Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Blaðsíða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Blaðsíða 55
DV Helgarblað LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2005 55 Koddamaðurinn, nýtt írskt leikrit um glæpi, sekt og málsbæt- ur, var frumsýnt á föstudagskvöld. Þetta er áferðarfalleg og vel unnin sýning en Páll Baldvin Baldvinsson spyr hvað rétt- læti sviðsetninguna á þessum stað á okkar tíma. 4 Lögreglumadur hendir rithöfundi í svartholið i= -S: Siggi Sigurjóns og Rúnar jS Freyr iaksjón. 'Sr Falin grimmd og sakleysisylirbragö Koddamaðurinn, leikrit sem frum- sýnt var á Litla sviði Þjóðleikhússins á föstudag, vekur upp ýmsar spuming- ar. Þetta er vel samið leikrit um nokk- uð áleitin efiii, það er prýðilega flutt í flestu, ágætis afþreying eitt kvöld og sannarlega nýlegt verk eftir ungan höfund sem er afkastamikill og kunn- áttusamur. Er það ailt nóg? Spennudrama Verkið er byggt upp sem þriller og tekist er á um sekt og sakleysi. Ekki er ástæða til að gefa of mikið uppi, en höf- undurinn er hér að leika sér með efa og óvissu, falskt yfirbragð og hvemig við dæmum. Hver er sekt ungs rithöfundar í fasistarfld sem er handtekinn og bor- inn hræðilegum sökum? Er verið að freima hann? Em smásögur hans tákn- sögur um harðstjóm? Eða hans órar? Hefur hann gert sig sekan um glæpina sem hann lýsir og hafa orðið? Hver er sök uppeldis hans? Er það bróðirinn vanheili sem á sök á öllu saman? Þjóðleikhúsið sýnir á Litla sviði: Koddamanninn eftir Martin McDonagh. Leik- stjóri: Þórhallur Sigurðsson. Þýðandi: Ingunn Ásdisar- dóttir. Leikmynd og búning- ar: Vytautas Narbutas. Lýs- ing: Björn Bergsteinn Guð- mundsson og Ásmundur Karlsson. Tónlist: Sigurður Bjóla. Brúðugerð: Bernd Ogrodnik. Leikendur: Arnar Jónsson, Birna Sigurðar- dóttir, Helga E. Jónsdóttir, Randver Þorláksson, Rúnar Freyr Gislason, Sigurður Sig- urjónsson, Þröstur Leó Gunnarsson. Frumsýningl3. april 2005. Leikhús Litla sviðið Koddamaðurinn er leikinn í litlum sal sem tekur rétt um hundrað gesti í sæti. Stólar í salnum em óþægilegir, sjónlínur em ónýtar. Jafnvel þótt sætaraðir séu uppbyggð- ar skarast sjónarhringur áhorfanda stöðugt af þeim sem fyrir ffaman hann em. Rýmið er svo þröngt að það setur sviðsetningunni mikil tak- mörk - leikstjóri og leikmyndahöf- undur reyna að bijótast út úr ramma saiar og sviðs með því að láta leikara fara út í vorveðrið og stinga sér inn um glugga á húsinu, innst í leikrým- inu er byggt lokað rými sem getur tekið atriði sem em utan við hlut- veruleika textans og gerast í hugar- heimi einnar persónunnar. Sem formiegt bragð er það ekki ónýt hug- mynd þótt texti segi nánast að sú frá- sögn skuli bara vera munnleg og ekki myndskreytt. Gangur Ekki er nokkur von til að sýningin standi undir kvöldkosmaði, hvað þá stofnkostnaði. Sem rekstrareining er Litli salurinn ónýtur. Verk af þessari gerð á heima í stærri sal, á stærra sviði og hefur reyndar mörg merki þess að geta klárað sig sem aðsóknar- stykki - hefðbundið spennuverk með fínum hlutverkum. í eðlilegu ástandi á það heima í 300 sæta sal hið minnsta. Það kemur upp á tíma sem er alla jafíia með þverrandi aðsókn og hefur þrátt fýrir ágæta frammi- stöðu aflra litla möguleika á að brjót- ast í gegnum flaum verkefna leikhúsa og leikflokka. Það mun í hæsta lagi ná tuttugu sýningum og áhorfendur verða á mUli eitt og tvö þúsund. Skipt um hlutverk En á ekki Þjóðleikhús að reka svona h'tinn sal undir tilraunastarf- semi sem vitað er að er ekki allra? Jú, en þetta verkefrú er ekki þess eðhs. í því felst engin hstræn ögrun umfram hið hefðbundna. Hér leika menn sitt örugga og þekkta svið skalans, gera það ágætlega, en hér er engu vogað. Jafhvel með breyttri skipan innan sama hóps hefðu menn reynt eitt- hvað nýtt. Segjum ef Amar Jónsson hefði leikið vondu lögguna, en Sig- urður Sigurjóns þá góðu, Þröstur Iæó heilbrigðaf?) bróðurinn