Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2005, Page 3
DV Fyrst og fremst
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ2005 3
í um 40 ár hefur fjöldinn allur af tónlistarfólki og hljóm-
sveitum haldið tónleika á sviðinu í Laugardalshöll. Þeir sem
hafa spilað á þessu sviði eru meðal annars: Beach Boys, KORN,
Van Morrison, Led Zeppelin, Clash, Deep Purple, Foo Fighters,
Muse, A-Ha, Leonard Cohen og svona mætti halda endalaust
áfiram.
Núna er verið að taka Höllina í gegn svo um munar og verð-
ur hún lokuð í allt sumar vegna breytinganna. Framkvæmda-
stjóri Laugardalshallar, Jónas Kristinsson, segir framkvæmd-
irnar ganga prýðilega.
„Þetta svið er búið að þjóna sínum tilgangi í 40 ár en er
vissulega barn síns tíma. Til þess að gera það sem glæsilegast
þarf að rífa upphaflegu myndina og byggja upp á nýtt. Ég er
mjög glaður með þetta allt saman og þetta verður vonandi til-
búið fyrir 1. september en þá eru bókaðir tónleikar í húsinu,"
segir Jónas.
Spurning dagsins
Er Spaugstofan ennþá fyndin?
Mamma segir að
húnséfyndin
„Já, er það ekki bara. Ég hefnú
reyndar ekki séð hana mjög
lengi en mamma segir það."
Helga Braga Jónsdóttir
leikkona.
„Ja, þetta er nú
bara fyndin
sþurning. Já, á
köflum getur
hún verið það.“
Bryndís Ás-
mundsdóttir
leikkona.
„Já, mér finnst
þeir eiga góða
spretti."
Margrét Eir
Hjartardóttir
söngkona.
„Þeir eru
kannski ekki
það ferskasta í
dag en sam-
kvæmt áhorf-
inu eru þeir
greinilega það
sem Islending-
um finnst fyndnast."
Erpur Eyvindarson
rappari.
„Ég horfi nú
eigintega
aldrei á hana
en Pálmi
Gestsson er
samt minn
maður. Hann
er fyndnastur
sem Heiðar snyrtir."
Anna Gunndís Guðmunds-
dóttir
athafnakona.
Spaugstofan hefur átt sínar hæðir og lægðir í þau fjölmörgu ár
sem hún hefur verið send út á besta tíma í sjónvarpinu. Ljóst er
að ferillinn er glæstur en kannski komið að endastöð.
Sjást ekki fyrir
Orðatitækið að sjást ekki fyrir merk-
___ . ir að viðkomandi svífst
einskis og lætur einskis
ófreistað tii þess að ná
markmiðum sínum.
nskennarinn & söngkonan
Guðfinna Björg Björnsdóttir danskennari og Selma
Björnsdóttir, söngkona, leikari og ferðafræðingur, eru
systur. Guðfinna er fædd árið 1978 og Seima árið
1974. Foreldrar þeirra eru Aldís Eliasdóttir, sem
starfar við umönnun aldraðra, og Björn Friðþjófsson
húsasmíðameistari. Systur þeirra Guðfinnu og Setmu
eru Birna Gyða danskennari, sem fædd er 1970, og
Hrafnhildur óperusöngkona, sem fædd er árið 1972.
sem þá var mikil
stjarna af fréttadeild
Sjónvarpsins, tók efsta
sætið. Árangurinn í kosningun-
um þetta vorið var góður. Sjálfstæð-
isflokkurinn vann að vísu stóran sig-
ur undir forystu Davíðs Oddssonar
en Nýr vettvangur varð stærsta
minnihlutaframboðið. Með því náð-
um við að kenna hinum flokkunum
ákveðna lexíu, það væri árangursrík-
ara að vinna saman. R-listinn er svo
afleiðing þessarar lexíu.“
„Ég var heilmikið að
gjamma og hafa mig í frammi
eins og ungum mönnum er tamt,
segir Hrafn Jökulsson þegar hann
rifjar upp framboð Nýs vettvangs til
borgarstjómar árið 1990. „Nýr vett-
vangur var eins konar undanfari R-
listans, tilraun til að sameina minni-
hlutaflokkana í borginni. Tilraunin
tókst ekki því framboðið var í raun
bara Alþýðuflokkurinn, hluti af Al-
þýðubandalaginu ásamt nýju fólki úr
óKkúm áttum. Ernn þeirra sem gekk
til liðs við okkur var Egill Helgason
en ég held að þetta sé eina skiptið
sem hann hafl nokkm sinni boðið
sig fram. Við héldum opið prófkjör
og Egill endaði í tólfta sæti. Ég í því
fimmta og Ólína Þorvarðardóttir,
\ 7TT 'T'T T CTZT/^T A
VIJLJL U JKkJ C.IIlj Jjl
VERÖNDINA?
MARKISUR
Dalbraut 3, 105 Reykjavík • Nánari upplýsingar í síma
567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar
www.markisur.com