Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2005, Page 33
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 7. MAl2005 33
Lindu Pétursdóttur fyrrver-
andi alheimsfegurðardrottn-
ingu hefur verið líkt við ekki
ómerkari konur en Marilyn
Monroe, Díönu prinsessu og Grace
Kelly enda var hún ekki kosin
kvenna fegurst í heimi hér fyrir ekki
neitt og enn er hún ein fegursta
kona landsins í hugum margra. Þeg-
ar hún kom til heimabæjar síns
Vopnafjarðar til að kynna ævisögu
sína árið 2003 var henni tekið eins
og þjóðhöfðingja og umræður um
forsetaframboð fóru af stað. Linda
sagðist sjálf myndu hugleiða fram-
boðið en bætti við að hún myndi
aldrei bjóða sig fram gegn Ölafi
Ragnari Grímssyni.
Feimnin hvarf í örygginu
Linda fæddist á Húsavík inn í
stóra og samrýmda fjölskyldu en
fluttist með henni til Vopnafjarðar
þegar hún var 10 ára. í bók sinni,
Linda - ljós og skuggar, lýsir Linda
barnæskunni sem áhyggjulausri fyr-
ir utan áhyggjurnar sem hún hafði af
pabba sínum á sjónum.
Eftir að hún flutú til Vopnafjarðar
var Eh'sabet Reynisdóttir sú fyrsta
sem hún kynntist af börnunum á
Vopnafirði. Stelpurnar urðu góðar
vinkonur þrátt fýrir að vera mjög
ólíkar. Linda var feimin í fjölmenni
og skýldi sér bak við Elísabetu sem
var frakkari. Þó segir Elísabet að í
Lindu hafi búið mikill prakkari og
feimnin hafi horfið um leið og henni
fannst hún örugg í nýja umhverfinu
og ekki hafi liðið á löngu áður en
Linda var orðin ein af foringjunum í
bekknum sínum. Stelpurnar unnu
saman eitt sumar í frystihúsi á
Vopnafirði og Eh'sabet segir það
sumar hafa verið ákaflega skemmti-
legt. Einn daginn hafi þær gleymt
sér þar sem þær sátu heima og
drukku og hlustuðu á tónlist. Þær
rönkuðu ekki við sér fyrr en þær áttu
að mæta í vinnu klukkutíma síðar.
Þær voru ekki vinnuhæfar þann
daginn og rifu bara kjaft enda var
pabbi Lindu forstjóri í frystihúsinu
og pabbi Elísabetar útgerðarstjóri.
Linda á tvo bræður, Sigurgeir
sem er elstur og býr á Nýja-Sjálandi
og Sævar sem rekið hefur Baðhúsið
með henni. Eftir barnaskólann hélt
Linda í heimavist í Laugaskóla í
Þingeyjarsýslu og eftir tvö ár þar hélt
hún út til Bandaríkjanna og bjó hjá
fjölskyldu í Minnesota sem skipti-
nemi. Linda heldur ennþá sam-
bandi við fjölskylduna sem hefur
reynst henni vel og hjálpaði hennar
meðal annars að komast í meðferð
þar í landi nokkrum árum síðar.
Draumur sem rættist
Eftir Ameríkuferðina fluttist
Linda til Reykjavíkur. Hún hafði
áhuga á að starfa sem fyrirsæta og
skellti sé.r því á fyrirsætunámskeið
þar sem henni var ráðlegt að skrá sig
í fegurðarsamkeppni. Umsókn
hennar var hafnað í keppninni Ung-
frú Reykjavík en hún komst inn í
Ungfrú Austurland. Draumur Lindu
Þrátt fyrir að út á við
virtist Linda ham-
ingjusöm kraumaði
óhamingjan undir
niðri.Hún héltsér
edrú í nokkuð lang-
an tíma en þung-
lyndið fór sívaxandi.
var að sigra í flokkinum um ljós-
myndafyrirsætu því hún taldi þann
titil geta opnað fyrir sig dyr að
ffekari fýrirsætustörfum. Draumur
Lindu rættist en henni að óvörum
sigraði hún einnig í keppninni og
hélt því suður aftur til undirbúnings
fýrir stóru keppnina.
