Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2005, Side 40
40 LAUGARDAGUR 7. MAl2005
Helgarblað DV
I4árastúlka
myrti pabba
sbin
Unglingsstúlka sem segist hafa skotið
föður sinn til að hjálpa honum að
fremja sjálfsmorð hefur verið dæmd
fyrir annars stigs morð. Margaret
Rich, 14 ára, var
handtekin í mars
en lík pabba hennar fannst
á heimili þeirra. Garrett Rich
hafði verið skotinn i höfuðið
og brjóstið. Saksóknarinn
heldur þvf fram að Margaret hafi
viljað fá athygli og þvf hafi hún myrt
föður sinn, en Margaret segist hafa
skotið hann í brjóstið til að lina þján-
ingar hans þar sem hann hafi sjálfur
þegar verið búinn að skjóta sig f
höfuðið.
Fangi
ræðst á
Ian
Barnamorðinginn og tugthús-
limurinn lan Huntley varð fyrir
árás á dögunum er hann ætlaði í
sturtu í.Hinum hataða lan, sem
myrti tvær ungar stúlkur, tókst
að berja frá sér og braut meðal
annars nef árásarmannsins.
„Það var blóð út um allt," sagði
lan við fangaverði. lan ætlaði að
fara f sturtu f fangelsinu þegar
maður, sem hafði falið sig í
sturtunum, réðst á hann en lan
er afar hataður innan sem utan
fangelsismúranna.
lOára
myrtl
pabba
sbm
Tfu ára bandarískur strákur
hefur verið ákærður fyrir að
myrða pabba sinn. Dreng-
num vera haldíð föngnum
til 23 ára aldurs en nafni
hans er haldið leyndu.
Drengurinn skaut pabba
sinna f hnakkann en móðir
hans og systkin flýðu í yfir
í næsta hús. Eftir að hafa
myrt föður sinn gekk
drengurinn niður göt-
una með eitt skot f
byssunni og bankaði
hjá ókunnugri konu.
„Hjálpið mér. Þeir eru á
eftir mér og munu
flengja mig," sagði
drengurinn.
Verknaður stráksins
kom öllum á óvart
þar sem hann kem-
ur frá góðri fjöl-
skyldu og gekk vel
fskóla.
Allan Menzies var með vampírur á heilanum og myrti besta vin sinn á hrottafeng-
inn hátt svo hann gæti sjálfur breyst í vampíru. Er hann stóð frammi fyrir lífstíð-
arfangelsi vissi hann að hann yrði að sannfæra kviðdóminn um að hann væri geð-
veikur. Dómarinn var hins vegar sannfærður um að Menzies væri það ekki, heldur
væri hann einfaldlega vondur maður.
Myrd on át besta vin sinn
Sumir morðingjar myrða sökum
græðgi, aðrir vegna afbrýðisemi. Auk
þess myrða margir til að ná ffam
hefndum. En Allan Menzies myrti
besta vin sinn að ástæðulausu.
Menzies var 21 árs og atvinnulaus.
Hann hafði áður komist í kast við lög-
in, þegar hann var 14 ára stakk hann
13 ára skólafélaga sinn. Menzies var
einfari og sagðist hafa verið að he&ia
sín á stráknum sem hafði lagt hann í
einelti. Fyrir þennan glæp var honum
komið fýrir á unglingaheimili. Eftir
að hann slapp af unglingaheimilinu
fór hann heim til Fauldhouse í East
Lothian sökkti sér niður í ímyndaðan
heim sem var gegnsósa af ofbeldi og
blóði.
Með vampírur á heilanum
Einn af fáum vinum hans var
Thomas McKendrick, en þeir höfðu
þekkst síðan þeir voru mjög ungir.
Thomas var rólegur drengur og tók
Menzies eins og hann var á meðan
aðrir litu á hann sem furðufugl. Árið
2002 breyttist hegðun Menzies.
Hann dró sig sífellt meira og meira til
baka og eyddi öllum stundum inni f
dimmu herbergi sínu. Hann átti fullt
af bókum, tölvuleikjum og bíómynd-
um sem fjölluðu um fjöldamorð-
ingja, nasista og einkum og sér í lagi
vampírur.
