Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Blaðsíða 27
DV Helgarblað LAUGARDACUR 16. APRÍL 2005 27 ur heitinn Sigurjónsson píanóleik- ari. „Það er mikið af tónelsku fólki í fjölskyldunni en mitt í hópnum er fólk sem kemur ekki upp orði nema rammfalskt, móðir mín er ein þeirra," segir hann og glottir. Hann bætir við að hún verði alls ekki sár þó að hann segi þetta því hún viti það manna best sjálf. „Mamma er með lúmskan húm- or og sér alltaf það spaugilega í h'f- inu, á það til að hæðast og gera grín en aldrei á kostnað annarra. Ég er ekki eins mikið heima eftir að þau fluttu en hef alltaf jafn gaman af að koma heima og vera með þeim og bróður mínum," bætir hann við og bendir á að stórfjölskyldan öll, vinir hans og aðrir ættingjar, hafi fylgst með honum og hvatt hann áfram. Stefnir lengra en að fimmtán mínútna frægð Það þarf ekki að spyrja að því að það eru mikil viðbrigði fyrir venju- legt fólk að upplifa þær breytingar sem krakkarnir í Idolinu reyndu þennan tíma sem úrslitakeppnin stóð yfir. Þau voru á allra vörum og fjölmiðlar eltust við þau. Á spjall- rásum netsins var um þau rætt og sitt sýndist hverjum. Og síðast en ekki síst kom fyrir að þau voru stöðvuð á götu og á skemmtistöð- unum flykktist að þeim fólk sem Það þarf enginn að halda að það hafi veríð sársaukalaust eða ég að hafi verið svona uppveðraður yfir frægðinni og athyglinni. vildi tjá sig um þau eða fá eigin- handaráritanir. Davíð Smári segist hafa haft meira en gaman af þessu öllu. „Það má ekki gleyma því að þegar ég var smápatti var ég spurð- ur hvað ég ætlaði að verða þegar ég yrði stór og ég var fljótur að svara að ég ætíaði að verða frægur! Ég vissi ekki þá fyrir hvað en draum- urinn rættist, jafnvel þó að þetta verði aðeins fimmtán mínútna frægð. En auðvitað stefni ég á að koma mér á framfæri áfram og vona að fólk taki vel á móti plöt- unni minni þegar hún kemur,“ segir Davíð Smári, alls ófeiminn við að gangast við væntingum sín- um og æskudraumum. Elskar að skemmta fólki Þeir sem þekkja til stráks eru sammála um að hann hafi tekið út mikinn þroska á þessum stutta tíma. Hann átti ekki gott með að staðsetja sig í lífinu og ákveða hvaða leið hann ætlaði áður en Idolið kom til sögunnar. „Ég hafði alltaf haft áhuga á söng og leiklist. Ætíaði lengi vel að verða leikari og það lúrir í mér enn. Frá því ég var smápatti hef ég haft mikla ánægju af að herma eftír fólki," segir hann brosandi. Ferðalag í ótrúlegum rússibana Eftir skóla í fyrravor tók Davíð Smári meirapróf og fór upp á fjöll til að vinna sér inn pening. „Ég kunni prýðilega við mig en ég ók starfs- mönnum til og frá vinnu. Eftir að ljóst var að ég kæmist í tíu manna úrslitin þýddi ekki að halda áfram og ég sagði upp.“ Hann líkir þessum vikum sem í hönd fóru við ferð í ótrúlegum rússibana. „Síðan stöðvast hann og eftir situr maður ringlaður, með magann uppi í hálsi. Já, það tók dá- lítinn tíma að ná sér niður en ég var samt ógurlega feginn þegar þessu var lokið." Rósa æðisleg stelpa og við erumvinir Breytingarnar sem urðu á lífi þessa ósköp venjulega unga manns fólust einnig í því að skömmu eftir að keppninni lauk, hættu þau að vera saman hann og kærastan hans Rósa ívarsdóttir. Það fór ekki hátt en fólk hefur velt því fyrir sér hvort frægðin og kvenhyllin eftir Idolið hafi haft þau áhrif. Hann hristir