Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2005 Helgarblað DV Larry David Grinistinn sagöi við fjöl- miðla að hann hefði i hyggju að hætta með sjónvarpsþáttinn sinn og snúa ser aifarið að þvíað bjarga sakleysingjum i Mannætu slepptlausri Korta sem var fundin sek um að hafa myrt og étið kærastann sinn varí vikunni slepptaf geðsjúkra- húsi ÍBanda- ríkjunum með þeim skilyrðum aðhún tækimeö- ölin sín. Jane Lynn Woodry, 51 árs, hef- ur verið á sjúkrahúsinu síðan 1994 en þá varhún handtekin fyrirmorðið á Peter Michaél Grenne. Lík hans fannst nálægt heimili hans en hann hafði verið skotinn nokkrum sinnum. Lög- reglan fann stóra bita aflíkinu í potti á eldavél heima hjá Woodry. 25 árfyrirað myrða móðursína Dómari í Bandaríkjunum dæmdi 22 ára gamlan mann í 25 ára fang- elsi fyrir að myrða móður sína. Jason Bautista bútaði lík móður sinnar nið- ur eins og hann hafði séð gert í sjónvarps- þættinum Sopranos tilað koma í veg fyrir að kennsl yrðu borin á líkið. Hann kveðst hafa myrt hana í sjálfsvörn, hún hafi ráðist á hann með hníf en honum hafi tekist að yfirbuga hana og kyrkja. Hann sagðist hafa bútað móðurina nið- ur þar sem hann taldi að enginn myndi trúa því að móðir hans hefði ráðist fyrst á hann. Lögfræð- ingur Bautista sagði móður hans hafa beitt hann bæði andlegu og líkamlegu ofbeldi. Juan Catalan átti yfir höfði sér dauðarefsingu fyrir morð sem hann framdi ekki. Allt benti til þess að Juan yrði dæmdur sekur þegar hjálp barst úr ótrúlegustu átt. Grínistinn Larry David, sem þekktastur er fyrir Seinfeld-þættina, veitti Juan óvéfengjanlega fjarvistarsönnun. Grínið biargaði líli hans ið Mörthu í andlitið en gátu ekki sagt til um hvort Juan hefði verið að verki. Saksóknarinn hafði hins vegar vitni við réttarhaldið sem hélt því fram að Juan hefði skotið stúlkuna. Hélt fram sakleysi sínu Juan var handtekinn innan mánaðar og kærður fyrir að hafa myrt Mörthu. Lögreglan taldi að Juan hefði meira en næga ástæðu til að myrða hana þar sem hún hafði komið fram við réttarhald Marios. Juan hélt alltaf fram sakleysi sínu og sagðist vera með fjarvistarsönn- un, sagðist hafa verið á leikvelli Dodgers að horfa á hafnarboltaleik þegar morðið átti sér stað. Hann hafi farið að sjá uppáhaldsliðið sitt keppa á móti Atlanta Braves. Dod- gers hefðu tapað leiknum, 11-4. „Litla dóttir mín, Tanya kom með mér á leikinn," sagði Juan og sýndi dómaranum aðgöngumiðana. Settur í lygamæli En saksóknarinn trúði ekki sög- unni. Þrátt fyrir að Juan hefði viður- kennt að hlutur Mörthu í máli Marios væri ef til vill ekki svo mikill þá var saksóknarinn viss um að Juan hafði drepið stúlkuna til að hefna bróður síns. „Ég bað þrisvar sinnum um að vera settur í lygamæli," sagði Catal- an. „Mér var neitað um það þrisvar." Melnik var staðráðinn í að sanna sakleysi skjólstæðings síns og þrátt fyrir vantrú samstarfsmanna sinna safnaði hann öllum upptökum af leiknum frá sjónvarpsstöðvunum. „Hjálpið mér að horfa á þetta. Ég ætía að bjarga lífí. þessa manns." Melnik horfði vel og vandlega á allar spólurnar en hann fann enga skýra mynd af Juan sem gæti sannfært kviðdómendur. Þá mundi Catalan skyndilega eftir því að starfsmenn frá sjónvarpsstöðinni HBO hefðu verið að sniglast í kringum hann og dóttur sina. Larry David blandast í málið í desember 2003 fór Melnik og hitti grínistann Larry David. Eftir smá spjall horfðu þeir á Carpool Lane, einn þátt úr syrpu af Curb Your Enthusiasm. Þátturinn var sýndur í bandarísku sjónvarpi 8. febrúar 2004 og fjallaði um það þeg- ar Larry keypti þjónustu vændis- konu tíl að keyra sig á leikinn. Þetta hljómar ef til vill fáránlega en þátt- urinn átti eftir að skipta höfuðmáh í máli Juans. Melnik og David voru Birkiaska Umboðs- og söluaði Birkiaska ehf. sími: 551 9239 BETUSAN nánast búnir að horfa á allan þáttinn þegar Juan birtist allt í einu á skján- um. „Ég stökk upp úr stólnum þegar ég sá hann og öskraði á Larry að spóla til baka," sagði Melnik. „Þarna var hann, við hliðina á dóttur sinni, að borða pylsu.