Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2005, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 7. MAÍ2005
Fréttir J3V
Megi hnýsast
í netnotkun
Persónuvemd segir
breytingar samgöngu-
ráðuneytis Sturlu Böðv-
arssonar á frumvarpi
um fjarskipti ekki Vera
nægjanlegar. Enn steftii
í að brotið verði á fólki
með því að lögregla fái
aðgang að tölvunotkun
þess án dómsúrskurð-
ar. Ráðuneytið telur að ann-
ars verði lögreglu ókleift að
aðhafast nema vegna gróf-
ustu brota á netinu. Per-
sónuvernd hefur áður sagt
að frumvarpið feli í sér brot
á ffiðhelgi einkalífsins.
Fyrning ekki
afnumin
Allsherjarnefnd Al-
þingis hefítr afgreitt
frumvarp um afnám
fyrningarfrests kynferð-
isbrota sem Ágúst Ólafúr
Ágústsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, lagði
fyrir nefiidina. Fmm-
varpi Ágústs var þó
breytt. I stað þess að af-
nema fyrningarfrestinn
eiga brot nú ekki að
fyrnast fyrr en brotaþoli
er orðinn átján ára.
Blaöiö
Lúðvfk Geirsson
bæjarstjórí
„Sem gamall blaðamaður
fagna ég aukinni útgáfu og
óska starfsmönnum til ham-
ingjum með aö hafa komið
þessu út. Flóran I dagblöðum
hér á landi ernú oröin fjöl-
breytt og skemmtileg. Ég rak
reyndar augun I aö það er
óvenju mikiö afauglýsingum í
blaðinu en ég á von á að þetta
eigi eftir að slípast eitthvað til. “
Hann segir / Hún segir
„Þaö ergaman að menn hafi
kjark til að hefja útgáfu nýs
blaðs og því ættu bæði blaða-
menn og almennir lesendur
að taka á móti þessari viðbót
með hamingjuóskum. Það er
ekki tímabært að kryfja inni-
haldð, en leiöari fyrsta blaðs-
ins vargóður. Útlitslega séð
fannst mér þó forsíðan helst til
sundurgeröaleg og blaðhaus-
inn ekki fagur. Útlitið má ekki
vinna gegn innihaldinu."
íþróttafélögin Fram og Fylkir berjast hatrammri baráttu um Grafarholtið þar sem
fjöldi knattspyrnumanna og áhugamanna munu vaxa úr grasi næstu árin. Borgin
hefur þegar ritað viljayfirlýsingu um að Fram fái hverfið en Fylki hefur borist
óvænt hjálp. Gamli bakvörðurinn úr Fylkisliðinu, borgarfulltrúinn Dagur B. Egg-
ertsson, gengur þvert á vilja borgarinnar. Hann segir Grafarholtið Fylkishverfi.
Dagur berst fyrir
gömlu liðsfélagana
Fdtbolti er hafinn yfir pólitískt karp. Gamli varnarjaxlinn úr
fyrsta fslandsmeistaraliði Fylkis, borgarfuiltrúinn Dagur B. Egg-
ertsson, gengur þvert á viljayfirlýsingu borgarinnar og segir
Grafarholtið vera Fylkishverfi. Framtíð íþróttafélagsins Fram
liggur í þessu nýja hverfi en Dagur ætlar ekki að bregðast sínu
gamla liði.
„Við munum ekki sætta okkur
við það að Grafarholtið fari yfir til
annars félags,“ segir Birgir Finn-
bogason, formaður stjórnar Fylkis.
Hann segist þakklátur fyrir stuðn-
ing Dags B. Eggertssonar en telur
þá staðreynd að Dagur sé gamall
leikmaður félagsins ekki skipta
höfuðmáli. „Hann er formaður
hverfisráðsins og ber taugar til
hverfisins sem hann hefur hingað
til sinnt ágætlega,“ segir Birgir.
Deilt um hverfi
Deila Fram og Fylkis snýst um
það að firamtíð íþróttafélagsins
Fram liggur í þessu nýja hverfi.
Þröngt er um Fram í Safamýrinni
og ungu fólki í hverfinu fer fækk-
andi. Fram vill því flytja höfuð-
stöðvar sínar í Grafarholtið og
byggja upp öflugt félag með eigin
heimavelli.
Á sama tíma sá Fylkir sóknar-
færi í Grafarholtinu og hóf þegar á
síðasta ári að auglýsa starf sitt
meðal barna í hverfinu. Það var
illa séð af Fram því borgin hafði
skrifað undir viljayfirlýsingu um
að Grafarholtið yrði hverfi Fram.
