Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2005, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 7. MAÍ2005
Helgarblað DV
„Við verðum að muna að litlu englamir em bömin okkar og það
tekur enginn frá okkur. Auðvitað var ég reið en eftir að hafa upplif-
að og séð margt á síðustu 13 árum er ég í rauninni sátt við að stelp-
umar fengu að deyja því ég veit ekki hvaða líf hefði beðið þeirra,"
segir 7\sta Þórisdóttir sem í dag er ófrísk af sínu fimmta bami.
Ásta er komin 20 vikur á leið en
mun leggjast inn á meðgöngudeild
Landspítalans við Hringbraut þann
17. maí þó að hún sé ekki skrifuð inn
fyrr en 18. september. Ásta er með
það sem kallast veikur legháls.
Tveir litlir englar
Ásta og eiginmaður hennar, Njáll
Runólfsson, eignuðust sitt fyrsta
barn 11. september 1989 eftir aðeins
24 vikna meðgöngu þegar Ásta var
rétt um tvítugt. Litla stelpan lifði að-
eins í tvær klukkustundir. „Við náð-
um að skíra hana önnu Björgu og
hún lifði í tvo tíma án tækja þar sem
hún var svo ofboðslega sterk. Hún
var hins vegar svo marin á höfðinu
að læknarnir þorðu ekki að grípa inn
í. Það var ekki settur saumur í leg-
hálsinn fyrr en ég var komin til
Reykjavíkur en belgurinn sprakk
sem varð til þess að barnið var kom-
ið ofan í grindina og marðist þar
sem þar var ekkert legvatn," segir
Ásta og bætir við að þau hafi vitað að
Anna Björg myndi ekki lifa lengi og
að hún hefði dáið í fangi foreldra
sinna.
Tíu mánuðum síðar eignaðist
Ásta aðra stelpu, einnig eftir 24 vik-
ur. Litía stelpan var skírð Hugrún
Ósk og lifði í 40 mínútur. „Það óraði
engan fyrir að þetta myndi endur-
taka sig og það voru engar ráðstaf-
anir gerðar og saumurinn ekki settur
upp fyrr en ég var komin af stað.
Læknunum tókst hins vegar ekki að
stöðva hríðirnar svo þeir urðu að
klippa sauminn og láta mig fæða.
Hugrún fæddist öfug sem olli henni
miklum erfiðleikum en hún lifði í
þennan tíma án hjálpar tækja.“
Ásta segir að það hafi aldrei kom-
ið henni til hugar að gefast upp þrátt
fyrir erfiðleikana sem hún segir ólýs-
anlega. „Þetta var mjög erfitt og það
þýðir ekkert fyrir fólk að segja við
mann að það gangi bara betur næst
eða að maður eigi að gefa þessu
tíma. Þetta er í rauninni fáránlegt en
það er eitthvað sem fær mann ekki
stöðvað. Við héldum jarðarfarir fyrir
báðar stelpumar okkar og þær em
jarðaðar hlið við hhð í kirkjugarðin-
um hér á Blönduósi, nálægt langafa
sínum og langömmu."
Þriðja barnið líkamlega fatlað
Ásta og Njáll ætluðu sér ekki að
gefast upp og þann 26. nóvember
1991 fæddist Rúnar Þór á 27. viku
meðgöngunnar. Saumur var settur
upp á 14. viku en sýking kom fæð-
ingunni af stað. Rúnar Þór er 13 ára í
dag, skýr og skemmtilegur strákur
en mjög likamlega fatíaður. Á þess-
um tíma tók Ásta þátt í rannsókn
sem gerð var á nýju lungnalyfi. At-
hugað var hvort betra væri að gefa
móður eða bami lyfið og Ásta var í
þeim hópi þar sem mæðumar urðu
fyrir valinu sem reymdist betri kostur
og lungu Rúnars urðu sterkari fyrir
vikið. Asta segir að þegar Rúnar Þór
hafi útskrifast af vökudeild Bama-
spítala Hringsins hafi hún ekki vitað
annað en hann væri heilbrigður en
gmnsemdir um annað vöknuðu
fljótíega þegar þau komu heim með
hann, þriggja mánaða gamlan.
