Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Blaðsíða 32
I 32 LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2005 Helgarblaö DV DV Helgarblaö Forseti íslands Ólafur Ragnar Grímsson heiöraði 23 ungmenni á Akureyri í síðustu viku. Krakk- arnir eru á ýmsum aldri og fengu viðurkenningu fyrir dugnað, jákvæðni og æðruleysi þrátt fyrir erfiðleika sem sum þeirra glíma við. DV heyrði í nokkrum af þessum hugröku og duglegu börnum og forvitnaðist um skól- ann, lífið og tilveruna og hvort það hafi ekki verið gaman að hitta forsetann. „Ég er mjög ánægð með þetta og var hissa þegar ég var valin," segir Rósa Ösp Traustadóttir nemandi í 9. bekk í Brekkuskóla. Rósa Ösp er duglegur náms- maður auk þess sem hún tekur virkan þátt í iþróttum fatlaðra, en hún hæfir sund af kappi. „Ég er að fara til Noregs að keppa í sundi,“ segir Rósa Ösp og bætir við að henni finnist mjög gaman að synda. Hún segir að það sé gaman í skólanum, sérstaklega í handmennt, ensku, stærðfræði og tónlist. „Ég spila ekki á hljóð- færi en finnst gaman að syngja, þótt ég sé ekki í kór.“ Rósa ösp segir að það hafi verið gaman að hitta forsetann og eiginkonu hans. Hún hafi þó séð þau áður, þegar þau skelltu sér í sundlaugina á Akureyri í fyrra. Hún segist ekki vita hvað hún ætíi að verða í framtíðinni, en lýst vel á að læra nudd eða hár- greiðslu. „Það kemur margt til greina og ég sé bara til. Mér gengur vel í skólanum og í sum- ar ætía ég að vinna í unglinga- vinnunni. Ég vann þar líka í fyrra og það var mjög fi'nt. Einnig er ég að fara með Æsku- lýðsfélaginu til Ítalíu í sumar. Við ætíum að vera þar í tvær vik- ur og hittum einmitt á afmælis- daginn minn þannig að það verður örugglega mjög gaman.“ Rósa Ösp Traustadótt- ir Rósa var ánægð og hissa þegar hún frétti að forsetinn vildi hitta hana til að veita henni viður- kenningu. „Ég er mjög ánægð með þessa viðurkenningu,“ segir Al- dís Bergsveinsdóttir sem er í fjórða bekk í Giljaskóla. Aldís fékk hvatningu frá forsetanum fyrir góðan árangur í námi, fyrir- myndarframkomu og fyrir að vera einstakur vinur bekkjarfé- laga sinna. „Það er mjög gaman í skól- anum og uppáhaldsfagið mitt er myndmennt," segir Aldís og bætir við að af bóklegu fögunum finnist henni móðurmálskennsla skemmtilegust. Hún viður- kennir að hafa orðið dálítið hissa yfir viðurkenningunni en segir athöfnina hafa verið skemmtilega. „Það var gaman að hitta forsetann og Dorrit var skemmtileg,“ segir Aldís. Aldís æfir listskauta og hefur lært á fiðlu í tvö ár. Hún segist ekki alveg vita hvað hún ætíi að verða þegar hún verður stór en hefur samt ákveðnar hugmynd- ir. „Ég hef ekki enn ákveðið það, en það væri gaman að verða leikkona." Aldís Bergsveinsdótt- ir „Það var gaman að að hitta forsetann og Dorrit var skemmtileg," segir Aldls. „Ég er mjög ánægður með þetta," segir Bergþór Steinn Jónsson sem er í 9. bekk í Gler- árskóla en hann fékk viður- kenningu fyrir góðan árangur í námi og íþróttum og fyrir að vera hjálpsamur og reiðubúinn að aðstoða aðra. Bergþór segir viðurkenninguna hafa komið sér á óvart en tveir aðrir strákar í skólanum fengu líka viður- kenningu. Forsetinn greindi frá því að árangur Berþórs í júdó væri frábær. Þótt Bergþór Steinn sé ekki íslandsmeistari í