höf- uðið og segir það alls ekki vera, reynir síðan að koma sér undan að svara en kemst ekki upp með það. „Sko, Rósa er æðisleg stepla. Hún var minn helsti stuðningsmaður og stóð þétt að baki á mér allan tím- ann. En það voru komnir brestír í sambandið áður,“ útskýrir Davíð og bætir við að það hefði verið fárán- legt ef þau hefðu gert upp málin í miðju þessu mikla álagi. Ekki sársaukalaust að slíta sambandinu „Það varð að bíða og þegar þessu öllu var lokið ræddum við saman og komumst að þeirri nið- urstöðu að best væri að slíta sam- bandinu. Það þarf enginn að halda að það hafi verið sársaukalaust eða ég hafi verið svona uppveðr- aður yfir fræðginni og athyglinni," segir hann og bendir á að hann sé tryggur sínum og það hafi aldrei komið til greina að svíkja Rósu á meðan þau voru saman. „Alls ekki, það hefði ég ekki gert. Maður á alltaf að koma hreint fram og hafa þessa hluti á hreinu. Þannig er þetta á milli okkar en við erum vinir og ég vona að þannig geti það verið áfram," bætir hann alvar- legur við. Hann neitar að önnur sé þegar komin I spilið en játar að auðvitað umgangist hann stelpur. Hvort hann njótí kvenhylli vill hann lítíð út á gefa en hlær og segist ekki ætía að fara að tala um það nú. Brjálað að gera Hann hefur nóg að gera í dag. Framundan er gigg í Fífunni nú um helgina og hann segist hlakka til að standa aftur á sviði og syngja fyrir fólk. „Raggi Bjarna syngur með mér á laugardeginum og það verður æðislegt. Ég ber mikla virðingu fyrir honum en svo syng ég einn," segir hann og augun ljóma þegar hann talar um sönginn. Til Davíðs Smára hefur talsvert verið leitað og hann beðinn um að syngja í brúðkaupum og nú þegar er hann talsvert bókaður í að syngja fallegar ballöður fyrir ástfangin brúðhjón. „Mér finnst það æðislegt, það er gaman að syngja fyrir fólk. Það er líka svo gaman að fólk skuli biðja mig um það en það sýnir að það kann að meta söng minn," seg- ir hann glaður og reifur. bergljot@dv.is húsi, tækjasal, á skemmtistöðum og mörgum öðrum stöðum. „Ég vann alltaf með skólanum og í dag vinn ég sem íþróttafræðingur í líkamsrækt- arstöðinni Bjargi á Akureyri auk þess sem ég þjálfa á Dalvík og Ólafs- firði, svo það er nóg að gera." Eins og fram hefur komið skelltí Lísa sér beint í keppnina eftir að hafa flutt heim frá Austurríki. Hún segist ekki hafa lagt miklar vonir við gott gengi I byrjun og var því afar ánægð með frammistöðu sína. „Maður var kannski að gæla við tíu manna hópinn í byrjun en svo gekk þetta alltaf lengra og lengra og kom manni alltaf meira á óvart, en þetta var alveg frábært. í rauninni get ég ekki lýst þessu með orðum en Idolið er án efa ein besta og jákvæðasta lífsreynsla sem ég hef hreinlega lent í. Að fá að kynnast öllu þessu liði, það er starfsfólkinu á Stöð 2, kepp- endunum og öllum er bara nokkuð sem ég er óendanlega þakklát fyrir, enda var mikið grenjað þegar kom að því að kveðja," segir Lísa hugs- andi en bætir svo við að hún hafi verið rosalega ánægð með úrslitin. Þau hefðu ekki getað farið betur. Þurfti tíma til að komast niðurá jörðina Þegar Lísa er spurð út í frægðina segist hún lítíð kippa sér upp við hana. „Mér finnst þetta allt svo óraunverulegt en mér er alls ekkert illa við að fólk spjalli við mann um þetta, það er bara fínt. Einnig með krakkana, það er alveg yndislegt þegar þau koma og spjalla