Sakamál
Faðir hans heyrði hann oft tala við
sjálfan sig og jafiivel öskra. Hann
hafði búið til ímyndaðan he&n þar
sem hann naut þess að sjá annað fólk
pyntað. Samræður hans snemst
meira og meiia um blóð og vampírur
og hann hafði takmarkaðan áhuga á
því sem gerðist utan herbergis síns
þar til hann sá frétt um morðingja
sem hafði drukkið blóð fómarlambs
síns. „Þetta morð hefði verið tilgangs-
laust ef morðinginn hefði ekki drukk-
ið blóðið," sagði hann við pabba sinn.
f ágúst 2002 fékk Menzies lánaða
spóluna Queen of the Damned, en í
þeirri kvikmynd leikur söngkonan
Aaliyah persónuna Akasha og fjallar
myndin um vampírur og ofbeldi. í
kvikmyndinni er mikið um mann-
fórrnr og mannát og Menzies varð
alveg dolfallinn. Hann horfði á
myndina aftur og aftur og þegar spól-
an eyðilagðist keyptí hann hana á
DVD-diskinn og horfði á myndina
sex til sjö sinnum á hverjum degi.
Hann hafði þegar horft á myndina
þann 11. desember þegar Thomas
McKendrick kom til hans.
Át besta vin sinn
Menzies var í eldhúsinu að taka til
uxahjarta fyrir merðina sína sem
hann hélt sem gæludýr þegar Thom-
as kom til hans. Síðar áttí Menzies
eftir að halda því fram að hann ætí
sjálfur hrá hjörtun til að undirbúa sig
fyrir mannát. Líkt og vanalega snerist
umræðuefnið um vampírur. „Þú trú-
Thomas McKendrick Thomas var rólegur drengur sem virtist taka Allan Menzies Menzies var einfari sem var upptekin afvampirum og
Menzies eins oghannvará meöan aörir iitu áhannsem furöufugl. blóöi. Hann myrti besta vin sinn, át heila hansog drakk blóö hans.
ir þessu bulli ekki í alvöru?" spurði
Thomas og hló þegar Menzies fór að
tala um tryggð sína við Akasha. En
þegar Thomas gerði lítíð úr Akasha
var Menzies nóg boðið. Hann brá
eldhúshm'f á loft og stakk vin sinn í
hálsinn með honum. Thomas öskr-
aði og ætlaði að flýja en Menzes eltí
hann með hamar í hendi. Eftir nokk-
ur högg í höfuðið var hauskúpa
Thomas mölbrotin. Síðan stakk
Menzes h'fvana líkama vinar síns í
andhtíð, höfuðið og brjóstíð, meira
en 42 sinnum.
Menzies borðaði hluta af líkinu og
drakk tvo bolla af blóði. Þegar hann
drakk brostí hann framan í spegil til
að athuga hvort tennur hans væru
blóði drifnar. Næst settí hann líkið
Aaliyah Söngkona lékAkasha. ÞegarThom-
as niöurlægöi hana brjálaðist Menzies.
ofan í ruslatunnu og gróf það í
grunnri gröf í skógi í nágrenninu.
Fötum Thomasar hentí hann í rushð
og þreif síðan blóðið af gólfinu án
þess að gera sér grein fyrir hversu
mikið lak á milU bjálkanna.
D^ginn eftir bað hann skólafélaga
sinn um að kalla sig Vamp. Félagamir
voru saman í nokkra daga og tahð
barst fljótlega að hvarfi Thomasar.
„Við munum aldrei sjá hann aftur,"
sagði Menzies. „Ég kálaði honum."
Félaginn var viss um að Menzies væri
að grínast. Hegðun Menzies benti
ekki til þess að hann hefði framið
eitthvert ódæðisverk. Hann virtíst
meira að segja hamingjusamur þrátt
fyrir að fá óútskýranleg reiðiköst að
tilefiuslausu.
„Þegarhann drakk
brosti hann framan í
spegil til að athuga
hvort tennur hans
væru blóði drifnar."
Lögreglan kemst á sporið
Þann 4. janúar fann lögreglan
föt Thomasar. Þeir héldu beint til
Menzies. Hann viðurkenndi að
Thomas hefði verið heima hjá sér
daginn sem hann hvarf en sagði að
hann hefði verið á lífi þegar hann yf-
irgaf húsið. „Ég gætí aldrei meitt
hann og við töluðum saman tvisvar
eftir að hann fór frá mér.“ Sex vikum
síðar fannst líkið. Lögreglan vissi að
hún væri að þrengja að Menzies sem
lá á sjúkrahúsi vegna misheppnaðar
sjálfsvígstilraunar. „Ég drap hann
því ég vildi hefna mín á Guði,“ sagði
Menzies á sjúkrahúsinu. „Ég drakk
blóð hans og át heila hans því Guð
hefur ekki verið mér hliðhollur.
