Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Side 50
50 LAUGARDAGUR 16.APRÍL 2005
Helgarblað DV
Agnesisminn
Starfa stjórnmálamenn sam-
kvæmt bestu samvisku? Ég hef fjallað
um stjómmál og er litlu nær um svar-
ið við þessari spumingu. Kannski er
ástæðan sú að ég hef aldrei komist -
og mun aldrei komast - inn á fundi
þar sem teknar em stórar ákvarðanir;
^þar sem alvöm verðmætum er skipt.
Svoleiðis er í verkahring pólitíkusa
sem oftast eru aldir upp í stjórnmála-
flokkum ffá unga aldri og þekkja ekki
annað umhverfi. Telja þeir sig vera að
starfa í þjóðarhag - til dæmis þegar
hér um bil öllum öðmm sýnist þeir
vera að hlaða rmdir vini sína. Eða
finnst þeim kannski af heilum hug að
umræddum verðmætum sé einmitt
best borgið hjá vinunum?
Á að svindla á okkur?
Ég hef verið að pæla í þessu í
tengslum við einkavæðingu Símans.
Þjóðin virðist nefnilega alveg sann-
færð um að rangt verði haft við. Á
vefnum hjá mér er til dæmis könnun
þar sem 87 prósent svarenda telja að
«ekki verði eðlilega staðið að sölu Sím-
ans. Viðbrögð ráðamanna hafa verið
mikil og innileg móðgun, þeir em sár-
ir yfir því að einhveijum skuli detta
svona lagað í hug.
Samt er það svo að sporin hræða. í
vikunni spratt upp fyrirbæri sem ég
vil nefna „agnesisma". í Frakklandi
Egill Helgason
veltirfyrirsér
tíðindum liðinnar
viku.
Laugardagskj allari
fyrir í bankaráðunum en almenning-
ur fékk að blæða - það má segja að
hann hafi systematískt verið féflettur.
Lánsfé var tæpast að hafa nema út á
pólitíska velvild, það var beinlínis
hlægilegt að spara þótt reynt væri að
telja manni trú um annað. Dæmi um
svindlið er að slagorð stærsta bank-
ans var „græddur er geymdur eyrir“.
Þetta var borið á borð fyrir börn á
tíma ógnarverðbólgu - er furða þótt
maður sé tortrygginn?
Sósíalískur spillingarbúskapur
Hér skapaðist aldrei hefð fyrir
einkareknum bönkum - eftir að ís-
landsbanki varð gjaldþrota 1929
komst á kerfi með þremur sterkum
ríkisbönkum. Kannski má segja að ís-
land hafi verið sósíalistaríki. Að
minnsta kosti finnst manni eins og
Vinstri grænir sjái eftir þessum tíma.
Hér var gengið mun lengra í hafta-
stefnu en víðast í Evrópu, meira að
segja á hinum sósíaldemókratísku
Tónninn helmingaskiptanna var gefinn í
hermanginu þar sem sjálfstæðismenn og
framsóknarmenn deildu með sér gróðanum.
Systemið teygði sig svo út um bankana og
embættismannakerfið.
varð til stjómmálahreyfing upp úr
1950 sem var kölluð „poujadismi",
nefnd eftir manni sem hét Pierre
Poujade. Þetta var hreyfing litla
mannsins, smáborgara, smákaup-
manna - og var meðal annars stefiit
gegn stórfyrirtækjum. Það ætti
kannski að setja smá ugg að valda-
mönnum þegar Agnes þrammar
ffemst í floldá h'tilla fjárfesta.
Græddur er geymdur eyrir!
Einkavæðingin á íslandi átti sér
stað mjög seint. Á fyrri hluta tíunda
/ratugarins vom menn í raun ekki
komnir lengra en að Síldarverksmiðju
og Skipaútgerð rikisins. Þrátt fyrir
eindregna markaðsstefnu var Sjálf-
stæðisflokkurinn aldrei að flýta sér að
einkavæða. Stjómmálamennimir
undu hag sínum vel í kerfi ríkisbanka
þar sem flokksgæðingar spiluðu með
peninga sem þeir áttu ekkert í.
