Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Blaðsíða 25
DV Helgarblað LAUGARDAGUR 16.APRÍL2005 25 Keppendur í Idol Stjörnuleit skutust upp á stjörnuhimininn þegar hópurinn minnkaði og urðu allt í einu að stjórstjörnum á íslandi. Þegar keppninni lauk tók hins vegar við fjölmiðla- og framkomu- bann svo þau sem lentu í efstu sætunum urðu að láta lítið fyrir sér fara. DV náði tali af þeim ?iöa „hó mérþyki nicst vxnt uni ifmavík iöllum heiminum þó er ið sem ég vil starfa ag gera Mi u. Þa6 er einfaldlega nMlð." að hafa keppt Heiða sér al' keppni. Að fá svona stökkpall í stað- inn fyrir að þurfa að harka í brans- anum í mörg, mörg ár eins og marg- ir neyðast til að gera. En þetta snýst síðan allt um að halda rétt á spilun- um og ég ætía eftir fremsta megni að gera það,“ segir hún en viður- kennir að hún hafi lítíð spáð í hvort hún eigi að fá sér umboðsmann. „Þetta er allt óráðið, maður er svo grænn í þessu. Ætíi ég verði ekki að vera dugleg að leita mér ráða. Draumurinn er að fá að syngja og að einhver nenni að hlusta á mig syngja. Ég nærist á söngnum og ef ég hef ekki sungið í langan tíma, jafnvel bara heima hjá mér eða í bílnum, þá verð ég bara að gera það. Það væri draumur ef einhver myndi nenna að hlusta á mig gaula." Tómlegir föstudagar Keppendur í Idolinu höfðu nóg að gera á meðan á keppninni stóð en fengu svo langt frí eftir að keppninni lauk. „Maður kveið kannski smá fyrir föstudögunum og saknaði alls fólksins sem hafði verið í kringum mann svo lengi. En mað- ur var samt orðinn pínu þreyttur þó ég væri alveg til í að syngja fyrir al- þjóð á hverju einasta föstudags- kvöldi. Það er ótrúlega frábært." Heiða er hefúr þegar fengið nokkur lítil gigg. Hún og Helgi Þór, sem einnig keppti í Idol Stjömuleit, munu koma ffarn á Reykhólum á Vestfjörðum auk þess sem Heiða hefur þegar spilað í gamla skólan- um sínum, Versló. „Það er allt opið hjá mér. Ef einhver vill fá mig til að spila á balli, þá er ég til og ef einhver vill fá mig til að spila í meiri róleg- heitum, þá er ég lflca til f það.“ Stuðmenn heppnir með Hildi Völu Krakkamir sem komust í efstu sætin í keppninni halda enn hóp- inn. Eins og fram hefur komið í við- tölum við Hildi Völu, sigurvegara keppninnar, em þær Heiða miklar vinkonur í dag. „Ég hef haldið mestu sambandi við Lísu, Dabba og Helga enda em þetta frábærir krakkar," segir hún og bætir við að henni lítist vel á að Hildur Vala ætli að syngja með Stuðmönnum. „Mér Kst mjög vel á það og ég held að þetta sé frá- bært tækifæri fyrir hana. Og eins fyr- ir Stuðmenn. Þeir em heppnir áð fá svona frábæra stúlku til sín." indiana@dv.is Heiðu, Davíð, Helga og Lísu sem eru nú laus undan banninu. Draumurefeinhver nennir að hlusta á mig gaula að fólk væri komið með leið á I manni ef maður væri alltaf að I syngja fyrir sama hópinn," segir hún hlæjandi. Sambandi sínu við foreldrana lýsir hún sem frábæm og segir að þau hafi verið hennar dyggustu stuðningsmenn en mamma hennar starfar í KB banka og pabbi hennar í fiskeldi. „Mamma og pabbi vom að sjálfsögðu þvflikt stolt af frtér og mamma keyrði alltaf suður á föstu- dögum og pabbi þegar hann var ekki að vinna. Sambandið á milli okkar er frábært og mamma er mín besta vinkona," segir hún. Ætlar ekki aftur á næsta ári Heiða á einn bróður sem er þremur árum eldri en hún. Hún seg- ir að hann hafi einnig verið voðalega stoltur af litlu systur. „Halldór býr í Kópavoginum og er trúlofaður bestu vinkonu minni þannig að við eigum mikla samleið," segir hún og bætir við að það hafi verið hún sem kynnti þau. „Við erum bara tvö systkinin og erum heppin að vera svona náin þótt honum hafi ábyggi- lega fundist ég pirrandi litía systir þegar við vorum yngri." Heiða segist alls ekki sjá eftír að hafa tekið þátt í Idol Stjörnuleit enda hafi hún kynnst ótrúlega mörgu og skemmtílegu fólki. „Þetta hljómar ábyggilega asnalega en þannig var þetta bara. Starfsfólkið á Stöð 2 er algjörir snillingar og hinir keppendumir eru frábærir. Ég mæli hiklaust með þessu fyrir aðra þó ég ætli ekki að mæta aftur á næsta ári," segir hún brosandi. Á föstu í rúm sex ár Heiða hefúr verið á föstu í sex og hálft ár. Sá heppni heitir Þröstur Jó- hannsson og starfar hjá Tölvudreif- ingu. „Kærastinn minn veittí mér þvflíkan stuðning og studdi mig alla leið. Maður var náttúrulega mikið upptekinn allan þennan tíma en ég passaði mig á því að taka