og vilja fá að taka mynd og svoleiðis. En það fer rosalega I taugarnar á mér þegar ölvað fólk er að tjá sig eitt- hvað við mig, sama hvort það er á jákvæðan eða neikvæðan hátt. Það var samt ros.alega skrýtið að hafa verið á allra vörum en svo var þetta allt I einu búið. Ég verð að viður- kenna að þetta var draumur sem varð að veruleika en þetta gerðist bara allt svo hratt. Ég tók að vísu lítið eftir þessu fjölmiðlabanni enda þurfti maður smá tíma til að komast aftur niður á jörðina og fara að lifa aftur í raunvemleikan- um, sinna vinnunni, fjölskyldunni og vinunum," segir Lísa og bætir við að hún ætíi að reyna allt til að nýta þetta tækifæri sem Idolið hef- ur fært henni. „Núna er ég að fara að syngja á fullu fyrst þetta bann er yfirstaðið. Það er allavega fullt af spennandi tækifærum sem heilla mann úr ýms- um áttum. Ég gæti alveg hugsað mér að starfa sem söngkona, það væri frábært að fá að gera það sem manni finnst einna skemmtilegast en hins vegar held ég að heimsfrægðin kalli ekkert á mig. Mig langar ekki einu sinni að flytja til Reykjavíkur, liðið þetta eru bara gellur sem héngu heima í fæðingarþunglyndi og settu út á mig og útlit mitt. þar er svo stressað að ég held að ég myndi enda á hæli. Líklega eru samt meiri möguleikar þar I tónlistinni svo það er spuming hvort maður látí sig kannski hafa það I nokkra mán- uði, en annars er ég lítið farin að spá í þetta," segir Lísa og segist aðspurð h'tíð hafa verið að syngja og að hún sé orðin nokkuð smeik um að vera dottin úr æfingu. „Nei, nei, þetta kemur strax og ég hlakka mikið til að fara að stússast í þessu aftur. Það er samt engin plata á leiðinni, ekki strax allavega, en það eru ýmsar pæl- ingar I gangi og ég er búin að fá alls konar hljómsveitartilboð. Málið er bara að ég hef svo hrikalega mikið að gera að ég næ ekki að sinna öllu en það verður spennandi að sjá hvemig þetta endar." Kippir sér ekki upp við afbrýðisemi Lísa segist ótrúlega stolt af sjálfri sér að hafa stokkið inn í þessa keppni og hún mælir með þessari lífsreynslu fyrir aðra sem eitthvað hafa I keppnina að gera. „Ég er mjög ánægð með mig og mæh tvímæla- laust með þessu fyrir fólk sem hefur gaman af því að syngja og veit að það hefur smá „touch" fyrir músík. Ég ætía samt ekki að taka aftur þátt enda held ég að maður megi það ekki ef maður hefur komist einu sinni inn í topp tíu. Auk þess hef ég ekki orku í allt stressið, peningaleys- ið og að þurfa að búa annars staðar á landinu. En þetta var samt frábært ævintýri sem ég mun aldrei gleyma." Eins og gengur og gerist í kring- um keppnir eins og Idohð heyrast alltaf einhverjar neikvæðar raddir. Lísa segist vita að hún hafi ekki farið varhluta af því frekar en aðrir. „Mér fannst þetta samt bara fyndið en það eina sem ég heyrði var frá gell- unum sem stunda skrif á barna- landi.is, þetta eru bara gellur sem héngu heima í fægðingarþunglyndi og settu út á mig og útht mitt. Ég kippi mér ekki mikið upp við það, hef frekar bara gaman af svona af- brýðisemi. Ég fann miklu frekar fyrir jákvæðni og fann stuðning alls stað- ar. Nú þegar þessu fjölmiðlabanni er lokið verður spennandi að sjá hvemig umfjöllunin verður. En það er sama hvort sem það verður sann- leikur eða lygi, þá verður maður bara að leiða það hjá sér þar sem ís- lendingar þrífast á slúðri." Spennandi ástarlíf Eins og