Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2005, Side 19
DV Sport
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2005 79
Engin gagn-
ryni á Beck-
ham
Jose Mourinho, knattspyrnu-
stjóri Chelsea, neitar því að hann
hafi gagnrýnt David Beckham
þegar hann tjáði sig um „ofur-
boitana" hjá Real Madrid um
helgina. Haft var eftir Mourinho
að hann hefði ekki áhuga á því að
kaupa „Hollywood-stjörnur'‘ en
hann neitar því að hafa
átt við Beckham í því
sambandi. „David
Beckham er ein-
staklingur sem ég ber •
mikla virðingu fyrir,
bæði sem
IEMENS
mobiit
manneskju
og leik-
manni.
Hann er
fyrirliði
enska
landsliðsins
og hefur
orðið Evrópu-
meistari. ég hef
aldrei gagnrýnt
hann og fréttir
sem segja svo
eru rangar,"
sagði Mourinho.
,^AHt sem ég
þarf er sterkur
hópur leik-
manna. Ég þarf
ekki Holly-
wood-stjörnu,“
sagði Mourinho og
setti síðan út á
„ofurboltana" frægu
hjá Real Madrid.
„Hvað í fjandanum
er „ofurbolti"? Er það
leikmaður sem er
frægur eða er það
leikmaður sem spilar
sextíu leiki á tímabili
vel? ímynd „ofur-
boltanna" kemur frá
frægðinni og fína
Kfinu. Ég treysti þessmn
„ofurboltum" ekíd. Ég efast ekki
um hæfileika þeirra en ég efast
um það sem er í kringum þá og
gerir það að verkum að
frammistaða þeirra er ekki
stöðug. Þess vegna vil ég
leikmenn eins og Paolo Ferreira
og Didier Drogba. Ég á sjálfur
dýran bíl en mér nægir einn
slíkur. Ég hef enga þörf fyrir
heilan bílaflota," sagði Mourinho
í viðtali við enska sunnudags-
blaðið News of the World.
Alonso ekki
lengur með
Rafael Benitez, knattspymu-
stjóri Liverpool, telur ólíklegt að
spænski miðjumaðurinn Xabi
Alonso verði meira með liðinu á
þessu tímabili. Alonso
ökklabromaði í leik gegn Chelsea
á nýársdag eftir
samsmð við
Frank Lampard og
Benitez sagði að '
það tæki hann að
minnsta kosti þrjá
mánuði að ná sér af
meiðslunum. „Ég
geri ekki ráð fýrir að
hann verði meira
með á tímabilinu
en ef það gerist
þá er bara
bónus.
Þegar
leik-
menn hafa
verið þrjá mánuði frá
vegna meiðsla þá er
aldrei að vita. Sumir
leikmenn em strax
komnir í sitt gamla
form en aðrir em
lengur að ná sér
að fullu."
V
Eiður Smári Guðjohnsen á undir högg að sækja í baráttunni um sæti í Chelsea-lið-
inu þessa dagana. Hann virðist vera að lenda undir í samkeppni við Fílabein-
strandarbúann Didier Drogba sem var keyptur síðasta sumar fyrir 24,5 milljónir
punda. Drogba hefur verið í byrjunarliðinu í undanförnum þremur leikjum og
skorað Qögur mörk.
Drogba Heldur Eiði
Smára á bekknum
Eiður Smári Guðjohnsen var ánægður með lífið og tilveruna
þegar hann var kjörinn íþróttamaður ársins 2004 á milli jóla og
nýárs. Hann talaði um hversu ánægður hann væri með það að
halda hinum rándýra Didier Drogba á bekknum í hinu geysi-
sterka liði Chelsea. Eftir það hefur dæmið snúist við og nú er það
Drogba sem heldur landsliðsfyrirliðanum okkar á bekknum.
Þessir kappar berjast um framherjastöðuna en Serbinn Mateja
Kezman blandar sér lítið í þá baráttu.
