Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2005, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 7. MAÍ2005
Fréttir DV
Hálsbrotnaði
íveltu
Jeppi með kerru valt
heila veltu á veginum í
Langadal á Möðrudalsör-
æfum um sexleytið síðdegis
á uppstigningardag. Þrennt
var í bílnum og þurfti að
flytja einn á sjúlaahús
vegna hálsbrots. Hann var
fyrst sendur á Akureyri en
þaðan til Reykjavíkur í að-
gerð. Hitt fólkið meiddist
minna. Að sögn lögregl-
unnar á Vopnafirði var af-
takaveður þegar slysið átti
sér stað. Sterk vindhviða
reif bílinn með sér með
fyrrgreindum afleiðingum.
Bíllin er gjörónýtur eftir
óhappið.
Borgi fyrir
ónýtan tank
Bæjarráð Vesturbyggðar
mælir gegn því að Fasteigna-
mat ríkisins lækki mat á
tveimur eignum. Eigandi
ónýts olíutanks og
eigandi illa farins
íbúðarhúss sóttu um
lækkun á matinu.
Bæjarráðið segir að
rífa eigi tankinn sem
staðið hafi ónotaður
í 15 ár. Á meðan
tankurinn standi eigi að inn-
heimta lögbundin gjöld af
honum til að halda þrýstingi
á eigandann að rífa hann
niður. Hvað íbúðarhúsið
varðar segir bæjarráðið ekki
forsvaranlegt að lækka fast-
eignamat eigna sem séu við
það að hljóta endurnýjun iíf-
daga.
„Ég hefþað sæmilegt," segir
Svala Fanney Njálsdóttir,
sölumaðurhjá Og Vodafone.
„Ég er bara oröin óþreyjufull
aö bíða eftir barninu sem ég
ber undir belti. Annars er heils-
Hvernig hefur þú það'
ágæt
og ég getfariö að undirbúa
komu nýjasta fjölskyldumeð-
limsins."
Kristjáni Baldurssyni verkfræðingi þótti of mikið að greiða tæpar fimm þúsund
krónur fyrir leigubíl úr Mosfellsbæ og niður á Egilsgötu í Reykjavík. Hann kvart-
aði og hafði betur þegar hann fékk tvö þúsund krónur endurgreiddar frá Hreyfli og
í framhaldinu var bílstjórinn rekinn.
Leigubílstjóri rekinn
fvrir nð nkrn n fnrbegn
Kristjáni Baldurssyni verkfræðingi brá illilega í brún einn laugar-
dagsmorgun fyrir skemmstu þegar hann vaknaði eftir að hafa átt
glatt og skemmtilegt kvöld með félaga sínum í Mosfellsbæ. Upp
fyrir honum rann það ljós að hann hafði greitt tæpar fimm þús-
und krónur fyrir leigubíl úr Mosfellsbæ og niður á Egilsgötu í
Reykjavík. Túr sem á að kosta undir þrjú þúsund krónum. Krist-
ján leitaði skýringa en það tók tímana tvo.
„Ég hafði verið í kvöldverðarboði
hjá vini mínum í Mosfellsbæ og við
dreypt eilítið á rauðvíni og bjór eins og
gerist. Um tólfleytið um kvöldið pant-
aði ég bíl hjá Hreyfli og ók hann mér
niður á EgÚsgöm þar sem ég bý. Ég
borgaði með fimm þúsund króna seðli
og man að ég fékk fimmtíukall til
baka,“ segir Kristján sem ferðast hefur
með leigubílum í hartnær fimmtíu ár
og vanist því að geta treyst leigubíl-
stjórum eins og fólk á að geta gert.
Gögn send til Danmerkur
„Mér fannst einhvern veginn að
fimm þúsund króna seðill hefði
þarna farið fyrir lítið og setti mig í
samband við Hreyfil þar sem ég fékk
þær upplýsingar að svona ferð ætti
með réttu að kosta rétt undir þrjú
þúsund krónum. Framkvæmda-
stjóri Hreyfils var hinn almennileg-
asti og setti strax í gang rannsókn og
bílstjórinn fannst. Hann þrætti hins
vegar fyrir og sagðist hafa gefið mér
tvö þúsund krónur til baka sem ég
hefði vöðlað saman í buxnavasa
sem ég geri aldrei því ég hef vanið
mig á að setja peningana mína alltaf
í veski," segir Kristján sem stóð fast-
ur á sínu og gaf sig ekki fýrr en ff am-
kvæmdastjóri Hreyfils sendi ákveð-
in gögn út til Danmerkur sem í
mátti lesa feril þessarar umdeildu
ferðar úr Mosfellsbæ og niður á Eg-
ilsgötu.
