Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2005, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 4. MAl2005
Síðast en ekki síst DV
Rétta myndin
Ástþór var í héraðsdómi.
DV-mynd Stefán
Stórsteikur og eftirréttir í mötuneyti leikara
Maturinn er mannsins megin og
leiðin að hjarta mannsins er um
magann. Þetta veit Tinna Gunn-
laugsdóttir, hinn nýi Þjóðleikhús-
stjóri, manna best og hefur nú held-
ur betur skorað stig meðal starfs-
manna sinna.
Þannig er að sjaldan eru haldnir
starfsmannafundir í Þjóðleikhúsinu
að ekki sé ályktað um mötuneytið.
Til tugi ára hefur nefnilega staðið sú
klásúla í samningi við þá
sem sjá um að halda uppi
stuðinu í Þjóðleikhúskjallaranum
að þeir hinir sömu sjái einnig um
rekstur mötuneytisins. Það hefur
því aldrei verið neitt forgangsmál að
Ha?
kokka ofan í hina þjóðþekktu leik-
ara en nú er Tinna búin að kippa
þessu í liðinn. Hún hefur nú sérráð-
ið kokk til að sjá um mötuneytið og
una nú leikarar og aðrir starfsmenn
glaðir í kjallara hússins yfir þrírétta
máltíðum, stórsteikum og eftirrétt-
um.
Hvað veist þú um
Danmörku
1. Hvert er flatarmál
Danmerkur?
2. Hver er forsætisráðherra
Danmerkur?
3. Hver er bróðir ríkis-
arfans í Danmörku?
4. Hver eru tvö helstu við-
skiptalönd Danmerkur?
5. Hversu margir eru
Danir?
Svör neöst á síðunni
Hvað seqir
mamma?
„Ég er voða
stolt af honum.
Reynir var
svoldið lengi
einn, bróðir
hans er um-
talsvertyngri.
Þroskaöur eftir
aldri. Skemmti-
legur strákur,"
segirMagnea
Antonsdóttir, móðir Reynis Lyngdal kvik-
myndagerðarmanns.
„Það er sniðugt eftir á að hyggja að strax
mjög ungur tjáði Reynir sig alltafl mynd.
Allt sem gerðist var alltafsett niöur á blaö.
Hann var fjögurra ára þegar afi hans,
Reynir á Akureyri, dó og Reynir fór við
jarðarförina. Eftirþetta teiknaði hann
mikið logandi kirkjur. Hann og vinur hans
Arnar Jónasson voru mjög snemma
komnir útl stuttmyndagerö og tóku þátt I
stuttmyndasamkeppni. Hann vildiþetta."
Reynir Lyngdal er að fara að takast d
við sittstærsta verkefni tilþessa: Leik-
stjórn kvikmyndarinnar Mýrin sem
Baltasar Kormákur og Bavaria fram-
leiða meðal annars og byggð er á sam-
nefndri bók Arnaldar Indriðasonar.
Þegar hefur Ingvar E. Slgurðsson verið
valinn til að fara með hlutverk lög-
regluforingjans Erlends Sveinssonar.
Dópistinn dóttin Enlendan ófundin Enn n
eftin nð skipn í fjölmöng hlutvenk í Mýninni
„Ég er rosalega spenntur. Þetta er
þvílíkt tækifæri og stórkosdegt verk-
efni að takast á við. Arnaldur er æð-
islegur höfundur sem hefur náð að
skapa persónur sem eru kjörnar til
að búa til bíó úr,“ segir Reynir Lyng-
dal kvikmyndaleikstjóri.
DV sagði frá því í gær að búið
væri að ráða í helstu hlutverk í Mýr-
ina, kvikmynd sem byggir á sam-
neftidri bók eftir Arnald Indriðason.
Ingvar E. Sigurðsson mun leika sjálf-
an Erlend Sveinsson, löggu sem er
þungamiðja bóka Amaldar. Elva Ósk
Ólafsdóttir leikur Elínborgu aðstoð-
arkonu' Erlends og Björn Hlynur
leikur Sigurð Óla
lögreglu-
mann
saman mynda þau þríeyki sem leys-
ir hinar dularfyllstu morgátur. Ef
vel til tekst með Mýrina er stefnt að
því að halda áfram að kvikmynda
upp úr bókum Arnaldar. Enn á
eftir að skipa í fjölmörg hlutverk
og víst er að mikil spenna ríkir með
al leikara nú um stundir. Til dæmis á
eftir að finna leikkonu í hlutverk
dópistans dóttur Erlends en hlut-
verk skipast með hhðsjón af
því hverjir hafa vahst til
að leika þessi þrjú
hlutverk sem hér hafa
verið nefnd. ________ ,
„Um það fjíúlar sag-
an að oft má satt kyrrt
hggja og spurning-
una: Er ahtaf rétt að
grafa upp í bókstaf-
legri merkingu for-
tíðina?" segir Reynir
sem nú hugsar um fátt
annað en Mýrina. Reyn-
ir er þekktur auglýs-
ingaleikstjóri
og stutt-
myndamaður. Þetta verður stærsta
verkefni hans hingað til.
