Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2005, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2005, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ2005 Fréttir DV Hrakfarir í göngunum Lögreglan á Akranesi var kölluð í Hvalfjarðargöngin um tvöleytið í gærdag vegna aftanákeyrslu. Sam- kvæmt lögreglunni tók öku- maður fólksbfls ekki eftir kyrrstæðum pallbfl frá Spöli, rekstaraðila gang- anna. Pallbfllinn var kallað- ur í göngin til að aðstoða stúlku við að skipta um dekk. Ökumaður fólksbfls- ins var fluttur í athugun til læknis vegna eymsla í brjósti, sem voru ekki talin alvarleg. Fólksbfllinn var fluttur í burtu með kranabfl en pallbfllinn skemmdist lítillega. Biðstaða í Mosfellsdal Leyfisveitingar fyrir frek- ari uppbyggingu í Mosfells- dal hafa verið stöðvaðar í skipulagsnefnd Mosfells- bæjar vegna samþykktar bæjarráðs um að fyrst verði að liggja fyrir niðurstöður um kostnað við gama- og holræsagerð. Þijú erindi sem hafnað var á fundi skipulagsnefndar í gær lutu að bændagistingu á einum stað, einbýlis- og hesthúsi á öðrum stað og fjölgun lóða á þriðja staðnum. Tónlistarhá- tíð á netinu Nú geta tónlistaraðdá- endur nálgast ísfirsku tón- listarháú'ðina Aldrei fór ég suður eins og hún leggur sig á netinu. Sam- kvæmt Bæjarins besta á ísafirði er tórfleikana að finna á heimasíðu Símans, inn.is. Síminn sendi hátíð- ina beint út á netinu þegar hún var haldin um páska- helgina í mars. Um er ræða á elleftu klukkustund af tónlist sem nálgast er með því að smella á afþreying og svo valkostinn tónleikar. Næst blað á föstudag Vegna uppstigningar- dagsins á morgun kemur DV ekki út þann daginn. Næst kemur blaðið út föstudaginn 6. maí. Skipverjarnir tveir af Hauki ÍS, Stefán Ragnarsson og Guðmundur Jakob Jónsson, eru nú komnir heim eftir aö hafa setið í varðhaldi í Bremerhaven í þrjá mánuði og tíu daga. Þeir voru grunaðir um smygl á sjö kílóum af fikniefnum. Stefán segist laus allra mála en Guðmundur gæti verið á leiðinni út á ný. Enginn skipverja á Hauki ÍS hefur verið ákærður vegna smyglsins. Teknir með sjö kíló Stefán, sem ávallt hefur neitað sök í málinu, er frelsinu ákaflega feg- inn. Hann hefur sagt að efnunum sem fundust í farangri hans hafi ver- ið komið fyrir, en hann viti ekki af hverjum. Félagi Stefáns á Hauki ÍS, Guð- mundur Jakob Jónsson, var á sama tíma og Stefán tekinn með rúmlega þrjú kfló af hassi. Hann hefur einnig verið látinn laus og stundar nú sjó- inn á ný. Heimildir DV herma þó að hann gæti þurft að fara aftur til Þýskalands til að ljúka sínum mál- um. Ekki náðist þó að staðfesta þetta hjá yfirvöldum í Bremerhaven. Engu að síður verður það að teljast óvana- legt að mönnum, sem ætlunin er að ákæra fyrir jafn stórt eiturlyfjasmygl og raunin er í þessu tilfelli, sé leyft að yfirgefa landið. Stefán Ragnars- son fullyrðir að málinu sé lokið og hann verði ekki kærður. Metur allan stuðninginn mikils „Já, mér skilst að ég sé bara laus allra mála," segir Stefán Ragnarsson. Hann var staddur heima í Sandgerði þegar DV náði tali af honum. „Ég hef allan tímann haldið fram sakleysi mínu og er því ákaflega glaður að þessu máli sé lokið hvað mig varð- ar.