Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Blaðsíða 35
DV Helgarblað LAUGARDAGUR 16. APRIL2005 35 Svava Johansen í Sautján var snemma kröftug, sjálfstæð og atorkusöm. Henni lá mikið á að komast í heiminn, barnung átti hún erfitt með að vera kyrr en hún var aðeins ellefu ára þegar búðarleikurinn varð að alvöru vinnu. Ráð sitt festi hún aðeins sautján ára og hefur síðan af krafti rekið stærstu tískuverslanakeðju landsins með manni sínum. Liðlega fertug er hún á lausu, fallegri en nokkur sinni og í klæðaburði fyrir- mynd fjölda kvenna. Svava Johansen í Sautján er þriðja í röð sex barna þeirra hjóna Rolfs Johansen og Kristínar Johan- sen. Elst er Agnes sem lengi var með Stundina okkar í Sjónvarpinu, þá Thulin og síðan Svava, sem fædd er í janúar 1964. Hún er því rétt liðlega fertug. Tveimur árum yngri er Berg- lind sem kjörin var fegurðardrottn- ing íslands á níunda áratugnum. Yngst eru tvíburarnirÁsgeir og Krist- ín. Svava ólst upp við mikið öryggi og góðan efnahag en faðir hennar Rolf, sem er af norskum ættum, var þekktur kaupsýslumaður og rak samnefnt fyrirtæki sem meðal ann- ars flutti inn tóbak, áfengi og snyrti- vörur. Fjölskyldan bjó í fallegu húsi við Laugarásveginn, í dýrasta hverfi bæjarins. Þrátt fyrir góðan efnahag voru Kristín og Rolf meðvituð um að það væri börnum þeirra ekki hollt að fá allt upp í hendurnar fyrirhafnar- laust. Réð sig í verslun ellefu ára Svava var því snemma farin að vinna í skólafríum og var ekki eldri en tíu eða ellefu ára þegar hún fékk vinnu í kjörbúð. Systir hennar Agn- es segir hana enda hafa verið mik- inn orkubolta og alltaf þurft að hafa eitthvað fyrir stafni. „Hún var ofsa- lega fjörugur krakki, uppátækja- samur og hugmyndaríkur ungling- ur, var upp um allt og eilíflega á iði. Dugnaður hennar var mikill og kraftur hennar einstákur, þegar á unglingsaldri. Það hefur því aldrei komið á óvart að hún skuli hafa náð langt. Það er hennar eðli að vinna af fullum krafti," segir Agnes en þær systurnar fjórar eru ailar góðar vin- konur og hittast og tala reglulega saman. Svava gekk í Langholtsskóla og á sumrin vann hún við verslunarstörf, aðallega í sjoppum og matvöruversl- unum. Hún var þó bamung þegar Gulli í Karnabæ, sem þá var aðal- mógúllinn í tískubransanum, réði hana til vinnu í Karnabæ. Þá þegar var áhugi hennar á fötum vakinn en hún var alltaf fallega klædd og tískan skipti hana miklu máli. Ætlaði alltaf að verða búðar- kona Guðrún Hannesdóttir kennari og vinkona Svövu frá barnæsku lýsir henni á svipaðan hátt og Agnes. „Við áttum heima í sömu götu og líklega vorum við aðeins sex eða sjö ára þegar við urðum vinkonur," segir hún og minnist óteljandi búðar- leikja sem þær stöllur fóru í heima hjá Svövu. „Hún var oftar en ekki búðarkonan og afgreiddi mig. Ég sætti mig ekki alltaf við það en Svava hafði strax á þessum aldri mikla ánægju af að afgreiða mig. Ég held að hún hafi verið búin að verð- merkja allar bækurnar á heimilinu og rétti þær galvösk yfir búðarborð- ið, stimplaði inn verð og tók á móti bréfpeningum," segir Guðrún og bætir við að erfitt hafi verið að fá hana í hlutverk viðskiptavinarins. Það hugnaðisthenni ekki og því hafi það komið fýrir að búðarleikurinn rann út í sandinn vegna ágreinings um hlutverkaskipan. „Þá þegar kom ekki neitt annað til greina en að hún yrði búðarkona