Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2005, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2005
Fréttir DV
Aðeins tveir
vilja taka við
Aðeins tveir umsækj-
endur reyndust vera um
embætti forstjóra Út-
lendingastofnunar en
umsóknarff estur rann
út 22. janúar. Þau sem
sækja um eru Hildur
Dungal lögifæðingur og
Sveinn Guðmundsson, ffam-
kvæmdastjóri og lögffæðing-
ur. Eins og kunnugt er lét
fyrrverandi forstjóri Útlend-
ingastofnunar, Georg Kr.
Lámsson, nýlega af störfum
til að taka við embætti for-
stjóra Landhelgisgæslunnar.
Húsaviðgerðir í
boði borgarbúa
Húsvemdarsjóður
Reykjavíkur hefur auglýst
eftir umsóknum um styrki til
viðgerða og endurgerðar á
byggingum sem hafa sér-
stakt varðveislugildi.
Sérstaks forgangs njóta
endurgerðir á ytra byrði
húsa til upprunalegs
stíls og viðhald hús-
hluta sem taldir em
hafa mikið gildi til varð-
veislu vegna heildarsvips
svæða, svo sem klæðningar,
steyptar þakrennur og garð-
veggir. Umsóknum þarf að
skila fyrir 11. febrúar svo
áhugasamir þurfa að hefjast
handa hið snarasta við að
útbúa framkvæmda-, kostn-
aðar- og tfmaáætlanir.
Aldurstakmark
á giftingar
útlendinga
Búi Bendtsen,
útvarpsmaöur á X-FM.
„Mér fínnst persónulega að
fólk eigi ekkert að hugsa út í
að gifta sig fyrir 25 ára aldur.
Efhins vegar fólk er að gifta
sig á föiskum forsendum þá tel
ég ekki að eitthvert aidurstak-
mark skipti máli. Getur ekki
bara Útlendingaeftirlitið fyigst
með þessu? Er þaö ekki skárra
en að Björn Bjarnason sé að
vandræðast í þessu? Ég held
nú að þessir þingmenn sem
samþykktu þetta hefðu nú átt
að hafa eitthvað annað
viðmiö en einhvern aidur."
Hann segir / Hún segir
„Þetta ákvæði er sett inn tii að
bregðast við ákveðnum atvik-
um þar sem verið er að nota
leiðir til að hleypa fólki inn í
landið þar sem ekki liggur að
baki annað en að flytja til
landsins, en ekki vilji til að
gifta sig. Ég varsamþykk
þessu ákvæði þegar það var
borið fram og tel verndina ná
fram með þessum hætti. Við
höfum séð dæmi þarsem fólk
er beinlínis neytt í hjónaband.
Við eigum að taka vel á móti
fólkisem hingað vill koma en
verðum líka að stemma stigu
við því þegar annarleg sjónar-
mið búa að baki."
Ásta Möller,
alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Umsóknarfrestur um starf fréttastjóra Ríkisútvarpsins rennur út 7. febrúar.
Spenna rikir á Fréttastofu Útvarps enda sjá margir starfsmenn starfið i hillingum
og hafa gert lengi. Grunnlaunin eru þó ekki nemar rétt tæpar 300 þúsund krónur.
Stríðið um starf fréttastjóra Rfkisútvarpsins er hafið og eru margir
í startholunum. Ekki síst starfsmenn Fréttastofunnar sem margir
hverjir sjá stöðuna í hiilingum og hafa gert lengi. Friðrik Páll
Jónsson gegnir nú starfinu og vill halda því áfram:
„Það er frekar líklegt að ég sæki um.
Ég er búinn að vera fréttastjóri hér frá
því í ágúst þegar Kári Jónasson fór í fh'
sem hann kom aldrei úr,“ segir Friðrik
Páli en Kári Jónasson, fyrrverandi
fréttastjóri Ríkisútvarpsins, var sem
kunnugt er ráðinn ritstjóri Frétta-
blaðsins í fh'inu sem hann sneri aldrei
úr.
Hörð samkeppni
Friðrik Páli Jónsson getur hins veg-
ar átt von á harðri samkeppni þegar til
kastanna kemur. Sigríður Ámadóttir,
sem sagt var upp starfi fréttastjóra
Stöðvar 2 fyrir skemmstu, situr heima
og leitar að nýju st arfi. Sjálf vill hún
ekkert gefa upp. „No comment," segir
hún.
Lfklegt má telja að Sigríður taki
slaginn við Friðrik Pál Jónsson en Sig-
ríður er svo gott sem alin upp á Ríkis-
útvarpinu; hóf ferilinn sem sendill þar
á meðan stofnunin var enn til húsa við
Skúlagötu. Hún starfaði lengst af á
Fréttastofu Ríkisútvarpsins og var orð-
inn staðgengill Kára Jónassonar undir
það síðasta. Hún sóttist eftir því að
verða fréttastjóri Ríkissjónvarpsins og
fékk til þess meirihlutafýlgi innan Út-
varpsráðs en Markús Öm Antonsson
útvarpsstjóri kaus að veðja á Elínu
Hirst. Var Sigríður þá ráðin á Stöð 2 en
stoppaði stutt á Lynghálsinum.
Minni spámenn
Óðinn Jónsson, höfundur og
stjómandi morgunútvarps Ríkisút-
varpsins, er einnig nefndur til sögunn-
ar. Innanhúsfólki hjá Ríkisútvarpinu
finnst honum hafa tekist vel upp með
morgunútvarpið. Það verður ekki af
Óðni tekið að hann hefur sýnt meiri
snerpu en margir aðrir sem reynt hafa
fyrir sér með nýjungar hjá Ríkisútvarp-
inu.
