Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2005, Síða 3
DV Fyrst og fremst
MIÐVIKUDACUR 26. JANÚAR 2005 3
Spurning dagsins
Össur eða Ingibjörg?
„Hvorugt"
Etísabet Þórunn Sigur-
geirsdóttir
„Hvorugt, held
það sé margt
betra."
Daníel
Emilson
„Össur"
Guðrún Þor-
steinsdóttir
„Ingibjörg'1
Kjartan
Steingríms-
son
„Össur"
Knut
Ödegard
Á leið niður Háteigsveginn rekst blaðamaður á þau Kristínu
Berman og son hennar Loga Garp Máson. Kristína gengur
hröðum skrefum með barnavagninn á undan sér heimleiðis úr
kjörbúðinni þar sem þau ákváðu að kaupa sér hádegismat.
„Ég er eiginlega í hádegismat í vinnunni og ákvað að taka
son minn ,hann Garp, með mér því hann er svo duglegur að
fara að sofa þegar við förum saman í göngutúr," segir Kristína
og hlær góðlátlega. í þann mund sem blaðamaðurinn ætíar að
gera sig líklegan til að kíkja ofan í kerruna hans Garps þá gægist
lítill haus uppúr kerrunni, horfir á mig og brosir. Það er ljóst að
ætlunarverk Kristínar hefur ekki tekist því hann Garpur litli er
enn vakandi. „Jæja, núna þurfum við að fara að drífa okkur
heim því að pabbi er farinn að bíða eftir okkur og ég þarf að fara
að drífa mig aftur í vinnuna," segir Kristína. Blaðamaðurinn
spyr hvort hann megi taka eina mynd af mæðginunum saman.
Kristína hefur ekkert á mótí því og ekkert heyrist í Garpi. Krist-
ína stillir sér og Garpi upp fyrir blaðamanninn og brosir. Um
leið og flassið smellist af þá heyrist „takk fyrir okkur, bless
bless“ og mæðginin þjóta niður Háteigsveginn.
Össur Skarphéðinsson,formaður Samfylkingarinnar,og Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir forsætisráðherraefni berjast um formannsstól
Samfylkingarinnar.
Gamla myndin að
þessu sinni er úr DV síð-
an í febrúarmánuði 1981.
í Austurbæjarbíói voru
haldnir Lennon-tónleikar
og allar stjömur íslensks
tónlistarlífs á þeim tíma sungu
Lennonlögin góðu fyrir hrifna áhorf-
endur. Annan helming dúettsins
Magnús og Jóhann, Magnús Sig-
mundsson, rámar i tónleikana. „Það
er alltaf gaman að syngja Lennon.
Lögin hans em svo vel gerð, texti og
lag passar vel saman. Ég var og er
Lennon-aðdáandi. Að mínu matí er
hann höfuðsnillingurinn í popp-
bransanum."
Magnús og Jóhann em hættir að
spila saman. „Við erum þó alltaf að
röfla um það öðm hvom að taka
upp samstarf að nýju,“ segir Magnús
sem er hvergi af baki
dottinn í tónlistar-
bransanum og er alltaf
að semja. „Ég var að
klára ljóð sem heitír
Gyðja og lag við. Ég ætía að
gefa það út bráðlega.“ Magnús
segir það ekki hafa verið truflandi að
vera frægur poppari. „Þetta er alltaf
eins. Maður verður að hafa sterka
ástríðu fyrir tónlist og talent, þá
gengur þetta upp.“
hefur mér aldrei teki
innahöfn, Dani og fy
gvlólafsson mynd-
maður i viðtali við
DViágúst 1999. i
Sögnin að kúvenda er ekki gömul I
málinu. Hún barst í íslensku úr dönsku
á 19. öld. Hún er notuð í
sjómannamáli um að
skuthverfa, venda skipi með því að
snúa því undan vindi. Sögnin er líka
Málið
notuð i merkingunni 'snúast í hring'og
síðan í yfirfærðri merkingu um aö
‘skipta gjörsamlega um stefnu eða
skoðurí. Danska sögnin er kovende og
merkir eiginlega að 'snúa við eins og
kýr.snúa klunnalega við'.
ÞEIR ERU FRÆNDUR
Idolstjarnan og súlukóngurinn
Davíð Smári Harðarson, sem hefur látið til sín taka
í úrslitakeppni Idol, er frændi Geira I Maxím. Idol-
-stjarnan er sonur hjónanna Harðar Harðar-
sonar fiskeldisfræðings og Maríu Davíðsdóttur
hjúkrunarfræðings. María er systir Geira í
Maxím, eða Ásgeirs Þórs Davíðssonar í Gold-
finger eins og hann heitir líka.
bílskúrinn, geymsluna,
heimilið og fyrirtækið
Þessar hillur geta allir sett
saman. Skrúfufrítt og
smellt saman.
viðbótareining kr. 5.586.
Nethyl3-3a -110 Reykjavík
Sími5353600- Fax5673609
Geytnslu-
H og dekkjahillur
www.isold.is