Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Blaðsíða 50
50 LAUGARDAGUR 16.APRÍL 2005 Helgarblað DV Agnesisminn Starfa stjórnmálamenn sam- kvæmt bestu samvisku? Ég hef fjallað um stjómmál og er litlu nær um svar- ið við þessari spumingu. Kannski er ástæðan sú að ég hef aldrei komist - og mun aldrei komast - inn á fundi þar sem teknar em stórar ákvarðanir; ^þar sem alvöm verðmætum er skipt. Svoleiðis er í verkahring pólitíkusa sem oftast eru aldir upp í stjórnmála- flokkum ffá unga aldri og þekkja ekki annað umhverfi. Telja þeir sig vera að starfa í þjóðarhag - til dæmis þegar hér um bil öllum öðmm sýnist þeir vera að hlaða rmdir vini sína. Eða finnst þeim kannski af heilum hug að umræddum verðmætum sé einmitt best borgið hjá vinunum? Á að svindla á okkur? Ég hef verið að pæla í þessu í tengslum við einkavæðingu Símans. Þjóðin virðist nefnilega alveg sann- færð um að rangt verði haft við. Á vefnum hjá mér er til dæmis könnun þar sem 87 prósent svarenda telja að «ekki verði eðlilega staðið að sölu Sím- ans. Viðbrögð ráðamanna hafa verið mikil og innileg móðgun, þeir em sár- ir yfir því að einhveijum skuli detta svona lagað í hug. Samt er það svo að sporin hræða. í vikunni spratt upp fyrirbæri sem ég vil nefna „agnesisma". í Frakklandi Egill Helgason veltirfyrirsér tíðindum liðinnar viku. Laugardagskj allari fyrir í bankaráðunum en almenning- ur fékk að blæða - það má segja að hann hafi systematískt verið féflettur. Lánsfé var tæpast að hafa nema út á pólitíska velvild, það var beinlínis hlægilegt að spara þótt reynt væri að telja manni trú um annað. Dæmi um svindlið er að slagorð stærsta bank- ans var „græddur er geymdur eyrir“. Þetta var borið á borð fyrir börn á tíma ógnarverðbólgu - er furða þótt maður sé tortrygginn? Sósíalískur spillingarbúskapur Hér skapaðist aldrei hefð fyrir einkareknum bönkum - eftir að ís- landsbanki varð gjaldþrota 1929 komst á kerfi með þremur sterkum ríkisbönkum. Kannski má segja að ís- land hafi verið sósíalistaríki. Að minnsta kosti finnst manni eins og Vinstri grænir sjái eftir þessum tíma. Hér var gengið mun lengra í hafta- stefnu en víðast í Evrópu, meira að segja á hinum sósíaldemókratísku Tónninn helmingaskiptanna var gefinn í hermanginu þar sem sjálfstæðismenn og framsóknarmenn deildu með sér gróðanum. Systemið teygði sig svo út um bankana og embættismannakerfið. varð til stjómmálahreyfing upp úr 1950 sem var kölluð „poujadismi", nefnd eftir manni sem hét Pierre Poujade. Þetta var hreyfing litla mannsins, smáborgara, smákaup- manna - og var meðal annars stefiit gegn stórfyrirtækjum. Það ætti kannski að setja smá ugg að valda- mönnum þegar Agnes þrammar ffemst í floldá h'tilla fjárfesta. Græddur er geymdur eyrir! Einkavæðingin á íslandi átti sér stað mjög seint. Á fyrri hluta tíunda /ratugarins vom menn í raun ekki komnir lengra en að Síldarverksmiðju og Skipaútgerð rikisins. Þrátt fyrir eindregna markaðsstefnu var Sjálf- stæðisflokkurinn aldrei að flýta sér að einkavæða. Stjómmálamennimir undu hag sínum vel í kerfi ríkisbanka þar sem flokksgæðingar spiluðu með peninga sem þeir áttu ekkert