Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2005, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 7. MAl2005
Helgarblaö DV
íslenskn sjnn-
wpssHörnnranp,
omnar í snmartm
Nú þegar sumarið er komið
leggjast margir af íslensku
sjónvarpsþáttunum í dvala.
Stjörnurnar sem við höfum
fylgst með á köldum vetrarkvöld-
um munu því hverfa af skjánum
og birtast ekki aftur fyrr en sól tek-
ur að lækka á ný. DV heyrði í
nokkrum af stærstu stjörnunum og
spurði hvernig þær ætluðu að eyða
sumarfríinu.
Til Afríku í sumar
„Þetta veröur ótrúlega spennandi sumar,“
segir Sigríöur Arnardóttir þáttarstjórnandi.
Þátturinn Fólk með Sirrý fer í sumarfrí aÖ
íjórum þáttum liðnum og þá fer Sirrý sjálf
einnig í frí. Hún mun þó fara í eina utan-
landsferð í sumar á vegum þáttarins, en hún
ætlar til Kenía fyrir Bamahjálp Sameinuðu
þjóðanna til aö taka upp efni fyrir þáttinn.
„Þetta er rosalega spennandi verkefni. Við
ætlum að skoða aðstæöur barna þarna úti og
athuga hvað við íslendingar getum gert til að
hjálpa. Við leggjum af stað fljótlega eftir síð-
asta þáttinn og ég er afar spennt, enda hef
ég aldrei komið til Afrfku," segir Sirrý sem
mun auk þess fara í fjölskyldu- og fótbolta-
ferð til Spánar. „Viö förum með syni okkar
og góðum hópi KR-inga í keppnisferð til
Spánar og ætlum að nota tækifærið og ferð-
ast um landið. Sfðan ætlum við auðvitað að
ferðast innanlands. Uppáhaldsstaðurinn
minn er Snæfellsnesið, en þangað á ég ætt-
ir að rekja og ætla að vetja einhverjum tíma
þar. í sumar æda ég einnig að halda upp á
stórafrnæli mitt og æda að verja afinælis-
deginum á einhveijum spennandi stað úti í
heimi. Ég hef því margt á prjónunum og
hlakka mjög til. Eina vandamálið er að
sumarið er alltof stutt, við verðum þvf að
byrja strax enda er sumarið komið."
Sirrý ætíar að taka á alvarlegri málefnum
sumarfrísins í þættínum sínum næsta mið-
vikudag. Hún segir að sumarleyfið geti
verið mikill álagstími fýrir fjölskyldur.
„Væntingamar eru svo miklar og því er
mikið á sumarleyfið lagt. Allt á að.vera svo
æðislegt en samkvæmt dönskum rann-
sóknum finnst fólki meira krefjandi að vera
í fríi með fjölskyldunni en vera í vinnunrú.
Ég hef upplifað þetta sjálf en er farin að taka
öðruvísi á þessu núna. Það er mikilvægt að
reyna ekki að hafa allt æðislegt í örfáar vik-
ur heldur reyna að fá eitthvað sumar á
hverjum einasta degi meö því að fá ein-
hverja tilbreytingu og gera eitthvað úti við
með fjölskyldunni í staðinn fyrir að húka
inni og bfða eftir fríinu."
Ekki mikið fyrir að
gista í tjaldi
„Ég ætla að reyna að gera ekki
neitt, en eftir svona strembinn
vetur er það mottó hjá mér að
reyna að vera ekki með mikið af
plönum, en það gengur sjaldnast
eftir þar scm ég er svo ofvirk að það
hálfa væri nóg,“ segir Valgerður
Matthíasdóttir sjónvarpskona.
Þátturinn Innlit/Útlit mun fara í
sumarfrf í lok mánaðarins og sjálf
er Vala nú þegar komin í frí. Hún
segist ætía að nota tímann til að
iilaða batteríin og líst vel á að
ferðast innanlands. „Maður gæti
náttúrlega tekiö nettan hring án
þess að vera á miklum hraða -
dotlið inn í yndisleg þorp og virki-
lega slakað á. Það hljómar mjög
vel," segir Vala Matt en bætir við að
hún fari líklega til útlanda. „Ég
hugsa að ég verði með annan fót-
inn hjá dætrum mínum, en þær
búa í Bretlandi og Damnörku með
fjölskyldum sínum. Mér finnst
mjög líklegt að ég fari og geri ekki
neitt með þcim. Annars finnst mér
yndislegt að feröast innanlands og
ég hef farið margar styttri ferðir
þótt ég hafi ekki fariö hringinn í
mörg ár. Ég er þó ekki hrifin af
tjöldum, vil frekar vera í sumarbú-
stað eða á sætu hóteli," segir Vala
og bætir við aö hún muni koma
fersk á skjáinn í haust. „Ég er eins
og Marteinn Mosdal. Ég kem ailtaf
aftur."
Vala Matt „Maöur
gæti náttúrlega tekiö
nettan hring án þess
aö vera á miklum
hraða - dottið inn I
yndisleg þorp og virk
lega slakaö á.“