„Ég reyni að vera trúr þessari
sögu og þessum heimi sem Arnaldur
hefúr skapað. Svo sagan njóti sín
verður að vera einhver sú stemrnn-
ing sem hoppar til manns við lestur
bókarinnar. Kaldranalegt íslenskt
haust og eitthvað mjög sér íslenskt."
Tökur hefjast næsta haust en
stefrit er að dreifingu myndarinnar
um ahan heim. Handrit skrifa þeir
Baltasar Kormákur framleiðandi
myndarinnar og Reynir ásamt Ed
Wyman. Gert er ráð fyrir því að
þegar nær dregur komi Jón Ath
Jónasson leikskáld að þeirri vinnu.
jakob&dv.is
Reynir Lyngdal Mýrin ertang
stærsta verkefni hans tilþessa.
Enn á að mestu eftir að skipa t
hiutverk og eru leikarar landsins
spenntir.
Arnar Pétur Stefánsson segist berjast gegn geösýki
Stofnaði samtök gegn fm-hnökkum
„Fm-hnakkía er geðsjúkdómur
sem er frekar falinn í samfélaginu,"
segir Arnar Pétur Stefánsson sem
stofnað hefur samtök gegn fm-
hnökkum. Samtökin heita AH sem
er stytting á anomynous hnakkar og
voru þau stofnuð þann 27.apríl.
„Hafsteinn vinur minn átti nú hug-
myndina en ég þróaði hana út í
sjúkdóminn og kom með tilgátu um
hvernig þetta virkar."
Amar heldur úti vefsíðunni
www.ahsamtokin.tk þar sem hann
segir frá þessari hugmynd sinni.
„Það sem kemur líka inn í geðsjúk-
dóminn er þessi áhrifagirni því
hnakkarnir fylgja mikið MTV og
fleiru í þeim dúr,“ segir Arnar en
hnakkarnir fara ahs ekki í taug-
arnar á honum. „Ég er bara að
reyna
að
hjálpa
þeim á
Ásgeir Kolbeins
Er að sögn Arnars einn
af fm-hnökkum landsins
rétta leið og hef þegar náð að snúa
tveimur vinum mínum sem hafa
fundið sjálfa sig og hlusta nú á
tónhst sem þeir vilja hlusta
á.“ Hann segir þá meðal
annars hafa aflitað á sér
hárið, fengið sér strípur og
gengið í Diesel-fötum.
Arnar segir krakka á
aldrinum 14-20 ára vera í
mesta áhættuhópnum og
einnig þá sem eru í Verzl-
unar-
skólanum.
„Þessi hóp-
ur er mjög
áhrifagjarn
því fólk er
mikið að
breytast á þessum árum og vih
passa inn í ákveðinn hóp,“ segir
hann. Sjálfur er Arnar að vinna en
stundar einnig nám við Mennta-
skólann við Sund.
Arnar Pétur Stefánsson
Segist hafa þróað sinn eigin
stll, hann hlusti á Pink Floyd
ogkaupi ódýrustu fötin sjálfur.
Flott hjá Ingvari E. Sigurðssyni leikara að
gefast ekki upp eftir að hafa misst afhlut-
verkinu ÍThe Da Vinci Code og snúa aftur
á heimaslóðirnar og taka aðsér hlutverk
Erlends lögreglumanns i Mýrinni. Ingvar
er einn fremsti leikari þjóðarinnar og mun
glæða rannsóknarlögguna slþreyttu llfi.
1.43 þúsund ferkílómetrar. 2. Anders Fogh Rasmussen 3. Jóakim
prins. 4. Þýskalandi og Sviþjóð. 5. Tæplega 5,4 milljónir.
Lárétt: 1 öruggur,4
sleipur,7 lyf,8 röski, 10
arð, 12 höfða, 13 málm-
ur, 14 mjög, 15 mönduls,
16 kona, 18 gubbar,21
bulli,22 spjót,23 ger-
legt.
Lóðrétt: 1 vogur, 2 lítil, 3
hægur,4 lánsömu, 5
djúp, 6 leiði, 9 um-
hyggjusöm, 11 fyrirhöfn,
16trekk, 17gruni, 19
mjúk, 20 upphaf.
Lausn á krossgátu
HRAFNAÞING
Alla virka daga kl. 13.
Toj 07'ui| 61 '!J9 Zl
'6ns 9L 'jsieujp 11 'upeu 6'6a| 9 j|? s'n|æseddeg fr'jnjiþiwas e'pujs z'jjA l :jjaje91
•juun £Z 'Jia6 ZZ j|6nj L7'J||æ8l
jous 9i 'ssy sl 'jeje y 1 jpjs tL'dnu 2L '6o|d ot '!?u)| 8 jegauj / j|?L| Þ'ssm 1 jjæiri
I Talstöðin
FM 90,9