sér að fremja morðin. Guð hefði meira að segja sagt henni að hurðin á þvottahúsinu hjá Fossmo-hjónunum myndi vera opin nóttina örlagaríku. Kynlíf til að þóknast Guði SMS-skilaboðunum hafði verið eytt en tæknimenn gátu rakið þau til Helga Fossmo sem játaði að hafa sent þau, en sagðist einfaldlega hafa verið að leið- beina bamfóstmnni í trú hennar. Fossmo hafði leitað huggunar hjá bamfóstmnni þegar eiginkona hans varð þunglynd. Hann heimsótti Söm í herbergi hennar og þau höfðu mök sem vom „tákn guðlegrar hlýðni" eins og hann sagði við hana. Haustið 2003 hóf Helgi annað ástarævintýri, að þessu sinni með nágrannakonunni. Þau töluðu um að skilja við maka sína til að geta verið saman og ræddu síðan möguleikann á því að láta makana deyja í bílslysi. „Það myndi ekki koma mér á óvart ef þau yrðu bæði skotin til bana," sagði Helgi við ástkonu sfna og lét sem um spádóm væri að ræða. Ná- grannakonan pældi ekki mikið í þess- um orðum fyrr en morguninn örlaga- ríka sem hér er sagt frá. Hvatti til morða til að fela framhjáhöldin Þegar lögregla yfirheyrði Helga Fossmo neitaði hann allri vimeskju um atburðina. Hann sagði að bamfóstran hefði staðið ein að morðinu og morðtil- rauninni. Lögreglumenn vom ekki sannfærðir um að hann væri að segja satt, aðallega af því að svör Söm virtust Söfnuðurinn Sértrúarsöfnuður þar sem erfitt var aö fá aðstoð við að rannsaka morð. æfð auk þess að Helgi hafði sent SMS- skilaboðin til bamfóstrunnar. Hann hafði líka góða ástæðu til að vilja fólkið feigt - hann vildi geta verið með ást- konu sirmi. Og hver var betri til verks- ins en hin ástfangna og ráðvillta bam- fóstra? Lögreglan kærði Helga Fossmo fyrir að hvetja til morðsins og morðtilraun- arinnar og Söm Svensson fyrir að fremja vérkið. Allt fór á annan endann í Svíþjóð þegar fjölmiðlar fóm að fjalia um þetta undarlega mál. Aftonbladet lagði að jafnaði 12 síður á dag undir umfjöllun sína. Saksóknari lagði áherslu á það í máli sínu að Helgi Fossmo hefði misnotað stöðu sína sem andlegur leiðtogi söfnuðar með því að stofna til framhjáhalda innan hans og hvetja til morða til að fela slóð sína. Presturinn var einnig ákærður fyrir að myrða fyrri eiginkonu sína. „Hann hefur algert vald yfir mér" Eiginkona Daniel Linde sagði við vitnaleiðslur að hún hefði kynnst prest- inum tíu árum fyn en þau hefðu ekki stofnað til ástarsambands fyrr en á síð- asta ári. Þau hittust á hverju kvöldi, fyrst fóm þau í gönguferðir en síðan hittust þau í gestaherberginu hjá Helga á meðan eiginkona hans svaf uppi. „Hann sagði einu sinni að Alexandra myndi ekki verða mikið lengur hér á jörð. Tveimur vikum síðar réðst bam- fóstran á hana með hamri en árásin misheppnaðist. Síðar sagðist hann ekki heldur telja að Daniel myndi lifa mikið lengur," sagði nágrannakonan. Eftir atburðina vildi Helgi halda sambandinu við nágrannakonuna áfram. Hann lýsti því fjálglega yfir að það væri synd að byssukúlan hefði ekki farið einum milh'metra lengra inn í brjóst Daniels Linde. Bamfóstran Sara var heldur ekki til- búin að verja prestinn, sagði hann hafa heilaþvegið sig til verkanna. „Ég er svo hrædd við hann, hann hefur algert vald yfir mér. Ég varð einfaldlega vélmenni, forritað til að drepa.“ Presturinn reyndi að halda uppi vömum þegar hann var kallaður fýrir réttinn. Lítið mark var tekið á honum og hann var dæmdur fýrir að hvetja til umræddra atburða. Hann var sýknað- ur af morðinu á fyrrverandi eiginkonu sína en var engu að síður dæmdur í lífs- tíðarfangelsi. Sara Svensson var úr- skurðuð ósakhæf vegna geðraskana og var dæmd til vistunar á viðeigandi stofnun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.