Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2005, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 7. MAl2005
Fréttir DV
Bændursafna
rúlluplasti
Bændur í Reykhólasveit
hafa verið beðnir að saftia
saman rúiluplasti utan af
heyrúllum og koma því fyrir
á aðgengilegum stað við bæi
sína. Að því er segir á reyk-
holar.is er hreppurinn að
semja við verirtaka um að
flytja allt rúlluplast til ísa-
fjarðar þar sem því verður
brennt í sorpbrennslunni
Funa. Verður þessi land-
hreinsun bændunum að
kostnaðarlausu. „Sumir
bændur eru búnir að pressa
plastið í kubba og er það
auðvitað langbest," segir í
hvatningu til bænda.
Nýstárlegt
rakakrem
Nýstárlegt
andiitskrem er
nú fáanlegt í
búðarhillum í
Mexíkó. Um er
að ræða raka-
krem sem meðal
annars inniheld-
ur sæði úr karlmönnum.
Hin næstum sextuga klám-
stjama Lyn May stofnaði
fyrirtæki í kringum fram-
leiðslu á kreminu. Hún segir
kremið eyða hrukkum og
gera húðina mjúka. í viðtali
við dagblaðið Las Ultimas
Noticias lýsti Lyn gerð raka-
kremsins á eftiifarandi hátt:
„Ég vel unga og myndarlega
menn og borga þeim fyrir
sæði sem síðan er blandað
með hunangi og höfrum."
Óeðlilegar
áhyggjur
Bresk at-
hafnakona gerði
sér Ktið fyrir og
flaug rúmlega
fimm þúsund og
fimmhundruð
kflómetra leið til að gefa
barni sínu brjóst. Konan,
Rosie Stamp frá London, var
í viðskiptaferð í New York og
hafði látið kærastanum eftir
að gefa ársgamalli dóttur
þeirra, Betsy, að drekka úr
pela. Betsy vildi hins vegar
ekki sjá pelann. Rosie hafði
áhyggjur af því að dóttirin
myndi þjást af vökvaskorti,
flaug til London, gaf Betsy
bijóst og tók hana síðan
með sér til New York og lauk
viðskiptaferðinni.
héöan af Akureyri, “ sagöi Jó-
hannes Bjarnason, bæjarfull-
trúi Framsóknarflokkins og
handboltaþjálfari. „Ég stend
sjálfur á ákveönum tímamót-
Landsíminn
er i'.L-:... V' ■Wfiir*Éiwi-t
hættur aö þjálfa meistaraflokk
KA íhandboltanum. Ég ætla
aö þjálfa unglingana næsta
vetur og beita mérí bæjarpóli-
tlkinni. Þaö er afnógu að taka
þar viö aö skapa grunnskilyröi
fyrir blómlegri byggö á Akur-
eyri og hefja Framsóknar-
flokkinn til þeirra hæöa sem
hann á skiliö."
Ný reglugerð í Bandaríkjunum heftir verulega möguleika homma til að gefa sæði.
Gagnrýnendur segja þetta út i hött. Matvæla- og heilbrigðiseftirlit Bandaríkjanna
telur þetta hins vegar nauðsynlegar aðgerðir til að tryggja öryggi sæðisþega.
Mótlæti Enn grassera fordómar gagnvart
samkynhneigðum og hér fær einn á kjaft-
inn fyrir að gagnrýna bann á giftingum á
fundi íhaldsflokksins í Kanada.
mu
mt
Réttindasamtök samkynhneigðra í Bandaríkjunum gagnrýna
harðlega nýja reglugerð sem Matvæla- og heilbrigðiseftirlit
Bandaríkjanna ætlar að gefa út innan skamms. Þar er réttur
homma til að gefa sæði skertur verulega.
Matvæla- og heilbrigðiseftirlitið á áhættuhegðun í kynlífi sæðisgjafa,
hefur skellt skollaeyrum við allri
gagnrýni á reglugerðina og áköllum
um að hún verði ekki gefin út. Eftir-
litið heldur því fram að hommar séu
í heildina litið mun líklegri til að
bera HlV-veiruna.
í reglugerðinni er mælt með því
við heilbrigðisstarfsmenn og -stofn-
anir sem vinna við gervifrjóvganir að
sæði homma verði ekki notað þegar
sæði er gefið nafhlaust í gegnum
sæðisbanka, nema þeir hafi gætt
skírlífis í að minnsta kosti fimm ár.
Ekki er fett fingur út í að hommar
gefi sæði ef þeir eru beðnir um það
beint af sæðisþeganum.
Skimun í stað útilokunar
Reglugerðin hefur verið gagn-
rýnd fyrir að brennimerkja alla
homma sem hugsanlega bera HIV-
veirunnar sem veldur eyðni. Því er
haldið fram að frekar mætti taka
upp hertari skimunarreglur við
gervifrjóvgun þar sem einblínt væri
hvort sem þeir eru gagn- eða sam
kynhneigðir.
Leland Traiman, framkvæmda-
stjóri gerviffjóvgunarstofu í Kali-
forníu, segir: „Með þessari reglugerð
getur gagnkynhneigður maður sem
leggst óvarinn með HlV-smitaðri
vændiskonu gefið sæði einu ári síðar
á meðan samkynhneigður maður í
trúu og föstu sambandi er útilokað-
ur nema hann hafi gætt skírlífis í
fimm ár.‘‘ Traiman leggur til áður-
nefndar skimunaraðferðir þar sem
sæði er geymt og ekki notað fyrr en
gjafinn heftir verið prófaður aftur að
ákveðnum tíma lolmum.