þegar hún yrði stór,“ segir hún. Lá mikið á að komast í heim- inn Svava var dugleg að koma sér í vinnu og afgreiða alvöru viðskipta- vini. Guðrún man eftir henni í sjoppu í nágrenninu og þar stóð hún vaktina af mikilli samviskusemi og gerði allt rétt þrátt fyrir ungan aldur. „Við riíjum stundum upp og hlæjum okkur máttlausar yfir þvi þegar hún var að vinna í sjoppunni og pabbi minn, sem Svava þekkti mjög vel, kom og verslaði hjá henni. Hann greiddi með ávísun og af mikilli samviskusemi bað hún hann um skilríki. Það hafði verið fýrir hana lagt að taka ekki við tékkum öðruvísi og hún brást sannarlega ekki vinnu- veitendum sínurn," segir Guðrún og hlær. Móðir Svövu, Kristín Johansen, tekur undir að kraftur dóttur henn- ar hafi alltaf verið mikill. Hún hafi sýnt það strax í fæðingu að henni lægi á því hún hafi ekki mátt vera að því að bíða eftir að koma í heiminn. „Hún fæddist innan tveggja klukku- stunda, en það var aðeins byrjunin á hraðanum og kraftinum sem alltaf hefur einkennt hana,“ segir BCristín og minnist þess að Svava hafi aldrei getað verið kyrr, hún hafi verið upp um alla veggi. Eitt sinn hafi Örlygur Sigurðsson listmálari verið í heimsókn hjá þeim og horft í forundran á krakkann, fimm eða sex ára, þar sem hún klifraði upp á allar hurðir. „Hann hafði orð á því að hún væri alveg eins og api en þannig var henni rétt lýst," segir Kristín. Sjálfstæð og komst þangað sem hún ætíaði Kraftinn hefur Svava eigi að síður alltaf tekist að virkja á jákvæðan hátt. Hún hefur aldrei nýtt hann £ reiði eða ofbeldi, heldur segir móðir hennar að hún hafi alla tíð verið já- kvæð og glöð. „Svava var ekki há í loftinu þegar hún sýndi að hún get- ur bjargað sér og lætur ekki smáveg- is módæti stöðva sig. Eitt sinn ætlaði Agnes að fara með hana og Berg- lindi, sem er tveimur árum yngri, á jólaskemmtun hjá Sigvalda. Svava hefur líklega verið í kringum sjö ára gömul. Þær Agnes og Berglind voru tilbúnar en ekkert bólaði á Svövu sem var einhvers staðar úti að leika sér. Agnes gafst upp á að bíða og fór í strætó með Berglindi. Skömmu síðar kom Svava heim og var sjóð- vond þegar ég sagði henni að þær hefðu gefist upp og farið. Hún rauk inn í herbergið sitt, skellti á eftir sér hurðum og var þar góða stund. Þeg- ar hún kom fram var hún búin að klæða sig í sparifötin en ég man að hún var svo fi'n í hvítum kanínupels sem hún átti, bað mig fýrirgefningar á látunum í sér, snerist á hæl út og beint út á strætóstoppistöð. Hún lét það ekki stöðva sig að systur hennar væru farnar og tók ein strætó þó ekki væri hún há í loftinu," segir Kiistín og hlær að minningunni. Hún segir einmitt þetta atvik vera einkennandi fýrir dóttur sína sem fór þangað sem hún ætlaði sér en lét ekki smávægi- legar hindranir stöðva sig. Fallega klædd með góðan smekk í skóla var Svava ekki síður sam- viskusöm og lærði heima og sinnti náminu. Guðrún segist aldrei muna eftir að Svava hafi sett stefnu á ann- að en að vinna við viðskipti. Það hafi því verið mjög eðlilegt þegar hún kornung kynntist Bolla sem þá rak Sautján að hún ynni við hlið hans við verslunina. Hún var komin á rétta hillu og það átti vel við hana að kaupa inn fatnað og selja hann aftur. Svava hefur alla tíð haft smekk fyrir fötum, er ávallt fallega klædd og hefur auga fyrir hvernig raða eigi saman litum og mismunandi