Ók á utanbæjartaxta
„Útkoman úr þessu öllu var sú
að í ljós kom að bflstjórinn hafði
ekið mér á utanbæjartaxta úr
Mosfellsbænum og þannig fengið
út þessa háu upphæð á taxtamæli
sínum. Framkvæmdastjóri Hreyf-
ils fullvissaði mig um að mjög
hart væri tekið á öllu misferh bfl-
stjóra fyrirtækisins enda grund-
„Ég var féflettur en
réttlætið sigraði."
vaharatriði að farþegar geti treyst
leigubflstjórum sem aka fólki oft í
mismunandi ásigkomulagi eins
og allir vita. Hann endurgreiddi
mér tvö þúsund krónur og síðar
frétti ég að bflstjórinn hefði verið
rekinn. Hann er nú á svörtum
lista og fær ekki að aka leigubfl í
Reykjavík og við það er ég sáttur.
Ég var féflettur en réttlætið sigr-
aði. Það er fyrir mestu,“ segir
Kristján Baldursson verkfræðing-
ur sem ætlar að halda áfram að
skipta við Hreyfil í trausti þess að
viðbrögð stjórnenda þar verði í
framtíðinni jafn karlmannleg og
þetta dæmi sannar.
Kristján Baldursson
sigurgiaður Hafði
betur gegn bllstjóra
I sem reyndi að féfletta
hann á leiðinni úr
Mosfellsbæ og niður á
Egilsgötu.
„Bók í anda Tarantinos, hæfilega
blóðug og hæfilega fyndin. En
umframallttöff."
ÚlJhildurDagsdóttir, bókmenntir.is
„Það er kraftur í bókinni. “
Bjöm Þór Vilhjílmsstm, MbL
„Skyldulesning... Fantavel
skrifuð." PillBaldvinBaldvinsson,
Íslandídag.
„Mjög vel skrifuð bók.“
Jón Yngvi Jóhannsson, Kastljós
Mál
i
og menning
edda.is
Þingmönnum troðið á
Heimsmynd Svarthöfða small
saman þegar hann heyrði fréttir af
því að fyrrverandi þingmanni
hefði verið troðið inn í stöðu elli-
heimilisstjóra á Akranesi gegn
vilja meirihluta bæjaryfirvalda.
Vissulega er Guðjón Guð-
mundsson með minnstu mennt-
unina og kannski ekki best til
starfans fallinn hvað varðar hæfn-
iskröfúr og reynslu, þótt hann hafi
umgengist marga aldraða í 12 ár á
Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
En einhvers staðar verða fyrrver-
andi þingmenn að vera. Við vor-
um nefnilega hársbreidd frá því
að fá enn einn sendiherrann.
Best væri ef allir fyrrverandi
ráðherrar og þingmenn væru
sendir á elliheimili. Þannig forð-
umst við að búa til hundruð millj-
ón króna sendiráð úti í heimi til að
hýsa þá á ævikvöldinu. En slíkir
menn eru vandir að virðingu
Svarthofði
sinni. Þess vegna er eðlilegt að
þeir haldi stöðu fyrirmenna þegar
þeir fara á öldrunarheimili. Akra-
nes-aðferðin er tilvalin: Fyrrver-
andi þingmenn og ráðherrar eiga
að stjórna elliheimilinu og eyða
ævikvöldinu sem furstar í eigin
furstadæmi. Enn fleiri en Guðjón
eiga þangað erindi. Við gætum
hugsað okkur að Halldór Blöndal,
sjálfur forseti Alþingis, fengi
virðulega stöðu og stýri ekki
minna ehiheimili en Grund.
Nú er bara að halda áfram og
kohvarpa öllum elliheimilisstjór-
um landsins th að troða þangað
þingmönnum. Jafnvel nauðugum.
Og þá getum við byrjað að ráða
hæfasta fólkið í sendiráð og stofn-
anir.
Svarthöfði
elliheimili