Annar sem einnig þykir koma til
álita er Amar Páil Hauksson.
Fyrrverandi útibússtjóri Ríkisútvarps-
ins á Akureyri og í Kaupmannahöfn.
Amar þykir traustur starfsmaður en
ekld ævintýragjam að upplagi. Því má
ætla að hann heykist á því að sækja
um stöðuna: „Eg hef ekki tekið
ákvörðun," segir hann sjálfur.
Röddin er vörumerki
Þá er ónefndur Páll Benedikts-
son, gamalreyndur starfsmaður Rík-
isútvarpsins, sem gengið hefur í
endurnýjun lífdaga með sjónvarps-
þættinum í Brennidepli. Broddi
Broddason þykir einnig koma til
greina en hann er líklega þekktasta
rödd Fréttastofu Ríkisútvarpsins og
allt að þvf vömmerki hennar. Sú
staðreynd ætti ekki að draga úr
möguleikum Brodda.
Óvænt umsókn?
Ekki er útilokað að málum verði
hleypt í loft upp með óvæntri um-
sókn ffá Akureyri. Þar situr Birgir
Guðmundsson, margreyndur rit-
stjóri og fféttastjóri, og einn mesti
fagmaður í íslenskri fjölmiðlun sam-
tímans. Birgir stundar nú kennslu við
Háskólann á Akureyri og gæti kitlað í
puttana.
Ég hef lítið leitt hugann að þessu,"
en alit getur gerst. Til dæmis flutti ég
hingað norður á Akureyri með tveggja
daga fyrirvara."
400 þúsund á mánuði
Umsóknarfrestur um starf ffétta-
stjóra Ríkisútvarpsins rennur út 7.
febrúar. Samkvæmt uppfýsingum frá
starfsmannahaldi Rfldsútvarpsins em
grunnlaun fréttastjóra samkvæmt
samningi við fj ánnálaráðimeytið á bil-
inu 283-293 þúsund krónur á mánuði.
Við þá upphæð má bæta aukasporsl-
um upp á hundrað þúsund kxónur
þannig að fréttastjóri Rflásútvarpsins
ætti að geta haft rétt um 400 þúsund
krónurí mánaðarlaun.
segir Birgir. „Lfldega sæki ég ekki mn
Birgir Guðmundsson Fljótur
að taka ákvarðanirefþarf.
Arnar Páll Hauksson Tvístlgandi
frammi fyrir ævintýri.
Sigríður Árnadóttir
Leitar að vinnu og lltur
tilæskuslóðanna.
Óðinn Jónsson Þykir hafa gert
það gott i morgunútvarpi.
Broddi Broddason Röddin alltað
þvf vörumerki Fréttastofu Útvarps.
Ásthildur Albertsdóttir er ósátt við að manni hennar hafi verið vísað úr landi
Dómsmálaráðherra skilur ekki ástina
„Ég skil satt best að segja ekki af
hverju maðurinn sakar mig um að
ljúga. Af hverju ætti ég að gera það,
ég hef misst það sem skiptir mig
máli og um það snýst málið," segir
Ásthildur Albertsdóttir, eiginkona
Said Hasan, Jórdana sem vísað var
úr landi vegna
aldurs um
liðna helgi.
í frétt DV af
málinu í gær
var haft eftir
Birni
Bjarnasyni
dómsmáia-
ráðherra að ffá-
sögnÁsthildar
af sam-
skiptum
þeirra
tveggja
á fundi
Dómsmálaráðherra
Sakaður um sinnuleysi f
garð 23 ára jórdansks ást
manns íslenskrar konu.
um málefni manns hennar í dóms-
málaráðuneytinu væri röng í öllum
meginatriðum. Ásthildur hafði sak-
að Björn um sinnuleysi í garð þeirra
hjóna þegar þau leituðu til hans eftir
að Útlendingastofnun hafði úrskurð-
að að hann fengi ekki dvalarleyfi hér
á landi. „Ég hef svo sem engan áhuga
á að rífast við Bjöm, fyrir honum er
þetta einhver pólitík en fyrir mér
snýst þetta um mannréttindi og það
að fá að hafa manninn minn hjá
mér.
Hvernig
er hægt að
ætlast til
að menn
sem
hugsa
eins og
þessi
dóms-
málaráð-
herra geti skihð það,“ segir Ásthild-
ur.
Rétt er að taka fram að í mánu-
dagsblaði DV var rangt farið með
dagsetningu á fundi Björns og Ást-
hildar, fundurinn var sagður hafa
verið í desember en ekki september
eins og rétt er. Það
leiðrétti raun- ^ “ llMli>
ar Björn í við-1
tah í gær.
Ásthild-
ur segir það skjótu skökku við að
Björn skuli segja eina af ástæðum
brottvísunar manns hennar úr landi
hafa verið þá að hann hafl ekki getað
tryggt sér framfærslu hér á landi.
„Þetta em nú hjákátleg rök hjá
manninum. Said gat ekki stundað
vinnu þar sem hann hafði ekki at-
vinnuleyfi sem hann gat aftur ekki
fengið þar sem honum var neitað
um dvalarleyfi af því hann var ári of
ungur. Hann hafði tvisvar þurft að
neita boði um vinnu vegna þessa
þrátt fyrir að vilja komast í vinnu,"
segir Ásthildur í samtah við DV.
helgi@dv.is
Segir Björn snúa út úr Ást-
hildur Albertsdóttir segir dóms-
málaráðherra snúa út úrþegar
hann segi Said ekki hafa getað
skapað sér framfærslu.