en Rúnar Freyr þann vanheila. Þá hefði þeirri áhættulausu hlutverkaskipan sem leikstjórinn féll í verið ógnað og við hefðum máski séð eitthvað nýrra en það sem sjá mátti á föstudagskvöldið. Umbúðir og innihald En hér var engin áhætta tekin. Sig- urður Sigurjónsson sýndi fínan fautaskap, Amar yfirburði í sínurn parti, Þröstur útspekúleraður í van- heilum manni og Rúnar Freyr var pottþéttur í sínu hlutverki. Helga og Randver ósköp slöpp í stfliseruðum innskotum í veríáð. Leikmyndin snotur, ljós og hljóð líka, þýðing hljómaði vel, en þessi ásættanlegi miðjumoðsárangur er einfaldlega ekki nægilegur fyrir Þjóðleikhúsið. Og þær kröfur munu skerpast núna þegar Tinna hefúr tekið við. Svo lengi hafa menn mátt sætta sig við sýningar af þessu tagi í Þjóðleikhús- inu,, sýningar með óljóst erindi, byggða á typecast-stefnu Stefáns Baldurssonar og undir leikstjóm kyn- slóðar sem vinnur orðið af fullkomnu öryggi hinna glæstu umbúða. Áminning Þannig var þetta enn ein áminn- ingin um að breytinga er þörf hjá Þjóðleikhúsinu. Heyrst hefur að Tinna Gunnlaugsdóttir hygist loka Litla sviðinu. Það hefði hún átt að gera strax. Hún henti Jésu Kristi Superstar af verkefnaskrá vegna þess að það var einfaldlega eki pláss fyrir hann. Eins hefði þetta verkefni átt að fara út, í besta falli upp á eitthvað svið sem getur þjónað svið- setningunni og gert hana fjárhags- lega ásættanlega fyrir rrkisrekstur í leiklistarstarfsemi. Páll Baldvin Baldvinsson Birta Guðjónsdóttir myndlistarkona opnar í dag sýningu í Suðsuðvestur Að ná augnkontakt Á sýningunni í galleríinu við Hafnargötuna í Keflavík sýnir Birta að þessu sinni skúlptúra, myndbönd og ljósmyndir. Þessa einkasýningu sína kallar hún Tíminn er efiiið sem við emm gerð úr. Segja má að sýningarefhi hennar að þessu sinni teygi sig yfir flest svið í efnistökum og þar komi fram ágæt dæmi um aðferð- ir hennar. í kynningu segir: „verk- in á sýningunni em unnin útfrá vangaveltum um upplifun okkar á tímanum; um tilraunir okkar til að stoppa og fanga núið; um end- urtekningu augnablika og tímann eins og við upplifum okkm sjálf í honum”. Birta heftrr verið atorku- söm, auk þess að reka Gallerí dverg við Grundarstíginn, þá tók hún þátt í samsýningu í Norræna húsinu í haust og verður við sýn- ingarhald á meginlandinu næstu mánuði. Hún hefur 'sýnt verk sín á íslandi, í Hollandi, Skotlandi og Belgíu. Jafnframt hefur hún tekið þátt í mörgum sýningarverkefn- um í samstarfi við listamenn úr öllmn listgreinum og gert verk fýrir listtímarit. Á vefsíðu hennar, http://this.is/birta/#null, másjá dæmi um verk hennar. Blaðamaður spurði um stærð ljósmyndaverkanna, eins og sjá má á heimasíðu og verða dæmi þeirra á sýningunni í Keflavík, og. svaraði Birta því til að hún ynni að vísu verk alltaf með tilliti til stærðar rýmis, þannig væri það nú með hið litla rými Suðsuð- vestur, en flestar íjósmyndir sín- ar sem notuðu mannslíkamann að einhverju leyti sem myndefni reyndi hún að hafa í raunstærð, stundum jafnvel aðeins stærri, þannig að myndefnið horfist í augu við áhorfanda. Gestum við Hafnargötu gefst tækifæri frá og með deginum í dag til að ná kontakti við verk Birtu. Suðsuð- vestur er til húsa við Hafnargötu 22, Reykjanesbæ. Þar er opið fimmtudaga og föstudaga frá 16.00 til 18.00 og laugardaga og sunnudaga frá 14.00 til 17.00. Sýningunni lýkur 8. maí. Einnig er hægt að kíkja á sudsudvest- ur.is Velkomin í Gallerí Fold í dag I dag höldum við myndlistarveislunni áfram í Galleríi Fold við Rauðarárstíg og í Kringlunni. Allir listunnendur eru hjartanlega velkomnir. Sérstök kynning verður á vaxtalausu listmunalánunum. Allir sem ganga frá umsóknum um listmunalán í dag fá grafíkverk eftir Kristján Davíðssoo að gjöf. Sjáumst í Galleríi Fold Opið laugardag, 11-16 Rauöarársfíg 14-16, sími 551 0400 Kringlunni, sími 568 0400 • www.myndlist.is *
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.