Barátta milli hundanna
og krýlisins
Kristín Stefánsdóttir förðunar-
fræðingur valdi Lindu sem andlit
snyrtivörumerkisins No Name.
Kristín segir þær tvær hafa náð ótrú-
lega vel saman og að þær hafí verið
góðar vinkonur síðan. f staðinn fýrir
að tala um börn og bleyjur lfkt og
aðar konur, hafi þær talað um bis-
ness. Kristín segir Lindu vera ótrú-
lega góða, blíða og gefandi mann-
eskju, trausta vinkonu með góðan
húmor. Linda sé mikill dýravinur og
Kristín segist ekki vita hvernig mál-
unum verði háttað þegar litla barnið
komi í heiminn. Það verði allavega
mikil barátta á milli litla krýlisins og
dýranna hennar.
Kristfn segir Lindu einnig mikla
heimskonu og að hún blómstri
ávallt best erlendis. Hún ætti í raun-
inni aðeins að eiga landið sem sum-
arbústað en búa úti í hinum stóra
heimi. Varðandi ffamtíðina vonar
Kristín að þær tvær eigi eftir að enda
saman á elliheimili skrafandi um
bisness og ræða hvernig þær ætli að
tækla hinar konumar á deildinni.
Dóttirin varð að almannaeign
Hólmfríður Karlsdóttir hafði
unnið titilinn Miss World þremur
árum áður svo áhugi landsmanna
var þónokkur þegar Linda steig á
svið á Hótel íslandi. Þegar úrslitin
vom kynnt fóm tárin að streyma
niður ldnnar hennar. Linda Péturs-
dóttir var orðin ungfrú ísland og í
leiðinni að almannaeign.
f nóvember hélt Linda af stað til
London þar sem stíft var æft og
þann 17. nóvember var komið að
stóra deginum. í ævisögu sinni seg-
ist Linda litla trú hafa haft á að
standa uppi sem sigurvegari en þeg-
ar hún var valin ungffú Evrópa hafi
hún farið að gera sér grein fýrir að
hún hefði möguleika á að sigra. Þeg-
ar kynnirinn hafði tilkynnt úrslitin
gekk hún um sviðið í sigurvímu.
Faðir hennar Pétur Olgeirsson sagði
síðar í viðtali við DV að það hefði
verið skrítin tilfinning að sjá dóttur
sína vera valda fegurstu konu
heimsins og að það hefði verið ólýs-
anlegt þegar dóttir hans var allt í
einu orðin að almannaeign. Pétur
sagði ágang fjölmiðla hafa verið
mikinn og að álagið á fjölskylduna
hefði einnig verið mikið.
Næsta árið varð Linda að ferðast
um allan heim sem handhafi titils-
ins fegursta kona heims og upplifði
hluti sem hún gat áður aðeins látið
sig dreyma um. Athygli fjölmiðla
margfaldaðist og þegar hún kom
heim eftir árið voru íslendingar
sólgnir í að vita allt um hana. Feg-
urðarsamkeppnirnar höfðu breytt
miklu fýrir hana og þroskað en
Linda gat samt ennþá orðið stressuð
fyrir ffaman ókunnugt fólk en lærði
að setja upp grímu sem blekkti.