júdó þetta árið þá hefur hann verið það þrjú síðustu árin auk þess sem hann er núverandi ís- landsmeistari í siglingum. „Ég hef mjög gaman af því að æfa bæði júdó og siglingar en ég byrjaði í siglingum fyrir tveimur eða þremur árum,“ segir Ber- þór. Honum finnst gaman í vini. „Þegar við félagarnir erum saman þá spjöllum við saman, skólanum og segist eiga horfum á sjónvarpið eða förum skemmtilega gSBgg á handboltaleiki," segir Berþór og bætir við að hann stefni á Menntaskólann á Akureyri að grunnskólanámi loknu. „Ann- ars stefni ég á að verða læknir og þá helst svæfingalæknir en það eru margir læknar í ættinni hans pabba. Mér gengur vel í flestum greinum í skólanum, öllu nema stafsetningu. Uppá- haldsfagið mitt em íþróttir en af þessu bóklega þá er það stærð- firæði," segir Bergþór og bætir við að þessi viðurkenning frá forsetanum hvetji hann enn frekar til að haga sér vel og standa sig enn betur í skólan- um. Hann segir það hafa verið gaman að hitta forsetann. „Ólafur Ragnar var bara flottur og Dorrit var hress." Bergþór Steinn Jóns- son Bergþór fékk hvatn- ingu frá forseta Islands fýrir að vera duglegur og hjálpsamur I skólanum. i lli 1 mm LAUGARDAGUR 16. APRlL 2005 33 „Pabbi sagði að ég hefði fengið viðurkenningu fyrir þrjóskuna," segir Herdís Helgadóttir sem er í 9. bekk í Oddeyrarskóla. Herdís fékk meðal annars hvatningu forsetans fyrir að vera áræðin, samviskusöm og íyrir að þora að standa á sann- færingu sinni. „Ég viðurkenni að ég læt engan vaða yfir mig. Ég stend föst á mínum skoðunum og er ekkert að þegja yfir þeim,“ segir Herdís ákveðin en hún fékk auk þess hvatningu fyrir að vera dygg- ur liðsmaður unglingastarfs Hjálp- ræðishersins. „Ég finnst rosalega gaman að starfa hjá hemum og ég er búin að vera bamaleiðtogi í eitt ár. Við spilum á hljóðfæri, syngjum og spilum billjard og borðtennis og svo erum við með kristilega arhjóðfæ fræðslu. Starfið hefur hjálpað mér lega frá mjög mikið og í dag finnst mér ekkert mál að koma ; Þótt Herdís sé aðeins í “ jpll 9.bekk starfar hún í Hag- : kaup með skólanum þar : JSj £f||l semhúnerkermtæknir. Það er því nóg að gera hjá henni 18 en hún er einnig í Marimba- | sveit Oddeyrarskóla auk | þess sem hún er að læra á Ea bassa í tónlistarskólanum. I Herdís Helgadótt- „Það er rosalega gaman í ir Það er nóg að Marimbasveitinni. Það er gerahjáHerdlsien aðeins til ein önnur svona hún er barnaleiðtogi sveit á landinu og hún er í hjá Hjálpræðisher- Hafralækjaskóla. Þetta em num, kerrutækmr í fiórar tegundir af tréslátt- ^ZZtinnL Zimbawe og það geta allir í sveit- inni spilað á öll hljóðfærin," segir Herdís og bætir við að ■j sveitin hafi spilað fýrir for- ■ setann og eiginkonu hans. Herdís hefur ekki enn H ákveðið livaö hún ætlar að I gera í framtíðinni, enda Wm mikið í boði. „Ég er mjög MSi oft spurð að þessu en ég I hef ekki enn tekið I ákvörðun. Mér gengur vel I í náminu og get því lært I það sem ég vil svo það I kemur í ljós. Ég væri til í I verða arkitektúr eða ljós- ■ myndari. Að minnsta I kosti ætla ég að reyna að | læra sem mest hér á Ak- I ureyri." w iMitiun ii r wi i IM'IIIUJ w u „Ég var mjög ánægður með þetta en var nokkuð hissa þeg- ar ég var valinn,“ segir Jóhann Þór Hólm- grímsson sem er í 6. bekk í