flestir vita, sem lásu DV þegar Idol Stjömuleit var í hámarki, missti Lfsa kærastann sinn í bflslysi árið 2001. D'sa vill htið tjá sig um mál- ið en segist vera í góðu sambandi við íjölskyldu hans í dag. Það hafi verið ranglega haldið fram að hún hafi verið að syngja tíl kærastans í keppninni, það hafi verið alveg fáránlegt. Þegar hún er spurð út í ástarlíf sitt í dag vill hún heldur ekki mik- ið segja en á svipnum sést að eitt- hvað er í gangi. „Hmm...,“ segir hún dularfull á svipinn og bætir við að það sé allavega rosalega spennandi. Lísa er nýbúin að festa kaup á íbúð á Akureyri og er smám saman að skrapa inn í hana húsgögn. „Það þarf víst aðeins meira en sjónvarp og rúm ttí að fylla upp í 90 fer- rnetra," segirhúnhlæjandi. „Annars er ég bara að vinna eins og brjálæð- ingur og svo er nú búið að bóka mann í nokkur brúðkaup í sumar og svona. Ég er líka að vinna í þessum aukakílóum sem hrúguðust á mig í Idolinu, þau vom hvorki meira né minna en átta kíló, takk fyrir, en þau verða farin eftir sex vikur þar sem ég er að æfa eins og bijálæðingur." indiana@dv.is það sem á eftír kom. Ég klikkaði samt alveg þegar ég datt út sem var mjög svekkjandi því það er pirrandi að detta út og vera ósáttur við sjáh- an sig." Eins og margir vita var Helgi harkalega gagnrýndur fyrir lagaval- ið kvöldið örlagaríka en hann valdi að flytja Cant’t Fight the Moonlight með sveitasöngkonunni LeAnn Rimes. „Ég er búinn að fá að heyra það ábyggilega 500 sinnum," segir Helgi svekktur. „Fólk spyr hvað ég hafi eiginlega verið að spá en þessi ákvörðun var bara tekin í fljótfæmi. Ég var seinn þennan dag sem við þurftum að sktía inn laginu og mætti ekki fyrr en klukkutíma fyrir skilafrestinn ttí vinar míns sem hjálpaði mér í keppninni og við hentum út einhverjum lögum sem okkur leist ekkert á en sktídum þetta eftir. Þegar ég mættí svo á sviðið vissi ég að þetta væri dauða- dæmt frá upphafi. Ég var búinn að ákveða að þetta yrði ömurlegt, ég viðurkenni það, því miður," segir hann hugsandi en bætir hress við að atvinnuttíboðin hafi borist ttí hans úr ótrúlegustu áttum síðan keppninni lauk. Sambandið við Brynju var blásið upp af fjölmiðlum „Mér bauðst að starfa á útvarps- stöðvum, leika í leikritum og söng- leikjum en ég ákvað hins vegar að taka við Djúpu lauginni. Mér hst vel á að prófa að vera í sjónvarpinu og gera eitthvað nýtt," segir Helgi og viðurkennir að það sé gott að vera kominn með eitthvað fast á föstu- dagskvöldum aftur. Eins og alþjóð veit voru Helgi og Brynja Valdi- marsdóttir kærustupar um tíma á meðan Idohð stóð yfir. Samband- inu er hins vegar lokið en Helgi hef- ur aðeins gott um Brynju að segja. „Við Brynja erum fínir vinir í dag og það er enginn stírðleiki á milli okkar. Hún býr náttúrulega á Akra- nesi og stefnan hjá mér var alltaf að fara heim aftur eftir keppnina. Við ákváðum í sameiningu og algjör- lega í góðu að vera bara vinir I stað- inn fyrir að láta reyna á eitthvert samband, sitt hvoru megin á land- inu, eftir svona stuttan tíma. Þetta var æðislegt á meðan á því stóð og Brynja er æðisleg stelpa en sam- band okkar var samt blásið upp af fjölmiðlum," segir hann en viður- kennir að áhugi fjölmiðla hafi þó ekki komið honum mikið á óvart. Ástfanginn af bestu vinkonu Hildar Völu Helgi var ekki lengi að finna ást- ina á nýjan leik. Kærastan hans heitir