“ Rannsóknir á símanotkun Juans sönnuðu að hann hefði verið í ná- grenni við leikvöllinn þegar svarti bíll- inn sást hringsóla í kringum heimili Mörthu Puelba. Þessi sönnun sýndi fram á að Juan hefði ómögulega getað verið á vettvangi morðsins. „Hann hefði ekki getað ferðast yflr bæinn endilangan á 15 mínútum nema hann hefði verið sóttur af þyrlu,“ sagði Melnik. Dómarinn skipaði að Juan yrði látinn laus. Var viss um að líf mitt væri á enda „Ég er himinlifandi fyrir hönd skjólstæðings rm'ns. Hans beið dauðarefsing en honum tókst að út- vega frábæra fjarvistarsönnun án þess að gera sér grein fyrir mikilvægi hennar," sagði Melnik. „Þessi lífsreynsla var martröð. Mér hefur aldrei liðið jafn illa og ég var viss um að líf mitt væri á enda,“ Catalan og Melnik„ég erhiminlifandi fyrir hönd skjólstæðings m/ns. Hans beið dauða- refsing en honum tókst að útvega frábæra fjarvistarsönnun án þess að gera sér grein fyrir mikilvægi hennar," sagði Melnik. sagði Juan. Hann lögsótti borgina fyrir ólögmæta fangelsun en hann hafði setíð inni í hálft ár þegar Larry David bjargaði lífi hans. Þrátt fyrir málsóknina sagðist hann mest af öllu vilja halda áfram að lifa lífi sínu. Larry David sagði hins vegar við fjöl- miðla að hann hefði í hyggju að hætta með sjónvarpsþáttinn sinn og snúa sér alfarið að því að bjarga sak- leysingjum úr fangelsi. - Hinn 24 ára gamli Juan Catalan hafði aldrei horft á HBO-sjónvarps- þáttinn Curb Your Enthusiasm þar sem grínarinn og höfundur hinna vinsælu SeinfeJd-þátta, Larry David, er aðalstjarnan. „Ég hef ekki efni á svona sjónvarpsefni. Þessar kapal- stöðvar eru of dýrar fyrir mig,“ hefði Juan sagt. Talinn hafa myrt vitni En furðulegar aðstæður urðu til þess að sjónvarpsþátturinn átti eftir að bjarga Juan frá dauðarefsingu þegar lögreglan taldi hann hafa myrt hina 15 ára Mörthu Puebla. Lögreglan hélt því fram að Juan hefði drepið Mörthu þar sem hún hafði verið aðalvitni í máli gegn eldri bróður Juans, Mario Catalan. Árið 2002 hafði komið til skotbardaga á götum útí í Hollywood. Mario Catal- an var handtekinn í tengslum við málið. „Lögreglan hefur reynt allt til Sakamál að tengja vitnisburð stúlkunnar sem lést og skotárásina. Ég veit hins veg- ar að það var ekki hún sem kom bróður mínum á bak við lás og slá,“ sagði Juan við fjölmiðla fyrir framan heimili sitt í Norður-Hollywood. Þann 12. mars 2003 var Martha myrt við heimili sitt í San Fernando Valley. Samkvæmt lögfræðingi Juans, Todd Melnik, sáu vitni svart- an bíl keyra um í nágrenninu frá klukkan tíu um kvöldið. Vitni sögðu fjögur ungmenni hafa stokkið út úr bílnum rétt fyrir klukkan 11 og skot- Sækjum og sendum báðar leiðir. Verð frá kr. 850 155/80R13 áður 5.990 nú 3.960 175/65R14 áður 7.590 nú 5.312 185/65R15 áður 8.990 nú 6.460 195/70R15 8pr. sendib. áður 13.700 ntí 9.435 Ef þú kemur með bílinn í smur hjá Bílkó færðu 25% úfsÍáií afvinnu1 DEKK BÓN OG ÞVOTTUR SMURÞJÓNUSTA BREMSUKLOSSASKIPTI PERUSKIPTI RÚÐUÞURKUBLÖÐ SÆKJUM OG SENDUM . Œ£tíCS3 - n«»ri v«r»! Smui þjónusta - Betri verð! Smiðjuvegi 34 | Rauð gata | bilko.is | Simi 557-9110 Morðinginn Glen Ocha var tekinn af lífi í síðustu viku eftir að hafa barist fyrir því að fá að deyja Drep fleiri ef ég verð ekki tekinn af lífi Bandarískur karlmaður sem hengdi unga konu í eldhúsi sínu árið 2002 var tekinn af lífi í síðustu viku. Hinn 47 ára Glen Ocha haföi verið úti að skemmta sér þegar hann hitti Carol Skjerva sem var 28 ára. Þau voru bæði drukkin og upp- dópuð og ákváðu að fara heim til hans. Þegar þau höfðu lokið sér af í rúminu sagðist Carol ætía að segja kærasta sínum frá atvikinu. Ocha missti þá stjórn á sér, réðst á hana og reyndi að kyrkja hana en endaði á því að hengja hana í eldhúsinu. Saksóknarinn vildi fresta aftöku hans vegna jarðarfarar páfans en Ocha sjálfur tók það ekki í mál. Hans síðustu orð voru á þá leið að hann ætti þessa refsingu skilið fyrir þennan hræðilega glæp. „Ég vil biðja fjölskyldu Carol afsökunar á því sem ég hef gert," sagði hann áður en hann var tekinn af lífi með sprautu. Við kviðdóminn sagðist hann myndu drepa fleiri ef hannr yrði ekki tekinn af lífi sem allral fyrst. Hann játaði atvikið strax erl lögreglan handtók hann og sagði I lögfræðingnum sínum upp þegar I sá vfidi reyna að aflétta dauðarefs- ingunni. Carol Skjerva Carol var 28 ára þegarhún varmyrt. Glen Ocha Það síðasta sem morð- inginn sagðivarað biðja fjölskyldu fórnarlambs síns afsökunar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.