Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2005, Side 55
A.
DV Menning
LAUGARDAGUR 7. MAl2005 55
Tilfinningatorgið opið í dag
Ein af þeim hugmyndum sem ffam komu í hug-
myndaflæðinu sem Landsbankinn efndi til í fyrra
var hugmynd Elísabetar Kristínar Jökulsdóttur um
tilfinningatorg fyrir borgarbúa þar sem menn gætu
fengið útrás fyrir sinar bældu kenndir og opnað sig.
Elísabet er kunn fyrir að koma sínum hugmyndum
í verk og hefur efnt tii samkomuhalds á foma gilda-
skálanum í Austurstræti, Hressó.
í dag verður hún enn með opið hús á Hressó og
hefst samkoman kl. 14 og stendur allt til kl. 17. Er
gestum boðið í hinn sögufræga garð að baki skálan-
um þar sem skjól verður hvað mest í Kvosinni.
Verður því hægt að bera tilfinningar sínar á torg
undir berum himni ef veður leyfir
Að þessu sinni verða óvenjulegar uppákomur á
Tilfinningatorginu. Kl. 14 talar Sigurður Bárðarson,
meistari í Avatar-fræðum, um viðhorf og tilfinning-
ar, en kl. 15 selur Steinunn Helgadóttir myndlistar-
maður tilfinningar og em þær á góðu verði þótt
hreinar tilfinningar séu dýrari og seldar sér.
Veitingasalan er að venju opin og eru gestir vel-
komnir í hinar landskunnu hnallþómsneiðar með
kaffi og öðrum veigum. í dag er langur laugardagur,
þá getur vérið upplagt að versla og bera svo á torgið
allar þær tilfinningar sem fylgja því, segir gestgjaf-
inn Elísabet Jökulsdóttir.
.
Þjóðleikhúsiö sýnir í fangelsi
Sýning um mormónabyggðir íslendinga í Utah
Fyrirheitna landið Zion
Grjótharðir
á Hrauninu
Sýningum lauk á uppstigningardagskvöld á Grjót-
hörðum, leilaiti Hávars Sigurjónssonar sem hann setti
sjáifur á svið og leikið hefur verið þar undanfarnar vikur
við ágæta aðsókn og fi'nar undirtektir. Samt sem áður var
sýningum hætt, þó að einhverjar hugmyndir muni vera
uppi í leikhúsinu að taka sýninguna upp í haust og fara
með hana í styttri leikferðir.
Leikhópurinn hafði gert sér sér mat úr heimsókn á
Lida-Hraun í undirbúningi fyrir sviðseminguna og það-
an mun sú hugmynd hafa komið fram að leikarar Þjóð-
leikhússins sæktu Litla-Hraun heim og settu verkið þar á
svið.
Nú mun þessi hugmynd vera komin á framkvæmda-
stigið. Verið er að taka niður leikmyndina á Smíðaverk-
stæðinu og verður hún næst sett upp á Litla-Hrauni í
íþróttasal sem þar er. Sagði Hávar Sigurjónsson, leikstjóri
og höfundur verksins, að stefnt væri að sýningum þar fyr-
ir fangana í lok maí. íþróttasalurinn væri þénugt fyrir
þessa sviðsemingu og myndi sviðsetningin halda sér að
mestu óbreytt.
Leikstarfsemi í fangelsum þekkist mjög víða og er tal-
in eðlilegur hluti af starfsemi smærri leikflokka sem eiga
þess kost að fara með lidum tækjabúnaði á minni svið.
Þar hefur líka leikur verið nýttur sem tæki til dægrastytt-
ingar og þjálfunar þeim sem gerast brotíegir við lög.
En allt verður einu sinni fyrst og því ber að fagna að
leiksýningar skuli vera í boði fyrir þá Litía-Hraunsmenn.
Sýning helguð landnámi íslend-
inga í byggðum mormóna í Utah
verður opnuð í Þjóðmenningar-
húsi í dag við hátíðlega viðhöfir.
Hún er upprunnin íVesturfarasetr-
inu á Hofsósi en nú gefst fleirum
tækifæri að sjá hana en þeim sem
fóru um Hofsós meðan hún stóð
uppi þar.
Við opnunina tala mörg fyrir-
menni í dag og ávarpar Davíð
Oddsson utanríkisráðherra gesti og
opnar sýninguna.
