Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2005, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ2005
Fréttir DV
Bauð ekki
ÍX-FM
Magnús Ragnarsson, sjón-
varpsstjóri Skjás eins, neitar
þeim sögusögn-
um að Skjár
einn hafi gert
formlegt tilboð í
Pýrít ehf., sem
rekur útvarps-
stöðvamar Kiss
FM og XFM. „Ég veit ekki
hvað ffamtíðin ber í skauti
sér en í augnablikinu erum
við ekki með nein áform um
að kaupa útvarpsstöðvar,"
sagði Magnús í gær. Sigurður
Hlöðversson, einn þriggja
eigenda Pýrít, sagði félagið
ekki vera tíl sölu. Hann væri
þó alltaf opinn fyrir tilboðum.
„Það er allt til sölu fyrir rétt
verð,“ sagði Sigurður.
Mikil
hækkun
hjá deCODE
Gengi hlutabréf
deCODE hækkaði í gær
um tæp 12 prósent á
bandaríska hlutabréfa-
markaðnum. Gengið end-
aði í 7,05 dollurum á hlut.
Fyrir tæpum mánuði var
gengið 5,10. Hækkunin er
því 38 prósent. Aðeins er
um ein vika síðan de-
CODE tilkynnti um gríð-
arlegt tap á rekstrinum á
fyrsm þremur mánuðum
þessa árs. Segja talsmenn
fyrirtækisins það vera
vegna mikils kostnaðar
sem fylgi vinnu félagsins
að þróun nýrra lyfja.
Bjórinn í
búðimar?
Hafsteinn Þór Hauksson,
lögfræðingur og formaður SUS.
„Rfkið á ekki að standa í versl-
unarrekstri. Bjór er lögleg vara
sem flestirkunna sem betur
fer að umgangast. Þaö yrði til
bóta fyrir neytendur að fá bjór
og léttvfn í verslanir en að
sjáifsögðu þyrfti að setja hörð
viðurlög við sölu til ung-
menna. Ég held að hafta-
stefna, hvort sem hún birtist I
bjórbanni eða ríkiseinokun,
bæti ekki áfengismenninguna
á Islandi."
Hann segir / Hún segir
„Ég sé ekkert þvl til fyrirstöðu
að bjór og léttvfn verði selt í
afmörkuðum hluta verslana.
Ég er frjálslynd f þessum efn-
um eins og öörum. Þetta mun
gerast fyrr eða síðar og reynsl-
an afbjórnum sýnir okkur að
drykkjusiðir breytast ekki til
hins verra með auknu aö-
gengi. Hins vegar finnst mér
að sala á sterku áfengi ætti
enn að vera í höndum rlkis-
ins."
Margrét Sverrisdóttir,
framkvæmdastjóri Frjálslynda
flokksins.
Jón F. Hjartarson, skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, segir það
ekki skólanum að kenna að kæra hans hafi leitt til ákæru á hendur manni sem er
75% öryrki með Asperger-heilkenni. Fyrsti íslenski hakkarinn fyrir dómi gerði það
eitt að nota lykilorð sem öllum var aðgengilegt.
I Jón Frímann Jónsson
Asperger-veikur áhuga-
maður um tölvur er nú
| ákærður fyrir að brjótast
inn í skólann sinn - f
gegnum netið.
Skólameistari segist ekki hafa
vitað al Asperger-heilkenainu
„Okkur varðar ekkert um það hvað lögreglan gerir og dómstólar
gera. Það eru bara lög í landinu," segir Jón F. Hjartarson, skóla-
meistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, um ákæru á hend-
ur Asperger-veikum fyrrverandi nemanda sem sakaður er um að
hafa brotist inn í tölvukerfi skólans.
Jón Frímann Jónsson, 24 ára gam-
aJJ 75% öryrki á Hvammstanga, hefur
verið ákærður fyrir tölvuinnbrot í
skólann haustíð 2002. Honum hefur
verið boðin sátt sem hljóðar upp á
tveggja ára skilorðsbundinn fangels-
isdóm, en málið er fyrir Héraðsdómi
Norðurlands vestra um þessar
mundir.
Eftir því sem næst verður komist
er Jón Frímann fyrsti íslendingurinn
sem ákærður hefur verið fyrir að
„hakka" sig inn í tölvukerfi, eða bijót-
ast þar inn. Það gerði hann með því
að nota lykilorð kerfisstjórans sem lá
á glámbekk og öllum aðgengilegt inni
á sameiginlegu tölvukerfi skólans.
Skömmu síðar hrundi kerfi skólans
með 300 þúsund króna tjóni að sögn
skólameistara.
Fikt námsmanns
Sigurjón Þórðarson alþingismað-
ur er einn þeirra sem gagnrýnt hafa
málsókn skólans á hendur nemanda
sem auk þess að hafa einungis fiktað
í tölvukerfinu sé með Asperger-heil-
kenni, vægt afbrigði einhverfu. „Mér
þykir mjög einkennilegt að skólayfir-
völd velji að kæra hann til lögregl-
unnar fýrir „glæpinn". Það hdýtur að
vera einhver önnur leið til að koma í
veg fyrir fikt námsmanns við illa lok-
að tölvukerfi fjölbrautaskóla," skrifar
Sigurjón á vef sínum.
