Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2005, Blaðsíða 3
DV Fyrst og fremst
ÞRIÐJUDAGUR 10. MAl2005 3
Hún Helga gamla sem hér skokkar yfir Miklubrautina á
grænum karli segist fara allra sinna leiða gangandi þrátt fyrir
að vera komin á níræðisaldur.
„Ég var að koma frá augnlækninum sem er með aðsetur
niðri í Blindrafélagi," segir Helga létt á brún þegar hún mætir
blaðamanni hinum megin við götuna.
„Það er nú meira hvað maður hefur gengið í gegnum með
þessa blessuðu sjón. Ég var sett í augnaðgerð og það var settur
nýr augasteinn í mig en þegar ég kom úr henni, þá hafði sjón-
in bara versnað," segir Helga gamla í léttu spjalli. „Nú, ég spyr
lækninn þá hvort hann hafi nokkuð sett vitlausan augastein í
mig en það segist hann nú ekki hafa gert,“ tekur hin eldhressa
Helga fram.
Aðspurð hvort henni hafi þá ekki gengi illa að sjá græna
karlinn þegar hún þurfti að fara yfir hina miklu umferðargötu
segir Helga: „Gengið illa, nei, það er ég nú hrædd um ekki. Ég
hef alveg fulla sjón á hægra auganu. Það er bara það vinstra
sem er í ólagi."
Spurning dagsins
Hvar á að horfa á Eurovision?
Tuttugu manna
veislaheima
„Ég verð heima með partí fyrir
svona tuttugu manns og ætli
Selma verði ekki ofartega, ég
vona að hún verði allavega í
þriðjasæti."
Birna Ómarsdóttir, starfs-
maður í frystihúsinu á Dalvík.
„Væntaniega í
einhverju
Eurovision-
partíi sem er
ekki búið að
plana ennþá
og ég vænti
þess að við komumst langt þó
að við vinnum ekki.“
Dagný Ágústsdóttir skrif-
stofukona.
„Heima hjá
mér með fjöl-
skyldunni og
égheftrúáþví
að Selma nái
nokkuð langt
þótt við vinn-
um ekki. Ég segi að hún verði í
fjórða sæti."
Guðlaug Hallgrímsdóttir,
starfsmaður við öldrun.
„Ég bara veit
ekki hvort ég
horfí á Euro-
vision en efég
geri það þá
horfi ég á það
heima hjá mér
en þetta er ekki neitt stórt mál
fyrir mig en það er alveg pott-
þétt að Selma kemur til með að
ná mjög langt."
Hafdís Vera Emilsdóttir
einkaþjálfari.
„I sumarbú-
stað með
svona átta til
tlu manns og
svo verður
annað partí I
bústaönum við
hliðina á þeim sem ég verð ísvo
þetta verður tveggja bústaða
Eurovision-partí. Ég tel að Island
verði I einu afþremur efstu sæt-
unum."
Kári Þorleifsson nemi.
Nú eru níu dagar í undankeppnina fyrir Eurovision og ellefu í aðal-
keppnina og landsmenn eru byrjaðir að skipuleggja partí í tilefni
þessa. Hjá viðmælendum DV gætir bjartsýni enda allir á því að
Selma Björnsdóttir muni verða ofarlega (keppninni. Keppnin hef-
ur notið mikilla vinsælda og nú má búast við að götur og stræti
landsins tæmist þegar Selma stígur á svið,enda vilja margir meina
að okkartími sé nú loksins kominn.
Á gömlu myndinni í dag sést
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir,
prófessor £ mannfræði, taka í hönd
þáverandi forseta íslands, Vigdísar
Finnbogadóttur. Þetta var árið 1983 í
kjölfar þingkosninganna þar sem
Kvennalistinn bauð í fyrsta skipti aft-
ur fram frá því snemma á síðustu öld.
„Þetta var árið 1983, eftir að Kvenna-
listinn hinn síðari bauð fram í fyrsta
sinn," rifjar Sigríður Dúna upp. „Vig-
dís Finnbogadóttir for-
seti íslands boðaði for-
menn alfra stjómmála-
flokka til sfn og þar með
var ég boðuð á hennar
fúnd. Þetta var nú nokk-
uð merkilegur atburður
því þetta var í fyrsta sinn
sem tvær konur ræddu sín
á milli um stjómarmyndun á
íslandi." Myndin sem hér er með birt-
ist víða í fjölmiðlum á þessum tíma
þegar Sigríður Dúna var ein af vonar-
stjömunum í íslenskri pólitík. Hún er
nú prófessor í mannfræði við HÍ.
„Nei, ég sakna nú ekki þessara tíma,"
segir Sigríður, sátt við sitt.
ÞAÐ ER STAÐREYND...
Séns Algengt er aö nota orðið séns í
þeim skilningi að eiga möguleika á ein-
hverju.jafnvel karla- eða kvennafari.
Orðið mun vera hingað komiö úr ensku
(chance). I ensku rataði orðið úr latlnu
þarsem sagtvar
„cadentia'i merkingunni
teningakast. Þrátt fyrir
þessar frómu sifjar setur íslensk orðabók
Menningarsjóðs spurningamerki við
orðið. Það þýöir að orðið séns beri að
forðast I íslensku.
...að efsólin hyrfiskyndilega myndum
við ekki átta okkur á þvi fyrr en eftir 8
minútur og 20 sekúndur. Þaðersá timi
sem það tæki Ijósið að
færa okkur þessar athygl-
isverðu upplýsingar.
Málið
„Þetta verð-
ur ekki líkt
nokkrum sköp-
uðum hlut."
Siguxjón Kjartans-
son um nýjan sjónvarpsþátt hans
og Jóns Gnarrs. FréttablaÖið 9. maf.
Kona boðar konu til stjórnarviðræðna
ÞAU ERU BRÆÐRABORN
Rallkappinn & innkaupastjórinn
Rúnar Jónsson, fremsti rallökumaður landsins til
marga ára, og Lára Ómarsdóttir, innkaupastjóri I
Offíce 1, eru bræðrabörn. Rúnar er sonurJóns Ragn-
arssonar, sem var fremstl rallökumaður landsins
áöur en Rúnar tók við kyndlinum afhonum, og Lára
er dóttir bróðurJóns, Ómars Ragnarssonar, hins
landskunna fréttamanns og skemmtikrafts. Rúnar
hefur verið flottur i týsingum á Formúlu 1 kappakstr-
inum áRÚVog Lára komast I fréttirnar þegar hún
neitaði að kaupa inn kiámbiöð I Office i-búðirnar.
i.
Dalvegi 4 • Sími 564 4700 Hamraborg 14 • Sími 554 4200
Kópavogi
Opið: Mánud.-Föstudag 08:00 - 18:00
Laug. 08:00 -16:00 Sunn. 09:00 - 16:00
Opið: Mánud.-Föstudag 06:00 -18:00
Laug. 06:00 -17:00 Sunn. 07:00 -17:00
jqJjq f n.irimn f / i
. . .. á S3£-v ’-í* CgH |