Flokkamir komu sínum mönnun
Norðurlöndum var blómlegur
markaðsbúskapur miðað við hér á
landi.
Það var eiginlega ekki fyrr en með
frjálshyggjubylgjunni á níunda ára-
tugnum - stefnu Thatchers og Reag-
ans - að upp komu alvöru kröfur um
einkavæðingu. Áður höfðu þeir sem
vildu losa þessi tök verið taldir sér-
vitringar - líkt og Eyjólfur Konráð
Jónsson sem oftast var afgreiddur
með því að hann tilheyrði sértrúar-
söfnuði. Nú komu loks fram ungir
menn sem litu á frjálsan markað sem
alvöru hugsjón. Á þeim ámm var
tímaritið Frelsi eins og himnasend-
ing.
Langlundargeð íslendinga
Lýsingar á kerfinu sem hér var við
lýði í um áratugaskeið má lesa í hin-
um stórmerkilegu bókum Örnólfs
Ámasonar, Á slóð Kolkrabbans og
Bankabókinni. Þetta var gamaldags
kvæmdastjóri
L stærsta stjórn-
I málaflokksins,
' sem sat í $
I bankastjóm- 3
inni meðan 1
bankinn var í ríkis-
eigu, fékk að
klfkusamfélag sem byggðist á því að
flokksvald skammtaði og skaffaði.
Mönnum datt eiginlega ekki í hug að
þetta gæti verið öðruvísi. Það er
furðulegt hvað almenningur lét sér
lynda mikla fyrirhtningu af hendi
ráðamanna. Maður spyr: Hvers vegna
var ekki gerð uppreisn?
Vilmundur Gylfason reis upp gegn
þessu staðnaða og spillta kerfi, hann
þekkti innviði þess betur en flestir -
var alinn upp innan um þá sem höfðu
völdin. Það var sífellt hamrað á því að
Vilmundur væri reikull og mglaður,
en Helgarpósturinn, fjölmiðiliinn
sem reyndi að afhjúpa kerfið með
hugmyndir hans að vopni, var kallað-
ur óábyrgt sorpblað. Ef gömlum
Helgarpóstum er flett rennur upp fyr-
ir manni mynd af kerfi sem var svo
spillt að það væri vonandi óhugsandi
í dag.
Helmingaskiptin
Tónn helmingaskiptanna var gef-
inn í hermanginu þar sem sjálfstæð-
ismenn og framsóknarmenn deildu
með sér gróðanum. Systemið teygði
sig svo út um bankana og embættis-
mannakerfið. Stundum fékk Alþýðu-
flokkurinn að vera með, af því eimir
enn í skipan seðlabankastjóra þar
sem situr einn sem er merktur Sjálf-
stæðisflokknum, einn úr Framsókn
og svo einn sem kratar geta talið sinn
mann.
Þetta kerfi er verðugt rannsóknar-
efni fyrir alvöru sagnfræðinga; það
gætí orðið ein merkasta stúdía á ís-
lensku samfélagi á tuttugustu öld.
Stundum hafa helmingaskiptin
reyndar verið rekin enn lengra aftur -
allt frá því að Ólafur Thors og Jónas
frá Hriflu settust saman í bankaráð
Landsbankans 1936. Þá þótti hafa
tekist samkomulag um að Framsókn-
arflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn
hættu að skemma hvor fyrir öðrum í
atvinnulífinu - loka á aðgang skjól-
stæðinga hins.
Sigur frjálshyggjunnar
Ungu Tyrkirnir í Sjálfstæðis-
flokknum voru alvöru byltingarmenn
sem brunnu í andanum. Þeir hægðu
þó verulega á sér þegar þeir komust
nálægt völdunum. Einkavæðingin
hér er svo síðbúin að hún er langt á
eftir bæði Austur-Evrópu og Skandin-
avíu. Það er sagt að Sfminn sé síðasta
stóra ríkissímafyrirtækið í Evrópu
sem verður einkavætt; annars staðar
þykir út í hött að ríkið standi í slfkum
samkeppnisrekstri.
Áður má þó segja að frjálshyggju-
mennimir hafi unnið sinn stærsta
sigur. Kjami hugmynda þeirra er að
ekkert virki nema það sé í einkaeigu.
