Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2005, Qupperneq 39
Ö^£5íS< srv
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 7. MAÍ2005 39
í sumarskapi þrátt fyrir kulda
„Þótt þátturinn Silur Egils sé kominn í sumarfrí og komi ekki
afturfyrr en íhaust er ég ekki í sumarfríi allan tímann. Það er ekki
svo gott,“ segir Egill Helgason sjónvarpsmaður. Egill tók for-
skot á sæluna í síöustu viíai og hann skellti sér til Slóveníu
og gekk á fjöll. í sumar ætlar hann að auki að halda í þá
hefð sína að heimsækja Grikldand, enda að læra grísku
á fullu. „Ég held að þetta sé níunda skiptið sem ég
heimsæki grísku eyjamar og í sumar ætla ég að
dvelja þar langdvölum og ef til vill fara yfir til
Tyrklands. Grikklandsferðin snýst samt ekki
bara um fií heldur ætía ég að halda áfram með
námið ogerkominnmeð kennara," segirEgill
en vlll ekki viðurkenna að hann sé altalandi á
grísku. „Ég hef mikinn vilja, enda hef ég
mikla ást á landi og þjóð og gætí þess vegna
hugsað mér að setjast þama að og rækta
tengslin enn betur. Grikldr eru skemmti-
legir, með lunkinn húmor og ekki mjög
uppáþrengjandi."
Egíll segist einnig vera duglegur aö
ferðast um ísland, en Vestfirðir og Aust-
firðir eru í sérstöku uppáhaldi hjá honum.
„Margir halda að égyfirgefi aldrei 101 en ég
hef komið víða og í sumar langar mig að
fára upp á hálendið í gönguferöir. Ég er
meira fýrir þægindin og gætí flokkast sem
flottræfill, ég er veikur fyrir góöum hótelum en
ekki jafn veikur fyrir tjöldum enda kláraði ég þá
deild þegar ég var yngri." Egill segist vera kominn
í sumarskap þrátt fyrir kulda. „Ég fór með strákinn
minn út að hjóla og þá er bara að nota húfu og vett
linga þannig að ég er bara glaður og hress."
Egill Helgason „Ég er
I meira fyrir þægindin og
I gæti flokkast sem fíott-
ræfill, ég er veikur fyrir
góðum hótelum en ekki
\jafn veikur fyrir tjöldum
I enda kláraði ég þá deild
þegarég varyngri’
Veiðar, smíðar og ísát
„Reunion"á Raufarhöfn
Ég ætla að vinna í félagsmiðstöð f sumar," segir Kristján Ingi
Gunnarsson fyrrverandi þáttarstjómandi Ópsins. Kristján var
að koma frá Englandi þar sem hann skellti sér á leik Liverpool
og Chelsea. „Þessi ferö var mögnuð og leikurinn sjálfur enn
betri," segir Kristján, en Iiverpool er hans liö. „Síðan ætía ég
með nokkrum félögum eithvert til útlanda. Einnig mun ég
fara meö kærustunni tíl Spánar í sumarhús í boði foreldra
hennar." Kristján ætlar líka að skella sér á „reunion" á Rauf-
arhöfa fyrstu helgina í júní. „Mamma er ættuö frá Raufarhöfn
og ég bjó þar í nokkur ár. Allir sem em fæddir frá 1970-1980
ætía að hittast þama enda hefur allt þetta fólk flutt í burtu. Það
veröur bara hressandi," segir Kristján og bætir við að auk þess
ætíi hann að taka reghtíega þátt í starfsemi leynifélagsins Blue
Team en vill ekki útskýra þaö fiekar. „Ég er duglegur að ferðast
um landið og fór hringveginn þarsíöasta sumar og til Akureyrar
um daginn. Eg reyni að sofa sem mest f tjaldi enda er fátt sem
jafhast á við að vakna f tjaldi f góöu veðri úti á landi, það
er algjör snilld."
Þátturinn Ópið er kominn í sumarfrí og
Kristján veit eldd hvort hann mun birtast á
skjánum á nýjan leik. „Þetta snýst allt um pen-
inga og ég veit ekki hvort þelr em til. Ef mér
býðst að vera með aftur þá mun ég líklega
taka þátt, enda er þetta mjög gaman og
fírin 8kóli. Gleðilegt sumar!"
Kristján í Ópinu „Ég reyni
aðsofa sem mestl tjaldi
endaerfátt sem jafnast á
við það að vakna i tjaldi f
góðu veðri úti á landi, það
er algjör snilld.“ ■
„Ég ætía bara að eyða sumrinu einhvern
veginn," segir Örn Árnason leikari. „Það verð-
ur náttúrlega allt þetta venjulega. Ég mun
ferðast innanlands og fara eitthvert til
útíanda, einnig verður smíðað í sumarbú-
staðnum og síðan ætla ég að fá mér ís. Þetta
verður því mjög hefðbundið en á sumrin er
ekki mikið um launaða vinnu fyrir okkur
leikarana," segir örn og bætir við að hann ætíi
einnig að skreppa í Gufudalsá fyrstu helgina í
ágúst til að veiða á flugu ásamt syni sínum og
vinum. Hann segir þá feðga hafa farið þangað
í fyrra og komið heim með 80 fiska. „Núna
stefni ég að því að koma heim með 100 fiska,
það verður náttúrlega að vera aukning á milli
ára."
Örn hefur ekki ákveðið hvort hann ætli til
Evrópu eða Flórída. „í Flórída er helvíti heitt
eins og er, og ég meina það í öllum skilningi.
Ég hef líka mjög gaman af því að ferðast inn-
anlands en ég á fellihýsi og það er mjög gam-
an að ferðast á þann hátt. Ég hef verið að
smíða sumarbústaðinn minn síðastliðin ár og
er enn að enda tek ég þessu mjög rólega og
kannski of rólega, eða það segir konan mín
allavega. En þetta kemur ailt.“
Örn segist vera fyrir löngu kominn í sumar-
skap en Spaugstofan fór í sumarfrí um síðustu
helgi og byrjar ekki aftur fyrr en í september.
„Um leið og sólin fór að gleonji sig komst ég í
?. Það þarf ekki meira því við erum
myrkrapeð, en um leið og só
lt JPMl?
*
Örn Árnason „Nurta
stefni ég að því að
koma heim með 100
fiska, það verður náttúr
lega að vera aukning á
milli ára.“