í. Flokkamir komu sínum mönnun Norðurlöndum var blómlegur markaðsbúskapur miðað við hér á landi. Það var eiginlega ekki fyrr en með frjálshyggjubylgjunni á níunda ára- tugnum - stefnu Thatchers og Reag- ans - að upp komu alvöru kröfur um einkavæðingu. Áður höfðu þeir sem vildu losa þessi tök verið taldir sér- vitringar - líkt og Eyjólfur Konráð Jónsson sem oftast var afgreiddur með því að hann tilheyrði sértrúar- söfnuði. Nú komu loks fram ungir menn sem litu á frjálsan markað sem alvöru hugsjón. Á þeim ámm var tímaritið Frelsi eins og himnasend- ing. Langlundargeð íslendinga Lýsingar á kerfinu sem hér var við lýði í um áratugaskeið má lesa í hin- um stórmerkilegu bókum Örnólfs Ámasonar, Á slóð Kolkrabbans og Bankabókinni. Þetta var gamaldags kvæmdastjóri L stærsta stjórn- I málaflokksins, ' sem sat í $ I bankastjóm- 3 inni meðan 1 bankinn var í ríkis- eigu, fékk að klfkusamfélag sem byggðist á því að flokksvald skammtaði og skaffaði. Mönnum datt eiginlega ekki í hug að þetta gæti verið öðruvísi. Það er furðulegt hvað almenningur lét sér lynda mikla fyrirhtningu af hendi ráðamanna. Maður spyr: Hvers vegna var ekki gerð uppreisn? Vilmundur Gylfason reis upp gegn þessu staðnaða og spillta kerfi, hann þekkti innviði þess betur en flestir - var alinn upp innan um þá sem höfðu völdin. Það var sífellt hamrað á því að Vilmundur væri reikull og mglaður, en Helgarpósturinn, fjölmiðiliinn sem reyndi að afhjúpa kerfið með hugmyndir hans að vopni, var kallað- ur óábyrgt sorpblað. Ef gömlum Helgarpóstum er flett rennur upp fyr- ir manni mynd af kerfi sem var svo spillt að það væri vonandi óhugsandi í dag. Helmingaskiptin Tónn helmingaskiptanna var gef- inn í hermanginu þar sem sjálfstæð- ismenn og framsóknarmenn deildu með sér gróðanum. Systemið teygði sig svo út um bankana og embættis- mannakerfið. Stundum fékk Alþýðu- flokkurinn að vera með, af því eimir enn í skipan seðlabankastjóra þar sem situr einn sem er merktur Sjálf- stæðisflokknum, einn úr Framsókn og svo einn sem kratar geta talið sinn mann. Þetta kerfi er verðugt rannsóknar- efni fyrir alvöru sagnfræðinga; það gætí orðið ein merkasta stúdía á ís- lensku samfélagi á tuttugustu öld. Stundum hafa helmingaskiptin reyndar verið rekin enn lengra aftur - allt frá því að Ólafur Thors og Jónas frá Hriflu settust saman í bankaráð Landsbankans 1936. Þá þótti hafa tekist samkomulag um að Framsókn- arflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn hættu að skemma hvor fyrir öðrum í atvinnulífinu - loka á aðgang skjól- stæðinga hins. Sigur frjálshyggjunnar Ungu Tyrkirnir í Sjálfstæðis- flokknum voru alvöru byltingarmenn sem brunnu í andanum. Þeir hægðu þó verulega á sér þegar þeir komust nálægt völdunum. Einkavæðingin hér er svo síðbúin að hún er langt á eftir bæði Austur-Evrópu og Skandin- avíu. Það er sagt að Sfminn sé síðasta stóra ríkissímafyrirtækið í Evrópu sem verður einkavætt; annars staðar þykir út í hött að ríkið standi í slfkum samkeppnisrekstri. Áður má þó segja að frjálshyggju- mennimir hafi unnið sinn stærsta sigur. Kjami hugmynda þeirra er að ekkert virki nema það sé