stíl- brigðum. Liðlega fertug er hún bæði falleg og ein glæsilegasta kona landsins, alltaf smart, sama hverju hún klæðist. Guðrún tekur undir með fleirum sem þekkja Svövu að hún búi yfir miklu sjálfsöryggi og sé alltaf óhrædd við að fara eigin leiðir. Það hafi þegar verið ljóst á barnsaldri en þá velti hún aldrei fyrir sér hvað öðr- um fyndist, heldur gerði það sem hún ætlaði sér og fór gjarnan ótroðnar slóðir. Skemmtileg, hláturmild, frjáls og örugg með sig í Versló var tekið eftir Svövu, hún var hláturmild og skemmtileg, frjáls og örugg, sá alltaf spaugilegu hliðar tilverunnar og gerði aldrei mikið úr hlutunum. „Það var gaman að vera vinkona hennar því hún laðaði að sér skemmtilegt fólk og átti auðvelt með að tala máli sínu enda ófeimin. Við höfum alltaf haldið sambandi þrátt fyrir að hafa farið ólíkar leiðir í lífinu," segir Guðrún. Eftir að Svava kynntist Bolla, sem er þrettán árum eldri, hefur hún unnið við fýrirtæki þeir, NTC. Þau hafa byggt það upp af krafti, úr einni verslun á sínum tíma í sextán nú sem allar ganga prýðilega. Helst vel á starfsfólki Starfsfólk þeirra Bolla og Svövu bera þeim vel söguna. Þeim helst vel á fólki og í verslunum fyrirtækisins starfar mikill fjöldi ungs fólks. Andrea Magnúsdóttir er innkaupa- stjóri í versluninni Sautján en hún var áður verslunarstjóri. „Ég hóf störf fyrir rúmum fimm árum og hef verið mjög ánægð í vinnu eins og flestir þeir sem eru í svipuðum stöð- um og ég. Svava gerir miklar kröfur til starfsfólksins og metur að verð- leikum störf þeirra sem standa sig vel. Ég er svo lánsöm að umgangast Svövu utan vinnunnar og það er ofsalega gaman að vera með henni, hvort sem við förum saman í vinnu- ferðir eða sitjum í rólegheitum heima hjá henni með strákana okk- ar sem eru á svipuðu reki. Svava heldur einstaklega vel utan um fólk- ið sitt og það er gott að leita til henn- ar ef eitthvað bjátar á," segir Andrea en fleira starfsfólk tekur í sama streng. Þeir sem hætta og fara í nám eða reyna eitthvað annað leita gjarnan til baka í vinnu til Svövu. Margir við- skiptavina hennar í gegnum árin eru henni málkunnugir og Svava er alltaf jafn elskuleg og hlý við þá sem versla hjá henni. Einn þeirra orðaði það þannig að hún hefði lag á að koma þannig fram við fasta við- skiptavini að þeir væru vissir um að þeir ættu alveg sérstakan sess í huga hennar og hefðu þekkt hana lengi. Góð mamma Svava hefur alla tíð unnið mikið. Hún var komin yfir þrítugt þegar Ásgeir fæddist og var fljót að taka til vinnu eftir barnsburðinn. Kristín móðir hennar segir að hún sé mjög góð mamma og nýti tímann vel með syni sfnum. „Þrátt fyrir að hafa mik- ið að gera virðist hún afitaf hafa tíma fýrir hann líka. Hún fýlgir honum á fótboltaæfingar og leiki og fer með honum á skíði og hefur áhuga á því sem hann er að gera. Stórfjölskyldan er henni kær og hún virðist alltaf hafa tíma fýrir fólkið sitt,“ segir móðir hennar og bætir við að það sé sama hvað hún er beðin um, hún bregðist alltaf vel við. Fyrir utan vinnuna nýtur hún þess að vera með vinum sínum sem hún er afar trygg. Ein besta vinkona hennar er Brynja Nordquist flug- freyja sem er meira en tíu árum eldri en Svava. Þær kynntust þegar Svava var unglingur í sumarleyfisferð á Spáni með foreldrum sínum. Brynja var þar með sinni fjölskyldu og þekkti foreldra Svövu. „Svava