Ást í skugga ofbeldis
Árið 1990 fluttu foreldrar Lindu
til Reykjavíkur og bjó Linda hjá þeim
um tíma. Ári seinna var hún beðin
Bisnesskona Þrátt fyrir erfiðleika írekstri Baðhússins íbyrjun gafst Linda aldrei upp enda
vissihún að þetta væri hægt. DV-Mynd Stefán
Fyrirsæta Linda reyndi fyrir sér sem fyrir-
sæta í Japan og kynntist þar Les, stóru ást-
inni í llfi sínu, átti samband þeirra eftir að
verða stormasamt.
um að taka sæti á lista Framsóknar-
flokksins en eftir nokkra umhugsun
afþakkaði hún boðið enda hugurinn
ennþá við fýrirsætustörf og hélt hún
til Japans til að vinna við þau. Þótt
hún hafi fengið þó nokkur verkefhi
úti gekk ferill hennar ekki eins vel og
hún hafði vonað. í Japan kynntist
Linda ástinni sem síðar átti eftir að
sýna skuggahliðar sínar. Les Robert-
son starfaði einnig sem fyrirsæta í
Japan og þau Linda fóru fljótt að
vera saman. Hann flutti með henni
heim til Islands og þau hófu sambúð
sem gekk upp og ofan. Les beitti
Lindu andlegu og líkamlegu ofbeldi
en það var ekki fýrr en fjórum árum
síðar að sambandi þeirra lauk fýrir
fullt og allt.
Baðhúsið vex og dafnar
Á þeim tíma hafði Linda opnað
Baðhúsið sem var gamall draumur
hennar en á sama tíma fór Bakkus
að hafa mikil og neikvæð áhrif á líf
Lindu og það leyndi sér ekki hversu
illa henni leið. Hún barðist í bökkum
við að halda Baðhúsinu opnu og
tókst það með dugnaði og vilja.
Sólrún Birgisdóttir hefur starfað
við hlið Lindu frá opnun Baðhúss-
ins. Hún segir Lindu mjög duglega
þegar hún taki sig til auk þess sem
hún sé hugmyndarík og opin fyrir
nýjungum. Rekstur Baðhússins hafi
ekki gengið vel til að byrja með og
Sólrún segir þær hafa farið í gegnum
mörg erfið tímabil. Þegar Baðhúsið
flutti hins vegar í Brautarholtið hafi
það farið að vaxa mjög ört. Sólrún
segir Lindu aldrei hafa látið bilbug á
sér finna, hún hafi verið ákveðin í að
'láta þetta ganga en til að byrja með
voru starfsmennirnir aðeins 4-5 en í
dag telji þeir í heildina 170 til 200
Erfiðleikarnir ná yfirhöndina
Linda kynntist indverska auðkýf-
ingnum VJ er hún tók sæti dómara í
keppninni Miss World 1996. VJ bauð
Lindu með sér á framandi staði úti
um allan heim og í bók hennar kem-
ur fram að hann hafi komið fram við
hana eins og prinsessu. Þrátt fýrir að
út á við virtist Linda hamingjusöm
kraumaði óhamingjan undir niðri.
Hún hélt sér edrú í nokkuð langan
tíma en þunglyndið fór sívaxandi. í
bókinni kemur fram að Linda hafi
tekið meðvitaða ákvörðun um að
byrja aftur að drekka um aldamótin.
Fyrirkomulagið hentaði henni vel í
fyrstu en ekki leið á löngu áður en
gamlir taktar fóru að gera vart við
sig. Árið 2001 voru þjáningar hennar
orðnar svo miklar að hún spáði
alvarlega í að enda líf sitt. Þrátt fyrir
erfiðleika í einkalífinu gekk rekstur
Baðhússins vel og var Linda einnig í
forsvari fýrir Félag kvenna í atvinnu-
rekstri.
Búferlaflutningar á litla eyju
Árið 2001 kynntist Linda Fjölni
Þorgeirssyni sem þá var þekktur í
skemmtanalífi borgarinnar sem og
fyrir frægt ástarsamband sitt við
Mel B úr heimsfrægu hljómsveitinni
Spice Girls. í bók Lindu kemur ffarn
að andleg líðan hennar hafi farið sí-
versnandi og hún hafi reynt að fyrir-
fara sér þegar verst var. Nokkru síð-
ar skráði hún sig í áfengismeðferð á
Hazelden-stofnuninni í Bandaríkj-
unum en það var hennar þriðja
meðferð.