Um þessar mundir er hálf önn-
ur öld liðin frá því að fyrstu íslend-
ingarnir settust að í Vesturheimi.
Þeir höfðu látið skírast til Kirkju
Jesús Krists hinna sfðari daga
heilögu. Fóru þeir vestur um haf og
var ferð þeirra mörkuð miklum
hörmungum, bæði seint og
snemma en henni hefur verið gerð
skil að hluta í Paradísarheimt Hall-
dórs Laxness.
Sýningin í Þjóðmenningarhúsi
er kölluð Fyrirheitna landið. Henni
er ekki síst ætíað að varpa ljósi á trú
monnónanna og rekur ferð Þórðar
Diðrikssonar um haf og land og
gefur innsýn í það samfélag sem fs-
lendingamir byggðu og urðu hluti
af ytra. Áfangastaðurinn var hvorki
Kanada né Norðurríki Bandaríkj-
anna, heldur ákveðinn staður sem
útnefndur hafði verið fyrirheitna
landið, Zion, í trúarlegri merkingu
þess hugtaks. Mormónatrúin bauð
aö hið nýja Zion væri staðsett í
Utah-ríki í vestanverðum Banda-
ríkjunum og þangað fluttust þeir
sem tóku við trúnni.
Sýningin var fyrst sett upp f
Vesturfarasetrinu á Hofsósi árið
2000 en er nú aðlöguð sýningarsöl-
um Þjóðmenningarhússins. Efni
sýningarinnar var unnið í sam-
vinnu Vesturfarasetursins og ís-
lendingafélagsins í Utah. Reykja-
víkurborg flutti sýninguna til
Reykjavíkur og styrkir borgin jafn-
framt uppsetningu hennar í Þjóð-
menningarhúsinu. Hönnuður sýn-
ingarinnar er Arni Páll Jóhannsson.
Grafískur hönnuður er Aslaug
Jónsdóttir. Sýningin verður opin
ffarn eftir vori.
Málverk eftir Carl Christen Anthon
iChristensen, 1831-1912.
Kvikmyndasafnið hefur áhuga á að ná
saman heilu eintaki af Borgarættinni en
kvikmyndin hefur ekki sést hér á landi
um langt skeið.
Fyrsta stórmyndin íslenska
Kvikmynd Nordisk
film eftir sögu Gunnars
Gtmnarssonar var afar
vinsæl á íslandi og hefúr
margsinnis verið sýnd
hér. Taka kvikmyndar-
innar var mikið ævintýri
á sínum tíma og var mik-
ið fjallað um fram-
kvæmd verksins í ís-
lenskum blöðum. Tökur
fóru fram í Reykholti og
víðar í Borgarfirði, í
Reykjavík á Amtmanns-
túninu þar sem Iðnaðar-
mannahúsið við Hall-
veigarstíg stendur nú, í
Hafharfirði og á Suðurlandi. Kom
kvtkmyndaliðið til landsins í byrjun
ágúst en 800 atriði voru fyrirhuguð í
tökum hér.
Gunnar Sommerfeldt, leikstjóri og
fyrrum leikari við Konunglega danska
leikhúsið, var leikstjóri Borgarætt-
arinnar og lék jafiiff amt aðalhlutverk-
ið. Hann hafði tekið þátt í nokkrum
leiknum kvikmyndum þegar hann tók
til við leikstjóm. Hann starfaði fyrir
Nordisk film ffá 1917.
Ekkert gott eintak til
Kvikmyndin var sýnd hér í tveimur
hlutum 1921 og var alltaf öðm hverju
á dagskrá í Gamla bíó fram eftir öld-
inni. Hún var sýnd í sjónvarpi fyrir
fjölda ára en hefúr ekki sést lengi.
Samkvæmt Þórami Guðnasyni,
forstöðumanni Kvikmyndasafns,
er til affit af 35 mm eintaki hjá
Kvikmyndasafni og hefur verið
áhugi á því um skeið að koma
kvikmyndinni í heillegra form í
samvinnu við Dönsku kvik-
myndastofnunina og Nordisk film.
Mikið starf er óunnið við að koma
heilu og hreinu eintaki saman. Líklega
hafa Ijósmyndir verið teknar í kring-
um kvikmyndagerðina og þá er dreif-
ingarsaga myndarinnar ókönnuð.
Gróður jarðar
Kvikmyndasafnið danska býr um
þessar mundir við nokkum fjárskort.