frá tíma til að geta verið með honum. En svo finnst mér líka hundleiðinlegt að hafa ekkert að gera," segir hún bros- andi. Heiða og Þröstur eiga engin böm og Heiða segist alls ekki vera í einhverjum barnaeignahugleiðing- um. „Auðvitað langar mig að eign- ast börn í framtíðinni en alls ekki strax. Mér finnst ég einfaldlega vera of ung svo fjölskyldulífið verður að bíða." Með skólanum starfaði Heiða á sólbaðsstofu og á leikskóla sem hún segir skemmtilegasta starf í heimi. „Ég gæti alveg hugsað mér að læra leikskólakennarann nema að það er svo illa borgað. Maður hefur eiginlega ekki efiti á því. Ann- ars er ég með mjög mikinn valkvíða varðandi hvað ég á að læra," segir hún hlæjandi. „Það er svo margt sem kemur til greina. Ég var að vinna á fasteignasölu þar sem ég starfaði sem ritari en það er ekki eitthvað sem mig langar að leggja fyrir mig þótt það hafi verið mjög góð reynsla. Nú er ég nýbyrjuð í nýrri vinnu og starfa við að selja auglýsingar. Starfið leggst vel í mig en það er enn komin h'til reynsla á þetta." Frægðin truflar ekki Þegar Heiða er spurð út í frægð- ina segir hún varla hægt að tala um frægð. „Ég myndi frekar segja að ég væri þekkt. Fólk hefur séð myndir af manni og þekkir andlitið. Én mér hefur fúndist þetta fi'nt og ég get ekki sagt að frægðin hafi eitthvað truflað mig. Fólk segir hka bara já- kvæða hluti við mann þegar það stoppar mann. Neikvæða fólkið stoppar mann ekkert útí á götu, þó það horfi kannski illum augum á mann. Það er frekar að illa umræð- an fari fram á netinu þegar fólk skrifar undir dulnefni, það getur stundum verið nastí," segir hún en bætir við að hún sé löngu hætt að velta sér upp úr því sem um hana er skrifað. „Eg veit hvemig ég er og fólkið sem elskar mig veit hvernig ég er og það er nóg fyrir mig. Hinir geta bara skrifað undir dulnefni fýr- ir mér," segir Heiða. Hún viður- kennir að hafa lesið ýmislegt í byrj- un keppninnar en svo hafi hún ákveðið að hætta því þar sem hún vildi ekki láta neikvæðni annarra skemma fýrir sér. „Þessi skrif hefðu kannski smám saman haft neikvæð áhrif á mig en þetta er náttúrulega bara verst fyrir það fólk sem dæmir án þess að þekkja mann eitthvað. Ég varð samt ekkert meira fýrir barðinu á þessu en aðrir, þetta var bara í umræð- unni um keppnina. Sumir kjósa náttúrulega ekki endilega eftir sönghæfileikum og maður pældi náttúrulega í því hvort einhverjum fyndist ég ekki vera nógu mikil poppstjarna eða hvort öðrum þætti ég of ljóshærð til að vera þama. En þetta fór allt vel á endanum." Alveg græn í bransanum Heiða er ákveðin í að nýta þetta tækifæri sem keppnin veitír henni út í ystu æsar. Hún segist þó, þrátt fyrir að hafa sungið í hljómsveitum, vera frekar blaut á bakvið eymn í þessum bransa. „Þetta er náttúm- lega ótrúlega frábært tækifæri, þessi „Þetta var alveg ótrúlega skemmtilegt og frábær reynsla," segir Aðalheiður Ólafsdóttir, sem ís- lendingar kannast lfldega best við sem Heiðu í Idolinu, þegar hún er spurð út í keppnina sem fékk íslend- inga til að sitja h'mda við skjáinn föstudagskvöld eftfr föstudagskvöld í vetur. Eins og flestir vita er Heiða 23 ára og er frá Hólmavflc. „Ég er fædd og uppalin þar en mamma og pabbi eru bæði frá Hólmavflc. Ég flutti svo í bæinn eftir að hafa klárað ú'unda bekkirm og fór í Verslunar- skólann og síðan þá hef ég búið í Kópavoginum," segir hún en bætir við að hún sé dugleg að kflcja norður og eyði þar alltaf jólum og páskum. Heiða útskrifaðist úr Versl- unarskólanum árið 2001 og fór þá í Söngskóla Reykjavflcur. „Ég er alltaf á leiðinni í háskóla en veit ekki hvað ég á að læra. Það verður allavega ekki viðskipti eða eitthvað slflct, frek- ar íslenska eða sálfræði. Ég er búin með 5. stígið í klassískum söng í Söngskólanum og á vonandi eftir að taka þráðinn upp að nýju fljótíega." Mamma besta vinkonan Heiða segir það hafa verið frá- bært að fá að vera barn á svona htí- um stað eins og Hólmavflc er. Hún hafi getað hlaupið á milli ammanna og afanna sem hafi einnig búið á staðnum. „Þótt mér þyki mest vænt um Hólmavflc í öllum heiminum, þá er það sem ég vil starfa og gera ekki þar. Það er einfaldlega máhð. Mig langar auðvitað að syngja og ég held ( Framhald á i næstusíðu Láttu það eftir þér, vertu frjáls, njóttu lífsins, Smáréttastaóurinn í stórborginm www.tapas.is Vesturgötu 3b Sími: 551 2344
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.