Eftir að hún útskrifaðist þaðan
flutti hún til Vancouver í Kanada
þar sem hún kom sér fyrir á lítilli og
rólegri eyju fjarri skarkala stórborg-
anna. Hún er ennþá sami dýravin-
urinn og fer ekkert án þess að taka
hundana sína, Sunnu og Mána,
með. Um svipað leyti og bók henn-
ar kom út tók hún að sér að vera
talsmaður fyrir hjálparsíma Rauða
krossins en síminn, 1717, er neyðar-
lína fyrir þá sem hugsa um að svipta
sig lífi. Með því vildi Linda geta
hjálpað öðrum sem upplifðu svipað
svartnætti og hún þekkti af eigin
raun.
Von á fyrsta barni
Baðhúsið hefur breyst í fjórar lík-
amsræktarstöðvar og er fjölskyldu-
fyrirtæki. Sævar bróðir hennar hef-
ur tekið við starfi framkvæmda-
stjóra en hann og Sigurgeir bróðir
þeirra eru stærstu hluthafarnir. í
dag heitir fyrirtækið Iceland Spa &
Fitness en Linda hefur séð um öll
auglýsinga- og mcurkaðsmál fýrir-
tækisins.
Linda er nú stödd hér á landi þar
sem hún á von á sínu fýrsta bami í
ágúst. Hún hefur menntað sig í
Kanada og er grafi'skur hönnuður
auk þess sem hún stefhir á fram-
haldsnám og meistaragráðu í stjórn-
un auglýsinga. Bamsfaðir hennar er
kanadískur læknir sem Linda hefur
h'tið viljað fjíilla um í fjölmiðlum.
Heimskona sem hræðist
ekkert
Þorvaldur Þorsteinsson lista-
maður hefur verið vinur Lindu síð-
an árið 1998 og hann segir hana
hafa haft mikil og jákvæð áhrif á sig.
Hún hafi til dæmis vakið upp hjá
honum svo jákvæðar kenndir að
áður en hann vissi af hafi bókin Ég
heiti Blíðfinnur en þú mátt kalla
mig Bóbó verið komin upp í hend-
urnar á honum. Því segist hann eiga
henni ævinlega mikið að gjalda og
þó að þau hittist sjaldan sé Linda
alltaf sönn í hans huga, sama hvað á
gangi í lífi þeirra beggja. Þorvaldur
segir það lýsa karakter hennar afar
vel að þegar hann fékk hana til sam-
starfs við sýningu í Nýlistasafninu
hafi Lindu tekist að breytast á svip-
stundu í myndlistarmanninn Lindu
P. Hún hafi ekki látið athugasemdir
um hvort hún hefði þekkingu á mál-
inu trufla sig. Þorvaldur segir þetta
dæmi lýsa henni vel. Reynslan sem
hún hafi fengið af fegurðarsam-
keppnum hafi gefið henni ákveðið
sjálfstraust og tilfinningu fýrir þeim
sannleika að við séum sjálf ábyrg
fýrir þeim heimi sem við sköpum
okkur og að Linda sé ekki hrædd við
að prófa nýja hluti.
Þorvaldur tekur einnig undir orð
Kristínar Stefánsdóttur um að Linda
sé heimskona og að það hafi marg-
sinnis sýnt sig að hún njóti sín betur
í stærra samhengi. Hann segir þó
ekkert því til fyrirstöðu að hún búi
hér á landi, allavega ekki þegar sam-
félagið verði orðið stærra í sniðum
og hugsun því þá förum við íslend-
ingar smám saman að taka Lindu af
þeirri stærðargráðu sem hún á skil-
ið.
Heimild: Linda - Ljós og skuggar.