Ein forvitnilegasta hugmyndafræði-
lega umræða síðari ára er um einka-
væðingu almenninga. Hér birtist hún
aðahega í deilunum um fiskistofn-
ana. Þar má fullyrða að frjálshyggjan
hafi haft algjöran sigur - það tókst að
komá fisknum í sjónum í einkaeigu
áður en nokkur uggði að sér. Kvóta-
kerfið bhfur. Það fer smátt og smátt
að verða sérviskuskoðun að hægt sé
að taka þann gjöming til baka.
Rússnesk einkavæðing
Það er heil vísinda-
grein hvemig staðið
skuli að einkavæðingu.
Viðskiptablaðið vitnar í
einn mesta einkavæð-
ingarsinna allra tíma,
Vaclav Klaus, fyrrverandi
forsætisráðherra Tékk
lands. Pólitík hans
var sú að
senda öllum
landsmönn-
um hlutabréf
í pósti. í
Rússlandi
var að hluta
til reynt að
nota svip-
aða aðferð,
einkavæð-
ingar-
mennirnir
Gaidar og
Tsjubais
létu senda út bréfsnepla sem vom
ígildi eignar í fyrirtækjum. En gamla
kerfið var tregt og sterkt og á sama
tíma töldu þeir sig neyðast til að gera
samning við andskotann - flokks-
hesta sem ætluðu sér stóra sneið af
kökunni.
Kannski er ekki alveg út í bláinn
þegar menn líkja atburðunum hér við
rússneska einkavæðingu - sjálf Agnes
hefur einmitt hvatt landsmenn til að
rísa upp til að þeir „njótí arðsins af
eigin köku". Annars muni stjómvöld,
flokksgæðingar og milljarðamæring-
ar „ræna okkur eina ferðina enn".
Kennitölufárið
Umræðan um aðferðafræði einka-
væðingarinnar hérlendis hefur verið í
meira lagi mótsagnakennd. Fyrsta
kastið var dreifð eignaraðild lausnar-
orðið en hún var úr sögunni eftir
kennitöluæðið sem greip um sig þeg-
ar fyrst var hafist handa við að einka-
væða bankana. Davíð Oddsson
reiddist mjög - eftir á að hyggja var þó
varla annað á ferðinni en það að
almenningur, fólk sem hafði lítið vit á
viðskiptum, vildi reyna að tryggja sér
htinn en öruggan hlut í ábatanum.
Aftur reiddist forsætisráðherrann
þegar óvelkomnir aðilar, Orca-hóp-
urinn með „götustráka" eins og Jón
Ólafsson og Jón Ásgeir, hrifsuðu til
sín FBA. Þá var ákveðið að hefjast
handa við að einkavæða Símann, þar
áttí almenningur, starfsmenn og litlir
ijárfestar að fá að koma að - sá áhugi
gufaði upp þegar netbólan sprakk
stuttu eftir aldamótin.
íslenskir ólígarkar
Eftir þetta var tal um dreifða eign-
araðild varla að finna nema í leiður-
um Morgunblaðsins. Nú skaut upp
koflinum nýyrði - kjölfestufjárfestar.
íslenskir ólígarkar voru mættir á
svæðið til að taka yfir ríkisfyrirtækin.
Steingrími Ara Arasyni, grandvörum
ráðuneytismanni, var svo ofboðið að
hann sagði sig úr einkavæðingar-
nefhdinni - hefur reyndar ekki enn
viljað segja frá því sem gerðist þar
innan dyra. Viðskiptablaðamaðurinn
Agnes orðar þetta svona í Morgun-
blaðsgreininni frægu:
„Við létum það yfir okkur ganga,
án þess að heyrðist múkk, að þjóðar-
bankarnir Búnaðarbanki og Lands-
banki, væru einkavæddir, afhentir
pólitískt réttum aðilum, á sama silf-
urfatinu, á spottprís, og nú eru þeir
hinir sömu rétt völdu, milljarðamær-
ingar; en ætlum við að láta það yfir
okkur ganga, að enn ein þjóðareign-
in, sem malar gull og gersemi, verði
afhent pólitískt réttvöldum, á sama
fatinu, án þess að í okkur heyrist svo
mikið sem múkk."