“ Hann segir að sér hafi verið frá- bærlega vel tekið af fjölskyldu sinni þegar hann kom heim og það hafi verið ómetanlagt að finna allan stuðninginn. Magnús tekur einnig fram að að- stoð ræðismanns íslands í Bremer- haven hafi verið ómetarfleg. „Hann stóð með mér allan tímann og veitti „Ég hefallan tím- ann haldið fram sakleysi mínu mér ómældan stuðning." Ætlar aftur á sjóinn Aðbúnaður Magnúsar í varðhald- inu í Bremerhaven var að hans sögn „ákaflega mannúðlegur". Hann seg- ist aldrei hafa setið í fangelsi áður og því verið orðinn ansi kvíðinn. „Sem betur fer fór þetta allt saman betur en á horfðist. Nú get ég farið að einbeita mér að fjölskyldunni og vinum. Næst er svo bara að koma sér aftur á sjóinn." andri@dv.is Haukur (S Mennirnir sem sátu I gæsluvarð- haldi voru hásetar. 3,5 kíló al kókaíni, 3,5 kíló af ha ' en engin ókær „Það er mikil hamingja á heimilinu," segir Stefán Ragnarsson sem er kominn heim eftir að hafa setið í þrjá mánuði og tíu daga í gæsluvarðhaldi. Magnús var tekinn með þrjú og hálft kfló af kókaíni í Bremerhaven í Þýskalandi. Efnin fundust í farangri hans en Magnús var hásetí á Hauki ÍS. Skipstjórinn á Hauki, Ómar Örv- arsson, hefur oft verið kallaður kafteinn kókaín eftir að hann var tekinn með fjórtán kfló af kókaíni fyrir nokkrum árum í Brasih'u. Þeir sem ættleiða börn fá engan styrk frá ríkinu Borga allt að milljón úr eigin vasa Nágrannar okkar á Norðurlönd- um sem hyggjast ættíeiða börn að utan fá styrk frá hinu opinbera að upphæð allt að 550 þúsund krónur. Á íslandi fá ættíeiðingarforeldrar hins vegar engan styrk, enn sem komið er. „Við höfum sótt um núna í nokkur ár. Við sendum bréf til Davíðs Oddssonar þegar hann var forsætisráðherra og til Halldórs Ásgrímssonar þegar hann varð forsætisráðherra. Við höfum einnig leitað á náðir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra en ekk- ert hefur gerst enn,“ segir Guðrún Sveinsdóttir hjá íslenskri ættíeið- ingu. Hún segir þau ekki vera að sækja um beinan ferðastyrk held- ur að foreldrar ættíeiddra barna fái þann kostnað greiddan sem foreldrar sem geta átt börn með eðlilegum hætti fá á meðgöngu og eftir fæðingu. „Það er ýmis kostnaður við með- gönguna. sem greiðist af rfldnu. Mæðraskoðun og mæðraeftirlit, sónar og það sem því fylgir. Eftir fæðingu barnsins tekur við ung- bamaeftirlit og eftirskoðanir. Kostn- aður við þetta ferli getur numið aflt að 300 þúsund, reiknast okkur til. Kostnaður foreldra sem fara til út- landa og ná í barnið sitt er vanalega um það bil milljón," segir Guðrún. Hún bendir þó á að hið opinbera hafi veitt íslenskri ættíeiðingu styrki en ekki nándar nærri það háa upp- hæð að hægt sé að styrkja alla for- eldra sem fara utan að ná í bamið sitt. „í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa þessir styrkir verið veittir síðan um 1990. Ég hef trú á því og vona að þetta verði tekið upp hér á landi fyrr en síðar. Stjórnvöld hafa enn ekki sýnt þessu skilning en við verðum að halda áfram að berjast fyrir þess- um, sem okkur finnst, sjálfsögðu réttindum." Börn í Kfna Guðrún Sveinsdóttir segir að fíest börn sem ættleidd eru hingað til lands séu frá K/na. Það kostar um eina milljón króna fyrir foreldra að fara þangaö og ná í barn sitt. „Það er mjög líklegt að við séum aö fara aö spila á Ingólfstorgi á föstudaginn þar sem rauðu spjöldin gegn ofbeldi verða á dagskrá," segir Guðmundur Kristinn Jónsson, gítarleikar Hjálma.„Þar ætla Hjálmarnirað vera og fljúga sérstaklega frá Stokkhólmi til að taka þátt íþessu. Svo er ég líka að gera kántríplötu með Baggalúti, nú er maður búinn með reggíið og fer beintyfir ikántriið."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.