Thomas átti ekki að gera lítið úr ást-
inni minni. Ég gat ekki hætt að
hugsa um vampírur og hugsaði sem
svo að ef Guð væri virkilega til þá
ætlaði ég að fórna þessu lífi fýrir
næsta líf.“
Þegar lögreglan leitaði í herbergi
hans fundust handskrifaðir miðar.
„Ég hef ákveðið að gerast vampfra,"
stóð á einum þeirra. „Meistarinn er
kominn og hefur lofað að gera mig
eilífan," stóð á öðrum Sá miði sem
vaktí mesta athygli lögreglunnar var:
„Blóðið er lífið. Ég hef drukkið blóðið
og það verður mitt. Ég hef séð hryll-
inginn."
Glæpurinn mun seint
gleymast
A leiðinni í réttarsalinn þann 22.
janúar spurði lögreglumaðurinn
hvemig Menzies héldi að útkoman
yrði. „Ég verð lokaður inni næstu 20
árin fyrir að myrða hann, en ég er
með sálina hans." Menzies vissi að
hans eini möguleiki væri að sannfæra
kviðdóminn að hann væri geðveikur
og hann fór því að senda sjáifum sér
bréf. „Kæra Akasha. Allt gengur sam-
kvæmt áætlun. Ég mun drepa fýrir
þig aftur fljótlega. Þetta mann-
eskjumar em dýr í okkar augum, fóð-
ur handa okkur." Menzies var fullviss
um að hann yrði úrskurðaður of geð-
veikur til að hljóta dóm. En kviðdóm-
ur var ósammála. í þeirra augum var
Menzies ekki geðveikur, aðeins
vondur.
Menzies lýstí þvi hvemig Akasha
hefði birst honum og skipað honum
að myrða Thomas. „Eg vissi að ég yrði
að drepa einhvem, annars yrði ég ekki
að vampíru," sagði hann og bætti við
að harm tryði því að væri hann
vampíra. Geðlæknar töldu hins vegar
að Menzies væri ekki geðveikur.
„Hann gætí verið að notfæra sér sjúk-
dóminn til að sleppa við dóm, eða
hann sé að notfæra sér sjúkdóminn
svo hann getí lifað með sjálfum sér
eftir það sem hann hefur gert." Lög-
regla vitnaði um að á sjúkrahúsinu
hefði saga Menzies verið önnur, þá
hefði hann aldrei minnst á vampírur.
Dómurinn tók sér 90 mínútur til
að útskurða að Menzies væri sekur.
Dómarinn var viss um að kviðdóm-
ur hefði komist að réttri niðurstöðu.
Hann sagði Menzies að hann væri
illur og hættulegur glæpamaður
sem væri sekur um að myrða vin
sinn og dæmdi hann síðan í lífstíð-
arfangelsi.
Kannski öðlaðist Allan Menzies
einhverskonar eilíft líf. Glæpur hans
mun að minnsta kostí seint gleymast.
í dag er hann einn mest hataðastí
fanginn í Soughton Jail.
Bandarísk móöir myrti börnin sín tvö þegar fimm ár voru síðan hún missti þriðja barnið í eldsvoða.
Stakk bömin sín yfir 200 sinnum
Móðir í Bandaríkjunum hefur verið
ákærð fyrir að stínga níu ára son sinn
og þriggja ára dóttur meira en 200 sinn-
um á heimili þeirra f útjarðri Chicago.
Tonya Vasilev, 34 ára, kom fram fyrir
dómara í síðustu viku og svaraði spurn-
ingum títrandi röddu. Faðir barnanna,
Nikolai Vasilev, kom að líkum bama
sinna á miðvikudaginn. Vasilev kom
fyrst auga á Christian þar sem hann lá á
eldhúsgólfinu. Nikolai tók hann upp og
hringdi í neyðarlínuna. Stúlkan, Grace,
fannst efst í stigaganginum en móðir
hennar sat við hlið líksins með hníf í
hendi. „Ég hef aldrei séð annan eins
hrylling," sagði lögreglumaður sem
kom á vettvang. Krufitíng leiddi í ljós að
börnin höfðu barist fyrir lífi sínu.
Morðin áttu sér stað fimm árum eftir
að hjónin misstu þriggja mánaða barn
sitt í eldsvoða. Lögreglan veit ekki
hvemig eldurinn kviknaði en segist
aldrei hafa talið að um íkveikju væri að
ræða.
Voðaverk Lögreglumaðurinn
sem mætti á vettvang segist aidrei
hafa séð annan eins hrylling.