Ingunn Anna Ragnarsdóttir og er besta vinkona Hildar Völu, Helgi varþóekki lengi að finna ástina á nýjan leik. Kærast- anhans erbestavin- kona Hildar Völu. sigurvegara keppninnar. „Ég kynnt- ist Ingu í gegnum Htídi Völu og Idolið enda vorum við oft saman að horfa á keppnina. Inga er alveg ótrúleg og yndisleg manneskja," segir Helgi og bætir við að Inga sé fjórum árum eldri en hann. „Við hlæjum oft að því en í rauninni skiptír aldurinn engu máli þegar fólk á vel saman. Við erum mjög hamingjusöm og ég er í skýjunum yfir þessu Öllu saman." Þegar Helgi er spurður út í frægðina segist hann fifla hana vel. „Mér finnst þetta æðislega skemmtilegt þótt það komi stund- um upp atvik þegar ég vildi að ég væri ekki þekktur. Ég á nefirilega til að gera einhverja ruglaða hluti, þó innan ákveðinna marka, en maður verður að passa sig og vera svolítið dannaður." Helgi viðurkennir að hafa tekið vel á því í skemmtanabf- inu fyrst eftír að hann fluttí suður. Hann og hinir krakkarnir í Idolinu hafi líka skemmt sér dáhtið saman. „Ég nenni þessu samt ekki lengur enda hefur lokahópurinn tvístrast og við djömmum ekki lengur jafn mikið saman." Stefnir á Hollywood Áður en Helgi skelltí sér í Idolið sptíaði hann með vestfirsku hljóm- sveitinni Apoho. Hann hefur nú stofnað nýja sveit en nafnið á henni er ekki komið á hreint. Hann biður aha sem hafa einhverjar skemmtí- legar hugmyndir endUega að senda þær á info@gigg.is. „Við vitum ekkert hvað við eigum að kaUa okkur, skástu nöfnin sem eru komin eru Gauramir eða Spékopparnir," segir hann hlæjandi og bætír við að hljómsveitin ætli í sama gírinn og strákarnir í í svörtum fötum og krakkarnir í írafári. „Við ætíum að spila lög sem fólk vtíl heyra, aUt frá sixtís-poppi upp í Iron Maiden og Britney Spears. Við stefnum á sveitabaUamarkaðinn í sumar en þar sem ég verð upp- tekinn öU föstudagskvöld ætlum við að reyna að fá að spUa í borginni á föstudagskvöldum og fara svo út á land laugardagskvöldin. Þetta er aUt á byrjunarstígi og við erum bara að kynna okkur en ætlum að lauma einu og einu frumsömdu lagi inn á miUi og vonum bara að einhver sniðugur vtíji gefa út plötu með okkur." Helgi tekur þó fram að hann hafi aUs ekki snúið bakið við strák- unum í ApoUo, þeir séu hins vegar fyrir vestan en hann staddur í borginni. Þeir hafi ákveðið að spUa eitthvað saman í sumar. Draumurinn hans Helga snýst þó ekki bara um tórtíist. Hann stefnir á að læra letídist og það í Ástrahu. „Mig langar mest að leika í leikritum en syngja á böUum með því." Helgi segir að margir hafi viljað búa hann undir skellinn sem fylgdi því að skyndifrægðin myndi dofna. Hann segist hins vegar ætía að nýta þetta tækifæri út í ystu æsar. „Fólk hafði áhyggjur af að ég myndi bara leggjast I þunglyndi þegar þessi keppni yrði búin. Ég viðurkenni að þetta voru miktí viðbrigði en ég er ekki þannig týpa sem gefst upp. Ég ætía að fylgja þessu eftir. Núna ætía ég að einbeita mér að Djúpu laug- inni og hljómsveitínni minni en svo er aldrei að vita nema maður fari bara með skóna og nesti og reyni fyrir sér í HoUywood en þess vegna gæti ég líka bara farið ttí Grænlands og unnið við að skemmta á sjúkra- húsum. AUavega er aUt upp á við héðan í frá. Ég ætía bara að vera ég sjálfur og vona að fólk virði og meti það.“ indiana@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.