Jose Mourinho, knattspyrnu-
stjóri Chelsea, hefurverið þekktur
fýrir að spila aðeins með einn fram-
herja í sínum liðum og tvo ffamliggj-
andi kantmenn. í byrjun tímabils
stillti hann hins vegar upp tveimur
framherjum, þeim Eiði Smára
Guðjohnsen og Didier Drogba, og
hélt sig við þá uppstillingu allt þar til
liðið tapaði sínum fyrsta og eina leik
í úrvalsdeildinni á þessu tímabili,
gegn Manchester City þann 16.
október. Þá breytti Mourinho um
leikaðferð og fór yfir í sína velþekktu
4:3:3. Einhverju máli skipti reyndar
að hollenski vængmaðurinn Arjen
Robben lagaðist af meiðslum á svip-
uðum tíma og Mourinho gat því
notað hann og Duff á sitt hvorum
kantinum. Didier Drogba meiddist
reyndar í leiknum á undan, gegn
Liverpool og því sat Eiður Smári
einn að ffamherjastöðunni þegar
Mourinho breytti um leikkerfi.
Eiður Smári spilaði reyndar í
rúma tvo mánuði og átta leiki í
deildinni án þess að skora. Hann
skoraði sigurmark Chelsea í fýrsta
leiknum gegn Manchester United
15. ágúst en skoraði hann ekki aftur
fýrr en hann skoraði þrennu gegn
Blackburn 23. október.
Drogba frá vegna meiðsla
Drogba var frá í tæpa tvo mánuði
vegna meiðsla og mátti bíta í það
súra epli að koma inn á fyrir Eið
Smára í fýrstu fjárum leikjunum
eftir að hann kom til baka eftir
meiðslin. Hann skoraði tvívegis í
þessum fjórum leikjum og hefur nú
verið í byrjunarliðinu í fjórum af síð-
ustu fimm leikjum. Hann hefur
skorað fjögur mörk í þessum fimm
leikjum og er orðinn markahæsti
leikmaður Chelsea í ensku úrvals-
deildinni með átta mörk, einu
marki meira en Eiður Smári og
Frank Lampard. Eiður Smári
hefur ekki skoraði fyrir Chelsea
í ensku úrvalsdeildinni síðan
gegn Arsenal 12. desember
og hefur því leikið sex
leiki í röð án þess að
skora.
Eiður Smári hefur
verið í byrjunarlið-
inu í átján af tutt-
ugu og fjórum
leikjum liðsins og
aðeins einu
brough á Árbakka, setið á bekknum
allan tímann. Hann hefur komið
fimm sinnum inn á sem varamaður.
Eiður Smári hefur spilað í 1447 mín-
útur og skorað sjö mörk.
Didier Drogba hefur spilað átján
leiki í deildinni, byrjað inn á tólf
sinnum og komið sex sinnum inn á
sem varamaður. Drogba hefur
spilað 1157 mínútur og skorað átta
mörk.
Athygli vekur að Eiður Smári og
Drogba hafa aðeins spilað 397 mín-
útur saman inni á vellinum, síðast
gegn Liverpool 3. október en í þeim
leik fór Drogba meiddur af velli á 38.
mínútu.
Það verður fróðlegt að sjá hvert
framhaldið verður hjá þeim félög-
um. Þeir eru afskaplega ólíkir leik-
menn að öllu leyti. Eiður Smári er
meiri þátttakandi í spili liðsins en
Drogba er vinnuhestur sem er sterk-
ur í loftinu og fýrst og fremst stór-
hættulegur í teignum. Hvernig Mo-
urinho mun nota þá kemur í ljós en
hann mun væntanlega velja þann
sem hann telur henta gegn þeim
andstæðingum sem um er ræða
hverju sinni. Miðað við framgöngu
Chelsea-liðsins í vetur er fullt af
leikjum framundan og nóg af verk-
efnum, bæði fyrir Eið Smára
ogDrogba.
Kezman
er kötturinn í
sekknum
Serbneski framheijixm
Mateja Kezman hefur heldur
betur valdið vonbrigðum frá
því hann kom frá PSV Eind-
hoven síðasta sumar. Hann
hefur aðeins skorað eitt mark í
ensku úrvalsdeildinn og hefur
ekká náð að veita þeim Drogba
og Eiöi Smára neina sam-
keppni að ráðL Hann hefur
nýtt færi sín afskaplega illa og
það segir meira en mörg orð að
hann hefur aðeins
tvisvar sinnum ver-
ið f byijunarliðinu
hjáliðinuívetur,
síðast í tapleikn-
umgegn
Manchester
atyum
miöjan
október.
Það veröur
að teljast
lfldegt
að Kez-
manyfir-
gefi her-
búöir
Chelseaí
ansi
smm, gegn
Middles-
Eiður Smári er meiri
þátttakandi í spili
liðsins en Drogba er
vinnuhestur sem er
sterkur í loftinu og
fyrst og fremst stór
i hættulegur i teign-
I um.