Eiríkur Þorláksson, fráfarandi for-
maður Umsjónarfélags einhverfra,
segir að dómurinn hljótí að taka tillit
til þroskafrávika. „Það er eðlilegt að
kallaðir verði fyrir sérfræðingar sem
geta sagt til um öðruvísi heimsmynd
og viðbrögð þeirra sem hafa
Asperger. Mér fyndist eðlilegt að slík-
ir yrðu leiddir fram í dómtöku þessa
máls. Þá sé hægt að sýna ffarn á að
væntanlega sé þetta ekki gert af illum
hug eða ásetningi. Bara af því að við-
komandi gat þetta og langaði að
prófa,“ segir Eiríkur.
Skólameistari ónáðaður
Jón skólameistari segist hafa orðið
fyrir miklum óþægindum án nokkurs
tilefnis, vegna ákærunnar á hendur
fyrrverandi nemanda sínum. „Ég hef
orðið fyrir því ónæði sem felst í því að
menn, sem ekki þekkja til málanna,
hafa skrifað mér bréf. Það hafa verið
mjög fordómafúll bréf," segir hann
og bætir við að ósanngjamt sé að
álasa skólanum. „Við kærðum bara
verknaðinn en ekki einstaklinginn.
Mér finnst það ósanngjamt að gera
okkur að sakamönnum í málinu.
Þegar brotíst er inn í hús er ekki ann-
að að gera en að kæra það. Almennt
þegar innbrot á sér stað er verknað-
urinn kærður en ekki gerandinn. Við
urðum fyrir innbrotí og skemmdum
á tölvubúnaði sem varð til þess að við
„Ég heforðið fyrir því
ónæði sem felst í því
að menn hafa verið
að skrifa mér bréfsem
ekki þekkja til mál-
anna
þurftum að greiða hundmð þús-
unda. Við vissum ekki hver væri
ábyrgur. Við könnuðum málið ekkert
í upphafi. Við kærðum bara og lögð-
um öll gögn málsins í hendur lögregl-
unnar," segir hann.
Jón Frímann hefur haldið því
fram að hann hafi viðurkennt
verknaðinn fýrir aðstoðarskóla-
meistara áður en lögreglan var köll-
uð til og gerði húsleit í herbergi
hans á heimavist fjölbrautaskólans.
Þar fundust meðal annars rúmlega
Qömtíu afritaðar kvikmyndir á
geisladiskum sem hann er einnig
ákærður fyrir að hafa átt.
jontrausti@dv.is
Keflavíkurglæpon aftur í héraðsdómi
Syndalistinn of langur
fyrir lögmann
Gunnar Ingi Guðmundsson bíð-
ur nú þess að mál hans verði þing-
fest í Héraðsdómi Reykjaness.
Gunnar er ákærður fyrir eignaspjöll,
þjófriað, fíkniefnabrot og líkams-
árás. Verjandi hans bað dómara í
gær um frest til að ráðfæra sig við
Gunnar. Sagðist ekki hafa náð að
fara yfir öll ákæruatriðin með skjól-
stæðingi sínum. Dómarinn féfist á
þetta enda listinn langur sem verj-
andinn þarf að fara yfir með Gunn-
ari.
Gunnar afplánar nú þegar eins
árs fangelsisdóm á Litla-Hrauni fyrir
afbrotaöldu sem hann stóð fýrir
með félögum sínum í Reykjanesbæ
og Reykjavík á síðasta ári. Þeir
rændu byssum, frömdu fjölda inn-
brota, neyttu eiturlyfja og seldu þýfi.
Gunnar Ingi Guðmundsson var
dæmdur í árs fangelsi en hann hafði
brotið skilorð.
Einna alvarlegast þótti þegar
Gunnar Ingi, ásamt þremur félögum
sínum, stóð að innbroti á heimili í
Keflavík og rændi þaðan haglabyss-
um og rifflum. Gunnar Ingi skipu-
lagði innbrotið og fékk hina til liðs
við sig. Sömu haglabyssur voru not-
aðar afsagaðar við rán í Bónus í
Kópavogi í desember.
Gunnar Ingi Guðmundsson
Fór fýluferð I gær, verjandinn bað um frest.
Árni vill eldri
borgara
Árni Magnússon félagsmálaráð-
herra sagðist á landsþingi Lands-
sambands eldri borgara í gær hugs-
anlegt að þeir málaflokkar sem snú-
ast um þjónustu og aðstoð við aldr-
aða flytjist frá heilbrigðisráðuneyti
til félagsmálaráðuneytis. Árni talaði
um mikilvægi þess að að rödd aldr-
aðra heyrist í mótun og skipulagn-
ingu þeirrar þjónustu sem þeim er
ætluð. í þessu ljósi hefði hann velt
fyrir sér kostum og göfium þess að
ákveðinn hluti af starfsemi Trygg-
ingastofnunar flytjist til félagsmála-
ráðuneytisins.