var á þeim aldri að hana langaði að fara á diskótek en foreldrar hennar þorðu ekki að leyfa henni að fara enda alltof ung. Ég bauðst því til að fara með henni og gæta hennar og það var ógurlega gaman hjá okkur," segir Brynja. kunningsskapinn og varð síðar vel til vina. Brynja segir að aldursmun- urinn hafi ekki haft neitt að segja. Sjálf hafi hún átt Báru Sigurjóns- dóttur að vini sem er þrjátíu árum eldri. „Við erum allar þrjár mjög góðar vinkonur þrátt fyrir aldurs- muninn. Ég hef aldrei fundið að Svava væri eitthvað yngri en ég enda er maður eins gamall og maður still- ir sig inn á að vera," bendir Brynja á . og segist aldrei hafa verið svikin af vinskap sínum við Svövu. Hún sé einstakur vinur, trygg og gjafmild, alltaf tilbúin að gera allt sem í henn- ar valdi stendur fyrir vini sína. Fær briddsspilari Brynja kann af henni sögu frá því Svava var kornung á ferðalögum er- lendis með Módel 79. „Einhverju sinni sátum við í bfl og ókum á milli staða í Bretlandi en með í ferð var Birgir Þorgilsson, þáverandi ferða- málastjóri. Þau skemmtu sér kon- unglega og ræddu mikið saman og meðal annars spiluðu þau bridds en Svava er mjög snjall spilari. Hún heillaði Einar Benediktsson sendi- herra einnig og gott ef hún spilaði ekki líka við hann en ég dauðöfund- aði hana, kornunga, fyrir færni sína í spilinu," segir Brynja. Brynja bætir við að Svava sé sterkur persónuleiki og ógleymanleg þeim sem henni kynnast. Álltaf ljúf og yndisleg við aíla og gerir ekki mannamun. „Hún er mikil barna- gæla og börn hafa alltaf laðast að henni. Þegar hún eignaðist sitt eigið varð hún alsæl og hugsar vel um soninn og hans þarfir ganga fyrir hjá henni," segir hún. Brynja rifjar einnig upp að það sé alltaf hægt að fá Svövu til að vera með í öllu, hún kunni að njóta h'fsins. Hún er í gönguhópi með fleiri skemmtileg- um konum, stundar líkamsrækt af kappi og hugsar vel um heilsuna með því að forðast óhollustu. Hún er í Rotaryklúbbi Miðborga en þang- að hefur ríka og fræga fólkið og betri borgarar bæjarins sótt í að vera. Skildu en eru góðir vinir Svava og Bolli eiga saman einn son, Ásgeir sem er á níunda ári, en auk þess hefur Sigurður, sonur Bolla, unnið talsvert með þeim en hann hefur í auknum mæli haslað sér sjálfur völl í viðskiptalífinu með góðum árangri. Þau skildu fyrir nokkru án allra átaka. Svava lagði alla áherslu á að skilnaður þeirra skaðaði son þeirra sem minnst. Þau haga bæði hlutun- um þannig að sonur þeirra njóti eftir sem áður að vera með þeim saman, ef svo ber undir. Bolli er í góðu sambandi við drenginn en Svava býr áfram í húsi þeirra við Brekkugerði. Hann er því aufúsu- gestur á heimilinu og borðar til að mynda stundum með þeim mæðg- inum kvöldmat og fer svo sína leið. Yfir Svövu hefur verið léttara síðan og hún virðist vera ánægð með ákvörðun þeirra Bolla að halda hvort sína leið. Eftir sem áður reka þau fyrirtækið saman án allra leið- inda og ætla að hafa þann háttinn á um sinn. bergljot@dv.is Á vinkonur á öllum aldri Brynja var um þess- ar mundir í Módel 79 og þegar Svava J| var nógu gönml gekk hún í samtök- Ik in. Þær Brynja end- MP urnýjuðu þar 1 Brekkugerði Svava byr nu ein 'meo syni sínum í risahúsinu sem er náisegt 700 fermetrum. m Svava og Bolli Myndin ertekin rétt áöurenþau skiidu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.