Kjartan í bankaráðinu
Það var svo sem ekki hægt að efast
um að Björgólfamir ættu nóga pen-
inga. Þeir voru nýbúnir að selja
bruggverksmiðju í Pétursborg; fyrir
þá var ríkisbanki á íslandi eins og
skiptimynt. Sumir kaflar í síðustu
skáldsögu Þráins Bertelssonar eru í
raun ekki verri heimild um þetta en
hvað annað. Alltént þurfti Þráinn ekki
að skálda udd að fram-
sitja þar áfram eftir einkavæðingu -
og situr enn.
Sjónarspil S-hópsins
Vandinn var hins vegar sá að vinir
Framsóknarflokksins áttu ekki nógan
pening. Sambandið var löngu farið á
hausinn. Þess vegna var gengið í að
redda hagstæðu lánsfé; til dæmis
fékkst ágætt lán í Landsbankanum
stuttu áður en hann komst í einka-
eigu. Svo var farið í skollaleik í kring-
um þýskan banka. Þegar samkomu-
lagið um sölu Búnaðarbankans var
gert í nóvember 2002 birtíst frétt í
Morgunblaðinu þar sem Davíð Odds-
son, Valgerður Sverrisdóttir og fleiri
lýsa yfir ánægju með „erlenda þátt-
töku". Svo gufar þessi útlendi banki
barasta upp - það hefur verið orðað
svo að sennilega hafi hann verið
„framhandleggurinn á íslenskum að-
ila“.
Þetta var sjónarspil, vandlega
sviðsett, eins og reyndar enginn ann-
ar en Sverrir Hermannsson benti á í
grein á þessum tíma. Gamli lands-
bankastjórinn þekkti handbragðið
hjá leifunum af Sambandinu. Mogg-
inn birti fræga fréttamynd af Finni
Ingólfssyni og Ólafi í Samskip að
setjast inn í bíl eftir að hafa gengið frá
Búnaðarbankadílnum - þekktur
maður úr viðskiptalífinu sagði síðar
við mig að þetta hefði minnt á atriði
úr bíómynd sem nefnist Snatch.
Hrói Höttur á Mogganum
Einhverjum kann að finnast það
fyndið að fréttastjóri gamla Moggans
stígi fram eins og Hrói Höttur og segi
stórkapítalistum og stjórnarherrum
stríð á hendur. Fái til þess leyfi af
blaðinu - að vísu launalaust. Agnes-
arhreyfingin hefur náð furðtíléga
mikilli útbreiðslu í þessari viku. Þetta
er uppreisn sem kemur beint upp úr
grasrótinni. Almenningur hefur
óþægilega tilfinningu gagnvart við-
skiptalífinu; að það sé núorðið bara
leikvöllur fyrir þá stóru og ríku.
Litlum fjárfestum hefur verið ríánast
skipulega skóflað út af markaðrium;
þar eru aðallega fáir og stórir leik-
menn að skiptast á bréfum sem hafa
óútskýranlega hátt gengi. Sjávarút-
vegsfyrirtækin eru á bak og burt úr
kauphöllinni - og þar með ein veiga-
mesta röksemdin fyrir kvótakerfinu.
Og á sama tíma er farið að tíðkast
óþolandi mikið bukk og beygingar
fyrir auðmönnum, ekki síst í fjölmiðl-
um.
Ríkisstjórnin í hættu
Spumingin er hvort þessi hreyfing
mirni hreinlega koma í veg fyrir að
Síminn verði seldur þeim sem stjóm-
arforingjamir höfðu handvalið. Þjóð-
ina grvmar þá um græsku. Tortryggn-
in er svo mikil að þeir geta ekki látið
eins og hún sé ekki til; það þýðir ekki
að hrópa bara upp um gróusögur.
Með lítilli grein heftír Agnes náð að
þrengja vald stjómmálamannanna.
Þeir ættu að vera svoh'tið hræddir við
þetta. Annars er aldrei að vita nema
hreyfingin breytist í stjómmálaflokk.
Því skal alltént spáð að ríkisstjórnin
sjálf gæti verið í hættu ef hún tekur
ekki mark á agnesismanum.