í einkaeigu. Ein forvitnilegasta hugmyndafræði- lega umræða síðari ára er um einka- væðingu almenninga. Hér birtist hún aðahega í deilunum um fiskistofn- ana. Þar má fullyrða að frjálshyggjan hafi haft algjöran sigur - það tókst að komá fisknum í sjónum í einkaeigu áður en nokkur uggði að sér. Kvóta- kerfið bhfur. Það fer smátt og smátt að verða sérviskuskoðun að hægt sé að taka þann gjöming til baka. Rússnesk einkavæðing Það er heil vísinda- grein hvemig staðið skuli að einkavæðingu. Viðskiptablaðið vitnar í einn mesta einkavæð- ingarsinna allra tíma, Vaclav Klaus, fyrrverandi forsætisráðherra Tékk lands. Pólitík hans var sú að senda öllum landsmönn- um hlutabréf í pósti. í Rússlandi var að hluta til reynt að nota svip- aða aðferð, einkavæð- ingar- mennirnir Gaidar og Tsjubais létu senda út bréfsnepla sem vom ígildi eignar í fyrirtækjum. En gamla kerfið var tregt og sterkt og á sama tíma töldu þeir sig neyðast til að gera samning við andskotann - flokks- hesta sem ætluðu sér stóra sneið af kökunni. Kannski er ekki alveg út í bláinn þegar menn líkja atburðunum hér við rússneska einkavæðingu - sjálf Agnes hefur einmitt hvatt landsmenn til að rísa upp til að þeir „njótí arðsins af eigin köku". Annars muni stjómvöld, flokksgæðingar og milljarðamæring- ar „ræna okkur eina ferðina enn". Kennitölufárið Umræðan um aðferðafræði einka- væðingarinnar hérlendis hefur verið í meira lagi mótsagnakennd. Fyrsta kastið var dreifð eignaraðild lausnar- orðið en hún var úr sögunni eftir kennitöluæðið sem greip um sig þeg- ar fyrst var hafist handa við að einka- væða bankana. Davíð Oddsson reiddist mjög - eftir á að hyggja var þó varla annað á ferðinni en það að almenningur, fólk sem hafði lítið vit á viðskiptum, vildi reyna að tryggja sér htinn en öruggan hlut í ábatanum. Aftur reiddist forsætisráðherrann þegar óvelkomnir aðilar, Orca-hóp- urinn með „götustráka" eins og Jón Ólafsson og Jón Ásgeir, hrifsuðu til sín FBA. Þá var ákveðið að hefjast handa við að einkavæða Símann, þar áttí almenningur, starfsmenn og litlir ijárfestar að fá að koma að - sá áhugi gufaði upp þegar netbólan sprakk stuttu eftir aldamótin. íslenskir ólígarkar Eftir þetta var tal um dreifða eign- araðild varla að finna nema í leiður- um Morgunblaðsins. Nú skaut upp koflinum nýyrði - kjölfestufjárfestar. íslenskir ólígarkar voru mættir á svæðið til að taka yfir ríkisfyrirtækin. Steingrími Ara Arasyni, grandvörum ráðuneytismanni, var svo ofboðið að hann sagði sig úr einkavæðingar- nefhdinni - hefur reyndar ekki enn viljað segja frá því sem gerðist þar innan dyra. Viðskiptablaðamaðurinn Agnes orðar þetta svona í Morgun- blaðsgreininni frægu: „Við létum það yfir okkur ganga, án þess að heyrðist múkk, að þjóðar- bankarnir Búnaðarbanki og Lands- banki, væru einkavæddir, afhentir pólitískt réttum aðilum, á sama silf- urfatinu, á spottprís, og nú eru þeir hinir sömu rétt völdu, milljarðamær- ingar; en ætlum við að láta það yfir okkur ganga, að enn ein þjóðareign- in, sem malar gull og gersemi, verði afhent pólitískt réttvöldum, á sama fatinu, án þess að í okkur heyrist svo mikið sem