Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2005, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2005, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 7. MAÍ2005 Helgarblað DV Kærustuparið Anna Gréta Sveinsdóttir og Daníel Þór Guðjónsson eru / a bæði ættleidd. Foreldrar jasjmjjl Önnu Grétu sóttu hana Æfc til Indlands þegar hún Æ var átta mánaða en for- JB eldrar Daníels sóttu fl hann til Srí Lanka. Þau Jj eru aðeins 17 og 19 ára en voru að eignast sitt fyrsta barn. ^jilKÉ Anna Gréta, Daníel Þór og litla stelpan ,tg var aðems 16 ára þegar ég varð ófrlsk og mér fannst erfiðastað segja mömmu frá þessu.Það var kvöl og plna, 'segirAnna Gréta. „Fólk heldur stundum að við séum systkin," segir Anna Gréta Sveinsdóttir en hún og kærastinn hennar, Daníel Þór Guðjóns- son, eignuðust litla dóttur þann 28. apríl síðastliðinn. Anna Gréta var ættleidd frá Ind- landi árið 1988 en hún er 17 ára í dag. Daníel Þór var hins vegar ættleiddur frá Srí Lanka og er 19 ára. Þau hafa verið saman í tvö og hálft ár og kynnt- ust fyrir tilviljun. „Sumir halda kannski að við séum útlendingar en flestir halda að við séum systkin," segir hún og bætir við að þau hlæi bara að þessu. Erfiðast að segja mömmu Anna Gréta segir að meðgangan hafi gengið mjög vel, hún hafi ekki þjáðst af morgunógleði en hafi þó fengið ansi slæma grindargliðnun en sé núna orðin spræk. Hún flutti frá Akureyri til Reykjavflcur árið 2003, og nú býr litla fjöískyldan hjá foreldrum Damels á Álftanesinu. Foreldrar Önnu Grétu búa hins vegar fyrir norðan, þar sem nýbökuðu for- eldramir eru í heimsókn, og Anna Gréta segir að það sé mömmu sinni mikil huggun að vita af foreldrum Daníels Þórs hjá þeim. Litla stelpan er fyrsta bamabam foreldra hennar en eldri systir Daníels á fjögur böm. Anna Gréta segir að þrátt fýrir að „Það er mjög skrítið að hafa einmitt hitt strák sem hefur nán- astsömu sögu að segja og maður sjálfur." meðgangan hafi ekki verið plönuð hafi henni ekki bmgðið mjög mikið. „Ég var aðeins 16 ára þegar ég varð ófrísk og mér fannst erfiðast að segja mömmu frá þessu. Það var kvöl og pína. Hún tók þessu samt vel og í dag er hún í skýjunum," segir Anna Gréta og bætir við að pabbi hennar sé að springa úr stolti. „Pabba hafði grunað þetta. Honum fannst ég hafa fitnað en þar sem ég vissi ekki að ég væri ófrísk neitaði ég því alltaf. Þegar ég var komin ellefu vikur á leið fór ég til læknis og þá var grunur pabba stað- festur." Veit lítið um fortíðina Anna Gréta á tvær yngri systur sem einnig em ættleiddar frá Ind- landi. Sú yngsta heitir Guðrún og er 10 ára en Bergþóra fermdist í ár og er 13 ára. Systumar koma allar frá sama bamaheimilinu í Kalkútta en Anna Gréta veit Ktíð um sögu sína áður en hún kom til íslands. „Mamma og pabbi sóttu mig þegar ég var átta mánaða og í rauninni veit ég Ktíð hver upprunaleg saga mín er. I raun og vem vil ég vita meira en samt ekki, því maður vill ekki verða fyrir vonbrigð- um. Mamma og pabbi em náttúrlega foreldrar mínir en það er skrítin til- finning að eiga kannski aðra foreldra úti. Þegar ég var yngri hugsaði ég stundum um þau en ég gerði mér snemma grein fyrir því að þau hafa ekki getað hugsað um mig sökum fátæktar. Ég hugsa að þau hafi viljað gefa mig til að ég gætí öðlast betra líf en ég get náttúrlega ekki vitað hvort „Mamma og pabbi sóttu mig útþegar ég var átta mánaða og í rauninni veit ég lítið hver upprunaleg saga mín er." það sé raunverulega ástæðan eða ekld,“ segir Anna Gréta og bætir við að hún vilji heimsækja Indland ein- hvem tíma í framtíðinni. Daníel Þór á einnig ættleidda systur sem kom til landsins frá Srí Lanka á sama tíma og hann. Anna Gréta viðurkennir að það sé ótrúleg tilviljun að þau hafi kynnst og byijað saman. „Ég pæli oft í þessu," segir hún brosandi. „Það er mjög skrítíð að hafa einmitt hitt strák sem hefur nánast sömu sögu að segja og maður sjálfúr. Hami var samt að- eins átta daga gamall þegar hann kom, en venjumar em allt aðrar á Srí Lanka en á Indlandi enda er um ólíka menningarheima að ræða,“ segir Anna Gréta. Skrítið að vera orðin mamma Anna Gréta og Damel hafa ekki enn ákveðið hvenær þau ætli að skíra litlu dótturina. Anna Gréta segist bara kalla hana litlu stelpuna þar sem hún vilji ekki kalla hana einhverju gælu- nafiii. „Ég sagði öllum að hún væri stelpa en við ætlum að halda nafiúnu fyrir okkur sjálf. Það kemur bara í ljós við skfmina," segir hún og bætir við að skímin fari lfldega fram í Sval- barðskirkju þar sem hún var sjálf fermd. Anna Gréta er ung móðir og hún segist varla vera búin að átta sig á þessu nýja hlutverki. „Það er mjög skrítíð að vera orðin mamma og ég held að ég sé varla búin að gera mér grein fyrir þessu. Fjölskyldur okkar em mjög spenntar yfir þessu og vin- konur mínar vom ömgglega spennt- ari en ég á meðgöngunni. Þeim finnst samt skrítíð að ég skuli vera komin með bam. Litla var ellefu merkur þeg- ar hún fæddist og er undir eftírlití þar sem hún var svo lítil en ég var með Systur Anna Gréta á tværyngri systur sem einnig eru ættleiddar frá Indlandi.Á mynd- inni eru Anna Gréta og Bergþóra en á hana vantar Guðrúnu systur þeirra. frekar pena kúlu og við erum bæði frekar h'til. Hún er samt mjög góð og er frekar róleg, alla vega miðað við það sem ég heyrði af hinum bömun- um á sjúkrahúsinu," segir Anna Gréta hlæjandi. indiana@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.