Endurgerð myndar af þessu tagi tekur
venjulega nokkur ár og í fjárveitingum
Gunnar Sommerfeldt leik-
stjóri og leikari Hann þótti
vera með mikla sviðsstæla í
kvikmyndinni
til Kvikmyndasafhs er.
ekki gert ráð fyrir end-
urgerð á elstu mynd-
um safnsins sem væri
þarft verk fyrir einka-
aðila sem vilja styrkja
þörf og brýn menning-
armál.
Þegar tökum á
Borgarættinni var lok-
ið beið Sommerfeldts
annað verkefhi sem
líka fjallaði um örlög
fólks í sveitum norð-
ursins. Gróður jarðar
eftir Knút Hamsun var
ffæg saga, og ekki dró
úr vinsældum hennar þegar Hamsun
fékk Nóbelsverðlaunin 1920.
Endurbætt eintök
Sommerfeldt sneri til Noregs og
gerði þar kvikmynd eftir sögunni sem
fór víða og aflaði honum nokkurrrar
viðurkenningar. Hefur norska kvik-
myndastofnunin nýlega látið endur-
vinna hana og er hún fáanleg í litaðri
gerð, en hún var lengi talið glötuð uns
eintak af amerískri útgáfu myndar-
innar fannst á síðasta áratug í
Hollandi.
Þá hefur Spielberg látið kosta end-
urgerð heimildarmyndar eftir
Sommerfeldt sem hann vann 1925 í
landinu helga, en Gunnar gerði þrjár
heimildamyndir á þriðja áratugnum:
um landið helga, Arabíu
og Etnu. Gunnar lést 1947»,
Gunnar Gunn-
arsson Varð
frægurum öll
Norðurlönd fyrir
Borgarættina.
BORGARLEIKHUSIÐ
Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3,103 Reykjavík
STÓRA SVIÐ
DRAUMLEIKUR
e. Strindberg. Samstarf: Leiklistardeild LHÍ.
Fö 20/5 kl 20, Fö 27/5 kl 20
Síðustu sýningar
HIBYLI VINDANNA
NÝJA SVID/LITLA SVIÐ/ÞRIDJA HÆÐIN
TERRORISMI
e. Presnyakov bræður
Fi 12/5 kl 20, Fö 20/5 kl 20
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
leikgerð Bjarna Jónssonar eftir
Vesturfarasögu Böðvars Cuðmundssonar
Su 8/5 kl 20, Fö 13/5 kl 20
Su 22/5 kl 20, Fi 26/5 kl 20
- Siðustu sýningar
HERI HERASON
e. Coline Serreau
í kvöld 7/5 kl 20, Lau 28/5 kl 20
- Síðustu sýningar
KALLI Á ÞAKINU
e. Astrid Lindgren
í samstarfi við Á þakinu
ídagkl 14-UPPS.
Su 8/5 kl 14 - Lau 14/5 kl 14 - UPPS.
Su 22/5 kl 14 - UPPSELT, Lau 4/6 kl 14
Su 5/6 kl 14, Su 12/6 kl 14, Su 12/6 kl 17
Lau 18/6 kl 14, Su 19/6 kl 14, Su 26/6 kl 14
PURPUBI ■ TONLEIKAR FABULU
Margrét Kristín Sigurðardóttir
Fi 12/5 kl. 21:00
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur.
í kvöld kl 20, Su 8/5 kl 20 - UPPS.
Fi 12/5 kl 20 - UPPS., Fö 13/5 kl 20 - UPPS.,
Lau 14/5 kl 20 - UPPS. Fi 19/5 kl 20,
Fö 20/5 kl 20, Fi 26/5 kl 20, Fö 27/5 kl 20
SVIK
eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI.SÖGN ehf. og LA
Fi 12/5 kl 20 -Aukasýning
RIÐIÐ INN í SÓLARLAGIÐ
e. Önnu Reynolds.
I samstarfi við leikhópinn KLÁUS.
I kvöld kl 20, Fö 13/5 kl 20, Lau 14/5 kl 20
- Siðustu sýningar
Börn 12 ára og yngri fá frítt í
Borgarleikhúsið í fylgd
fullorðinna
- gildir ekki á barnasvningar
Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is < Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin:
10-18 mánudaga og jrriðjudaga, 10-20 miðviku-, fimmtu- og fðstudaga
12-20 laugardaga og sunnudaga