Gegn lesbíum líka
Það hefur einnig verið gagnrýnt
að reglugerðin komi til með að
skerða möguleika lesbía í sambandi
til að eignast börn. Mörg lesbíupör
vilja heldur samkynhneigðan sæðis-
gjafa þar sem þeir líta frekar vinsam-
legri augum á að báðir foreldrar séu
Með þessarí reglugerð
getur gagnkynhneigð-
ur maður sem leggst
óvarinn með HlV-smit-
aðri vændiskonu gefið
sæði einu ári síðar
af sama kyni. Stór hluti þeirra þekki
hins vegar ekki homma sem þær
gætu leitað til.
Talskona Matvæla- og heilbrigð-
iseftirlits Bandaríkjanna vitnar í
skjöl eftirlitsins þar sem starfsmenn
þess telja þessa reglugerð nauðsyn-
lega þrátt fyrir að samkynhneigðir
menn sem stunda öruggt kynlíf séu
útilokaðir í leiðinni. Verið sé að
vemda sæðisþegana í þessu máli.
Gagnrýnendur benda hins vegar á
að forsenda reglugerðarinnar sé
engin og ekki byggð á neinum vís-
indum heldur fordómum. Máli sínu
til stuðnings benda þeir á að
nýgengi HlV-smits í gagnkyn-
hneigðum sé helsta vandamálið nú
um stundir.
Fordómafull stjórn I stjórnartíð George W.
Bush hefur borið á afturhaldi í kynferðismál-
um i Bandaríkjunum og nýja reglugerðin
kannski samin i samræmi við þá stefnu.
Flestir fylgja
Nokkrar gervifrjóvgunarstofur,
aðallega í Kaliforníu, hafa ákveðið
að sniðganga reglugerðina og nota
þess í stað hertari skimunaraðferðir
þar sem horft er á kynlífshegðun
frekar en kynhneigð. Aðferð sem er
sögð viðurkennd af Matvæla- og
heilbrigðiseftirlitinu. Hins vegar er
talið að meirihluti lækna og frjóvg-
unarstofa eigi eftir að fylgja reglu-
gerðinni. Nú þegar em sumir byrj-
aðir að fylgja henni.
Nýjar uppgötvanir um andrúmsloftið
Fyrrverandi þingmaður Verkamannaflokksins
Hærri hiti með hreinna lofti
Hreinna andrúmsloft
á jörðinni hraðar gróð-
urhúsaáhrifum. Því má
segja að fréttir þess efiús
að andrúmsloft jarðar-
innar sé hreinna nú en
fyrir einum til tveimur
áratugum séu ekki jafn
góðar og sumir kynnu
að halda.
Samdráttur í út-
blæstri ffá iðnaði í
mörgum löndum, auk
útblásturssía í bflum og
reykháfum, virðist hafa
dregið úr hlutfalli
óhreininda í andrúms-
loftinu og gert himininn Óvænt Fall kommúnisma laustan-
gegnsærri. Vísindamenn ver0rí EvróPu er meöal annars talið
segja þetta þýða að hafa minnkað óhreinindiiand-
meira sólskin nái niður mms,oft'nu' W-myndReuten
á yfirborð jarðarinnar. Afleiðingin
gæti orðið sú að auka enn á hitun
andrúmslofts jarð-
ar.
Samkvæmt
rannsóknum hefur
þetta aukna sólskin
mælst á flestum
stöðum í heimin-
um, fyrir utan mik-
ið menguð svæði
eins og Indlandi, og
örfáum stöðum í
Ástralíu, Afríku og
Suður-Ameríku.
Hvað þetta kann að
þýða í framtíðinni
er nokkuð sem vís-
indamenn eru nú
að leggjast yfir. Það
eina sem þeir vita
nú með vissu er að
sót og önnur
óhreinindi í andrúmsloftinu hafa
haft kælandi áhrif hingað til.
Hreinsaður þingmaður
vill brottrekstur Blairs
George Galloway,
sem rekinn var úr
Verkamannaflokknum
árið 2003, náði sér nið-
ur á sínum gamla
flokki í kosningunum í
Bretlandi síðastliðinn
fimmtudag. Galloway
sigraði þá frambjóð-
anda Verkmanna-
flokksins í kjördæmi
sínu Bethnal Green
and Bow.
Galloway var vikið
úr Verkamannaflokkn-
um í október 2003
vegna andstöðu sinnar við íraks-
stríðið og ásakana um að hafa þegið
peninga frá rfkisstjóm Saddams
Hussein, ásakanir sem Galloway var
George Galloway Kosninga
baráttan I kjördæmi hans var
hörð og segist Galloway hafa
fengið morðhótanir.
hreinsaður af. Galloway
bauð einungis fram í
kjördæmi sfnu undir
nafni Virðingarflokksins
(á ensku Respect Party).
Hann hafði aðeins eitt
stefnumál á dagskránni
og það var andstaða við
Íraksstríðið.
Galloway talaði til
Tonys Blair, forsætis-
ráðherra Bredands,
þegar úrslit lágu fyrir.
„Allir þeir sem þú hefur
drepið og allar lygarnar
sem þú hefur fært fram
komu í bakið á þér og það vænleg-
asta í stöðunni fyrir Verkamanna-
flokkinn er að reka þig eigi síðar en á
morgun [föstudaginn].“