Síðuskóla. Jóhann Þór fékk hvatningu frá forset- anum fyrir æðruleysi þrátt fyrir fötíun sína en hann fæddist með klofinn hrygg og vamshöfuð. Hann er því með skerta vöðvastjómun fyrir neðan mitti og þarf að nota spelkur þegar hann gengur. Jóhann Þór Hólm- grímsson Jóhann æfir bocha með íþróttafé- laginu Akri og varð fs- landsmeistari í opnum flokki fyrir tveimur árum auk þess sem hann var i fyrsta sæti á bocha-móti sem Lions- klúbburinn Hængur hélt sama ár. í tilkynningu frá skrif- stofu forseta íslands kemur fram að Jóhann kvartí aldrei yfir örlög- um sínum og að hann hafi vegna dugnaðar og jákvæðs hugarfars unn- ið sér hylli félaga sinna. „Það er ágætt í skólanum enda á ég mikið af vin- um,“ segir Jóhann Þór og bætir við að hann látí fötíun sína ekki stoppa sig í skemmta sér með vinun- um. „Við gerum margt saman og skemmtilegast finnst mér í íþróttum," segir hann en viðurkennir að hafa ekki ákveðið hvað hann ætli að verða þegar hann verði stór. Jóhann æfir bocha með íþróttafélaginu Akri og varð ís- landsmeistari í opnum flokki fyrir tveimur árum auk þess sem hann var í fyrsta sætí á bocha- mótí sem Lionsklúbburinn Hængur hélt sama ár. Þrátt fyrir að þurfa oft að mæta í aðgerðir til Reykjavíkur á Jóhann marga vini, en hann hefur verið með sömu krökkunum í bekk síðan í þriðja bekk. Hann segir að það hafi verið gaman að hitta forset- ann. „Ég hafði aldrei séð hann áður nema í sjónvarpinu og mér leist bara vel á hann og konuna hans.“ J í / 7 ff IJ iT klf r IJ I / W liMWl 4! II 'II iilí „Það var mjög gaman að hitta forsetann," segir Elísa Sól Pétursdóttir nemandi í 1. bekk í Giljaskóla. Elísa Sól er með al- varlegan hrörnunarsjúkdóm en hún er sú eina á landinu sem haldin er þessum sjúkdómi. Hún fékk viðurkénningu frá for- setanum fyrir að standa sig eins og hetja í skólanum og leysa verkefni sín af ánægju og gleði. Efisa Sól segist vera dugleg að læra og þykir gaman í skólanum. „Besta vinkona mín heitir Ása og við gerum margt skemmtilegt saman. Mér finnst gaman í öll- um tímum en það er leiðinlegt að þurfa að fara út í fnmínútun- um þegar það er snjór,“ segir hún og bætir við að hún hlakki til sumarsins. „Þegar ég verð stór ætía ég að verða búðarkona en ég er líka að læra á píanó og kann að spila Gamla Nóa. Kannski verð ég líka píanó- leikari.“ Mamma Efisu, Sonja Björk Efiasdótt- ir, er að sjálfsögðu stolt af dóttur sinni. „Sjúkdómurinn leggst á tauga- og ónæmis- kerfi hennar og hún þarf því að nota hjálpar- tæki og á hjólastól sem hún mun nota meira í framtíðinni og jafnvel al- veg. Hún þarf að mæta í Elfsa Sól Péturs- dóttir Elisa er haldin alvarlegum hrörnunarsjúkdómi en er alltafjákvæð og hress. sjúkra- og iðjuþjálfun tvisvar í viku og talþjálfun einu sinni í viku en hún er alveg einstök og jákvæð- asta manneskja sem ég þekki,“ segir Sonja Björk og viðurkennir að það sé hægt að læra ýmislegt af Elísu. „Hún er mjög dug- leg í skólanum, hún er hæg en alls ekki á eftir hinum börnunum og mjög skýr. Þegar ég sagði henni að forset- inn vildi hitta hana þá vissi hún upp á hár hvað hann héti. Hún er bara ótrúlega dug- leg, jákvæð og alltaf mikill húmoristi." indiana@dv.is - DV-myndir Bjarni Eiriksson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.