„Hann var mjög stífur í líkamanum
en þegar ég leitaði til heilsugæslu-
stöðvarinnar var mér sagt að bíða og
sjá til. Ég yrði að vera þolinmóð og
gefa honum meiri tíma. Svona gekk
þetta þar til hann náði sjö mánaða
aldri og þá gafst ég upp og fór með
hann suður. Fyrir sunnan kom svo í
ljós að hann var með heilalömun."
Rúnar Þór er með cp-fötíun sem
er heilalömun en hann er með
aukna vöðvaspennu í öllum útlim-
um og linan búk en er samt andlega
heill sem Ásta segir að sjálfsögðu
ómetanlegt. „Hann talar, er skýr og
gengur vel í námi og er afar sterkur
einstaklingur," segirÁsta sem er afar
stolt af báðum strákunum sínum.
Ánægð með starfsfólk með-
göngudeildarinnar
í byrjun árs 1997 fæddist Sigmar
Ingi sem er 8 ára í dag. Sigmar Ingi
fæddist á 35. viku og er heilbrigður
strákur en Ásta lá mestalla með-
gönguna á meðgöngudeildinni. Þá
hafði hún kynnst Reyni Tómasi
Geirssyni lækni á kvennasviði en
hann setti upp saum á 14. viku auk
þess að gera fyrirbyggjandi aðgerðir
vegna sýkingarhættu. Ásta vill koma
á framfæri þakklæti sínu til Reynis,
sem hún segir frábæran lækni, og
„Við höfum staðið
saman í gegnum
þetta frá upphafi og
gerum það vonandi
tilenda."
einnig til alls starfsfólksins á með-
göngudeildinni. Hún þurfi að eyða
löngum tímum á deildinni og því sé
notalegt að aðstaðan þar sé góð og
starfsfólkið yndislegt.
Fólk skilur ekki sorgina
Ásta ög Njáll búa á Blönduósi en
hann er jámsmiður hjá Léttitækni
ehf. og hún starfar á skrifstofu
Blönduósbæjar. Ásta veit ekki um
hvort kynið er að ræða núna enda
segir hún það litíu skipta, svo lengi
sem einstaklingurinn lifi og verði
heilbrigður. Það sé númer eitt, tvö og
þrjú. Hún segist ekki vera stressuð
enda megi hún ekki vera neikvæð en
hún er þó hætt að vinna og tekur því
rólega heima. Hún segir áföllin hafa
gert samband þeirra Njáls enn
sterkara fýrir vikið.
„Staðreyndin er sú að annað
hvort gefst fólk upp og skilur eða
erfiðleikamir þjappa því saman. Við
höfum staðið saman í gegnum þetta
frá upphafi og gerum það vonandi til
enda. Ég fann samt að það skildu
ekki allir sorg okkar. Fólk veit líka
ekki hvemig fóstur h'ta út eftir þenn-
an tíma. Ein konan spurði mig hvort
bamið hefði ekki bara verið einhver
köggull en þegar ég sýndi henni
myndina opnaði hún augun fyrir
þessu. Þetta em bara pfnuh'til böm,
þau em fullsköpuð en alls ekki ein-
hverjir óreglulegir kögglar. Við feng-
um samt fullan skilning, allavega frá
okkar nánustu, en maður veit nátt-
úrulega ekki hvað er sagt á bak við
mann.“
Hver fær að lifa og hver ekki?
Ríkissjónvarpið sýndi á dögun-
„Læknunum tókst
hins vegar ekki að
stöðva hríðirnar svo
þeir urðu að klippa
sauminn og láta mig
fæða."
um breska heimildarmynd sem
fjallar um fyrirbura. f myndinni er
þeirri spurningu velt upp hvar
mörkin eigi að hggja. Hvenær eiga
læknar að gera allt til að bjarga
bömunum og hvenær á náttúran að
fá sínu fr amgengt? í sumum löndum
er tekið mið af hversu lengi með-
gangan hefur staðið og geta þá
nokkrir dagar ráðið hvort bam fær
að lifa eða ekki. Ásta segir þetta hins
vegar ekki svona einfalt. Taka þurfi
ákvörðun út frá hverju einstöku
dæmi.
„Meðgöngulengdin skiptir nátt-
úrulega máh og hvemig fæðingin á
sér stað. Að mínu mati er samt ekki
hægt að taka ákvörðun út frá þyngd
eða tíma, það em svo margir þættir
sem spila saman. Því get ég ekki sagt
í dag hvað ég vil láta gera ef barnið