múkk." Kjartan í bankaráðinu Það var svo sem ekki hægt að efast um að Björgólfamir ættu nóga pen- inga. Þeir voru nýbúnir að selja bruggverksmiðju í Pétursborg; fyrir þá var ríkisbanki á íslandi eins og skiptimynt. Sumir kaflar í síðustu skáldsögu Þráins Bertelssonar eru í raun ekki verri heimild um þetta en hvað annað. Alltént þurfti Þráinn ekki að skálda udd að fram- sitja þar áfram eftir einkavæðingu - og situr enn. Sjónarspil S-hópsins Vandinn var hins vegar sá að vinir Framsóknarflokksins áttu ekki nógan pening. Sambandið var löngu farið á hausinn. Þess vegna var gengið í að redda hagstæðu lánsfé; til dæmis fékkst ágætt lán í Landsbankanum stuttu áður en hann komst í einka- eigu. Svo var farið í skollaleik í kring- um þýskan banka. Þegar samkomu- lagið um sölu Búnaðarbankans var gert í nóvember 2002 birtíst frétt í Morgunblaðinu þar sem Davíð Odds- son, Valgerður Sverrisdóttir og fleiri lýsa yfir ánægju með „erlenda þátt- töku". Svo gufar þessi útlendi banki barasta upp - það hefur verið orðað svo að sennilega hafi hann verið „framhandleggurinn á íslenskum að- ila“. Þetta var sjónarspil, vandlega sviðsett, eins og reyndar enginn ann- ar en Sverrir Hermannsson benti á í grein á þessum tíma. Gamli lands- bankastjórinn þekkti handbragðið hjá leifunum af Sambandinu. Mogg- inn birti fræga fréttamynd af Finni Ingólfssyni og Ólafi í Samskip að setjast inn í bíl eftir að hafa gengið frá Búnaðarbankadílnum - þekktur maður úr viðskiptalífinu sagði síðar við mig að þetta hefði minnt á atriði úr bíómynd sem nefnist Snatch. Hrói Höttur á Mogganum Einhverjum kann að finnast það fyndið að fréttastjóri gamla Moggans stígi fram eins og Hrói Höttur og segi stórkapítalistum og stjórnarherrum stríð á hendur. Fái til þess leyfi af blaðinu - að vísu launalaust. Agnes- arhreyfingin hefur náð furðtíléga mikilli útbreiðslu í þessari viku. Þetta er uppreisn sem kemur beint upp úr grasrótinni. Almenningur hefur óþægilega tilfinningu gagnvart við- skiptalífinu; að það sé núorðið bara leikvöllur fyrir þá stóru og ríku. Litlum fjárfestum hefur verið ríánast skipulega skóflað út af markaðrium; þar eru aðallega fáir og stórir leik- menn að skiptast á bréfum sem hafa óútskýranlega hátt gengi. Sjávarút- vegsfyrirtækin eru á bak og burt úr kauphöllinni - og þar með ein veiga- mesta röksemdin fyrir kvótakerfinu. Og á sama tíma er farið að tíðkast óþolandi mikið bukk og beygingar fyrir auðmönnum, ekki síst í fjölmiðl- um. Ríkisstjórnin í hættu Spumingin er hvort þessi hreyfing mirni hreinlega koma í veg fyrir að Síminn verði seldur þeim sem stjóm- arforingjamir höfðu handvalið. Þjóð- ina grvmar þá um græsku. Tortryggn- in er svo mikil að þeir geta ekki látið eins og hún sé ekki til; það þýðir ekki að hrópa bara upp um gróusögur. Með lítilli grein heftír Agnes náð að þrengja vald stjómmálamannanna. Þeir ættu að vera svoh'tið hræddir við þetta. Annars er aldrei að vita nema hreyfingin breytist í stjómmálaflokk. Því skal alltént spáð að ríkisstjórnin sjálf gæti verið í hættu ef hún tekur ekki mark á agnesismanum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.