Hatrammt stríð
„Við viljum ekki vera í stríði við
Fylki,“ segir Þór Björnsson,
íþróttafulltrúi Fram. „Okkur finnst
þetta einfaldlega liggja skýrt fyrir,
það hefur verið skrifað undir vilja-
yfirlýsingu um að hverfið sé okkar
taki að sér íþróttastarf í Grafar-
holti. Sú bókun stangast á við vilja-
yfirlýsingunar og segir Þór Bjöms-
son í Fram að
bæði
og við erum tilbúnir að hefja þ
störf strax í haust."
Þór segir yfirlýsingu Dags B.
Eggertssonar hafa komið hon-
um á óvart. Málið sé í raun
komið í uppnám.
Líf og dauði
Bill Shancley, fyrmm þjálf-
ari Liverpool, sagði að fótbolti
snerist ekki um líf og dauða.
Hann væri miklu mikilvægari. Það
er því kannski ekki að undra þær
tilfinningar sem bærast meðal
stuðningsmanna beggja liða og
fyrmm leikmanna, eins og Dags
Eggertssonar.
„Ég ber auðvitað taugar til liðs-
ins en finnst mikilvægast að vel sé
tekið á móti fólki sem flytur í Graf-
arholtið. Fylkir hefur staðið sig vel
í undirbúningi í hverfinu og Fram
mun fá Úlfarsfellið þegar byggðin
rfs þar,“ segir Dagur.
Marklaus pappír
Dagur bendir
einnig á bókun
frá íþrótta-
og tóm-
stunda-
ráði
gerða
árið
2001
þar sem
segir að
Fylkir
bókunin og þessi orð Dags merki
að viljayfirlýsingin sé orðinn
marklaus pappír.
„Þegar þetta var rætt áttum við
að £á allt Grafarholtið en ekki berj-
ast við Fylki um iðkendur,“ segir
Þór og bætir við: „Það er á tæm."
simon@dv.is
Ég ber auðvitað
taugar tií liðsins en
fínnst mikilvægast
að vel sé tekið á
móti fólki sem flyt-
ur í Grafarhoitið."
Dagur B. Eggertsson borg-
arfulltrúi Hefur vakið reiði fé-
lagsmanna Fram vegna
stuðnings síns við Fylki.
Ástþór Magnússon sýknaður í héraðsdómi í gær
Ekki þótti saknæmt að hrifsa myndavél og henda henni
Hildur Helga Sigurðardóttir
blaðamaöur
Ástþór Magnússon var sýknaður
fyrir að hafa eyðilagt myndavél ljós-
myndara Iceland Express Inflight
Magazine. Málavextir vom þeir að
ljósmyndarinn var á skemmústað þar
sem Astþór var gestur og fannst hon-
um að sér vegið þegar mynd var tekin
af honum Við barinn. Hann brást við
Valið fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöfiur
€ ',
FOSFOSER
MEMORY
soluaðili
551 9239
Ástþór Magnússon Trylltist I héraðsdómi I
vikunniog sprautaði tómatsósu á Ijósmynd-
ara DV.
með því að hrifsa til sfn myndavélina,
skella henni í barborðið og henda
henni frá sér. Ekki þótti sannað að
Ástþór hefði eyðilagt myndavélina þar
sem hún fannst ekki aftur eftir þetta.
Snæfnður Ingadóttir, ritstjóri
Iceland Express Inflight Magazine
segist ekki vera sátt við þennan úr-
skurð. „Þeir sem vom staddir þama
þegar atvikið gerðist sáu aðfarimar
þegar Ástþór margbarði myndavél-
inni í borðið og kastaði henni svo ffá
sér. Við sáum vélina aldrei eftir þaö og
líklega hefur einhver gestur tekið
hana eða hvað veit ég hvort Ástþór
sjálfur sé með hana undir höndum.
Samkvæmt þessu virðist sem sagt
vera í lagi að skemma eigur annarra
svo lengi sem sönnunargögnin finn-
ast ekki. Hingað til hefur það nú verið
kallaður þjófnaður þegar einhver tek-
ur eitthvað ófijálsri hendi. Ég h't enn
svo á að Ástþór hafi stolið vélinni,"
sagði Snæfiíður efttr að hafa heyrt um
dómsuppsögnina.
Það vakti athygli að dómari í mál-
inu, Pétur Guðgeirsson, bætti við
klausu í dómnum, sem ekki kom mál-
inu beint við. Þar fordæmdi hann
framferði ljósmyndara og mynda-
tökumanna sem hann segir hafa setið
fyrir Ástþóri, elt hann
um dómshúsið og
niðurlægt með nær-
göngulum mynda-
tökum. Ástþór
hefur meðal
annars spraut-
að tómatsósu á
ljósmyndara og
rifið í klæðnað
annars ljós-
myndara vegna
óánægju sinnar
með mynda-
tökur.
Snæfríður
Ingadóttir Er
ekki sátt við
sýknudóminn
ogtelurennaö
Ástþórhafi
stolið mynda-
vélinni.
*